Dagur - 23.12.1970, Blaðsíða 4

Dagur - 23.12.1970, Blaðsíða 4
4 5 (----------------------^ Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðariuaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Á RÉTIRI LEIÐ í FRUMVARPI því, sem Gísli Guð- mundsson, Ingvai' Gíslason og Steíán Valgeirsson fluttu á þingi um virkj- un fallvatna í Þingeyjarsýslum, er gert ráð fyrir því, að Náttúruvernd- arráð skeri úr um það, hvort hækka megi vatnsborð Laxár upp að Birn- ingsstaðaflóa, enda hafi áður farið fram rannsókn sú, er gert var ráð fyrir í ráðherrabréfi 13. maí sl. Sam- kvæmt lögum er Náttúruverndarráð skipað sjö mönnum. Eru þrír þeirra tilnefndar af Náttúrufræðistofnun- inni, einn af Búnaðarfélagi Islands, einn af Skógræktaifélagi íslands og einn af Verkfræðingafélagi íslands. En sá sjöundi, formaðurinn, er til- nefndur af ráðlierra. Auðvitað er til þess ætlast, að byggt sé á hinum vísindalegu rann- sóknum, en talið æskilegt, að síofn- un af þessu tagi, ekki pólitískur ráð- herra, taki liina formlegu ákvörðun, hver svo sem ráðherrann er eða kann að verða. Síðan frumvarpið var flutt hefur það nú gerzt í þessu máli, að nefnd sú er ráðherra skipaði 26. júní sl. „til athugunar og tillögugerðar við framkvæmd rannsókna á vatnasvæði Laxár," kom saman á fund í Reykja- vík 14. des. sl. ásamt tveim vísinda- mönnum íslenzkum, og einum er- lendum, sem gert er ráð fyrir að sjái um rannsóknarstörf. f nefndinni er m. a. formaður Landeigendafélags- ins, og fulltrúi frá Laxárvirkjunar- stjóm. Þessi fundur virðist hafa bor- ið góðan árangur. Samkvæmt niður- stöðum, sem birtar hafa verið frá fundinum, eru allir nefndar menn sammála um, hvemig haga skuli rannsóknunum og liverjir skuli ann- ast þær. f fyrsta lagi á að rannsaka eðlis- og efnafræðilega eiginleika Mý vatns og Laxár. í öðru lagi er gert ráð fyrir vatnalíffræðilegum rann- sóknum og í þriðja lagi fiskirann- sóknum, og að rannsóknirnar taki allt að þrem árum, þótt líklegt sé, að sumum þessum þáttum megi ljúka fyrr. Ennfremur var fjallað um kostnað og mannaflaþörf. Nefndin taldi nauðsynlegt að rannsaka Laxá bæði ofan og neðan virkjunar, Mý- vatn og vatnasvæðið í heild. Þá segir nefndin, að rannsaka þurfi og fá úr því skorið, hvaða áhrif fyrirhuguð rennslisvirkjun kunni að hafa á lax- ræktarmöguleika í Laxá ofan virkj- unar og för niðurgönguseyða til sjávar. Þar sem nefndin var skipuð af ráðlierra og var sammála um öll framangreind atriði, er þess nú að vænta, að tillögur hennar verði framj kvæmdar og er án efa mjög mikils- vert að eignast þá vitneskju, sem þær rannsóknir munu leiða í ljós. □ Slefna Framsóknarflokksins í verki HÉR verða enn nehid nokkur mál, seni heyra undir stefnumál Framsóknarflokksins, og með þeim lýkur greinaflokki þessum að sinni. SKULDAMÁL BÆNDA. Frumvarp til laga um breyt- ingu á lausaskuldum bænda í föst lán og skuldaskil. Lög um þetta hafa áður verið sett, sem kunnugt er, en að dómi Framsóknarmanna hafa þau verið ófullnægjandi og því er frumvarp þetta flutt. Fjallar fyrsti kafli þess um lausaskuldit lán og annar kafli um skulda- skil fyrir þá, sem ekki geta not- að sér lausaskuldalánin svo að' gagni komi. í lausaskuldakaflanum eru þessi ákvæði helzt: Að lögin nái yfir tímabilið 1960—1970. Að lögin taki einnig til Iausaskulda, sem liafa mynd- azt vegna bústofns- og fóður- kaupa. Að vextir verði ekki yfir 6%. Að heildarlánsupphæð megi vera 80% af matsverði. Að einnig verði tekið veð í vélum bænda og vinnslustöðvum þeirra. Að lögin nái til lausa- skulda lijá fyrirtækjusn bænda, sem komið hafa upp vinnslu- stöðvum en ekki fengið nægi- leg stofnlán. Að Seðlabankinn kaupi á nafnverði bankavaxta- bréf, sem veðdeild Búnaðar- bankans gefur út vegna lán- veitinga. I skuldaskilakaflanum er gert ráð fyrir því, að skuldaskila- sjóður greiði sjálfur helming þeirrar fjárhæðar, sem skuldu- naut er gefinn eftir. RANNSÓKN VERÐ- HÆKKANA. Flutt hefur verið á vegum Framsóknarflokksins tillaga til þingsályktunar þess efnis að neðri deild kjósi, samkvæmt 35. grein stjórnarskrárinnar, nefnd deildanna til að „rannsaka þær verðhækkanir, sem orðið hafa síðan kaupsamningar voru gerð ir í jnúímánuði síðastliðnum, enda kynni hún sér sérstaklega, hvort um sé að ræða ólöglega miklar verðliækkanir, er krefj- ist sérstakra aðgerða varðlags- yfirvalda og leggi niðurstöður sínar fyrir Alþingi.“ LAXVEIÐI í SJÓ. Tillaga til þingsályktunar um, að ríkisstjórnin beiti sér fyrir samkomulagi Evrópuþjóða um algert bann við laxveiðum í Norður-Atlantshafi. NÁTTÚRUGÆÐANEFND. Frumvarp til laga um breyt- ingu á orkulögum. f því er gert ráð fyrir, að skipuð verði nátt- úrugæðanefnd með fulltrúum frá Sambandi íslenzkra raf- veitna, Rannsóknarráði íslands, Búnaðarfélagi fslands, Náttúru verndarráði og Veiðimálanefnd, og sé hún orkumálastjóra til ráðuneytis í virkjunarmálunl með það fyrir augum, að tekið verði tillit til náttúrugæða og náttúruverndar. - Tónleikar um jól... (Framhald af blaðsíðu 1). Þorgerður Eiríksdóttir á píanó og einnig' mun Heiðdís Norð- fjörð lesa upp úr jólaguðspjalli. Þessir aðilar hafa allir í sam- einingu sett saman einkar ánægjulega efnisskrá, sem stendur mjög í tákni jólanna. Þarna er ævagamalt lag úr Grallaranum 1594 útsett af Jóni Þórarinssyni, lög eftir þá Heinrich Isaac og Michael Praetorius og fleira mætti telja. Þá munu Karlakór Akureyrar og Gígjan syngja fjögur lög sameiginlega undir stjórn Jóns Hlöðvers Áskelssonar. Eftir nýár eða þriðjudaginn 5. janúar mun svo Tónlistar- félag Akureyrar efna til tón- leika í Borgarbíói þar sem Haf- liði Hallgrímsson leikur á celló við píanóundirleik Philips Jenkins, en um þá tónleika er getið á öðrum stað í blaðinu í fréttatilkynningu frá félaginu. S. G. OPIÐ ANNAN JÓLADAG FRÁ KLUKKAN 10-12 Á HÁDEGI. KJÖRBUÐIR KEA Nýkomið! Heilir KARLMANNAINNISKOR * -K -K Hinir margeftirspurðu svörtu SVAMPINNISKÓR komnir aftur og einnig margar aðrar gerðir af KVENINNISKÓM -K -X * INNISKÓR BARNA — 3 gerðir — stærðir 20—28. SKÓVERZLUN M. H. LYNGDAL Félag íslenzkra bifreiðaeigenda HAGNÝTING FISKI- MIÐANNA. Tillaga til þingsályktunar um undirbúning lieildarlöggjafar um hagnýtingu fiskimiðanna, umhverfis landið. Gerir tillag- an ráð fyrir ákveðnum veiði- svæðum fyrir nánar tilgreindar tegundir veiðarfæra og nauðsyn lega friðun uppeldisstöðva. ÁFENGISVARNARSJÓÐUR. Frumvarp til laga um að skip ; aður verði Áfengisvarnarsjóður, sem fái í sinn hluta 3% af hagn aði Áfengis- og tóbaksverzlun- ar ríkisins. ÚTFLUTNINGUR OG MARKAÐSMAL. Tillaga til þingsályktunar um j útflutningsráð, er verði sjálf- stæð stofnun, skipuð fulltrúum helztu samtaka íslenzkra út- flytjenda og atvinnuvega og njóti aðstoðar utanríkisþjónust- unnar. f nágrannalöndunum liefur slíkri starfsemi verið konl ið á fót. FÓLKSFLUTNINGAR MEÐ STRÖNDUM FRAM. Tillaga til þingsályktunar um 1 að gerð verði áætlun um smíði og rekstur strandferðaskips til farþegaflutninga. RANNSÓKN FISKVERÐS. Tillaga til þingsályktunar um að rannsakað verði í samráði við fulltrúa fiskseljenda og fisk kaupenda, hverjar séu ástæður til mismunar á fiskverði hér og í Noregi. Um þennan verðmun hefur verið ræít og deilt árum saman og er nauðsynlegt að afla upplýsinga um það', sem menn geta bæði treyst og viðurkennt. ATHUGASEMD frá stjórn FÍB vegna frumvarps til laga um breytingu á vegalögunum, nr. 23 16. apríl 1970, sem nú lig'gur fyrir Alþingi. 1. Á Landsþingi FÍB sem haldið var 5.—6. desember 1970 var þeim áfanga fagnað, sem undanfarið hefur náðzt í undir- búningi gerð framkvæmdaáætl ana og lagningu hraðbrauta. Ennfremur lýsti þingið yfir ánægju sinni yfir því, að hlut- fallslega stærri hluta af tekjum ríkisins af bifreiðum og rekstr- arvörum þeirra hefur á síðast- liðnu ári verið varið til vega- gerðar. Landsþingið ítrekar fyrri sam þykktir sínar, að öllum eða meiri hluta tekna ríkisins af bifreiðum og rekstrarvöi'um þeirra verði um nokkurt árabil varið til vegamála. Telur FÍB ekki þörf á frekari hækkunum á rekstrarvörum bifreiða. 2. íslenzkir bifreiðaeigendur hafa undanfarin ár borið all- rniklar byrðar vegna vegamála og stöðugt bent á þá þjóðhags- legu nauðsyn, að hér séu byggð ir varanlegir vegir. Á síðastliðnum 10 árum hafa tekjur ríkissjóðs af umferðinni verið kr. 6.270 milljónir. Þar af varið kr. 2.644 milljónum til vegamála. Mismunur kr. 3.626 milljónir. Þetta samsvarar að aðeins 42.2% af framlagi bifreiðaeig- enda hefur verið varið til vega- mála. 3. FÍB bendir á það, að þær tekjur, sem Vegasjóð vanti, til að ljúka við áætlaðar hraðbraut ir hafa þegar verið greiddar af bifreiðaeigendum. Árið 1969 greiddu bifreiðaeigendur kr. r AskeSI Snorrason tónskáld Kveðja frá Karlakór Akureyrar VIÐ andlátsfregn Áskels Snorra sonar tónskálds setti okkur gömlu félaga hans úr Karlakór Akureyrar hljóða. Minningar koma fram í hugann hver af annarri, frá samverustundum okkar á fyrstu árum karlakórs- ins, en Áskell var stofnandi kórsins ásamt nokkrum áhuga- sömum ungum mönnum, og var fyrsti söngstjóri hans. Óslökkv- andi áhugi hans og fórnarlund fyrir málefnum kórsins unnu bug á öllum erfiðleikum. Hann hafði einstakt lag á að laða fram það fegursta og bezta í rödd hvers einasta manns, sem hann hafði fengið til að leggja kórn- um lið. Framkoma hans öll einkennd ist af svo sérstakri hjartahlýju og góðvild, að sjaldgæft er. Ætíð stóð okkur heimili hans opið til æfinga eða funda ef á þurfti að halda, og bjó hann þó þröngt á þeim árum, en þar var jafnan nóg rúm fyrir gesti, og margar ógleymanlegar stundii'- áttum við á heimili þein-a hjóna, Áskels og frú Guðrúnar Kristjánsdóttur, en hún er nú látin, aðeins nokkrum vikum á undan manni sínum. Yfir því hvíldi sérstakur menningar- blær, sem einkenndist af list- fengi húsráðenda í smáu og stóru. Eftir að Áskell varð að hætta söngstjórn af heilsufarsástæð- um fylgdist hann af áhuga með störfum kórsins og bar hag hans ætíð mjög fyrir brjósti. í virð- ingar- og þakklætisskyni fyrir störf hans í þágu kórsins var 852 milljónir. Til vegamála var- ið kr. 482 milljónum. Mismunur kr. 370 milljónir. Árið 1970 (áætlun) kr. 866 milljónir. Varið til vegamála (áætlun) kr. 510 milljónir. Mis- munur kr. 356 milljónir. Viðbótarfjárþörf Vegasjóðs árið 1971 er áætluð kr. 284.3 milljónir, svo að ekki er þörf á nýjum álögum á bifreiðaeigend ur heldur meiri sparnað á þeim fjármunum er ríkisvaldið hefur þegar fengið. 4. FÍB mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum ríkisvalds- ins að koma aftan að bifreiða- eigendum með nýjar álögur á þeim tíma, sem verðstöðvunar- lög eru í gildi. Þess er getið í blaðafregnum, að gert hafi verið ráð fyrir benzín- og þungaskattshækkun í verðstöðvunarlögunum en í - Meðalaldur og dánarorsakir (Framhald af blaðsíðu 8). in er hin háa fæðingaratla og hin háa dánartala af völdum barnsfara í þessum löndum. Yfirlit yfir dánarorsakir. Yfirlit yfir dánarorsakir í heiminum sýnir, að hjartasjúk- dómar og krabbamein eru efst á blaði í flestum iðnaðarlönd- um. í vanþróuðum löndum er yfirleitt látið uppi að algeng- asta dánarorsök sé ellihrum- leiki, án þess hann sé nánar skilgreindur. í Japan, Portúgal og Búlgaríu eru æðasjúkdómar algengustu dánarorsakir, en maga- og þarmasjúkdómar valda flestum dauðsföllum í Arabíska sam- bandslýðveldinu, Costa Rica og Colombíu. □ frumvarpinu, sem samþykkt voru á Alþingi 18. nóvember 1970, er hvergi nokkurs staðar minnzt á þetta atriði. Hvað sagt er munnlega á Al- þingi, er svo annað mál og telur FÍB það ósæmilega framkomu og virðingarleysi gagnvart ís- lenzku þjóðinni, að Alþingi þverbrjóti sín eigin lög og að ríkisvaldið hafi forgöngu í því, að hækka vöruverð og leggja á aukna skatta, þegar þjóðin öll verður að búa við verðstöðvun. 5. Allur samanburður við Norðurlönd um lægra benzín- verð er órökstuddur. 6. Bifreiðaeigendur hafa þeg- ar greitt á árinu 1969 og sam- kvæmt áætlun 1970, kr. 726 milljónir umfram það, sem var- ið hefur verið til vegamála og eru fúsir til að bera þær byrðar í framtíðinni, sem þeim ber í uppbyggingu vegakerfisins, inn an skynsamlegra marka. En meðan verðstöðvunarlög eru í gildi, þá mótmælir FÍB þessum auknu álögum og hvetur alla alþingismenn til að standa vörð um þessa réttlætiskröfu. Stjórn FÍB. hann kjörinn heiðursfélagi hans. Þó Áskell flytti til Reykjavík ur fyrir allmörgum árum, shtn- uðu ekki tengsl okkar við hann að fullu, því þó ekki væri um persónulegt samband að ræða, heyrðum við hann öðru hverju í útvarpinu leika á kirkjuorgel sín sérkennilega fögru tónverk, en okkur fannst þau lýsa öðru fremur góðvild hans og hjarta- hlýju. Hann ávann sér virðingu allra, sem kynntust honum og er hans nú sárt saknað' af sam- ferðamönnunum, en þó mest af þeim, sem næst honum stóðu. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. ÁVALLT FYRIRLIGCJANDI vörur í fjölbreyttu úrvali A HAGSTÆÐU VERÐI SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU KAUPFÉLAG EYFIRDINGA Nýlenduvörudeild Vefnaðarvörudeild Herradeild Jám- og Glervörudeild Byggingavörudeild Skódeild Véladeild Raflagnadeild Olíusöludeild Kjötbúð Stjömu Apótek Gummíviðgerð Þvottahúsið Mjöll Vátryggingadeild Hótel KEA Matstofa Útgerðarfélag Brauðgerð Efnagerðin Flóra Mjólkursamlag Kjötiðnaðarstöð Reykhús Skipasmíðastöð Smjörlíkisgerð Sláturhús og frystihús Sameign SÍS og KEA: Kaffibrennsla Akureyrar Efnagerðin Sjöfn T engdamamma verður sýnd í Laugarborg sunnudagskvöldið 27. des. kl. 20.30. — Aðgöngumiðar við innganginn. LAUGARBORG. tst'- ★ IGNIS heimilisfæki FYRIRLIGGJANDI: EiT KÆLISKÁPAR - allar stærðir Z.%* FRYSTIKISTUR ÞVOTTAVÉLAR -K Gæðárvara á góðu verði. RAFTÆKNI - Ingvi R. Jóhannsson Geislagötu 1 - Akureyri - Sími 1-12-23 og 1-20-72. SENDUM FELAGSMÖNNUM KAUPFÉLAGSINS, STARFSFOLKI ÞESS OG YIÐSKIPTAYINUM BEZTU OSKIR UM gleðileg jól, farscelt nýtt ár, MEÐ ÞOKK FVRIR ÞAÐ, SEM ER AÐ LÍÐA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.