Dagur - 19.08.1970, Qupperneq 7
7
- ATHYGLISVERÐIR FUNDIR ÓLAFS...
(Framhald af blaðsíðu 1)
var með líku sniði og hinir fund
irnir tveir, á Akureyri og Húsa-
vík. Ólafur Jóhannesson flutti
aðalræðuna, en síðan tóku til
máls Gísli Guðmundsson, Stefán
Valgeirsson og Ingvar Gíslason,
Sigurður Jónsson á Efra-Lóni,
Eggert Ólafsson í Laxárdal,
Hólmsteinn Helgason, Raufar-
höfn, Aðalbjörn Arngrímsson,
Þórshöfn, Jónas Helgason, Hlíð
og Sigtryggur Þorláksson á
Svalbarði. Ólafur Jóhannesson
svaraði síðan fjölmörgum fyrir-
spurnum fundarmanna.
Allir fundirnir í kjördæminu
voru bæði fróðlegir og skemmti
legir. Akureyrarfundurinn var
góður, Húsavíkurfundurinn var
þó betri og Þórshafnarfundur-
inn beztur, bæði hvað snerti
hlutfallslega fundarsókn og um-
ræðufjör.
Ólafi Jóhannessyni, formanni
Framsóknarflokksins, var hvar-
vetna vel fagnað og máli hans
framúrskarandi vel tekið. Eiga
fundarmenn nú aðra mynd í
huga sér af forystumanni
stærsta flokks dreifbýlisins, en
andstæðingarnir hafa brugðið
upp í hörðum áróðri sínum. Þeir
munu hafa fundið, að þar fer
traustur maður og vitur, há-
menntaður og sanngjarn rök-
hyggjumaður, sem ekki má
vamm sitt vita. Slíkur foringi
er andstæðingunum hættuleg-
ur, og engin furða þótt um hann
gusti öðru hverju, eins og aðra
forystumenn í íslenzkum stjórn
málum.
Við vonum, að þess verði ekki
langt að bíða, að formaður
Framsóknarflokksins gefi sér
tíma til að heimsækja Norður-
landskjördæmi eystra á ný, til
að skiptast á skoðunum við
íbúa þess. □
I
I
I
I
I
I
I
*i'
I
I-
Kceru vinir. Hugheilar þakkir fyrir innilegar af-
mœliskveðjur og gjafir d 70 ára afmœli minu, og ^
að gera mér glaðan dag.
Guð blessi ylikur öll.
HALLDÓR JÓNSSON, Gili.
Þ-fs!K-a-wS'WS-K--«'a-fs'í'{'ð-fsS'('ð-fsii'í^?-f^'Wð-fs^'i-a-fs’í'WS-fsiS'WS-f^'
Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim, sem heim-
sóttu mig og glöddu á 80 ára afmceli minu 3.
ágúst. Þakka blóm, skeyti, gjafir og hlý handtök.
Guð blessi ykkur öll.
t
|
t
t
?
I SIGNÝ JÓNASDÓTTIR, Stœrra-Árskógi. ?
% %
Amma okkar,
SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR,
fyrrum húsfreyja að Ketilsstöðum, Tjörnesi,
andaðist að Kristneshæli 11. ágúst. Kveðjuathöfn
fer frarn frá Akureyrarkirkju .fimmtudaginn 20.
ágúst kl. 1.30 e. h. Jarðsett verður á Húsavík
föstudag 21. sama mánaðar kl. 2 e. h.
Fyrir hönd vandamanna.
Sigríður og Sæunn Hjaltadætur.
Þökikum af alhug kærleiksríka samúð og vinarliug
við andlát og útför okkar elskaða eiginmanns og
föður,
JÓHANNS ÞORKELSSONAR,
fyrrverandi héraðslæknis.
Sérstaklega þökkum við bæjarstjórn Akureyrar
og sýslunefnd Eyjafjarðar, sem heiðruðu minn-
ingu hans með því að annast útförina.
Agnete Þorkelsson,
Sólveig, Helen.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og bróður,
HANNESAR KRISTJÁNSSONAR,
Víðigerði.
Sérstakar þakkir fær.unr við læknum og h júkrun-
arfólki Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir
frábæra hjúkrun. Ennfremur þökkum við öllum
þeinr mörgu, er heinrsóttu hann og glöddu í veiik-
indum hans.
Laufey Jóhannesdóttir,
Kristín Hannesdóttir,
Haraldur Hannesson, Benny Jóhannsdóttir,
Kristján Hannesson, Olga Ágústsdóttir,
Hólmfríður og Gunnar Thorarensen,
Jónas Kristjánsson.
Tímarit
ungmcmiafélaganna
ANNAÐ hefti Skinfaxa, tíma-
riti ungmennafélaganna, er kom
ið út. Ritstjóri er Eysteinn Þor-
vladsson. í þessu riti segir að
sjálfsögðu frá starfi ungmenna-
félaganna, sem er mjög mikið
víða um land, félagsmálaskóla
UMFÍ, en fyrsta námskeið hans
var í Haukadal og þar er grein
um ÆSÍ og WAY. Þá er álykt-
un um mannvirkjagerð og nátt-
úruvernd, grein um nýjar
íþróttagreinar, knattspyrnu og
fleira. □
GJöf í minnmgu Guð-
mundar góða til
kirkjuskólans á Hólum
MÉR hefir borizt gjöf, kr. 500.00
frá þakklátri móður, sem hún
gefur í minningu Guðmundar
góða til væntanlegs kirkjuskóla
að Hólum í Hjaltadal. En það
er hugmynd kirkjulegra sam-
taka í Hólastefti, að á Hólum
verði kirkjulegur skóli, og eru
nú í sjóði á annað hundrað
þúsund krónur til slíks skóla.
Ég þkaka þessa fögru gjöf og
þann hug, sem hér liggur að
baki. Sérhver gjöf og vinarhug-
ur til þessa hugsjónamáls mun
eiga sinn þátt í því, að hugsjón-
in um kirkjuskólann komist í
framkvæmd.
Pétur Sigurgeirsson.
Hestavísur
Silfurmerin, svöng og þreytt,
sjaldan hvílir fót í tröðum.
Hleypir henni úr garði greitt
Guðbergur á Rassastöðum.
Árið rann sitt endaskeið.
Eitthvað flestum varð að meini.
Blaðadólga bikkjan leið
brokkar heim að Gljúfrasteini.
Bóndi út í bæjardyr
býsna vörpulegur gengur
og alúðlega Andrés spyr:
„Ertu að villast hingað,
drengur?“
„Ónei,“ svarar Andrés hátt.
„Ég átti að skila þessum hesti.
Hefurðu slíka hryssu átt?
Hún er kostagripur mesti.“
Þetta virðist gaman grátt.
En Gljúfrabóndi anzar þýður:
„Um merargreyið finnst mér
fátt.
En flyttu þakkir engu síður.“
Líða dagar, líða ár.
Lítur Helgi út um skjáinn.
Á hlaðinu úti hímir klár
og héluð nartar kuldastráin.
„Ætíð sælir, Andrés minn.
Ertu að spretta af Leira þínum?
Mér lízt ekki á að láta hann inn
og lána beit í högum mínum.“
AKUREYRARKIRKJA. Mess-
að í Akureyrarkirkju á sunnu
daginn kemur kl. 10.30 f. h.
Sálmar nr. 26 — 60 — 356 —
251 — 97. — P. S.
LAUFÁSPRESTAKALL. Mess
að í Laufási n. k. sunnudag
kl. 2 e. h. — Sóknarprestur.
HJÁLPRÆÐISHERINN
Almenn samkoma sunnu
^výP,'/A dag kl. 8.30 e. h. AlHr
æJ? velkomnir.
KONUR í Kvenfélagi Akur-
eyrarkirkju. Farið verður í
ferðina 30. ágúst n. k. Lagt af
stað frá afgreiðslu Flugfél. fsl.
kl. 1 e. h. stundvíslega. Gjörið
svo vel að tilkynna þátttöku
sem fyrst í símum 11648,
12210 eða 11581. — Nefndin.
FERÐAFÉLAG AKUREYRAR.
Laugardaginn 22. ágúst Timb-
urvalladalur. Sunnudaginn 23.
ágúst Fljót.
FRÁ Krabbameinsleitarstöð Ak
ureyrar. Krabbameinsleitar-
stöðin tekur aftur til starfa
miðvikkudaginn 26. ágúst.
Tekið á móti pöntunum í síma
11477 mánudaginn 24. ágúst
milli kl. 17 til 18 og fram á
miðvikudag á sama tíma. —
Krabbameinsleitarstöð Akur-
eyrar.
OLD BOY’S FÉLAGAR. Þeir,
sem ætla að vera með í inni-
æfingum í vetur eru vinsam-
lega beðnir að mæta á æfingu
n. k. fimmtudag kl. 8 á Þórs-
svæðinu hjá Glerárskóla.
AKURLILJAN númer 275. —
Fundur fimmtudaginn 20.
ágúst kl. 21 í Ráðhúsinu.
Fundarefni: Vígsla, vetrar-
starfið, önnur mál. Áríðandi
að allir félagsmenn mæti. —■
Æ.t.
STÚKAN Brynja nr. 99. Fund-
ur kl. 9 e. h. miðvikudaginn
19. ágúst að Kaupvangsstræti
4. Fundarefni: Kosning í fuH-
trúaráð. — Æ.t.
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
nr. 1. Fundur fimmtudaginn
20. þ. m. kl. 8.30 e. h. Fundar-
efni: Vígsla nýliða, önnur
mál. Eftir fund ? — Æ.t.
FÉLAGAR í Flugb j örgunar-
sveitinni. Mætið alhr á mið-
’ vikudagskvöld kl. 8 til við-
ræ|na um ákveðna ferð að
Snsefelli þann 20. ágúst. —
F.BiS.A.
GJAFIR til endurhæfingar-
stöðvar SjáHsbjargar á Akur-
eyri. Nýlega hafa félaginu
broizt tvær góðar gjafir til
styrktar þeirri ákvörðun fé-
lagsins að koma upp endur-
hæfingarstöð. Áheit frá J. kr.
3.000 og frá Steingrími Egg-
ertssyni kr. 5.000. Hér með
er gefendum af alhug þakk-
aðar gjafirnar og sá hlýhugur
og skilningur sem þeim fylgja.
— SjáHsbjörg.
BRÚÐHJÓN. Laugardaginn 15.
ágúst voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju
ungfrú Antonía Marsibil Lýðs
dóttir hjúkrunarnemi, Ásvegi
21, Akureyri og Sigurður
Hermannsson húsasmiður,
Löngumýri 34, Akureyri.
Ljósmyndastofa Páls.
BRÚÐKAUP. Þann 15. ágúst sl.
voru gefin saman í Akureyrar
kirkju brúðhjónin ungfrú
Heiða Grétarsdóttir og Jón B.
Sveinbjörnsson ketil- og
plötusmiður. Heimili þeirra
er að Hlíðargötu 5, Akureyri.
FRÁ SJALFSBJÖRG.
Blómasalan er á laug-
ardaginn kemur. Þeir,
sem vildu vera svo
góðir að keyra út blóm
in eru beðnir að gefa sig fram
á skrifstofu félagsins í Bjargi
fyrir laugardag. Einnig vant-
ar sölufólk í bílana. Sölulaun.
— Sjálfsbjörg.
MINJASAFNIÐ á Akureyri er
opið alla daga kl. 1.30—4.00.
Sími safnsins er 1-11-62 og
safnvarðar 1-12-72.
NONNAHÚS er opið daglega
kl. 2.00—4.00 e. h. Sími safn-
varðar er 1-27-77.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ er
opið alla daga, nema laugar-
daga, sem hér segir: Sunnu-
daga kl. 2.00—4.00, mánudaga
kl. 4.00—7.00, þriðjudaga, mið
vikudaga, fimmtudaga og
föstudaga kl. 2.00—3.30. SkrH
stofa og bókasafn er opið
mánudaga kl. 4.00—7.00. Sýn-
ingarvörður er Sigurlaug
Skaptadóttir, sími 1-21-87.
MATTHÍASARHÚS — Sigur-
hæðir — er opið daglega kl.
2.00—4.00.
DAVÍÐSHUS — Bjarkarstíg 6
— er opið daglega kl. 5.00—
7.00.
LYSTIGARÐURINN er opinn
daglega frá kl. 9.00 árd. til
kl. 10.00 síðd.
) NYKOMIÐ /
„Hér er enginn húðarklár.
Hryssan er af góðu kyni.
Þú færð hana þetta ár.
Það er gert í bezta skyni.“
„Ekki vil ég efa það,“
anzar Helgi þolinmóður.
„Komdu henni bara á betri stað.
Beztu þakkir, Anrés góður.“
Andrés blés og ’biturt hló.
Byrstur slær hann undir nára.
,Merin beit, og merin sló.
----Magnast fréttir næstu ára?
Hrosskell.
Lætur til sín heyra
FEGRUNARFÉLAGIÐ á Akur
eyri, undir stjórn Jóns Kristjáns
sonar, hefur sent bæjarstjórn-
inni bréf um fegrun bæjarins.
Það gerir þá kröfu til forráða-
manna bæjarins, að þeir bæði
ætlist til góðrar umgengni borg-
aranna, og vinni að því, að svo
sé gert. M. a. bendir Fegrunar-
félagið á lóðir Menntaskólans á
Akureyri og Gróðrai'stöðvarinn
ar, sem séu í slíkri óhirðu, að
vansæmd sé að, og vart verði
lýst. . □
SKYRTUBLÚ SSUR
— Jersey
SÍÐBUXUR
— nýjar gerðir
BUXNADRAGTIR
GREIÐSLU SLOPPAR
SUNDBOLIR - bikini
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61