Dagur - 12.08.1970, Blaðsíða 1

Dagur - 12.08.1970, Blaðsíða 1
FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZIUN: LJÓSMYNDAVÖRUR FRAMKÓLLUN - KOPIERING Verzl- Islenzkur markaður VERZLUNIN íslenzkur mark- aður, er nýlega var opnuð á Keflavíkurflugvelli, hefur selt mikið. En vörurnar eru íslenzk- ar iðnvörur, og eru þar ullar- og skinnavörur fremstar í 'flokki, en ennfremur silfurmun ir, keramik, bækur, kort, lit- skuggamyndir. Þá er og á boð- stólum tirval íslenzkra matvara. Talið er, að verzlun þessi muni mjög auka kynni erlends ferða- fólks á íslenzkum vörum, auk (Framhald á blaðsíðu 7). Skoðunarferð um bæinn Skoðanakömiuiim í skdðunarferð um bæinn. Var Jón Kristjánsson formaður Fegrunarfélagsins fararstjóri. Ekið var um nokkrar götur á Oddeyri, litið á fagra garða, en einnig Eyrarvöll, sem á sínum tíma var miklu kostað til, en er lítill fegurðarauki. Þá voru skólagarðarnir heimsóttir, og rætt um þá. Gróðrarstöðin gamla og 5óð M. A. eru mikl- ir þyrnar í augum Fegrunar- félagsmanna. Báðir staðirnir eru ríkisins og þar er mikil þörf umbóta. Þá voru skoðuð bú- peningshús í gilinu í innbæn- umm. Lítt eru þau fyrir augum almennings, sum snyrtileg eftir aðstæðum. Við skoðunarferð um Akur- eyri kemur í ljós, að bærinn er yfirleitt snyrtilegur, margir garð ar einstaklinga augnayndi, en að sjálfsögðu eitt og annað, sem betur má fara. Fegrunarfélagið, sem snertir mjög samvizku manna, sem ekki er sýnt um snyrtimennsku, hefur næg verk efni að vinna og almenningur vill sannarlega styrkja störf þess í fegrunar- og menningar- átt. □ Grenivík kr., en stofnkostnaður er áætl- aður 10 milljónir. Framkvæmdastjóri er Eggert Bollason en stjórnarformaður Grávöru er Knútur Karlsson og formaður byggingarnefndar er Jónas Halldórsson í Svein- bjai’nargerði. □ hann kýs það heldur. En aldret skal númera við fleiri nöfn eia sex. — í sérsvæðakönnuninni ber kjósanda að greiða atkvæði um það, hver hann kjósi að skipi eitt af aðalsætum á framboðs- lista við alþingiskosningar sem sérstakur fulltrúi hlutaðeigandi svæðis (gamla kjördæmis). Þá má kjósandinn að sjálfsögðu bæta við nöfnum á listann í sér- svæðakönnuninni og raða upp, en þó aldrei fieirum en svo, að á kjörseðlinuni standi sex nö£n. Hér í blaðinu hefur umhverfi Sundlaugarinnar verið vítt. Skylt er þá einnig að þaklta úrbæt- ur þær, sem þar er verið að vinna. Er nú búið að laga lóðina og verið að sá í hana. Er þar vinnuskóli bæjarins að verki undir verkstjórn Ingólfs Ármannssonar og Helga Haraldssoaar. Myndin sýnir unga menn vimiuskólans að störfum. (Ljósm.: H. S.) Ólafur Jóhannesson í ræðustóli á Akureyrarfundinum. í UPPLÝSINGUM og leiðbein- ingum um skoðanakönnun Fi-amsóknarmanna í Norður- landskj ördæmi eystra, í síðasta blaði, féllu línur úr 4. gr. Rétt er hún svona: 4. I allsherjarkönnininni er yfirleitt gert ráð fyrir, að kjós- andi velji 6 menn. Gerir hann það með því að raða í töluröð hinum skráðu nöfnurn, sem á atkvaiðaseðlinum standa, eða bæta við nýjuiu nöfnum, ef Ágætur fundur Framsóknarmanna á Ákureyri Frummælandi var Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins ÓLAFUR Jóhannesson pró- fessor og formaður Framsóknar flokksins, hefur í sumar ferðazt víða um land og haldið vel sótta og merka fundi um þjóðmál. Hafa fundir þessir að vonum vakið mikla athygli. Á mánudagskvöldið var hann frummælandi opinbers stjórn- málafundar, sem haldinn var á Hótel KEA og flutti þar greinar góða yfirlitsræðu um stjórn- mál og svaraði fyrirspurnum fundarmanna í hinum almennu umræðum. Nær 90 rnanns sóttu fundinn flokksins. Fundarstjóri var Ingvar Gíslason alþingismaður, en fundarritari Ari Friðfinns- son. Að lokinni hinni miklu yfir- litsræðu Ólafs Jóhannessonar, sem fundarmenn tóku afburða vel, hófust almennar umræður. Tóku þá til máls Stefán Val- geirsson alþingismaður og Ingi Tryggvason bóndi og kennari á Kárhóli. Komu þeir víða við og báru m. a. fram fyrirspurnir til frummælanda. Ennfremur kvaddi Sigurður Óli Brynjólfs- son bæjarfulltrúi á Akui’eyri sér hljóðs, bar fram fyrirspurn- ir, og ræddi ýmis mál. Og fyrir- spurn kom frá Jóni Björgvins- syni. Efnislega mátti skipta ræðu Ólafs Jóhannessonar í sex m©g- inþætti. Fjallaði sá fyrsti um eflingu atvinnulífsins, annar um fjármál, þar með fjármál ríkis- ins, sá þriðji um skóla- og fræðslumál, fjórði kaflinn var um verðlagsmál og viðskipta- mál, sá fimmti um byggðajáfn- vægismál og sá sjötti um stjórn- arfarið í landinu. Lauk hann ræðu sinni á þann veg, að Fram sóknarflokkurinn, sem er vax- (Framhald á blaðsíðu 2) Rannsóknir við Mývaln á Hótel KEA, og voru þeir bæði úr bænum og ýmsum hreppum við Eyjafjörð. Formaður Fram- sóknarfélags Akureyrar, Har- aldur M. Sigurðsson, setti fund- inn og bauð fundargesti vel- komna, og sérstaklega formann LOKIÐ er rannsóknum þeim, sem náttúrugripasöfnin á Akur eyri og í Neskaupstað efndu til í sameiningu, en þær hafa stað- ið í mánuð. Fimm náttúrufræð- ingar hafa unnið við rannsókn- irnar: Guðmundur P. Ólafsson, menntaskólakennari, Akureyri, Hákon Aðalsteinsson, vatnalíf- fræðistúdent frá Neskaupstað, Helgi Hallgrímsson, safnvörður, Akureyri, Hjörleifur Guttorms- son, safnvörður, Neskaupstað og Ingimar Jóhannseoa, vatnalif- fræðistúdent frá Reykjavík. Kísiliðjan h.f. og Skútustaða- hreppur veittu styrki til rann- sóknanna. Einnig var sótt um styrk til Laxárvirkjunar h.f. en svar hefur enn ekki borizt við þeirri umsókn. Aðallega var athugað svif (rek) í Mývatni og Laxá og ýmsurn nágrannavötnum. Einn- ig voru gerðar athuganir á botn lífi og strandlífi. Hitastig var mælt að staðaldri á rannsóknar- (Framhald á blaðsíðu 5). Á ÞRIÐJUDAGINN í síðustu viku bauð Fegrunarfélag Akur- eyrar ýmsum ráðamönnum bæjarins, avo og fréttamönnum Kunnir menn látnir JOHANN Þorkelsson, fyrrum héraðslæknir á Akureyri, and- aðist í Fjórðungssjúkrahúsinu 6. ágúst, eftir stutta legu. Hann var ættaður úr Fljótum, 67 ára gamall. — Sjá greinar á öðrum stað. Bjarni Bjarnason, fyrrum skóíastjóri á Laugarvatni og alþingismaður, andaðist í Reykjavík 2. ágúst. Hann var 81 árs er hann lézt. Útför hans var gerð fi'á Dómkirkjunni á laugardaginn. Hannes Kristjánsson, fyrrum bóndi í Víðirgerði í Eyjafirði, andaðist í Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 7. ágúst eftir langa legu. Hann var 83 ára. □ Minkabú við UM síðustu mánaðamót var fréttamönnum gefinn kostur á að sjá framkvæmdir við Greni- vík við Eyjafjörð austanverðan, sem hlutafélagið Grávara, er var stoofnað snemma á þessu ári, er að vinna að. En Grávara hyggst koma þarna upp minka- búi í tveim 1300 fermetra hús- um. En auk þess er fóðureld- húsi og skinnaverkun ætlað rúm í 400 fermetra sal. Fyrirhugað er, að kaupa 1300 lífdýr fyrir næstu áramót, fró Noregi. Hluthafar þessa fyrirtækis eru um 70 og hlutafé 2 milljónir Brenndust við matbikun TVEIR ungir menn brenndust við malbikunarvinnu á Akur- eyri aðfararnótt 6. ágúst. Voru þeir að losa úr tjörutunnu í bræðslupott, en verið var .að tjörubera götu til undirbúnings malbikun. Sprakk tunnan og hlutu piltarnir mjög alvarleg brunasár, einkum Jón Baldurs- son, og hinn, Sig'björn Gunn- arsson, einnig þótt minni væru. Þeir liggja í sjúkrahúsi. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.