Dagur - 10.06.1970, Qupperneq 2
2
Iðnskólanum á Akureyri slitið
Hallgrímur Tryggvason tók þessa skemmtilegu mynd af siglingu
á Pollinum.
Frélt írá Skákfélagi Akureyrar
IÐNSKÓLANUM á Akureyri
var slitið 12. m.aí sl. Brautskráð
ir voru 49 nemar úr 4. bekk og
4 úr 3. bekk. Fastir kennarar
voru 3, en 14 stundakennarair.
Flutt var í nýju Iðnskólabygg-
inguna 24. október, og fór nœ-r
öll kennslan þar fram.
Skólastjóri Iðnskólans, Jón
Sigurgeirsson, gerði grein fyrir
starfseminni, lýsti prófum og
sleit skólanum.
Alls voru nemendur 1G2, þar
af 62 í 3. bekk. Brautskráðir
voru 51 nemandi. Hæstu ein-
kunnir hlutu Jóhann S. Hauks-
son húsasmiður, 1. ág. einkunn
9.47 og Árni Ingimundai'son
bifvélavirki, 1. ág. einkunn 9.25.
Báðir hlutu verðlaun fyrir
afburða frammistöðu í námi.
í 3. bekk fengu hæstu ein-
kunnir þeir Jón Pálsson ketil-
smiður, 1. ág. einkunn 9.08 og
Jósavin Gunnarsson húsasmið-
ur, 1. einkunn 8.79.
Alls var kennt í 18 iðngrein-
um. Fjölmennastir og jafnir
voru húsasmiðir og ketil- og
plötusmiðir 28, þá bifvélavii-kjar
21, vélvirkjar 12 og rafvirkjar
11.
Nýliðið starfsár markar að
ýmsu leyti tímamót í sögu skól-
ans. Þó er byggingu skólahúss-
ins ekk i að fullu lokið, og form-
leg afhending hefur enn ekki
farið fram. Bæði nemendur og
kennarar undu sér vel í hinum
4 fullkomnu og nýtízkulegu
kennslustofum. Aðalanddyri,
göngum og öðrum kennslustof-
um verður ekki að fullu gengið
frá fyrr en með haustinu.
1. bekkur starfaði nú í fyrsta
sinn eftir nýju iðnfræðslulög-
unum, þ. e. í rúma 3 mánuði að
meðtöldum prófdögum og þá
einnig sem dagskóli firá klukkan
8—3.
Lögð verður áherzla á að
koma sem fyrst upp verklegri
kennslu við skólann, og fylgja
henni margskonar tæki og dýr
búnaður.
Á öndverðum vetri 'barst skól
anum rausnarleg gjöf frá Ragn-
ari Stefánssyni menntaskóla-
kennara í því skyni að efla verk
lega kennslu til handa bifvéla-
virkjum. Er hér um að ræða
bifreið af fullkomnustu gerð
með sjálfstýringu og vökvastýri.
Þakkaði skólastjóri hina veg-
legu gjöf og hlýhug hans í garð
skólans. í skólaslitaræðu sinni
lagði skólastjórinn, Jón Sigur-
geirsson, út af orðunum: „Eins
og maðurinn sáir mun hann
uppskera.“
Brautskráðið iðr.ncmar 1970:
Aðalsteinn Bergdal, rafvirki
Andrés Aðalbergsson, húsasm.
Andrés Sigmundsson, bakari
Árni Garðarsson, húsgagnasm.
Ármann Sveinsson, ketilsm.
Árni Ingimundarson, bifvélav.
Bjarni Pétursson, bifvélavirki
Björn H. Eiríksson, prentari
Björn Ingason, húsgagnasmiðúr
Brynjólfur Jónsson, bifvélavirki
Egill T. Jóhannsson, húsasm.
Frímann M. Guðmundsson,
ketilsmiður
Gísli Blöndal, rafvirki
Gísli Sigurgeirsson, prentari
Halldór Hannesson, bifvélavirki
Haraldur Valdimarsson, húsasm
Hákon Antonsson, húsasmiður
Hákon Sigurðsson, húsgagnasm.
Haukur Óskarsson, ketilsmiður
Héðinn Jónasson, málari
Hilmar Arason, bifvélavirki
Ingvi Óðinsson, húsasmiður
Jakob Þórðarson, ketilsmiður
Jóhann S. Hauksson, húsasm.
Jón S. Hreinsson, bifvélavirki
Jón Sigfússon, prentari
Jón Sveinbjömsson, ketilsmiður
Jósef Marinósson, Ijósmyndari
Kristján Árnason, bifvélavirki
Kristján Pétursson, húsasmiður
Leifur Halldórsson, ketilsmiður
Magnús Þorsteinsson, vélvirki
Njáll Kjartansson, múrari
Páll Þorsteinsson, kaetilsmiður
Rafn Benediktsson, ketilsmiður
Ragnar H. Ingólfsson, húsgagna
smiður
Sigurður Óskarsson, rafvirki
Smári Thorarensen, bifvélavirki
Snævarr Vagnsson, ketilsmiður
Stefán Sigurbjörnsson, bifvélav.
Steinar Hilmarsson, vélvirki
(Framhald af blaðsíðu 8).
félagsins á erlendum vörum,
ésamt með sölu verkstæða og
þjónustufyrirtækja, var því sam
tals kr. 337.8 milljónir. Þar við
bætist framleiðsluverðmæti
Fiskiðjunnar h.f. (dótturfyrir-
tæki K. S. og eign þess að
mestu) kr. 67.3 milljónir, þannig
að heildarvelta kaupfélagsins og
fyrirtækja þess varð á árinu
1969 röskar 405 millj. króna.
Lógað var hjá félaginu 48.794
kindum. Meðalfallþungi dilka
13.86 kg. og 710 grömmum lægri
en haustið 1968.
Innlögð mjólk 6.6 millj. kg.
rösklega og hafði minnkað um
5.8%.'
Ut á við batnaði hagur félags
ins á árinu um 21.1 millj. kr.
Inneignir í bönkum námu í árs-
lok 25 millj. kr. tæpum, þar af
bundið fé í Seðlabankanum tæp
ar 7.6 millj. kr.
Afkoma félagsins á ðrinu
reyndist góð. Rekstrarhagnaður
varð kr. 3.602.827.59. Var því fé
ráðstafað á aðalfundi sem síðar
segir.
Félagsmenn eru 1370. Má
ætla að á framfæri þeirra, að
þeim sjálfum meðtöldum, sé um
3146 manns.
Fastráðnir starfsmenn hjá
kaupfélaginu voru í árslok 102,
en alls tóku laun hjá félaginu
592 manns. Greidd vinnulaun,
ásamt með greiðslum fyrir akst
ur og þjónustu, námu á árinu
32.7 millj. króna, og sams konar
greiðslur frá Fiskiðjunni h.f.
16.8 milljónum. Námu launa-
greiðslur á vegum félagsins sam
tals nálega 50 millj. króna á ár-
inu 1969. Opinber gjöld voru 3.2
millj. auk söluskatts, sem nam
um 6.2 millj. króna.
Framkvæmdastjóri Fiskiðj-
unnar h.f. skýrði frá hag henn-
ar og rekstri í ýtarlegu máli.
Nam framleiðsluverðmæti henn
ar á liðnu ári 67.3 millj. kr., og
skilaði fyrirtækið verulegum
rekstrarhagnaði.
Voru kaupfélagsstjóra og
framkvæmdastjóra Fiskiðjunn-
ar þökkuð ágæt störf með al-
mennu lófataki.
Á aðalfundinum kom fram,
.svo sem venja er til, margar til-
lögur og fjölluðu nefndir um
flestar. Voru umræður miklar
og oft fjörugar og margar álykt-
anir samþykktar. Verða þær
eigi teknar upp hér utan sú,
sem fjallaði um skiptingu árs-
arðsins. Hann var, sem fyrr seg-
ir, tæplega 3.7 millj. kr. Sam-
þykkt var, að tillögu stjórnar-
innar, að ráðstafa tekjuafgang-
inum þannig:
Lagt í varasjóð 0.9 millj. kr.
Fært í stofnsjóðsreikninga fé-
lagsmanná, í hlutfalli við ágóða
skyld viðskipti, 2.4 millj, kr.
Framlag í Menningarsjóð
K. S. 50 þús. kr.
Lagt í Ferðasjóð félagskvenna
250 þús. kr.
Eftirstöðvar, 2800 kr. röskar,
yfirfærðar til næsta árs.
Ur stjórn áttu að ganga Björn
Tryggvi Aðalsteinsson, rafvirki
Valmundur Einarsson, húsasm.
Vignir Gunnarsson, bifreiðasm.
Vilhjálmur Baldvinsson, prent.
Zophónías Jónmundsson, bifv.v.
Þorgeir Steingrímsson, bifreiða-
smiður.
Úr 3. bekk:
Ásgeir Ásgeirsson, kjötiðn.m.
Bjarney Sigvaldadóttir, hárkr.k.
Hreinn Hrafnsson, kjötiðn.m.
Steinunn Eggertsdóttir, hárgr.k.
Sigtryggsson á Framnesi og
Jóh. Salberg Guðmundsson,
sýslumaður á Sauðárkróki. Gaf
Björn eigi kost á sér til endur-
kjörs. Var í hans stað kosinn í
stjórn Marinó Sigurðsson á Álf-
geirsvöllum. Jóhann Salberg
var endurkjörinn. Þar sem fé-
lagssvæðið hafði nú stækkað við
samruna K. S. og Kaupfélags
Austur-Skagfirðinga, Hofsósi (3
deildir, 187 félagsmenn), var
samkvæmt áður gerðri sam-
þykkt, fjölgað í stjórninni um
2 menn. Kjörnir voru: Stefán
Gestsson, Arnarstöðum og Þor-
steinn Hjálmarsson, Hofsósi.
Aðrir stjórnarnefndarmenn eru:
Tobías Sigurjónsson, Geldinga-
holti, formaður, Gísli Magnús-
son, Eýhildarholti, varaformað-
ur, Jóhann Salberg Guðmunds-
son, Sauðái-króki, ritari, Jón
Eiríksson, Djúpadal og Marinó
Sigurðsson, Álfgeirsvöllum.
Kjörnir í varastjórn: Magnús
H. Gíslason, Frostastöðum og
Gunnar Oddsson, Flatatungu.
Endurskoðendur: Árni Gísla-
son, Eyhildarholti og Vésteinn
Vésteinsson, Hofstaðaseli.
í fundarlok tjáði fundarstjóri
Birni á Framnesi einlægar þakk
ir fyrir mikil og farsæl störf í
þágu Kaupfélags Skagfirðinga
fyn- og síðar — og sleit fundi að
því búnu.
(Gísli Magnússon tók þessar
fréttir saman fyrir Dag).
UM næstu helgi verður hér á
Akureyri haldið þriggja daga
svæðismót votta Jehóva og mun
mótið hefjast föstudagskvöld kl.
19.45 með söng og bæn. Mótinu
lýkur á sunnudaginn 14. júní
með því að lokaræða mótsins
verður flutt sem nefnist: „Hegð
ið ýkkur vel meðal þjóðanna".
Mótið verður haldið í Alþýðu-
húsinu, við Gránufélagsgötu, og
er almenningur velkominn að
sækja hinar mismunandi sam-
komur mótsins.
Nokkur atriði á dagskrá, sem
vekja eftirtekt eru m. a. hinn
guðveldislegi skóli á föstudags-
kvöld kl. 20.15. Þessi samkoma
er ræðuskóli sem er rekinn í
öllum söfnuðum votta Jehóva
út um allan heim og er tilgang-
ur hans að þjálfa þjóna orðsins
til Iþess að prédika hinar góðu
fréttir Biblíunnar almenningi.
Á mótinu munu meðlimir úr
Akureyrarsöfnuði votta Jehóva
koma fram í þessum skóla.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sendi hing-
að norður leikflokk sinn til að
sýna „Gjaldið" eftir Arthur
Miller. Og voru sýningar í Sam
komuhúsinu tvö kvöld nú um
helgina við mikla aðsókn og
hrifningu áheyrenda.
Leikstjóri er Gísli Halldórs-
SKÁKFÉLAG AKUREYRAR
hélt aðalfund sinn þann 16. maí
sl. að Hótel Varðborg, en þar
fór vetrarstarfsemi félagsins
fram, sl. vetur. Á haustmóti fé-
lagsins voru keppendur 13 og
varð Júlíus Bogason sigurveg-
ari, hlaut 11 vinninga.
í byrjun desember var haldið
úrtökumót fyrir Reykjavíkur-
mótið 1970. Þátttakendur voru
átta en meðal þeirra var hinn
þekkti s kákmaður Freysteinn
Þorbergsson, sem keppti sem
gestur, en honum hafði óður
verið boðin þátttaka í Alþjóða-
mótinu. Sigurvegari varð Frey-
steinn, hlaut hann 5(4 vinning,
næstir og jafnir urðu Ólaf.ur
Kristjánsson og Halldór Jóns-
son með 5 v. hvor. Tefldu þeir
Á laugardaginn er gert ráð
fyi'ir skíriiarathöfn og mun sér-
stök ræða verða flutt í því sam-
bandi og nefnist hún: Vígsla og
skírn. Um kvöldið kl. 20.45 verð
ur atriði sem mun fjalla um
kehnslustarf votta Jehóva og er
atriðið nefnt: Hjálpið öðrum að
læra sannleikann. Fleiri sýni-
kennslur og raunhæfar leiðbein
ingar munu verða veittar til
þess að kennsluaðferðir safnað-
armeðlimanna munu aukast.
Hámark mótsins verður á sunnu
daginn kl. 15.00 þegar forstöðu-
maður votta Jehóva hér á landi,
Kjell Geelnard, flytur hinn opin
bera fyrirlestur mótsins, sem
ber heitið: Sönn guðsdýrkun
gegn falsdýrkun.
Forstöðumaður safnaðarins
hér á Akureyri, Holger Frederik
sen, hefur unnið að undirbún-
ingi mótsins og hefui' meðal
annars haft umsjón með hús-
næðisúthlutun handa mótsgest-
um. □
son en leikarar Rúrik Haralds-
son, Róbert Arnfinnsson, Valur
Gíslason og Hei'dís Þorvalds-
dóttir.
Á undanförnum árum hafa
leikflokkar frá Þjóðleik'húsinu
farið leikferðir um landið,
Ólafur og Halldór til úrslita um
þátttökuréttinn, og sigraði Ólaf
ur með 3 v. gegn 1 v.
Þátttakendur í jólahraðskák-J
mótinu voru 8 og var tefld tvö-
föld umferð. Sigurvegari varð
Jón Björgvinsson, hlaut IOV2 v.
Skákkeppni stofnana var háð
í febrúar með þátttöku 5 sveita,
þar sigraði A-sveit KEA með
12% vinning. Hraðskákmeistar-
ar í þeirri keppni varð A-sveit
Stefnis, hlaut 30% vinning.
Dagana 28. febrúar — 7. marz
var haldið opið skákmót í sam-
bandi við Vetraríþróttahátíðina
1970. Mót þetta var um leið
Skákþing Norðlendinga og var
Guðmundur Sigurjónsson skálc
meistari gestur mótsins. Þátttak
endur voru alls 18 þar af 8 í
meistaraflokki, Guðmundur Sig
urjónsson vann glæsilega, lagði
alla sína andstæðinga, í öðru
sæti varð Hjálmar Theodórsson
frá Húsavík með 4% v. og hlaut
hann titilinn Skákmeistari Norð
urlands 1970. í fyrsta og öðrum
flokki urðu efstir og jafnir Örn
Ragnarsson og Atli Benedikts-
son með 5 v. hvor, en hraðskák-
meistari á Skákþinginu varð
Jón Björgvinssoon, hlaut 23 v.
af 26 mögulegum.
Skákmeistari Akureyrar 1970
varð Guðmundur Búason, hlaut
hann 4% v. ásamt Hreini Hrafns
syni af 7 mögulekukm, en hann
sigraði í einvígi þeirra í milli
með 1% gegn % v. Hraðskák-
meistari varð Haraldur Ólafs-
son, hlaut 9 v. af 12.
Stjórn Skókfélags Akureyrar
skipa nú: Tryggvi Pálsson for-
maður, Guðmundur Búason rit-
ari, Haki Jóhannesson gjald-
keri, Jón Björgvinsson áhalda-
vörður og Hreinn Hrafnsson
skákritari.
skemmt og aukið leiklistar-
þroska landsmanna, enda jafn-
an valin eftirtektarverð leikhús
verk, flutt af kunnum og ágæt-
um leikurum, svo sem hæfir
Þjóðleikhúsi og annars vegar
fólki með vakandi leiklistar-
áhuga. □
- Frá aððlfundi KS...
Mól volla Jehóva á Akureyri
(Fréttatilkynning )
Gjaldið fær góðar viðtökur