Dagur


Dagur - 05.12.1970, Qupperneq 7

Dagur - 05.12.1970, Qupperneq 7
7 - Nýjungár í starfsemi Tónlistarfélags Ak. (Framhald af blaðsíðu 1) eins og tónleikasókn og bíó- ferðir. Jón Hlöðver sagðist vona að ástandið væri nú að komast í eðlilegt horf, og að 'fólk gæti slitið sig frá sjónvarpinu eina og eina kvöldstund, er gott tón- listarfólk ber að garði. Blásarakvintett Tónlistarskól ans átti að leika á vegum félags ins í Borgarbíói þ. 20. nóv., og var gert ráð fyrir að þeir léku einnig í þremur skólum hér í bæ. Fimm dögum fyrir tónleik- ang afsögðu þeir félagar á þeim forsendum að þeir ættu að leika í Þjóðleikhúsinu kvöldið eftir tónleikana hér, og hefði þjóð- leikhússtjóri gert þá fjárhags- lega ábyrga fyrir sýningunni (150.000.00 kr.) ef flugið að norðan tepptist þann dag. Reynt var að útvega listamenn í stað þessara en án árangurs. Nokkrar breytingar og nýj- ungar hafa verið ákveðnar á starfsemi félagsins í vetur og miða þær að opnara starfi, sem höfði til bæjarbúa almennt og jafnframt til skóla bæjarins. í því sambandi má geta um fjóra tónleika í skólum bæjarins í vetur, en á þeim verða hljóð- færi og tónlist kynnt á lifandi hátt. Auk hinna venjulegu tón- leika félagsins mun Philip Jenkins leika og kynna píanó- verk í Borgarbíói á fernum tón leikum í vetur, eða kl. 5 e .h. á laugardögum. Verði aðgöngu- miða er mjög stillt í hóf, eða 100 kr. fyrir fullorðna en 50 kr. fyrir skólafólk og börn. Fyrsta kynning P. Jenkins verður í dag kl. 5 e. h. Aðrir tónleikar félagsins á þessum vetri verða þann 5. janúar en þá leikur Hafliði Hall Til SJÁLFSBJARGAR EFTIRTALDAR gjafir hafa borizt: Berklavörn Akureyri kr. 10.000, Guðmundur Ketilsson kr. 1.500, Stefán Vilmundarson kr. 1.000, B. S. kr. 3.000, Jó- hanna Vilhjálmsdóttir kr. 1.000, Þórhallur Einarsson kr. 1.000, Anna Friðriksdóttir kr. 2.000, Guðríður Brynjólfsdóttir kr. 400, Guðrún Guðnadóttir kr. 600. Sjálfsbjörg bárust eftirtaldar gjafir á fjáröflunardaginn þann 27. sept. sl.: Frá Dalvík kr. 390, Þorbjörg og Kristín kr. 370, börn Snorra og Knúts kr. 550, Guðm. Sigurgeirsson, Klauf, kr. 270. A. K. Ólafsfirði kr. 900, H. J. L. Akureyri kr. 400, R. G. kr. 100, Eyfirðingur kr. 100, áheit frá aldraðri konu kr. 500, Soffía kr. 100, N. N. kr. 600. Sjálfsbjörg þakkar af alhug gjafir þessar og þann hlýhug og skilning sém þeim fylgir. grímsson á nýtt og vandað celló í Borgarbíói við undirleik P. Jenkins. í febrúar munu Rut Magnús- son söngkona, Jósep Magnús- son flautuleikari og Guðrún Kristinsdóttir píanóleikari koma fram á þriðju tónleikum félagsins. Verið er að útvega enskan fiðluleikara fyrir tónleika í marz, sem verða á fjórðu.í röð- inni. Fimmtu og síðustu tónleikarn ir á þessu starfsári verða í apríl, en þá kemur Sinfóníuhljóm- sveit íslands og er ætlunin að Philip Jenkins komi fram sem einleikari sveitarinnar. Fyrir- tæki þetta er svo kostnaðarsamt að Tónlistarfélagið verður að hafa ráðamenn bæjarins og 400 manna hlustendahóp að bak- hjarli ef þetta stóra takmark á að nást. Jón Hlöðver gat þess að lif- andi hljómsveitaflutningur væri nauðsynlegur til þess að efla 'tónlistarsmekk bæjarbúa, og að skortur á slíkri snertingu 17. Sambandsráðsfundur Ung- mennafélags íslands var hald- inn í félagsheimilinu Stapa sl. sunnudag. Á sambandsráðs- fundi eiga sæti formenn allra héraðssambanda og félaga sem hafa beina aðild að UMFÍ, og er hann haldinn annað hvert ár. Mættir voru *fulltrúar frá 18 sambandsaðilum auk gesta en meðal þeirra var Þorsteinn Ein arsson íþróttafulltrúi ríkisins. Fundinn sátu alls um 40 manns. Að þessu sinni var fundurinn með nokkru breyttu fyrirkomu lagi frá fyrri fundum, bæði hvað dagskrá snerti, meðferð mála, og stóð auk þess aðeins einn dag að þessu sinni, í stað tveggja áður. Hafsteinn Þorvaldsson for- maður Ungmennafélags íslands setti fundinn og flutti skýrslu stjórnar. í skýrslunpi kom fram að mörg mál eru á döfinni hjá UMFí og gert hefur verið stór- átak á árinu til þess að hrinda mörgum þeirra í framkvæmd. Þannig hafa samtökin nú leigt sér vistlegt skrifstofuhúsnæði að Klapparstíg 16 og ráðið til sín framkvæmdastjóra og skrif- stofustúlku. Erindrekstur hefur verið meiri á þessu ári en oftast áður og mikið samband haft við aðildarfélögin og þeim veitt margskonar fyrirgreiðsla af hálfu skrifstofunnar, þá hafa tvö ný héraðssambönd hafið starfsemi sína á þessu ári, og eitt nýtt ungmennafélag verið stofnað. hér í bæ hefði haldið uppi óhemjulegum fordómum bæði hinna yngri og eldi'i í garð hlj ómsveitarf lutnings. í lok blaðamannafundarins kom fram að Tónlistarfélagið hefur á stefnuskrá sinni upp- byggingu góðs blandaðs kórs, strokhljómsveitar og fleira. Bæjarbúar eru sérlega hvatt- ii' til að sækja „kynningartón- leika P. Jenkins“ kl. 5 e. h. í Borgarbíói í dag. Aðgöngumiða sala fer fram í skólum bæjarins, bókaverzluninni Huld og einnig við innganginn. (Frá Tónlistarfélaginu) (Framhald af blaðsíðu 1) rannsókn möguleika til að virkja Skjálfandafljót við íshóls vatn. Skal sú endurskoðun og rannsókn, sem hér er mælt fyr- ir um, sitja fyrir öðrum meiri háttar rannsóknum á fallvötn- um landsins. 5. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Með frumvarpi þessu er ítar- leg greinargerð, þar sem saga Á þessu síðasta starfsári hófst nýr og merkur þáttur í starf- semi UMFÍ, en það er rekstur Félagsmálaskóla UMFÍ. Hóf hann starfsemi sína á sl. vetri og heppnuðust fyrstu námskeið hans prýðilega vel. Aðalkennari skólans er Sigurfinnur Sigurðs- son, Selfossi. Skinfaxi, félagsrit UMFÍ, hef ur nú komið út í rúm 60 ár. Er blaðið gefið út 6 sinnum á ári, 32 síður hvert blað. Kaupend- um fjölgar stöðugt, og var sam- þykkt að gera enn stórátak í þá átt að útbreiða blaðið. Ritstjóri Skinfaxa er Eysteinn Þorvalds- son. 17. sambandsráðsfundur UMFÍ haldinn í Stapa 25. okt. 1970 hvetur sambandsfélög UMFÍ til öflugrar þátttöku í 14. landsmóti UMFÍ, sem halda á að Sauðárkróki dagana 10. og 11. júlí sumarið 1971. Sambandsaðilar leggi meðal annars áherzlu á eftirtalin atriði: a. Þjálfun íþróttafólks með þátttöku í landsmótinu í huga. b. Unnið verði í tíma að út- vegun samstæðra íþróttabún- inga á íþróttafólk, svo og félags merkja og burðarfána, og á ann an hátt reynt að vanda fram- komu þátttökuliða á mótinu. c. Sambandsaðilar bregðist vel við um útvegun starfsmanna vegna íþróttakeppni landsmóts- ins. d. Sambandsfélagar geri sitt til þess að auglýsa landsmótið á sínu sambandssvæði og efni til hópferðar ungmennafélaga til mótsins, ef aðstæður leyfa, enda yrði slík hópferð undir öruggri fararstjórn og á ábyrgð viðkom andi héraðssambands. (Úr fréttatilkynningu) FIRMAKEPPNI í HANDKNATTLEIK N. K. LAUGARDAG fer fram í íþróttaskemmunni firmakeppni í handknattleik og hefst kl. 3 og verður áfram haldið sunnu- dag kl. 1 e. h. Keppt verður um veglega verðlaunastyttu, sem gefin var af Samvinnutryggingum sl. vet ur, en vannst þá af keppnisliði fi'á Gunnari Óskarssyni og Árna Árnasyni. □ FRÁ SJÓNARHÆÐ. Samkoma n. k. sunnudag kl. 17. Drengja fundur mánudag kl. 17.30. Telpnafundur laugardag kl. 14.30. MINJASAFNH) er opið á sunnudögum kl. 14.00—16.00. Sími safnsins er 1-11-62 og safnvarðar 1-12-72. Laxárvii'kjunar er að nokkru rakin, og hver grein frumvarps ins er nánai' skýrð og rökstudd. í greinargerð um 1. gr. frum- varpsins er bent á, að með henni sé það lagt undir úrskurð Náttúruverndarráðs, hvort gera skuli stíflu í Laxá, en þó sett hámark á stífluna ef til kæmi. Yrði uppistaðan þá aðeins hluti af því, sem fyrirhugað var. Gert ei' ráð fyrir, að áður en Náttúru verndarráð kveður upp úrskurð sinn, liggi fyrir hin líffræðilega rannsókn, sem ákveðið er að fram fari. í annarri grein greinargerðar, er það sjónarmið skýrt, að rétt þyki að ríkissjóður bæti Laxár- virkjun eftir mati tjón og auka kostnað af núverandi virkjunar framkvæmdum, sem ekki koma að gagni ef úrskurður fellur á þá leið, að stíflu megi enga gera, eða aðeins 18—20 metra. Greinargerð með þriðju grein fjallar um, að mikilvægt sé að Laxá öll geti orðið laxveiðiá, en óttast sé, að stífla í ánni o. fl. geri það örðugra en ella, að koma því í kring. Fram er tekið, að óheimilt sé að stofna til virkjunar í efri hluta Laxár, en hjá Orkustofn- un hafi verið uppi ráðagerðir um það, en á vegum Laxár- virkjunar hafi sú virkjun ekki verið á dagskrá. í fjórðu og síðustu grein greinargerðarinnar eru virkjun armálin rædd á breiðari grund- velli og að síðustu bent á, að með frumvarpi þessu, ef að lög um yrði, væri Laxárdeilan leyst á þann hátt, að allir megi vel við una, þegar hliðsjón sé höfð af þróun málsins og meðferð hingað til. □ BRÚÐKAUP. Þann 1. des. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju brúðhjónin ungfrú Gunnborg Hugrún Gunnarsdóttir frá Hauganesi og Pétur Heiðar Sigurðsson múrai'i. Heimili þeirra er að Fjólugötu 16, Akureyri. — Og ungfrú Þórunn Játvarðs- dóttir og Ólafur Jón Jónsson stai'fsmaður í Slippstöðinni. Heimili þeirra er að Hafnar- stræti 23, Akureyri. PAKISTANSÖFNUNIN. Frá L. O. kr. 1.000, Akureyringur ki'. 100, N. N. kr. 5.000, H. Á. kr. 1.000. — Beztu þakkir. — Pétur Sigurgeirsson. PAKISTANSÖFNUNIN. Hall- grímur kr. 500, E. S. kr. 200, R. J. kr. 200, K. J. kr. 1.000, A. G. og fjölskylda kr. 500, S. H. kr. 100, G. J. kr. 300. — Samtals kr. 2.800.00. FRÁ Sálarrannsóknafélaginu. Fundur verður haldinn í Al- þýðuhúsinu þann 8. des. kl. 20.30. Ólafur Tryggvason tal- ar um ný viðfangsefni. Félög- um og gestum þeirra heimill ókeypis aðgangur. — Stjórnin BAZAR. Kvenfélagið Fi'amtíð- in heldur köku- og muna- bazar laugai'daginn 5. þ. m. kl. 4 e. h. að Hótel KEA. Ágóðinn rennur til Elli— heimilisins. Óska að taka á leigu eða kaupa TRILLU eða BÁT, allt að 12 tonnum. Uppl. í síma 1-23-44, eftir kl. 19 á kvöldin og um helgar. HLUTAVELTA verður lialdin í Alþýðu- húsinu sunnud. 6. des. kl. 16. Ágóðinn rennur til barnanna á Sólborg. Starfsfólk Sólborgar. - I 1 i I M'mar beztu þakkir fyrir heimsóknir, gjafir, blóm , og heillaóskir á 80 ára afmæli mínu. Guð blessi ykkur öll. <p | ' ÞORGERÐUR SIGGEIRSÐÓTTIR, | © Önndsstöðum. f I- ' i Innilegar þakkir til allra fjaer og nær, sem sýndu mér og mínaim samúð við andlát og jarðarför móður minnar, JÓHÖNNU JÓHANNSDÓTTUR. Með kærri kveðju. Sigurlína Guðmundsdóttir. KARLMANNAFÖT MANCHETTSKYRTUR SNYRTIVÖRUR GJAFAKASSAR - - góðar vörur P ó s t s e n d u m Frá saibindsráðsfundi UMFS - Frumvarp um virkjanir í Þingeyjarsýslu ©AUOUSINCASTOFAK

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.