Dagur - 10.03.1971, Blaðsíða 1
F1L.MU HÚSIÐ
Hafnarslrætj 104 Akurcyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Húfuverksmiðja í Borgarnesi
Á VEGUM Iðnaðardeidrar SÍS
er nú angt komið undirbúningi
að stofnsetningu verksmiðju í
Borgarnesi, sem framleiða á
kuldahúfur úr íslenzkum pelsa-
Bændaklíibbsfimdur
verður að' Hótel KEA mánu-
dagskvöldð 15. þ. m. og hefst
hann kl. 21. Sýndar verða
skuggamyndir teknar í bænda-
för sl. sumar. Einnig mun verða
myndagetraun og umræður um
daginn og veginn.
AHir þótttakendur í bænda-
förinni eru minntir ó að þeirra
sé vænst, ef ástæður leyfa. □
skinnum frá Iðunni. Verður
verksmiðjan í sama húsnæði og
verksmiðjan Vör, sem deildin
rak þar fyrir nokkrum árum.
Þegar þetta er ritað er verið að
vinna við að setja verksmiðjuna
upp, og er því starfi svo langt
komið, að væntanlega verður
starfræksla hennar hafin um
þær mundir er blaðið kemur til
lesenda.
Verksmiðjustjóri verður
Björgvin Oskar Bjarnason. sem
verið hefur starfsmaður hjá Iðn
aðardeild undanfarið, og var
hann í Þýzkalandi um þriggja
mánaða skeið á sl. árj á vegum
deildarinnar við að kynna sér
framleiðslu á kuldahúfum. □
Norskar konur vinna mikið úti
NORSKA hagstofan kannaði
nýlega fjölda útivinnandi giftra
kvenna þar í landi og gerði jafn
framt könnun á viðhorfum
heimaverandi húsmæðra til
vinnu utan heimilisins. í ljós
HELGI VALTYSSON
LÁTINN- — -
HELGI VALTÝSSON rithöf-
undur lézt á Akranesi 6. marz,
á 94. aldursári.
Hann var lengi kennari bæði
í Noregi og hér á landi, einnig
blaðaniaður, rithöfundur, skáld
og þýddi margar bækur. Bú-
settur var hann á Akure.vri frá
1935 og þar til fyrir örfáum ár-
um, að hann fluttist suður á
Akranes. i
Helgi Valtýsson var fjölgáfað
ur hugsjónamaður og hinn
ágætasti drengur. □
1163 atvinnulausir
UM síðustu mánaðamót voru
1163 íslendingar skráðir at-
vinnulausir á landinu öllu. Þar
af voru langflestir í kaupstöðun
um, eða 758. 58 voru skrððir í
kauptúnum með 1000 íbúa eða
fleiri, en 352 í öðrum kauptún-
um.
Um næstu mánaðamót á und-
an voru 1329 atvinnulausir, og
hefur því tala þeirra minnkað
nokkuð.
Hér á Akureyri urðu margir
atvinnulausir vegna stöðvunar
togaranna, enda mikil togara-
útgerð hér, auk fiskverkunar
og munar því mikið um þennan
þátt atvinnulífsins í bænum.
Að öðru leyti hefur atvinna
verið sæmileg á Akureyri og í
sumum greinum aukin starf-
semi atvinnugreina. □
kom, að 23% allra giftra kvenna
yngri en 60 ára í Noregi hafa
vinnu utan heimilis, og hefur
þetta hlutfall aukizt úr 10%
1960.
Þessi niðurstaða er talin
benda til þess, að Noregur sé á
leið inn á sömu braut og flest
önnur lönd Vestur-Evrópu, þ. e.
að það færist stöðugt í aukana,
að húsmæður fái sér vinnu után
heimilis, einkum þó í þéttbýl-
inu. Það kom líka í ljós, að í
borgum landsins var hlutfallið
•langt fyrir ofan meðaltal alls
landsins, því að t. d. í Osló
höfðu 43% allra húsmæðra á
þessum aldri vinnu utan heim-
ilis, en í Björgvin, Þrándheimi
og Stafangri var meðaltalið
31%. í sveitum landsins var
hlutfallið ekki nema 15%, en
þar er þó að því að gæta, að
langflestar húsmæður þar vinna
að sjálfsögðu mikið að landbún
aðarstörfum, sem ekki var tek-
ið með í þessum tölum. □
f Sandgerðisbót er unuið að gerð smábátahafnar er rúmað getur 40—50 trillubáta. (Ljm.: E.D.)
Lax gengur í 90 ár hér á voru landi
NÝLEGA var upplýst í sjón-
varpsþætti um veiðimál, að á
síðasta sumri hefðu hér á landi
veiðzt 56 þúsund laxar, allir í
fersku vatni, því að laxveiðar
eru bannaðar í sjó, þar af 40%
í net, einkum í Olvusá og Hvítá
í Árnessýslu og Hvítá í Borgar-
firði. Hæsta tala veiddra laxa
áður á einu sumri var 40 þús.
En þess ber að geta, að í Kolla-
fjarðarstöðina gengu rúmlega 4
þús. laxar. Þessa veiðiaukningu
má rekja til aukinnar laxrækt-
ar síðustu ár, og ennfremur
hafa laxasvæðin lengst með
gerð fiskvega.
Talið er, að lax gangi í 90 ár
hér á landi, þótt margar þeirra
beri naumast það heiti með
réttu enn sem komið er. En
þeim ám fjölgar, sem áður voru
laxlausar en eru nú verðmætar
laxveiðiár.
Hér norðanlands hafa Laufás-
fossar verið lagfærðir vegna lax
göngu, tveir laxastigar hafa
verið gerðir í Reykjakvísl, ann-
ar þeirra allmikið mannvirki.
í Selá í Vopnafirði er nýlegur
Eru að undirbúa keðjufiáningu á Blönduósi
Blönduósi 8. marz. Snjóföl er
hér en naumast hylur það jörð,
en það er storka. Nú er búin að
vera góð tíð og gjafaléttur vet-
ur. Þó er mjkið notað af kraft-
fóðri, eða svipað og í fyrra, það
sem af er vetri.
Atvinna er rnjög sæmileg hér
í kauptúninu. Við erum að
breyta sláturhúsinu hér fyrir
keðjufláningu, samkvæmt nýj-
um kröfum og vaxandi um slát-
urhús, sem flytja kjöt á erlenda
markaði. Nýlega er byrjað að
vinna að þeim breytingum og á
þeim að verða lokið fyrir næstu
sláturtíð. En auk breytinganna
í gamla sláturhúsinu, verður
einnig byggt við það. Er að því
stefnt, að geta tekið á móti 2500
fjár á dag eða allt að því. Þetta
er mesta framkvæmdin hjá okk
ur þetta árið, kostnaðaráætlun
er 27 milljónir.
Þennan geirfugl á Náttúrugripa
safnið á Akureyri. Er hann gerð
ur úr svartfuglshömum, og er
höfundur hans Kristján Geir-
mundsson. (Ljósm.: E. D.)
Önnur stórframkvæmd, sem
yfir stendur, er bygging barna-
skólans, sem stöðugt er unnið
að. Hugmyndin er að taka skóla
húsið í notkun næsta haust.
Blanda hefur verið fremur
hógvær í vetur og ekki sýnt af
sér neinn teljandi óhemjuskap
til skaða. Tilboð eru komin í
veiðiréttinn í Blöndu næsta
sumar, en samningar hafa ekki
farið fram. Á. J.
laxastigi, í Svartá í Skagafirði
er byrjað á laxastiga og í Laxá
í Þingeyjarsýslu er áhugi fyrir
laxvegi upp fyrir Brúarfossa.
í Þorvaldsdalsá á Árskógs-
strönd er fiskvegur undirbúinn
upp fyrir foss þann í ánni, sem
ekki hefur verið fiskgengur. í
Hítará á Mýrum var í sumar
byggður laxastigi við Kattar-
foss og þannig mætti lengur
telja.
Á síðasta aldarfjórðungi hafa
veiðisvæði lengzt við gerð fisk-
vega yfir 300 km.
Talið var fyrir fáum - árum,
að stangveiðidagar, seldir í
veiðiám landsins, væru um 15
þúsund, og er sú tala sennilega
komin í 18 þúsund eða jafnvel
20 þúsund á ári nú.
Eins og fyrr er sagt, eru 40%
af laxinum veidd í net. Ef því
væri hætt og árnar nytjaðar í
(Framhald á blaðsíðu 5)
ERINDI UM HEYVERKUN A BUNAÐARÞINGI
ALLMÖRG mál voru á dagskrá
Búnaðarþings við fyrri umræðu
í fyrradag, en engin mál af-
greidd. Þá flutti Benedikt Gísla
son erindi um heyverkunar-
aðferð sína.
Á sunnudaginn fóru búnaðar-
þingsfulltrúar upp í Kollafjörð
og skoðuðu fiskiræktarstöðina í
boði veiðimálastjóra.
Landbúnaðarnefnd Alþingis
hefur sent Búnaðarþingi frum-
varp til laga um stofnlánadeild
landbúnaðarins, landnám og
ræktun og byggingar í sveitum.
Þá hefur frumvarp að fjárhags-
áætlun Búnaðarfélags íslands
fyrirr árið 1971 verið lagt fram.
Laxárdeilan enn í brennidepli
SÁTTAFUNDUR í Laxárdeil-
unni hófst á Akureyri á laugar-
daginn, að tilhlutan iðnaðar-
ráðuneytisins. Þar voru deilu-
aðilar mættir svo og sáttasemj-
arar og ráðuneytisstjóri. Var
fyrst rætt við deiluaðila, hvorn
í sínu lagi, en á mánudaginn
sameiginlega. Þeim fundi stjórn
aði Jóktamm Hafstein forsætis-
og iðnaðarráðherra. Sættir tók-
ust ekki þann dag.
Félag landeigenda boðaði til
fundar í Skjólbrekku í gær.
Búist er við, eða a. m. k. rætt
um, að sáttafundi yrði fram
haldið á morgun, fimmtudag.
Því miður er lítil von um
árangur sáttatilrauna, eins og)
nu horfir. □