Dagur - 17.06.1970, Page 6
6
Tólf þúsund sóttu leiksýningar hjá LA
(Framhald af blaðsíðu 8).
Gjaldkeri gaf bráðabirgðayfir
lit yfir reksturinn á starfsárinu
og kom þar fram að heildar-
veltan hafði orðið yfir 2 millj-
ónir. Reikningar eru annars
lagðir fram á síðari hluta aðal-
fundar sem haldinn verður í
ágúst—september.
Fundurinn gerði eftirfarandi
ályktanir:
1. Aðalfundur Leikfélags Ak-
ureyrar hvetur eindregið til
þess, að hafizt verði, nú 'þegar
handa um endurbætur á leik-
húsi bæjarins, þar sem fyrir-
sjáanlegt er, að það verður að
þjóna hlutverki sínu sem leik-
hús enn um nokkurt skeið.
ítreikar fundurinn í fyrsta lagi
óskir félagsins um breytingu á
leiksviðsopi og að upp verði sett
fullkomið ljósafoorð. í öðru lagi
telur fundurinn fyrirhugaðar
foreytingar á norðurhluta leik-
hússins mjög aðkallandi og að
hefja beri undirbúning að fram-
kvæmdum nú þegar. í þriðja
lagi er nauðsyn á viðbyggingu
við suðurenda hússins, þar sem
aðstaða fyrir vaxandi starf Leik
félagsins er mjög þröngur stakk
ur skorinn m. a. varðandi
æfingaaðstöðu, leiktjaldasmíði,
leiktjaldamálun o. fl. í fjórða
lagi minnir fundurinn á tillögu-
teikningar, um breytingu á
neðri hæð hússins — veitinga-
sali o. fl.
Lítur fundurinn svo á, að
framangreind atriði þurfi, nú
þegar, að komast á fram-
kvæmdastig, og beri að leysa
þau í þeirri röð sem að framan
greinir.
2. Aðalfundur Leikfélags Ak-
- Áfengi veldur . ..
(Framhald af blaðsíðu 5).
alvarlegar frumuskemmdir,
stöðvist það í 15—20 mínútux,
vofir dauðinn yfir. Öll áfengis-
neyzla er hemill á sýruaðstreym
ið og veldur dauða heilafruma.
Dr. Knisely bætir við:
Sjálfur hef ég neytt áfengis
en í miklu hófi. Reynslan í rann
sóknarstofu minni gerði mig að
ákveðnum bindindismanni á
alla áfenga drykki.
(Þýðing úr norska Godtempl
arbladet). Áfengisvarnaráð.
HERBERGI óskast til
leigu nú þegar.
Uppl. á kvöldin í síma
1-17-87.
ureyrar þakkar bæjarstjórn Ak
ureyrar veitta fjárhagsaðstoð á
liðnu leikári, og fagnar sam-
þykkt um fjárveitingu til list-
kynningar í skólum.
Telur fundurinn að þessi nýj -
ung hafi náð tilgangi sínum og
m. a. stuðlað að mjög auknum
leiklistaráhuga skólaæsku bæj-
arins. Mælir fundurinn með því,
að þessi þáttur verði ekki látinn
niður falla.
3. Aðalfundur Leikfélags Ak-
ureyrar mótmælir harðlega
þeim árásum, er átt hafa sér
stað í vetur í bloðum, bæði hér
á Akureyri og í dagblöðum höf-
uðstaðarins, þar sem hafðar
voru í frammi órökstuddar
dylgjur og persónulegt nýð um
einstaka félaga og starfsmenn
Leikfélags Akureyrar, auk
sleggjudóma um starfsemi fé-
lagsins yfirleitt. Eru slík skrif
höfundum þeirra til lítils sóma
og til óþurftar leiklistarstarf-
semi bæjarins.
Til sölu CHEVROLET
sendiferðabifreið.
Mótor, gírkassi og ýmsir
varahlutir geta fylgt.
Jón Þorláksson, sími
1-18-70, milli kl. 7 og 8
á kvöldin.
Til sölu vel með farinn
VOLKSWAGEN, árgerð
1903.
Uppl. í síma 2-11-28,
eftir kl. 7 á kvöldin.
FORD CORTINA,
árgerð 1965, til sölu.
Uppl. í síma 1-28-80.
Til sölu
SKODI 1202, station.
Uppl. í síma 2-14-58.
VOLKSWAGEN 1200,
árgerð 1967, lítið keyrð-
ur, tij sölu í Fjólugötu 8,
sími 1-21-55, eftir kl. 7
á kvöldin.
Til sölu mjög vel með
farinn FORD ZEPHYR
’55, áður A-709.
Uppl. í síma 1-18-54.
HEIMAGANGS-
GIMBRAR óskast
keyptar.
Uppl. í síma 2-19-26.
BARNAVAGN!
Mjög breiðan vagn, 55
crn innanmál eða meira,
vantar strax; mætti vera
tvíburavagn (tvíbreiður).
Góður Pedegree-vagn til
sölu á sama stað.
Uppl. í síma 2-16-53.
Til sölu:
BÚÐARINNRÉTT-
ING, saumavél, Reming-
ton-ritvél, sjónvarpstæki,
hraðsuðuketill, gufstrau-
járn.
Gleraugnaverzlunin,
Kaupvangsstr. 3, Akur-
eyri, sími 2-13-33.
Til sölu VESPA
SPRINT 125, model
1968, ekin 5 þús. ikm, í
mjög góðu standi.
Uppl. gefur Þórarinn
Sigurðsson, sími 1-19-97.
Til sölu mjög vandaður
og fallegur Silver Cross
BARNAVAGN á háum
hjólum. Verð kr. 5.000.-.
Uppl. í Skarðshlíð 4E.
Mikið úrval af
POTTABLÓMUM
til sölu á kvölidin í
Langholti 17.
RABARBARI!
Úrvals rabarbari til sölu
nú þegar. Takmarkað
ma2,n af honum verður
til sölu seinna í sumar
vegna flutnings á plönt-
um. — Pantið með eins
dags fyrirvara.
Gísli Guðmann,
sími 1-12-91.
4—6 herbergja IBÚÐ
eða einbýlishús óskast til
leigu frá 1. júlí n.k.
Hörður Þórleifsson,
tannlæknir, sími 1-27-82.
Til leigu lítil ÍBÚÐ
fyrir einJileypa konu.
Uppl. í síma 2-11-82.
Glæsibæjarhreppur
AJmenn vorsmölun fjár verður felld niður í
GlæsiJræjarhreppi að þessu sinni. Allri smölun
fjár í ógirtum heimahögum skal lokið eigi síðar
en 12. júlí næstikomandi.
ODDVITINN.
ÍBÚÐ!
Ung lijón með eitt lrarn
óska éftir að taka íbúð á
leigu sem allra fyrst.
Uppl. í síma 1-22-67,
eftir hádegi.
3ja til 4ra herb. ÍBÚÐ
óskast frá 15. júlí.
Hreinn Pálsson, lögfræð-
ingur, sími 2-10-30, eftir
kl. 5.
Útboð
Tilboð óskast í vinnupalla, múrhúðun og máln-
ingu á Lögreglustöð Akureyrar.
Bjóða má í öll verkin sameiginlega eða livert fyrir
sig.
Uppl. veittar á skrifstofu húsameistara Akureyr-
arbæjar frá kl. 10.30 til kl. 12 f. h., sími 2-10-00.
Aðalskoðun bifreiða
á Dalvík og í Svarfaðardal fer fram við Bifreiða-
stöð Gunnars Jónssonar, Dalvík, dagana 16., 18.
og 19. júní 1970 kl. 9.30—17.00 daglega.
SÝSLUMAÐURINN I EYJAFJARÐARSÝSLU,
8 júní 1970. — Ófeigur Eiríksson.
Óska eftir að fá leigðan
trillubát,
tvær til fimm lestir, í einn eða tvo mánuði.
Há leiga.
Uppl. á HÓTEL VARÐBORG, herb. 26.
Íþróffaháfíð Í.S.Í. 1970
Félög og sérráð er hyggjast senda keppendur eða
flcxkka á Íþróttahátíð Í.S.Í. í Reykjavík 5.—11.
júlí, eru beðnir að senda fulltrúa á fund með
undirbúningsnefnd Í.B.A. í íþróttahúsinu við
Laugargötu fimmtudaginn 18. júní k'l. 8.30 e. h.
Keppnisgreinar liátíðarinnar eru: Knattspyrna,
frjálsar íþróttir, sund, handknattleikur, körfu-
bolti, glíma, fimleikar, judo, lyftingar, badmin-
ton, skotfimi, borðtennis, golf, kastíþróttir,
róður.
Ath.: æskilegt að fulltrúar félaga og sérráða geti
gefið upp væntanlega þátttöku í suðurferðina.
Áríðandi að allir hlutaðeigandi mæti stundvís-
lega.
UNDIRBÚNINGSNEFND.
Fylgizf meo voruver oinu!
OTA SÓLGRJÓN: 1 kg pk. kr. 33.20. 1/2 kg pk. kr. 17.00.
FLÓRSYKUR: 1 kg kr. 21.70. 453 gr kr. 12.40. PÚÐURSYKUR: 1 kg kr. 19.40. :
Ágóðaskyld vara.
NÝLENDUVÖRUDEILD
Ostakynnin
Frú Margrét Kristinsdóttir, húsmæðrakennari,
kynnir osta og sýnir tilbúning ostarétta fyrir hús-
mæður og aðra á félagssvæði KEA sem hér segir:
Grenivík: fimmtudaginn 18. júní.
Sólgarði: föstudaginn 19. júní.
Freyvangi: laugardaginn 20. júní.
Freyjulundi: mánudaginn 22. júní.
Sýnikennslan hefst á öl'lum stöðunum kl. 2 e. h.,
en að henni lokinni eru kaffiveitingar.
Húsmæður! Notið þetta ágæta tækifæri til að
auka þekkingu ykkar á ostaréttum.
KAUPFÉLA6 EYFIRÐINGA