Dagur - 23.09.1970, Blaðsíða 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNÐAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
ELDGOS Á JAN MAYEN
•v ■< *■ tWí&k 7? -T
Á laugardaginn tók að gjósa á
Jan Mayen. Á mánudaginn náði
gosmökkurinn 5 þús. m*hæð og
stefndi á Noreg sunnanverðan.
Hraun rennur á nokkrum stöð-
um.
Norskir vísinda- og veðurat-
hugunarmenn urðu ekki fyrstir
gossis varir, heldur flugstjórar,
er þar nærri áttu leið í lofti. —
Norðmennirnir, 39 að tölu, voru
þegar sóttir og flutth burt, af
ótta við öskufall, er kynni að
torvelda not flugvallarins. En
18 voru þó eftir. Sumir hafa nú
snúið aftur. Gos þetta gerði
ekki boð á undan sér með jarð-
skjálftum eins og tíðast er, og
Jan Mayen var talið útdautt
eldfjall. '
Jan Mayen er á Atl.hryggn-
um eins og ísland. Á þessum
hrygg hafa nú sex eldgos orðið
með stuttu millibili.
Hey með tninna mófi í Skapfirði
Frostastöðum, 16. sept. Slætti er
nú ýmist alveg lokið hér um
slóðir eða þá alveg að ljúka.
Hefur heyskapur gengið vel að
því leyti, að hey hafa ekki hrak
izt. Frá því í júlíbyrjun og þar
til nú, um miðjan sept., hefur
úrfellis gætt í 21 sólarhring.
Stórfellt hefur það þó yfirleitt
ekki verið.
En þótt hey muni þannig yfir
leitt vel verkuð, eru þau, víðast
hvar í héraðinu, með minna
móti. Spretta var síðbúin í vor
og margir biðu með að hefja
slátt en sú bið varð til lítils, því
að júh'mánuð allan mátti heita
að grasvexti færi ekkert fram.
Bezt var sprottið í Blönduhlíð.
Akureyrarmóf
AKUREYRARMÓT í frjálsum
íþróttum hefst á íþróttavellin-
um MLÐVIKUDAGINN 23.
sept. kl. 7 og verður keppt í 100
m lilaupi langstökki og kúlu-
varpi, fyrir karla og konur, og
1500 m hlaupi karla. Á FIMMTU
DAG kl. 7: 200 m, krineliikast
og hástökk, fy.ir ka la og konuil
og 800 m hlaup karla. — Á
LAUGARDAG kl. 2: 400 m,
3000 m, 110 m grind, þrístökk,
stangarstökk, spjótkast, og fyr-
ir konur 100 m grind, spjótkast
og 4x100 m hlaup.
ÍBA
Allvel einnig í Viðvíkursveit,
Hjaltadal og Óslandshlíð, en úr
því illa, einkum þó í Sléttuhlíð
og Vestur-Fljótum. I vestur-
héraðinu öllu var spretta jafn-
lakari en að austanverðu. Þótt
Skagfirðingar séu sjálfsagt mörg
um betur settir með heyskap
þegar á heildina er litið sýnist
mér, að varla fari hjá því, að
surns staðar verði hér knappt
um hey.
Sauðfjárslátrun hófst hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga í fyrra
dag, 14. sept. Er gert ráð fyrir
að slátrað verði þar um 42 þús.
fjár. Mun sú tala eitthvað lægri
en í fyrrahaust. Varla stafar það
af því að ásetningur verði meiri
nú, en færra af ám mun hins-
vegar hafa verið tvílembt í vor
en oft áður. Þá fer og fram slátr
un í Hofsósi á vegum Kaupfé-
lags Skagfirðinga og einhverju
mun, svo sem undanfarin haust,
slátrað hjá Slátursamlaginu.
Vænleiki dilka virðist svip-
aður og undanfarin haust ef
gera má ráð fyrir því að þeir
2500 dilkar, sem búið er að
slátra, séu þverskurður af heild
inni.
Frið’vin Þorsteinsson, sem í
fjölda ára hefur verið sláturhús
stjóri hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga og gegnt því með mikilli
prýði, hefur nú látið af störf-
um en við tekið Steindór Stein-
dórsson. —mlig
Dalvík, 21. sept. í gær voru
göngur og í dag er féð rekið til
Tunguréttar. Veður er gott báða
dagana, svo naumast verður á
betra kosið.
Stöku maður er ennþá að
heyja tún, en flestir bændur
heyja enn á engjuni. Það er .al-
veg óvanalegt. Nokkurt hey hef
ur verið keypt.
Byrjað var að lóga sauðfé 15.
september. Vænleiki er svipað-
ur og í fyrra. Lógað verður fast
að 13 þúsund fjár, eða þrem
þús. fleira en í fyrra. Þó kann
þessi sláturfjártala að lækka
eitthvað ef vel heyjast hér eftir.
En það sem menn heyja nú, er
kindafóður. En almennt ger.a
hændur ráð fyrir bústofnsskerð
ingu nú í haust vegna fóður-
skorts.
Loftur Baldvinsson kom hing
að á laugardaginn af Norður-
sjávarmiðum með lítilsháttar af
síld, sem hér var söltuð, einar
100 tunnur eða svo. Honum hef-
Göngur og réttir í Bárðardal. — Gangnamaður brynnir hesti sínum og grýpur sjónaukann á meðan.
Og í réttinni hjálpa börnin til við að draga. Ljósm.: Fr. Fr.)
Heyskap að verSa lokiS í Þistilfirði
Enn unnið við hifaveifu á Dalvík
ur gengið vel í sumar. Afla-
brögð þeirra sem hér leggja upp
að jafnaði eru fremur léleg nú,
m. a. vegna ógæfta en einnig
vegna bilana.
Stöðugt er unnið við hita-
veituframkvæmdir og við ger-
um ráð fyrir bor í næstu viku,
til að leita að meiru heitu vatni
fyrir Dalvík. J. H.
Langanesi 21. september, Dag-
ana 16.—20. ágúst voru hér um
slóðir nokkuð samfelldir sólar-
dagar, oft sunnan gola, en loft-
hiti 10—12 stig um hádaginn og
döggfall um nætur. Var samt að
þessum þurrkum mikið gagn.
Hinn 25. ágúst var hvass og
hlýr sunnanvindur með skúr-
um og bjuggust rnargir við, að
laufvindar færu í hönd, enda
veðuirspá þannig. En í staðinn
kom norðanátt með úrkomu, og
um mánaðamótin var 2—-3ja
sólarhringa steypiregn með ein-
hverjum mestu vatnavöxtum,
sem dæmi eru til á sumri. Áður
var land með þurrasta móti. En
nú rennblotnuðu tún og engjar
og á einum bæ á Langanesi tók
vatnsflaumurinn fram undir
300 hesta af hálf þurru heyi á
árbökkum, sem borið hafði ver-
ið á vegna túnakals. í september
hafa komið þurrkflæsur dag og
dag. Hey eru enn víða úti, en
ýmsir eru að ljúka hirðingu
þessa daga.
Þistilfirðingar sáðu miklu af
höfrum til grænfóðurs, vegna
kalsins, og hafa verið að slá þá.
Þeir eru vel sprottnir og jafn-
vel ágætlega, nema þeir haffar,
sem verkfallsstjórnin í Reykja-
vík stöðvaði og sumir kalla
„Hannibalshafrana". — Þeir
spruttu lítið, enda komst það
sæði seint í jörð.
Langnesingar fóru í Tungu-
selsheiði, í göngur, — komu á
laugardag. Réttardagur var í
Hallgilsstaðarétt í gær, 20. sept.
Gangnamenn eru venjulega 15.
Samtímis hafa svo sumarafrétt-
ir Þistilfirðinga verið gengnar,
og hefst slátrun á morgun, 22.
sept., og verður um 12 bús. fjár
lógað. Sláturhússtjóri er OIi
Halldórsson, Gunnarsstöðum. í
sláturhúsinu á Þórshöfn var
mest meðalvigt á landinu sl.
haust, 16,9 kg.
Á Kópaskeri hófst slátrun 15.
sept., eða viku fyrr en hér, og
var að venju byrjað að slátra fé
úr Kelduhverfi, og reynist féð
rýrara en í fyrra, en þá voru
þeir með vænsta móti.
Á Kópaskeri er kominn ung-
ur og nýr kaupfélagsstjóri,
Kristján Ármannsson frá Akur-
eyri. En sláturhússtjóri þar er
Jóhann Þórarinsson í Árdal.
Allmikið er búið að flytja af
heyi í Þistilfjörð, sunnan frá
Lóni og Stöðvarfirði, og einnig
úr Eyjafirði.
Hraðfrystistöðin á Þórshöfn
er búin að framleiða nær
15000 kassa af freðfiski og 130
tonn a fsaltfiski og er bað meira
en í fyrra.,Á Þórshöfn er einn
50 rúmlesta stálbátur, 35 rúm-
lesta bátur væntanlegur, ný-
smíðaður frá Stykkishólmi og
aðrir fiskibátar eru litlir þil-
(Framhald á blaðsíðu 2)
HAUSTVERÐ
BÚVARA AUGLÝST
AÐ MARGGEFNU tilefni er á
öðrum stað birt haustverð
ýmissa búvara.
40 þúsund fjár lógað á Húsavík
Peninga-keðjubréf á Akureyri
SÍÐASTA föstudag gerðu menn
að sunnan „strandhögg" hér á
Akurevri og hófu sölu peninga-
keðjubréfa í húsi einu nýju í
Hamragerði, sem fólk var ekki
flutt í. Urðu þar brátt fjörug
viðskipti og mikil mannaferð. —
Sunnanmenn hurfu úr bænum
á sunnudaginn og munu hafa
farið með verulega fjárhæð frá
bæjarbúum, og til þess var leik-
urinn gerður. Ekki hefur verið
úr því skorið hvort slík fjár-
málastarfsemi er ólögleg eða
ekki, en samskonar mál eru í
rannsókn syðra, eins og hér. En
fjársvikaákvæði hegningarlag-
anna, höggva nærri slíkri starf-
semi og fleiri lagaákvæði.
Ástæða er til að vara við æv-
intýramönnum af þessu tagi,
hvaða nafni sem nefnast, og
hvar sem þeir næst leita fanga.
Húsavík, 22. september. Á Húsa
vík hefur fiskafli verið mjög
sæmilegur að undanförnu. —
Flestir bátar róa með línu en
nokkrir eru á snurvoð. í síð-
ustu viku fengu snurvoðabátar
alls um 50 lestir þar af 16 lestir
af kola.
Sauðfjárslátrun hófst hjá
Kaupfélagi Þingeyinga 15. sept.
og áætlað er að henni ljúki 26.
ooktóber. Slátrað er 1200 kind-
um á dag. Dilkar eru mun rýr-
ari en í fyrra og er munurinn
um 2 kg á skrokk það sem af er
slátrun. — Áætlað er að lógað
verði 40 þús. fjár.
Berjaspretta var mjög léleg í
nágrenni Húsavíkur í sumar. —
Þó er dálítiái tíat af krækiberj-
um og nota húsmæður þau í
saft.
Húsvíkingar notuðu góðviðr-
ið um síðustu helgi til að taka
upp kartöflur. Uppskeran er
yfirleitt heldur léleg en sæmileg
hjá einstaka manni. Þ. J.
Akureyrartogararnir
KALDBAKUR er á veiðum.
SVALBAKUR er í klössun.
HARÐBAKUR landaði 165
tonnum í heimahöfn í gær.
SLÉTTBAKUR landar væntan-
lega á morgun, fimmtudag.
SIGURÐUR BJARNASON
landaði 65 tonnum hjá U. A.
á mánudaginn. Q