Dagur - 10.03.1971, Blaðsíða 7

Dagur - 10.03.1971, Blaðsíða 7
7 V) ÖFUGMÆLI” LAXNESS í SUNNUDAGSBLAÐI Tím- ans, 2. tbl. þ. á., las ég grein eft- ir Halldór Kyljan Laxness. Greinin nefnist „Hernaðurinn gegn landinu“. Blaðið Dagur á Akureyri segir að greinin sé „einn meiri háttar óður um hina dýrmætu náttúru lands- ins.“ Víst er um það að skáldið leggst þarna hraustlega á sveif með þeim, sem vilja verja feg- urðarverðmæti landsins gegn aðsteðjandi ósóma. En svo virð- ist sem H. K. L. hefði vel mátt láta það ógert að fara jafnframt, enn á ný, að reka olnbogana í sauðfjárrækt okkar íslendinga. H. K. L. spyr: „Ætli ísland sé ekki einna óhentugast land og mest öfugmæli til sauðfjárrækt- ar af öllum löndum heims.“ Það væri sannarlega mál til komið að biðja guð almáttugan að hjálpa þjóðinni, ef hún skyldi hafa búið við slíkt „öfugmæli“ alla tíð síðan land byggðist. Ein sönnun um það „öfug- mæli“ er að dómi höfundar greinarinnar sú að á íslandi sé ekki hægt að vera út í haga við fjárgeymslu á jólanóttina eins . og í Betlihem. Jæja! Ekki hægt. Ég held það gæti meira segja verið gaman. íslenzkir fjár- geymslumenn kæra sig bara ekkert um að þurfa að vera hafa andvara á sér eða liggja úti á sjálfa jólanóttina. Þeir hýsa þá heldur þá nóttina. Það munar ekki því. En svo maður sleppi nú öllu gamni, þá má nú segja, að grein arhöfundur hafi nokkuð til síns máls, þegar hann fer að tala um tilkostnaðinn við fjáreignina. Já, það er þessi ótti við það að GOLF-KENNSLA GOLFKLÚBBUR AKUREYR- AR veitir nú sem fyrr golf- kennslu, sem fram fer í íþrótta- skemmunni. Kennt er tvö kvöld í viku, á miðvikudögum kl. 5.30—7.30 og á föstudögum kl. 8—10. Kenn- ari er Sævar Gunnarsson. Kennsla þessi er ætluð byrj- endum, sem fá 5 tíma án endur- gjalds, svo og þeim, sem lengra eru komnir. Lengið golf-árið með því að byrja æfingar tímanlega. □ Hrísey 9. marz. Drangur er að fara frá bryggju, er í áætlunar- ferð í dag. Þessar endurvöktu ferðir Drangs eru okkur mikið gleðiefni. Veiðin er nánast engin. Við- gerð á frystihúsinu lýkur nú innan fárra daga. Hér er því mjög dauft á atvinnusviðinu, en vonandi rætist úr því. Á meðan búa menn sig undir grásleppu- þurfa nokkuð að reyna á líkam ann. Þetta nýíslenzka eða öllu heldur óíslenzka hugarfar, sem margur er svo ríkur af nú á tímum. Hvort það skyldi vera munur að þeysa á hesti í kringum fjár- hópana allt árig um kring eins og Patagöníumaðurinn, eða standa við slátt tíu tíma á dag eða lengur, viku eftir viku, eins og íslendingurinn hefur löng- um þurft að gera. En heyrðu vinur! Það skyldi þó aldrei vera, að fslendingurinn hafi eft- ir allt saman verið eins sæll og Patagöníumaðui’inn? Stephan G. segir á einum stað í kvæðinu Vorönn, að hann sé viss um, að hinn mikli al- heimssmiður muni aldrei hafa verið eins sæll og vikuna, sem hann skóp heiminn. Það var skrýtið! Hann var þó einn að verki og hann hlýtur að hafa orðið að leggja nótt við dag, því að enginn einn hefur nokkru sinni afkastað meiru á einni einustu viku. Hver skilur þetta nú á dögum? Einhver mun nú segja, að ekki sé allt búið með tilkostn- aðinn við sauðfjárbúskapinn, þó að heyskapnum sé lokið. Aumingja bóndinn þurfi að byggja hús yfir skepnurnar, en hvort hann lætur þær aldrei út allan veturinn, og hvort hann elur þær svo næsta mikið á korni. Það er hins vegar vafa- mál. Hvað sögðu Hólsfjalla- menn í vetur? Ekki leit út fyrir að fé þeirra stæði inni. Þeim stóð ógn af víðáttu beitilands- ins og sögðu, að það væri for- ystufénu að þakka að hægt væri að búa á Fjöllunum. Satt er það að vísu, að fé er yfirleitt miklu meira haft við hús nú á tímum en áður var. Enda miklu betur á sig komið ag vorinu en fyrrum. Það er skemmtilegt öfugmæli hjá H. K. L., að sauðkindin sé „í meira lagi óbeysin á vorin.“ Ær, sem skilar vænu reyfi að vorinu og tveimur lömbum að haustinu með 40 kílóa kjötþunga eða jafn vel vel það, hún má ekki vera „óbeysin“ að vorinu. Hún þarf að vera mun feitari að vorinu, en haustinu áður og hún er það líka allsstaðar, þar sem ég veiðarnar og aðra útgerð, en taka lífinu að öðru leyti með hinni mestu ró. Við höfum bingó í annarri hverri viku en spilakvöld hina vikuna. Þetta er svo sem nota- legt allt saman og menn vænta þess þó að bráðlega verði hægt að ta'ka til hendinni við fisk- veiðar og fiskverkun. S. F. þekki til. Og er henni þó meira og minna beitt í öllu venjulegu tíðarfari. Lambið þarf ekki mjög mikið fóður til þess að vera þó orðið talsvert þyngra gemlingurinn að vorinu. Þess veit ég dæmi að hrútar hafa verið þyngri að vorinu en haust ið eftir, án þess þó að vera mjög aldir. En það er ekki öll sagan sögð enn hvað sauðkindina snertir. Hlutverk hennar í þágu ís- lenzku þjóðarinnar hefur fleiri en eina hlið. Þetta dýr er, — auk þess sem það sér mann- skepnunni fyrir lifibrauði, — eitt af fegurðai-verðmætum landsins og síður en svo það ómerkasta. — Eitt af skáldunum okkar hef- ur fellt í ljóðstafi, orð Gunnars á Hlíðarenda, þau sem hann mælti, þegar honum reyndist um megn að yfirgefa fósturjörð- ina: „Sá ég ei fyr svo fagran jarðargróða, fénaður dreifir sér um græna haga, við bleikna akur rósin blikar rjóða.“ Gunnar horfir á þetta mikla málverk. Hann sér þar þrennt í einu: hlíðina víði vöxnu, hjörðina lagðprúðu, túnin ný- slegnu. Ekkert af þessu hefði mátt vanta. Ef til vill sízt af öllu hjörðina lagðprúðu. Hvað ætli Mývetningar segðu, ef hjörðinni lagðprúðu væri allt í einu kippt í burt úr- listaverk- inu mikla — sveitinni þeirra? Ætli fjalladrottningin hefði ekki orðið döpur daginn þann? — og það alveg eins þó að hún hefði fengið nóga stóriðjupen- inga fyrir sjálfa sig. Það mætti segja mér, að áhrif frá sam- skiptum við hina lagðprúðu hjörð hefðu gefið lofsöngvum um fjalladrottninguna einn af hans dýrustu hljómum. Ég man eftir einu litlu atviki frá yngri árum mínum. Ég hefi gaman af að skjóta því hérr inn í, af því það sýnir svo glöggt hversu sterk ítök sauðkindin íslenzka getur átt í hugum sumra manna: Ég var fjármaður hjá föður mínum. Hann bjó þá í Kaldbak við Húsavík. Það var eitt kvöld á jólaföstu, að Sigurður á Arn- arvatni kom í Kaldbak og baðst gistingar fyrir sig og annan mann. Ferðamenn þessir komu í fjárhús til mín um kvöldið. Ég hafði nýlokið við að hýsa féð. Það hefði mátt ætla, að Sigurð- ur — Mývetningurinn — kall- aði ekki allt ömmu sína, en þó fór svo, að hann gleymdi sér gersamlega, þarna í húsinu, við að skoða kindurnar mínar. Ég sé enn fyrir mér fýlusvipinn á félaga hans, — þar sem hann stóð við garðahöfuðið og beið, svangur og göngulúinn. Marga menn hefi ég þekkt, sem hafa gleymt sér á svipaðan hátt og Sigurður, þegar sauð- kindin hefur verið annars veg- ar. Og það oft og einatt án allr- ar íhlutunar hins hagræna sjón armiðs. Ég hefi líka þekkt menn, sem hafa verið farnir að hlakka til sauðburðarins strax á þorra. Og ég hefi þekkt menn, sem farnir voru að hlakka til gangnanna um mitt sumar. Þannig getur sveitamaðurinn skipt hverju ári fyrir sig í áfanga — áfanga, sem skilja eftir hjá honum, hver um sig, ómetanlega lífsfyllingu. — Á þorranum 1971. Óskar Stefánsson frá Kaldbak. i . ■ i a Innilegar þakkir fceri ég öllum þeim, sem syndu mér vinscmd á sextugsafmœli minu, 5. marz s.l. ^ | f | JÓHANNES EIRÍKSSON. | § , , f Innilegar þakkir fyrir auðsynda satnúð vegna and- láts og jarðarfarar VALDIMARS GUÐMUNDSSONAR, Hraukbæ j ar ko ti. Vandamenn. ) I HáSega enginn afli er í Hrísey □ RÚN 59713107 = 5 Frl.: I.O.O.F. Rb. 2 — 1203108y2 — II. FÖSTUMESSA verður í Akur- eyrarkirkju í kvöld (miðviku dagskvöld) kl. 8.30. Séra Björn H. Jónsson, Húsavík predikar. Guðmundur Gunn- arsson les Píslarsöguna. Sung ið verður úr Passíusálmunum sem hér segir: 10, 13.—17. v.; 11, 3.-5. og 16,—17. v.; 12, 21.—29. v.; 25, 14. v. Fjöl- mennið. Takið með Passíu- sálmana og syngið með. — B. S. MESSAÐ verður í Akureyrar- kirkju n k. sunnudag kl. 2 e. h. (Lok kirkjuvikunnar). Séra Bernharður Guðmunds- son æskulýðsfulltrúi kirkj- unnar prédikar. Sálmar: 26 — 218 — 317 — 114 — 203. — Sóknarprestar. KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION. Sunnudaginn 14. marz. Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. Oll börn velkomin. Samkoma kl. 8.30 e. h. Jón Viðar Guð- laugsson talar. Tekið á móti gjöfum til kristniboðsins. All- ir hjartanlega velkomnir. BRÚÐHJÓN. Hinn 6. marz sl. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju ungfrú Kristín Huld Harðardóttir og Sigurður Lúðvík Þorgeirsson verkamaður. Heimili þeirra verður að Gránufélagsgötu 43, Akureyri. INNILEGAR ÞAKKIR færum við öllum þeim sem studdu æskulýðsstarf kirkjunnar á Noi’ðurlandi með fjárframlög um, og með því að fjölmenna í kirkjurnar. — Stjórn ÆSK í Hólastifti. f ÁSTRALÍUSÖFNUNINA. Kr. 400 frá „frænda“ og kr. 3.500 frá börnum í Oddeyrarskól- anum. — Beztu þakkir. — Birgir Snæbjörnsson. i ÁRSHÁTÍÐ Vestfirðingafélags- ins verður að Hótel KEA laugardaginn 20. marz. Nánar auglýst síðar. I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99. Fundur mánudaginn 15. þ. m. í Varðborg — Félagsheimili templara — kl. 9 e. h. Venju- leg fundarstörf. Hagnefndar- atriði. Nýir félagar velkomn- ir. — Æ.t. SLÖKKVISTÖÐIN — Sjúkra- SLYSAVARNAKONUR Akur- bíllinn — Brunaútkall, sími 1-22-00. K VIKM YND ASÝNIN G að Hótel KEA fimmtudaginn 11. marz n. k. kl. 9 e. h. Aðgang- ur ókeypis. Allir velkomnir. — Þýzk-íslenzka félagið. SAMKOMA votta Jehóva að Þingvallastræti 14, II hæð: Hinn guðveldislegi skóli, föstudaginn 12. marz kl. 16.00. Opinber fyrirlestur: Gegnið skyldum hinnar sönnu trúar, sunnudaginn 14. marz kl. 16.00. Allir velkomnir. SKAKFÉLAG AKUREYRAR heldur aðalfund sinn að Hótel Varðborg sunnudaginn 14. marz kl. 2 e. h. Félagar fjöl- mennið. — Stjórnin. HJÁLPRÆÐISHERINN Börn — Börn. Barna- samkoma n. k. miðviku- dag kl. 6 e. h. Kvik- mynd. Fimmtudagskvöld kl. 5 e. h. saumafundur. Kl. 8 e. h. Æskulýðsfélagið. Hjálp- ræðissamkoma sunnudags- kvöld kl. 20.30. Deildarstjór- inn brigader Mortensen talar. LEIKFÉLAG AKUREYRAR TÓPAS eftir Marcel Pagnol. Þýðandi Bjarni Guð- mundsson. Leikstjóri Jó- ■hanna Þráinsdóttir. Frumsýning sunnud. kl. 8.30 e. h. Miðasala opin föstudag og laugardag kl. 3—5 og sunnudag kl. 3—5 og 7.30-8.30. Sími 1-10-73. Fastir frumsýningargest- ir vitji miða sinna föstu- dag og laiugardag, annars seldir öðrum. eyri. Munið aðalfund deildar- innar miðvikudaginn 10. þ. m. LIUJS SliL U B lAKUREYRA '' Afmælisfundur og koi kvöld í Sjálfstæðishí inu laugardaginn 13. marz 1 19. — Félagar! fjölmennið > takið með ykkur gesti. Stjórnin. SFRA SJALFSBJÖRG. Næstu félagsvistir verða í Alþýðuhúsinu fimmtudaginn 11. og 25. þ. m. kl. 8.30 e. h. Félagar, takið með ykkur gesti og hafið með spilara í parakeppninni. — Nefndin. FRÁ Skemmtiklúbbi templara! Vinsamlegast athugið að þriðja og síðasta spilakvöldið verður föstudaginn 12. marz en ekki laugardaginn 13. eins og áður var auglýst. Sjáið nánar í auglýsingu annars staðar í blaðinu. GJAFIR til Akureyrardeildar Rauða krossins: Öskudagslið Guðríðar Pétursdóttur og flokkur hennar kr. 350.00. Öskudagssöfnun Soffíu Páls- dóttur og Önnu Kristínu Páls dóttur og félagar kr. 200.00. Öskudagslið Karínar og Guð- rúnar kr. 420.00. Öskudags- söfnun Köru Guðrúnar Mel- sted kr. 360.00. Auður Ingi- marsdóttir, Úlfar Indriðason, Ingunn Indriðadóttir, Harpa Halldórsdóttir, Baldur Guð- laugsson, Hanna B. Ragnars- dóttir, Gýgja Harðardóttir, Þóra Harðardóttir kr. 276.00. Guðrún Jóhannesdóttir kr. 70.00. Dýrleif, Hafdís, Dýrleif og Jóhanna kr. 75.00. Frá Hildi, Hreindísi, Björgu, Rannveigu, Hólmfríði, Evu, Valdís Steinunn, Margrét kr. 575.00. Steinn Snorrason kr. 2.000.00. O. K. kr. 50.00. N. N, kr. 1.000.00. Ýmsir kr. 75.00. — Með þökkum móttekið. — G. Blöndal. MINNINGARSPJÖLD Fjórð- xmgssjúkraliússins fást í bóka verzl. Bókval. MINNINGARSPJÖLD Elli- heimilis Akureyrar fást í Skemmunni og Elliheimilinu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.