Dagur - 25.11.1970, Page 1

Dagur - 25.11.1970, Page 1
FIUMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Sími 12771 ■ P.o. Box 397 SÉRVERZLUN: LJÖSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING Slúdentakór kemur til Akureyrar STÚDENTAKÓRINN í Reykja vík ætlar að koma hingað norð- ur og skemmta Akureyringum í Sjálfstæðishúsinu 28. nóvem- 'ber. Hefst söngurinn kl. 3.30 sið degis. Söngstjóri er Atli Heimir Sveinsson, en kórfélagar eru um 40 talsins. Þessi ferð er fyrsta söngför kórsins innan- lands. Formaður hans er Guð- mundur Marteinsson. Á söng- skránni eru bæði innlend og erlend lög. Akureyringar eru unnendur kóra og hafa eflaust áhuga á ||| því, að hlusta á hina sunn- lenzku söngmenn, sem öðrum þræði eru háskólastúdentar og eldri háskólaborgarar. □ Vegaþjónustan ófullnægjandi Siglufirði 24. nóv. Gæftir voru fremur stirðar í nóvember, en FÖNDURNÁMSKEIÐ FÖNDURNÁMSKEIÐ á vegum Góðtemplara á Akureýri hefst 1. des. kl. 5.30 e. h. í Kaupvangs stræti 4. Símar 21293 og 11360. Þátttökugjald er ekkert. Unnið er úr mosaic, myndir hentugar til jólagjafa. Innritun stendur yfir. □ Skíðahótelið opnað UM næstu helgi taka Skíða- hótelið og skíðalyftan í Hlíðar- fjalli til starfa. 1 sumar hefir verið unnið að endurbótum á hótelinu og lyftunni til aukins hagræðis fyrir viðskiptavini. í desember er fyrirhugað að hafa lyftuna opna á laugardög- um frá kl. 13—15.30 og sunnu- dögum frá kl. 10—12 og 13— 15.30. Togbrautin við hótelið verður opin frá 13—-16.30 á laugardög- um og 10—16.30 á sunnudögum. Skíðafæri er gott í Hlíðarfjalli og verða brekkur væntanlega troðnar. (Fréttatilkynning) dágóður línuafli þegar á sjó gefur, nema hjá togbátum, sem afla lítið. Mun minni fiskur var lagður á land í okt. í ár en á sama tíma í fyrra. Togarinn Hafliði hefur verið í langri klössun, eða 3 mánuði og mun- ar um það, og togbátarnir hafa siglt með aflann. Vinna í íshús- unum hefur því verið lítil. Hlutafélagið Höfn hefur keypt togskipið Sigurð Bjarna- son frá Akureyri, og heitir nú Hafnarnes SI 77 og er á tog- veiðum. Á atvinnuleysisskrá voru 240 14. nóv. en bótagreiðslur fengu 160. Snjór er töluvert mikill. Við erum óánægðir með vegamálin, að aðeins einu sinni í viku sé opnaður vegur og þyrfti að vera opin leið a. m. k. tvisvar í viku. J. Þ. Togarar Ú. A. við bryggju. (Ljósm.: E. D.) Ályklanir bæjarsljórnar um logarakaup BÆJARSTJÓRN Akureyrar hélt auka-bæjarstjórnarfund á laugardaginn í tilefni af væntan legum togarakaupum Ú. A. og smíði þessara togara á Akur- eyri. Samþykkt var eftirfarandi með öllum atkvæðum: I. Bæjarstjórn Akureyrar lýsir skilningi sínum á þeirri afstöðu stjórnar Ú. A. til togarasmíði fyrir félagið á Akureyri, sem Togskip og eikarbátur til Þórsh. Gunnarsstöðum 23. nóv. Hrað- frystistöðin, hreppurinn og fleiri félög á Þórshöfn hafa myndað útgerðarfélag og keypt togskipið Hörpu, Reykjavík, 300 tonna, 3ja ára skip, sem stundað Frá Bókaíorlagi Odds Björnssonar BLAÐINU hafa borizt fjórar bækur frá Bókaforlagi Odds Björnssonar á Akureyri. Samferðamenn, minninga- þættir eftir Jónas Jónsson frá Hriflu. Jónas Kristjánsson bjó bók þessa til prentunar og ritar formálsorð. Hér er um að ræða mjög margar greinar flestar stuttar. Bókin er 288 blaðsíðui’, prentuð hjá POB. A'ndrés Kristjánsson hefur um höfundinn sagt: Enginn Jónas Jónsson frá Hriflu. maður kunni betur að nota sög- una sem sjónauka á mannlífið og málefni nútíðar. Minni hans og snjöll rökhugsun gerði hon- um ætíð tiltækar svo hugfleyg- ar og snjallar líkingar, að hann gat birt mönnum í andrá og ör- fáum orðum kjarna flókins máls, og stundum jaðraði þessi vígfimi við sjónhverfingar. Myndræn fegurð og hljómur máls féll í löð við skapheitt og súgmikið hugarflug. Enginn ís- lenkur stjórnmálamaður hefur haldið á máttugri penna. Leyndardómu-r Lundeyja er síðara bindi Guðjóns Sveins- sonar og þriðja bók höfundar. Bókin skiptist í 5 kafla, og fjallar um Bolla, Skúla og Adda, Dísu og Krumma. Ástir og lietjudáðir eftir Ingi- björgu Sigurðai'dóttur er Í4. skáldsaga, sem eftir hana kem- ur í bókarformi, 150 blaðsíður í fremur litlu broti. Eiginkonur læknanna er fjórða bókin frá Bókaforlagi Odds Björnssonar, og er eftir Frank G. Slaughter, 300 blað- síðu bók í þýðingu Hersteins Pálssonar. Nafn þessa höfundar er góð ti'ygging, sem hér svíkur ekki. □ hefur síldveiði. Seljendur hafa skipið á leigu fram til 20. marz. Þá kemur skipið til heimahafn- ar og verður gert út þaðan. Á Þórshöfn er mjög dauft atvinnulíf um þessar mundir. Þessa daga eru nokkrir menn frá Þórshöfn að taka á móti nýjum, 36 tonna eikarbáti, sem smíðaður er í Stykkishólmi. En afhending hans hefur dregizt mjög, því hann átti að vera til í júlí í sumar. Verður nú bátur- inn gerður út á hörpudiska- veiðar vesti'a fram að áramót- um, en eftir það kemur hann heim. Báturinn heitir Skálanes. Formaður er Kjartan Þorgríms son, en hann er einn af fjórum eigendum. Jörð er að mestu áuð nálægt sjó en hins vegar jarðlaust orð- ið á innstu bæjunum, enda þar kominn mikill snjór. Fært er til Vopnafjarðar en illfært eða ófeert til Raufai'- hafnar. Ó. H. Jólakort ÆSK komið AÐ VENJU hefir ÆSK í Hóla- stifti gefið út jólakort og mun ágóði af sölu þess renna til Sumarbúða ÆSK við Vest- mannsvatn. Kortið hefir að þessu sinni teiknað Guðrún Pétursdóttir nemandi í M. A., Einar Helga- son teiknikennari hannaði kort- ið og Valprent prentaði. ÆFAK-félagar munu um helgina bjóða Akureyringum kortið til kaups. Væntir ÆSK góðra undir- tekta, nú sem endranær. fram kemur í bréfi stjórnarinn- ar frá 20. nóv. sl. Lýsir bæjar- stjórn því yfir, að hún muni taka að sér, að greiða hluta af verði nýrra togara Ú. A., svo unnt verði að smíða þá á Akur- eyri. Telur bæjarstjórn rétt, að þegar samningsgerð við Slipp- stöðina h.f. lýkur, verði samið um endanlega kostnaðarþátt- töku bæjarins í skipasmíðunum og mun bæjarstjórn Akureyrar ábyrgjast, að Ú. A. þurfi ekki að greiða meira en 5% hærra verð fyrir skip smfðuð á Akur- eyri en erlendis. II. Bæjarstjórn Akureyrar lýsir yfir, að hún fyrir sitt leyti fall- ist á, að Ú. A. gangi til samn- inga við Slippstöðina h.f. um kaup á einum togara, í aðal- atriðum í samræmi við útboðs- lýsingu togarasmíðanefndar rík isins. Einnig fellst bæjarstjórn fyrir sitt leyti á, að Ú. A. gerist kaupartdi að öðrum samskonar togara, smíðuðum í Slippstöð- inni h.f., en þó þannig, að eigi þurfi að ganga frá samningum um kaup félagsins á því skipi tímum. Þar sem bifreið þessi er fyrr en síðar. Lýsir bæjarstjórn því yfir, að hún muni að sínu leyti taka á sig fjárhagslegar skuldbindingar, sem nauðsyn- legar eru, til að unnt sé að semja um smíði skipanna við Slippstöðina. Hins vegar telur bæjarstjórn sanngjarnt og rétt, þar sem hér er um að ræða mál, sem hefur mikla þjóðhagslega þýðingu, að hæstvirt ríkisstjórn veiti frekari fyrirgreiðslu en fram kom í skeyti forsætisráð- herra frá 20. nóv. sl. og óskar bæjarstjórn eftir viðræðum við ríkisstjórnina um það mál hið fyrsta. □ Bændaklúbbsfundur verður að Hótel KEA fimmtu- daginn 3. des. n. k. kl. 21.00. Frummælandi verður Ólafur Guðmundsson framkvæmda- stjóri Bútæknideildar Rann- sóknarstofnunar landbúnaðar- ins. Ræðir hann um heyverk- unaraðferðir og heyvinnuvélar. Atliugið að fundurinn er á finuntudaginn 3. des. n. k. □ Ksupa fulikomna sjúkrabifreíð UM LEIÐ og Flugbjörgunar- sveitin á Akuréyri þakkar þann stuðning og styrk, sem bæjar- búar og aðrir Norðlendingar hafa sýnt sveitinni á liðnum ái'um, vill sveitin minna á að dagana 26. og 29. nóvember munu félagar úr F.B.S.A. ganga í hús og bjóða jólapakka sína til kaups. Á síðasta ári var keyptur vél- sleði fyrir hagnaðinn. Sleði þessi hefur reynzt mjög vel í alla staði og komið að miklum notum. Nú hefur F.B.S.A. ákveðið að tekjur af jólasölu í ár gangi upp í kaup á sjúkrabifreið með drif á öllum hjólum. Bifreið þessi verður með sjúkrakörfur fyrir 4—5 sjúklinga og búin fullkomn ustu tækjum, sem völ er á. Bifreið þessi kemur óinnréttuð en félagar í F.B.S.A. munu sjá um að ganga frá klæðningu og annaiTÍ inru'éttingu í sínum £rí tímum. Þar sem bifreið þessi er mjög dýr í innkaupi vonar F.B.S.A. að bæjarbúar og aðrir Norðlendingar takj mjög vel á móti sölumönnum sveitarinnar er þeir knýja dyra. Verð jóla- pakkanna í ár er 150 kr. Stjórn F.B.S.A. vill taka frorn að tæki sveitarinnar eru til reiðu hvenær sem hjálpar eða aðstoðar er þörf og tæki sveit- arinnar koma að notum. HANDKNATTLEIKUR Á AKUREYRI KL. 4 á laugardaginn, 28. nóv., leika í íþróttaskemmunni KA og Þór. Þetta er fyrsta hand- knattleikskeppni félaganna í vetur, og er þess vænst, að almenningur sýni áhuga á íþróttinni og fjölmenni í fþrótta akemmuna. Q

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.