Dagur


Dagur - 16.05.1970, Qupperneq 4

Dagur - 16.05.1970, Qupperneq 4
4 Skriístofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Síntar 1-11-66 »g 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLENGUR OAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMtJELSSON Prentverk Odds Björnssonar hi. ÖFLUGT STARF ÞRÁTT FYRIR annir vorsins, og að bæði efstu menn og fleiri á lista Framsóknarmanna séu störfum hlaðnir, enda margir þátttakendur í athafnalífinu, er nú unnið þróttmik- ið undirbúningsstarf kosninganna í bænum meðal Framsóknarmanna. Skrifstofa flokksins í Hafnarstræti 90 er opin alla daga frá klukkan 9 að morgni til kl. 10 að kvöldi og stjórnar Haraldur M. Sigurðsson þar verkum. Þangað streyma sjálfboða- liðar til starfa, einkum þegar önn dagsins lýkur á venjulegum vinnu- stöðum — og önnur skrifstofa er í Glerárhverfi. Þangað sækja menn upplýsingar og aðstoð og eru jafn- framt vinnusamir veitendur í yfir- gripsmiklu undirbúningsstarfi, því áhugi er mikill. Forvígismenn hinna flokkanna fara ekki leynt með það, hvílík deyfð er þar ríkjandi. Og blöð þeirra bera því bezt vitni. — Aumingja íhaldið virðist utangátta; getur í hvorugan fótinn stigið í þessum kosningum; fær sig ekki til að taka upp jákvæða baráttu í bæjarmálum, því þá finnst Sjálfstæðismönnum, að þeir séu að styðja framkvæmdastefnu Framsókn- ar. Þeir geta heldur ekki ráðizt á einn eða neinn flokk út af bæjarmál- um, því þeir hafa nauðugir, viljugir fallist á framkvæmdastefnuna. En svo treglega sem íhaldinu gengur tungu að hræra, er Alþýðuflokkur- inn enn aumari — algerlega stefnu- laust rekald, glefsandi í samborgar- ana, hlerandi og snuðrandi, og blað hans dottið niður í miðri kosn- ingabaráttunni. Kommar og hálf- kommar em nú harðir andstæðingar og eiga það eitt sameiginlegt, að reyna að notfæra sér kaupgjaldsmálin til framdráttar í kosningunum. En í kjarabaráttu þess vegna máttvana eins og áður, og líklegastir til þess að semja enn einu sinni af sér, eins og þeir hafa gert á undanförnum árum, og síðan hælt sér af. Of margir glepj- ast þó til að kasta atkvæðum sínum á þessi flokksbrot í stað þess að fylkja sér um sterkasta íhaldsandstæðing- inn, Framsóknarflokkinn. Hann einn virðist vera fær um það hér á Akur- eyri, að stjóma vel því framkvæmda- tímabili, sem nú er, og öllu öðru fremur verðúr að halda áfram. Um það, fyrst og fremst, eiga kosning- arnar að snúast, hvort svo skuli fram haldið í framfaraátt, eða einhver önnur stefna upp tekin. □ u gamansögur, heldur aS benda á, að' þessi mikli athafnamaður og þjóðhagasmiður má eflaust telja einn af höfundum þeirrar verk- menningar, sem síðan ruddi sér til rúms, og þess iðnaðar, sem orð hefur farið af við Eyjafjörð og ekki sízt á Akureyri. Fram að síðustu árum var Þorsteinn talinn barnlaus mað- ur því börn þeirra Margrétar Þorláksdóttur í Skriðu, urðu skammlíf. Nú þykir sannað, að Þorsteinn hafi, er hann fyi-st var við smíðanám á Akureyri og áður en hann sigldi til „for- frömunar“ í iðn sinni, getið barn við konu einni hér í bæ, og ól hann hana síðan upp að nokkru. Kona sú giftist íslenzk- um manni og fluttu þau til Dan merkur og er allmikill ættbogi :af þeim kominn þar og í fleiri löndum utan íslands. En hvað sem þessu líður, var Þorsteinn upphafsmaður margra nytsamra nýjunga og brautryðjandi í byggingaiðnaði og skipasmíðum við Eyjafjörð. Það er því vel þess vert, að iðn- aðarmenn minnist hans, og að varðveitt sé það hús, þar sem hann löngum vann að smíðum sínum og fyrr var getið. □ Heíldaráætlun um uppbygginp ferðamála á Ak Tíuþúsundasti gesturinn tekur á móti konfektkassa frá fornianni Leikfélags Akureyrar. (Ljósmyndastofa Páls) Tíubúsundasti leikhúsgestur LA í FYRRAKVÖLD kom tíuþús- undasti leikhúsgesturinn -á þessu leikári, á 17. sýningu Jör- undar hjá Leikfélagi Akureyr— ar. Er þetta met-aðsókn í bæn- um, og ber að fagna því, að sýrr- ingar hafa verið óvenjulega vel Flugfélags Islands á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum. Til Fagurhólsmýrar verður flog ið á fimmtudögum og sunnu- dögum. Til Húsavíkur verður flogið á þriðjudögum og föstu- dögum. Til Raufarhafnar og Þórshafnar verður flogið á mið vikudögum frá 1. til 27. maí og frá 9. til 30. september, en á fimmtudögum frá 4. júní til 3. september. f vetur hefur verið flogið til Norðfjarðar tvisvar í viku og til maíloka verður flog- ið þangað á þriðjudögum og laugardögum. Flugfreyjur í nýjum búningum FLUGFREYJUR Flugfélags ís. lands; hafa klæðzt nýjum bún- ingum. Nýi einkennisbúningur inn er dragt, ásamt rauðuni hatti. Blússa er Ijósblá. Skór og veski eru í bláum lit. Hanzkar 'hvítir. Við framreiðslustöff í flugvélum eru nötaðar sérstak- ar svuntur rauðar að lit. Yfir- höfnin ex blár frakki með lausu vetrarfóðri. Við frakkann ef blá hetta sem einnig má taka af. Snið dragtar og frakka er franskt, valið af Kristínu Snæ- hólm Hansen yfirflugfreyju og Rúnu Bínu Sigtryggsdóttur að- staðaryfirflugfréyju. Enrifrémuf hefur Kristín Snæhólm Hansen hannað blússur, hatta og svunt- ur. Efni í dragt og frakka gr ullarkamgarn en blússur og svuntur úr baðmull og terylene. Dragtir og frakki eru saum- aðar hjá Caríta h.f. í Reykja- vík úndir -umsjón Þórðar Guð- jónssonar yfirklæðskera. Blúss- ur og svuntur eru saumaðar hjá Heklu á Akureyri en hattar exu frá Walter Wegglitd. i London. Bláar töskur við búninginn úr dhérry lák eru búnar til hjá Bon Cut i Kaupmannahöfn. i (Fréttatiikynning ). sóttar og Leikfélagið hefur unn ið af kappi með nýjum kröftum á liðnum vetri. Sumir hafa fallið í þá gryfju, að ræða og rita mjög óheppilega um starfsemi L. A. í vetur og blandað þar saman leiklist og pólitík. Það á ekki að gera. Leik listin á að njóta sannmælis, hvort sem leikarar eru rauðir eða grænir utan leikhússins. Sýningin í leikhúsi bæjarins í fyrrakvöld var 66. sýningin þar á þessu leikári. En tíuþúsundasti gesturinn var Þórey Bergsdóttir hjúkrun- afkona og fékk hún gómsæta gjöf á staðnum og fær frímiða L. A. á næsta leikári. Þess ber að geta, að sýningar á Jöi-undi annan hvítasunnudag falla niður, en 18. og síðasta sýning verður 21. maí, fimmtu- dag. □ I Stefna Alþýðuflokksins j |er engin - nema bitl-j I ingasýki og þjónusta j | við íhaldið. | "lrIHMMMIIimMIHMMnMMMMMimilmMMMMMMMIIM» HEIMILIÐ - veröld innan SYNINGIN „HEEMILIÐ — Ver öld innan veggja“ er fyrsta sýn FERÐAMÁLAFÉLAG Akur- eyrar hefur ákveðið að beita sér fyrir heildaikönnun á upp- byggingu ferðamála á Akur- eyri. Ætlunin er, að könnun þessi verði mjög víðtæk og nái til flestra þátta fei'ðamálanna. Með þessu verki er stefnt að því að leiða betur í ljós en hægt hefur verið, hvað gera þurfi á einstþkum sviðum ferðamái- anna á Akureyri til þess að straumur ferðamanna aukizt þangað og fullt samræmi sé í þeirri ferðamannaþjónustu, sem þar er að fá. Á þessum athug- unum er ætlunin að byggja gerð framkvæmdaáætlunar í ferðamálum Akureyrar, sem beindist alveg sérstaklega að því að bæta þar öll skilyrði til vetraríþrótta og vetraríerða- mennsku. Athuganir þessar munu ná til — svo dæmi sé tekið — hversu mikið gistirými sé til staðar í bænum á tíma- bilinu marz—júní, sem hægt er að bjóða innlendum og erlend- um vetrarferðamönnum, hver áfoim séu um aukningu þess þannið að kostur sé á að aug- lýsa gagngert hópferðir eidendis til vetraríþróttaiðkana á Akur- eyri, hvaða aðgerða sé þörf í Hlíðaríjalli til þess að tryggja skíðaferðir fram-í júní og síðar til skíðaferða allt sumarið á V indheima j ökli, hvaða líkur séu á að allar slíkar fyrirætl- anir geti borið arð o. s. frv. Náttúruskilyrði á Akureyri til iðkana vetraríþrótta eru mjög ákjósanleg og veðursæld þar einstök, svo sem kunnugt er og frarn kemur í veðurfars- skýrslum. í sambandi við upp- byggingu vetrarferðamálanna er þó mest um vert, að á Akur- eyri er rúmlega 10 þúsund manna byggð í næsta nágre'nni við skíðaland, þar sem stunda má skíðaferðir fram á vor og raunar allt sumarið. Vegna mik illar notkunar bæjarbúa úr svo öflugu byggðarlagi á skíðamann virkjum, auk gesta, nýtast þau betur en ella og ennfremur býð ur svo mannmargt og vaxandi byggðarlag upp á þjónustuum- hvei-fi sem er ómetanlegt til dægradvalar og þægindaauka fyrir ferðamenn. Af þessum ástæðum er alveg sérstök að- staða til uppbyggingar Akur- eyrar sem vetrarferðamanna- miðstöðvar, svo sem allir sér- fróðir menn á þessum sviðum hafa margoft bennt á. Ferðamálafélag Akureyrar hefur snúið sér til allra þeiiTa aðila, sem hagsmuni hafa ai$ gæta vegna þeirrar uppbygg- ingar í ferðamálum Akureyrar, sem stefnt er að og óskað sam- starfs við þá og fjárhagsstuðn- ings til þess að framkvæma þessa könnUn og áætlunargerð. Meðal þessarra aðila eru hótel- rekendur á Akureyri og' emnig öll flug- og skipafélög, sem annast farþegaflutninga að og fró landinu, þar sem aukinn ferðamannastraumur yfir vetur inn og snemma vors er brýnt, hagsmunamál þessarra aðih*, Fyrstu viðbrögð þeirra við mál;» leitan félagsins hafa verið mjög jákvæð og hvetjandi auk þes: i hefur bæjarstjórn Akureyra.1 samþykkt að veita kr. 200.000 ;i þessu ári til þróunar ferðamála og réði það ásamt góðum undi.7 tektum úrslitum um að ráðis l verður í að hefja þetta áætluna verkefni, en með slíkum vinnu- brögðum ættu þeir fjölmörg i aðilar, sem hag hafa að upp« byggingu ferðamála á Akureyri allir að geta lagzt á eitt um afi ná þeim fyrirfram ákveðn \ markmiðum í heildaruppbygg . ingunni, sem hverju sinni t : talið æskilegt og hagkvæmt a,3 stefna að. Ferðamálafélag Akureyra’ Samsöngur Karlakórs Ak veggjíi ing sinnar tegundar hérlendis. Hún hefur þann tiigang að géfa landsmönnum kost á að kynn- ast á einum stað framboði flest- allra þeirra hluta, sem bústofn og rekstur heimilis varðar. Sýningar sem þessi eru ’haldn ar einu sinni til tvisvar á ári í mörgum borgum erlendis, en kunnust þeirra er sýningin „Ideal Home“ í London. Alls munu um 140 fyrirtæki innlendra framleiðenda og er- lend fyrirtæki fyrir milligöngu umboðsmanna sinna hér, hafa sýningardeiidir og er allt rými Sýningahallai-innar nýtt. Auk sýningadeilda fyrirtækj- anna mun sýningarstjórn koma upp sérsýningu um þróun heim ilishalds hér á landi undir nefn- inu „Hvaðan komum við — hvert förum við.“ í veitingasal verða flutt stutt erindi um ýmis legt er varðar heimilishalð, og loks verður margt til skemmt- unar og fræðslu. Til- þess að auðvelda fólki að komast á sýninguna á sem hag- kvæmastan hátt hefur samkomu lag verið gert við Flugfélag ís- lands um 20% afslátt á fargjaldi fyrir hópa, 15 eða fleiii. KARLAKOR AKUREYRAR efndi til samsöngva dagana 8., 9. og 10. maí sl. Voru þeir í til- efni af 40 ára afmæli kórsins, en hann er stofnaður 26. janúar 1930. Söngstjóri var Guðmund- ur Jóhannsson og Áskell Jóns- son stjórnaði söng eldri kór- félag'a. Undirleik annaðist Ragn heiður Árnadóttir, nemandi í Tónlistarskóla Akureyrar. Ein- söngvarar voru Hreiðar Pólma- son, Ingvi Rafn Jóhannsson, Eiríkur Stefánsson og Jóhann Konráðsson. Fyrsti söngstjóri kórsins var Áskell Snorrason tónskáld, og vakti söngstjórn hans verð- skuldaða athygli á sínum tíma. Karlakór Akureyrar hóf göngu sína við þau skilyrði, að hópur erfiðismanna kom saman til að iðka söng að afloknum löngum og ströngum vinnudegi. Raddimar voru upp og ofan eins og gengur, en þessi kór náði þeim árangri, sem ekki getur heitið neitt anriað en afrek. Ég man ekki betur en hann væri um tíma talinn einn allra bezti kór landsins. Söngur hans þótti einkennast af nákvæmum og strangöguðum vinnubrögð- um stjórnandans, ríkri fágun hans og næmum tónlistar- smekk. Karlakór Akureyrar hefur úr talsvert háum söðli að dettla, og því miður hefúr mjög lækkað á honum risið. Því valda að sjálf- sögðu ýmsar ytri aðstæður og örðugleikar, en þó aðaliega staðnað viðhorf og visst áhuga- leysi um tónlist almennt. Merkisafmæli eru oft nefnd tímamót, en einkum ber að láta á þau sem hoila áminningu um það, að tíminn iíður vægðar- laust. Á þessu fertugsafmæli Karla- kórs Akureyrar vildi ég bera fram þá ósk honum til handa, að kórfélagaiTiir færu nú að hug leiða af fullu raunsæi, hvar þeir standa og hvað þeir ætla sér í framtíðinni. Ég hygg, að mörgum kórfélag anum hafi undir stjórn Áskels Snorrasonar boðið í grun, að söngur og tónlist er ekki endi- lega hávaði og aftur hávaði. Það er vafalaust, að kórinn hef- ur fram eftir árum búið að þeim grunni, sem fyrst var lagður. Á kórinn að halda áfram að hjakka í sama farinu, að vera í hæsta lagi nokkurs konar skemmtifélag, sem er sjónarmið fyi’ir sig og ekki skal kastað neinni rýrð á sér á parti. Þá verða menn bara að gera sér Ijóst, að þeir eiga ekkert erindi upp á tónleikapall. Vilja ménn að öðrum kosti freista þess að horfa ögn lengra og umfram allt hærra og færast í fang verkefni, sem gera ein- hveijar kröfui’, jafnt til iðkendh sem áheyrenda? Langar menn til að læra eitt- hvað um tónlist og vanda söngs ins og kynnast tónverkum, sem eitthvert gildi hafa, í stað þess að tönnlast einlægt á sömu sykurmolunum ? Ég get fátt hugsað mér öilu fráleitara að eyða tíma og orku í að fást við en t. d. allt þetta rósaverk, sem einkenndi þessa söngskrá af langmestu leyti, rétt eins og það dynji ekki nóg yfir mann úr öllum áttum af því taginu. Slík lög eiga lítið erindi og þjóna litlum tilgangi ailra sízt þeim að víkka músík- alskan sjóndeildarhring manna. Af tuttugu lögum var harla fátt, sem verulegt svipmót bar, og efnisvalið var í heild of stefnulaust. Ég nefni tvö lög, sem skáru sig úr. Lagið „Skot- liðarnir" eftir R. Schumann er eins og allir vita svipmikið og stórt í sniðum. Það var aftur á móti helzt til dauflega flutt. Þá er íslenzka þjóðlagið „Ungur ‘þótti ég með söng“ skemmtilegt lag ag var einsöngur Eiríks Stefánssonar til piýði. Sama mátti segja um söng Jóhanns Konráðssonar, en það lag sem hann flutti var miður heppilega valið. Væri ekki ráð, að kórinn syngi meira af íslenzkum þjóð- lögum en gert hefur verið? Það gegnir furðu, hve þau eru ein- lægt sniðgengin. Mér er vel ljóst, að það er hægur vandi að setja út á, en það haggar ekki þeM'i slað- reynd, að eigi kórar yfirleitt a.J hafa einhvern grundvöil sinna tilveru, sem takandi sé alvai lega, þá verða þeir aö setja se ■ mark, ástunda raddþjálfun ötu. lega og fylgja vissri stefnu i verkefnavali. Það hlýtur ad vera megintilgangurinn mel siíkri starfsemi aö giæða tór, • listaráhuga og efla tónmennr, og hafa jafnframt eitthvað þa.-l að flytja áheyrendum, sem. einnig þeim sé íengur aö. Þá fyrst er betur farið eix heima setið. Að lokum er skyit að get i þess, að mer virtist söngur eldr t kórfélaga mjög bera af öðru, sem framreitt var að þessu sinr t af hálfu Karlakórs Akureyrar, S. G. 1 - Atvinnuleysi utrým (Framhald af blaðsiðu 8). Það vita allir, er til vinnu • bragða Sjálfstæðismanna .! bæjfirstjórn þekkja, á mejðan þeir réðu meiru en nú, að það- an er engrar forystu að væntn um verklegar iramkvæmdir ne afskipti af atvmnumalum. Þeirra hagsmunir liggja á öðr- um sviðum. Með þvi að athnga listann yfir iánin, stm Íslendingur-Isafold birtir, getur 'íika river og einn velt því fyrir sér, hvei-ju af þcs ; um málum Sjáifstieðismenn 'hafi barizt fyrir. -En lánalistinn er þeasi: Til Sútunarverksmiðju SÍS 39.0 miilj. kr. Til bæjarsjóða vegna Iðnskólabyggingar 18.6 millj. kr. Til bæjarsjoðs vegna hitaveituframkvæmda 3.5 millj. kr. Tii Hafnarsjóðs vegna hafn- arframkvæmda 15.0 miilj. kr. Til Utgerðarfélags Akureyringa h.f. 11.0 millj. kr. Til Slipp- stöðvarinnar hi. «.0 miilj. kr. Til Almennu toilvörugeymsiunn ar 4.6 millj. kr. Og til annarra aðila 12.0 millj. kr. } Dagu kemur næst út ilmmtud. 21. maí. Á að varðveita gamla skipasmíðahúsið? Margxét Þorláksdóttir. á Skipalóni var ekki aðeins skrítinn karl, eins og munn- mælasögur vitna um, heldui’ stói-mei'kur brautryðjandi á mörgum sviðum. Þorsteinn Daníelsson byggði árið 1843 skipasmíðahús það á Skipalóni er enn stendur þair, Og er það 13x7 metrar og 6 meti-a hátt. Þar smíðaði hann þilskipið Orra og gerði það út ásamt einum sveitunga sinna, og síðan miklu fleh'i skip og stærri og fleytti þeim til sjávar. Þorsteinn Davíðsson. Minjasafnsins, því húsið er ein- stakt í sinni röð og margir hafa hug á að varðveita það. En Þorsteinn Daníelsson gerði meira en smíða skip og báta. Hann smiðaði kirkjur svo sem á Möðruvöllum í Hörgár- dal og á Bcakka í Oxnadal. Hann var líka einskonar faðir Odd- eyrar, átti hana alla um skeið en seldi hana síðan Gránufélag inu og byggði hús þess við Strandgötu ei' enn standa. Og á Oddeyri byggði hann Lund, Mót skólastjóra að Laugum ÞRIÐJA fræðslu- og kynning- armót Skólastjórafélags íslands, fyrir skólastjóra og yfirkennara í skólum skyldunámsstigsins, verður haldið að Laugum í S.- Þing,, dagana 19.—25. júní í sumar. Á mótinu verða fluttir fyxir- lestrar og erindi um mörg helztu mál, sem efst eru í hug- um skólamanna. Inngangserindi mótsins flytui' próf. Matthías Jónasson, neniandinn í skóla- kerfinu. Þá verðá flutt eriridi um starfsaðstæður og starfs- hætti skólastjóra, skýrslu- og áætlanagerð í skólum, mála- kennslu í barnaskólum, skóla- mál dreifbýlisins, endumiennt- un kennara, bókasöfn og les- stofur í skólum, skólasjónvarp, eðlisfræðikenuslu og sálfræði- þjónustu. Þá mun menntamálaráðherra og skólestjóri Kennai'askólans sitja fyrír evörum um þau mál, sem eru á brennidepli meðal skólamanna, ný iagafrumvöi'p, ný ft'æðaiulög og reglugei'ðir, nýjungai’ á ákólamálum, Kenn- araskóiann og kennai'amennt- unina. Margir Icunnir ekólapienn og ræðurmmn flytja fyrirlesti'a, erindi og ræeur á mótiriu, og eru meðal þeirra: Próf. Matt- hías Jónasson, dr. Broddi Jó- hannesson, dr. Gylfi Þ. Gísla- son, Benedikt Gunnarsson verk fræðingui', Sigurður Þorkelsson fulltrúi, Hörður Bergmann dönskukennari, Heimir Áskels- son enskukennari, Valgarður Haraldsson námsstjóri, Jóhann Skaptason sýslumaðui', Stefán Ólafur Jónsson námsstjóri, Stefán Júlíusson bókafuiltrúi, Benedikt Gröndal alþm. for- stöðumaður kvikmyndasafns ríkisins og Óm Helgason eðlis- fræðingur. Auk þessara fyrir- lesara taka margir skólastjórar meðal þátttakenda virkan þátt í störfum þingsins. Farið varðiu' í kynningar- ferðir um Þingeyjarsýslur og mun þetta verða um 80 manna hópur. Myndin er frá Laugarvatni 1966, en betri helmingur skóla- mannanna sækir kynningai-mót in, og í þessum hópi er séra Sigurður Einárssön í Holti. Sumaráæflun HINN 1. maí gekk sumaráætl- un innanlandsflugs Flugfélags íslands í gildi. Ferðum Faxanna innanlands fjölgar nú í áföngum út maímánuð og fram í júní og nær háannatímabilið fram í síð- ari hluta september, en þá fækk ar ferðum nokkuð á ný. Eins og undanfarin tvö sum- ur, bera Fokker Friendship skrúfuþoturnar hita og þunga flugsins en DC-3 flugvélar verða notaðar þegar Friendship flugvélarnar fara í fyrirfram ákveðnar skoðanir og eftirlit. Eftir að sumaráætlunin er að fullu gengin í gildi verður ferða fjöldi til einstakra staða frá Reykjavík sem hér segir: Til Akureyrar verða 3 ferðir á dag. Til Vestmannaeyja verða 2 ferðir á dag. Til ísafjarðar verður flogið á hverjum degi. Til Egilsstaða verða 8 ferðir á viku, þ. e. alla daga vikunnar og' 2 ferðir á laugardðgum. Ferð ir milli Egilsstaða og Akureyr- ar verða ó miðvikudögum og laugardögum. Til Patreksfjarð- ai' verður flogið á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Til Sauðárkróks verður flogið á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og laugardögum. Til Hornafjarðar verður flogið Húsið er eign Iðnminjasafns ís- lands, en það hefur með bréfi afhent það Minjasafninu á Akur eyri. Nú væri það verðugt viðfangs efni iðnaðai'mönnum á Akur- eyri, að minnast brautryðjand- ans á Skipalóni með því að kosta flutning þessa gamla húss til Akrureyrar og setja það upp þar endurbvggt, ef unnt er að fá því heppilega lóð í nágrenni sem er víst elzta húsið á þeim slóðum, að ógleymdu ráðhús- inu, sem jafnframt var fanga- hús. Hann lét svo um mælt er hann reisti þá byggingu, að ef hann mætti ráða, myndi hann loka Bakkus þar inni fyrstur allra. Á efri árum sínum hataði hann Bakkus og leti samferða- mannanna. Á Skipaióni byggði hann sér bæ er enn stendur og þótti á sinni tíð myndarlegur. Þar var gestastofa í hefðarstíl. Þorsteinn á Skipalóni ræfct- aði kartöflur, fékk norskan mann til að hjálpa bændum við túnræktina. Hann; keypti til landsins fjórhjólaða vagna og var um margt á undan samtíð sinni í verklegum efnum. Og sagt er, að illt þætti honum að horfa upp á léleg vinnubrögð. Einu sinni var hann á leið fram í Öxnadal og sá þá konu eina er var að raka. Hann stöðvaði hest sinn og horfði á, sneri síð- an við, fór heim til sín og kom aftur með hrífu af þeirri gerð, sem honum þótti hæfa konunni. En hér átti nú ekki að segja ÞORSTEINN DANÍELSSON á Skipalóni var sérstæður maður um margt og enn eru sagðar gamansamar sögur um hann. Hann er einskonar þjóðsagna- persóna og nokkuð fjarlægur okkur flestum. En fyrir skömmu ritaði Kristmundur Bjamason fræðimaður um hann, bók, sem varðveita mun nafn hans um ókomna tíð. Og hún sýnir, að bóndinn og smiðurinn

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.