Dagur - 31.05.1972, Page 8
SMÁTT & STÓRT
keppni kvenna í Reykjavík
iTYRIR helgina fór fram í Há-
íkólabíói í Reykjavík fegurðar-
samkeppni kvenna, nánar til-
tekið á laugardagsnótt. Þar varð
nlutskörpust og hlaut titilinn
jUngfrú Islands 1972“ nítján ára
mær úr Reykjavík, Þórunn
Símonardóttir að nafni. En
átján ára stúlka frá Akureyri,
Katrín Gísladóttir, hlaut titilinn
„Fulltrúi ungu kynslóðarinnar11.
Sigurvegararnir hljóta ýmis
tækifæri til ferðalaga og fram-
haldskeppni, sem mörgum kon-
um er hugleikið.
(Á myndinni er Katrín Gísla-
dóttir til vinstri en Þórunn
Símonardóttir til hægri). □
ÞEIR HRINGDU OG KÆRÐU
Eiturlyfjamálið komst mjög á
dagskrá fyrir nokkrum dögum
á Akureyri og er í brennidepli
umræðnanna, vegna eiturlyfja-
sölu, sem nú er í rannsókn. Blað
ið hefur orðið vart við mikinn
ótta og reiði almennings, út af
þessu máli og er það vonlegt.
Tveir menn hafa frá því sagt í
þessum umræðum, að þeir
fengu heimsókn og var boðið
fíknilyf til kaups. Þessir menn
báðir afþökkuðu, en hringdu
strax á eftir til yfirvaldanna og
kærðu. Þetta er einmitt það,
sem gera ber.
FRÆÐSLA
Bæklingur um áfengismál og
eiturlyf, frá stjórn heilbrigðis-
mála, er nú víða kominn á heim-
ili, því að lionum var dreift í
skólum. Er þar mikla fræðslu að
finna um þessi mál. En fræðslan
er öruggust til varnar ofnotkun-
ar skaðlegra efna. Ungt fólk er
furðulega forvitið um áhrif hass
ins og fleiri eiturlyfja, en eng-
inn ætlar sér að verða þeim að
bráð. En hin lifandi lík of-
drykkjumanna og eiturlyfjaneýt
enda eiga að vera hverju heil-
brigðu ungmenni sú vörn, sem
flestu öðru er áhrifameira, ef
Tónleikar á Akureyri og Ólafslirði
Guðmundur Sigurjónsson.
RAIJA — Liísa Sipponen fiðlu-
leikari og Dirk von der Ehe
píanóleikari eru á tónleikaferða-
lagi á Norðurlandi um þessar
mundir. Raija — Liísa Sipponen
er ung að árum en liefur þegar
komið fram á mörgum opinber-
um tónleikum í deimalandi sínu
Finnlandi við ágætar undirtekt-
ir og dóma. Faðir Liísu er þekkt
ur tónlistarmaður og kórstjóri í
Finnlandi og skólastjóri við tón-
listarskóla í Jyvalskylae. Liísa
lauk einleiksprófi frá tónlistar-
háskóla á þessu vori og er nú í
Frá Skákfélagi Akureyrar
.AÐALFUNDUR Skákfélags
Akureyrar var haldinn að Hótel
Varðborg laugardaginn 20. apríl
1972. Ný stjórn var kosin, og
skipa hana eftirtaldir menn:
Formaður Guðmundur Búa-
son, gjaldkeri Þóroddur Hjalta-
'ín, ritari Viðar O. Stefánsson,
skákritari Karl Steingrímsson,
ahaldavörður Gylfi Þórhallsson.
Fimmtudaginn 25. maí tefldi
Guðmundur Sigurjónsson skák-
meistari klukkufjöltefli við tólf
menn úr skákfélaginu, og var
umhugsunartími 2 klst. á hverja
skák. Þeirri keppni lauk með
yfirburðarsigri Guðmundar og
hlaut hann UV2 vinning af 12
mögulegum. Gerði hann aðeins
eitt jafntefli, við Guðmund Búa-
ráði að hún hefji nám við meist-
aradeild tónlistarháskólans í
Moskvu. Dirk von der Ehe hef-
ur starfað um tveggja ára skeið
við Tónlistarskólann á Neskaup-
stað, en áður hafði hann getið
sér gott orð sem tónlistarmaður
og kennari í Gosslar í Þýzka-
landi. Hann hefur verið mjög
virkur kórstjóri og unnið að
samvinnu skandenavískra og
þýzkra kóra ungs fólks, með
þeim árangri að þegar eru hald-
in kórmót með þátttöku kóra frá
þessum löndum, og á Dirk drjúg
an þátt í þeirri þróun. Dirk hef-
um oft komið fram á tónleikum
í Þýzkalandi.
Á tónleikaskránni eru lög eft-
ir Schubert, Sibelius, Rubin-
stein, Bach-Gounod, Bach og
Handel, og er efnisskráin skip-
uð mörgum vinsælum og sígild-
um verkum.
Á Akureyri fara tónleikarnir
fram næstkomandi fimmtudags-
kvöld (1. júní) kl. 9 í sal Tón-
listarskólans, Hafnarstræti 81.
Miðasala fer fram við inngang-
inn og í Bókval. Verði á miðum
er stillt í hóf og atdygli skal
vakin á því' að salur skólans
rúmar aðeins 90 manns í sæti.
Kvöldið áður leika Dirk og
Liísa á Ólafsfirði, eða kl. 21. □
TILKYNNÍNG TIL
ÞÁTTTAKENDA
ÞAÐ eru vinsamleg tilmæli að
þátttakendur sæki gjaldeyrir
sinn í Landsbankaútibúið á
Akureyri frá og með mánudeg-
inum 5. þ. m. milli kl. 17 og
18.30. Þá má taka farseðla sömu
daga, en þeir verða afhentir á
skrifstofu F ramsóknarf élag-
anna, Hafnarstræti 90, Akureyri
frá kl. 13.30 til 13.30. Brottfarar-
tími verður auglýstur í næstu
viku. Ferðanefnd.
Stofnfundur Búnaðar- og
arðyrkjufélags Islands
Nú er úihaginn orðinn algrænn
Á NÍUTÍU ÁRA afmæli Bænda-
skólans á Hólum, 14. maí 1972,
komu saman að Hólum skóla-
stjórar og allmargir af kennur-
ura bændaskólanna á Hvann-
eyri og Hólum og Garðyrkju-
skóla ríkisins á Reykjum í Ölf-
usi og stofnuðu Búnaðar- og
garðyrkjukennarafélag íslands.
Hlutverk þess á að vera að efla
samstarf milli starfsmanna þess-
ara stofnanna og vera málsvari
þeirra út á við.
í stjórn voru kjörnir: Guð-
mundur Jónsson, Hvanneyri,
Grétar Unnsteinsson, Garðyrkju
skóla ríkisins, Magnús Óskars-
son, Hvanneyri, og til vara Har-
aldur Árnason, Hólum.
Á stofnfundi voru rædd
fræðslumál bændastéttar og
garðyrkjumanna. Meðal annars
var gerð eftirfarandi ályktun:
„Fundur í Búnaðar- og garð-
yrkjukennarafélagi íslands, hald
inti á Hólum 14. maí 1972, skor-
ar á stjórnvöld að efla rannsókn
arstarfsemi í landbúnaði og garð
yrkju við Bændaskólann á
Hvanneyri og Hólum og Garð-
yrkjuskóla ríkisins á Reykjum í
Fundurinn bendir á, að fram-
farir og breytingar eru afar örar
í þessum greinum. Skólunum
ber að hafa þar nokkurt frum-
kvæði og stuðla að því að starfs-
menn skólanná hagnýti betur
þær framfarir, sem verða með
því að gefa þeim kost á að vinna
að rannsóknastörfum. Á skóla-
setrunum eru fyrir hendi að-
staða, sem nýta má og nýta ber
til. þessara verkefna.“
(Fréttatilky nning
Reynihlíð 30. maí. Búið er að
sleppa lambám og nú hef ég
skrifað í dagbók mína, að úthagi
sé algrænn, en þar miða ég við
fjalldrapann.
Sauðburður hefur gengið með
afbrigðum vel í Mývatnssveit að
þessu sinni og er honum að
ljúka.
Lítið orð fer af veiðiskap,
enda hefur annríki manna við
sauðburð og vorverk verið svo
mikið, að veiðiskapurinn hefur
lítið verið stundaður.
Rykmý var hér mikið í hitan-
um, bæði í eyjunum og á sum-
um stöðum við vatnið. Og sam-
kvæmt veðráttunni ætti mý-
vargurinn að fara að láta að sér
kveða niður við Laxá, en hann
lifnar eingöngu við straumvatn-
ið. Síðan getur hann borist víða
með vindum, en rykmýið er stað
bundnara og dreifist ekki mikið.
Vegir eru vfirleitt góðir, en þó
er stöðugt kvartað undan lélegu
vegaviðhaldi milli Mývatnssveit
ar og Grímsstaða.
Eftir nokkra daga verður hér
þingað í máli því, sem upp reis
út af eignarétti á botni Mývatns.
Ferðamenn munu verða marg
ir í sumar, samkvæmt þeim
pöntunum, sem fyrir liggja um
hótelherbergi, er voru fleiri en
nokkru sinni áður. P. J.
menn vilja sjá hlutina raun-
sæjum auguin.
ALMENNINGSÁLITIÐ OG
YFIRVÖLDIN
f þessum máhun þarf sterkt og
heilbrigt almenningsálit að fara
saman við röggsamlega afstöðu
yfirvalda. Hér er ekki um neitt
lítið að tefla. Hér er um lífsham-
ingju og líf fjölda manns að
ræða. Enginn má í þessu efni
verða hlutlaus áhorfandi, frem-
ur en í baráttu við berklaveiki
og holdsveiki. Og almenningur
á einnig að krefjast þess, að Iög-
regluyfirvÖld taki eiturlyfja-
málið föstum tökum. Ekkert má
til spara, ekki heldur sérfræði-
lega þekkingu þá, sem hið nýja
og fyrsta eiturlyfjamál á Akur-
eyri kallar á.
LÓFAKLAPP I KIRKJUM
Nokkur hefur verið um það
rætt á Akureyri, hvort það sé
vanhelgun í kirkju að láta lirifn
ingu og þakklæti í ljósi með því
að klappa saman Iófum. Hér í
Akureyrarkirkju var fyrir all-
mörgum árum farið fram á það,
að slíkt yrði niður lagt og var
svo gert. En ekki eru allir
ánægðir með það, t. d. á tónleik-
um í kirkjunni, að áheyrendur
megi ekki Iáta fögnuð sinn í
ljósi með lófataki, og telja sak-
laust að klappa saman lófum.
ÞARF AÐ SETJA REGLUR
Þetta ágreiningsmál verður ekki
leyst nema með reglum, er segi
til um liegðun manna í kirkjutn
viðkomandi hinu niarga, sem
þar þykir við hæfi að flytja al-
menningi. í kirkjum Vestur-
lieims er víða klappað, og á
annan hátt endurspegluð áhrif
af söng, predikun eða hverju
öðru, er þar fer fram. Þjóðverjv-
ar hafa hins vegar sett sér vissar
reglur unt þetta cfni, en þar
virðist lófaklappið bundið vissu
leyfi og sé því þá stjórnaö af
kór og djákna eða kirkjuverði.
Kirkjuleg yfirvöld í þessu landi
eiga að láta mál þetta til sín
taka vegna þess að sitt sýnist
hverjum í hópi safnaða.
FIMMTÍU ÍSLENDINGAR
REKNIR
Finmitíu fslendingum hefur ver
ið vísað úr landi í nokkrunt dval
arlöndum, síðustu fjögur árin,
vegna þátttöku í'sölu eiturlyfja
eða neyzlu á þeint, segir eitt
Reykjavíkurblaðanna nýlega.
Munu þar þó ekki öll kurl kom-
in til krafar, því að venjulega er
reynt að láta slíkt ekki fréttast.
Flest munu þetta ungar stúlkur,
sem fara úr landi eða eru send-
ar þangað „til að mennta sig“.
TIL LESENDA
Enn eru menn beðnir að skila
auglýsingahandritum fyrir lrá-
degi á þriðjudögum, sem prenta
á í miðvikudagsblöðum.
FIMMTUDAGINN 8. júní n. k.
verður fermingarbarnamót fyrir
börn fermd í Eyjafjarðarpró-
fastsdæmi á þessu viri. Mótið
verður sett í Freyvangi kl. 10.30
f. h. og stendur allan þann dag,
í félagsheimilinu, Laugalandi og
Munkaþverárkirkju. Þar verður
fjölbreytt dagskrá: Helgistund,
íþróttir, útileikir, helgistund,
kirkjuganga og kvölavaka.
Þátttakendur eru beðnir að
tilkynna sóknarpresti sínum
þátttöku sem allra fyrst. Sér-
hver athugi að hafa með sér á
mótiá:
1) Mat til dagsins (mjólk fá
allir eftir vild á staðnum).
2) Hlýjan fatnað, útbúnað til
íþróttaiðkana (sundföt).
3) Nýja-testamentið.
4) 50 krónu .þátttökugjald.
5) Æskilegt er að þeir hafi
myndavél, sem eiga.
Hver hópur sér sjálfur um
farkost á mótið og til baka. Mót-
inu lýkur um kl. 9.30 e. h. Ferm-
ingarbörn úr öllum prestaköll-
um í Eyjafirði eru hvött til þess
að koma á mótið.
Fermingarbarnamótsnefndin.