Dagur - 21.06.1972, Síða 1
1« IvMllf
rítodakj " FILMUhúsið [VttVul táavete pappw AKUREYRI
Sumarhátíð Framsóknarmanna
haldin að Laugum í Reykjadal
SUMARHÁTfÐ Framsóknar-
manna í þessu kjördæmi verður
á Laugum í Reykjadal og stend
ur frá 30. júní til 2. júlí, og er
hátíðin auglýst í blaðinu í dag
á öðrum stað.
Búist er við fjölmenni á hátíð
þessari, enda margt til skemmt-
unar, og fólki bent á, að þar eru
tjaldstæði góð, einnig gisting og
greiðasala, svo sem allir vita,
sundlaug o. s. frv. Ef veður
HELZT AFLI Á
ÞISTILFÍRM
Raufarhöfn Í9. júní. Hér var
éljagang'ur í gær og fyrrinótt
og fremur kuldalegt.
Aflinn hefur verið tregur.
Dekkbátar hafa verið með næt-
ur en aflað of lítið, helzt þó í
Þistilfirði. Jökull landaði 40
tonnum fyrir helgina svo að nú
er vinna, en hún hefur verið of
stopul.
Grásleppuveiðin gekk sæmi-
lega í vor. Hana stunduðu færri
en fyrr. H. H.
Falihlífarstökk á Akureyri 17. júní.
(Ljósmyndastofa Páls)
TÚN í Mývatnssveit eru orðin
mjög vel sprottin og mun slátt-
ur hefjast í næstu viku.
Grenjaskyttur hafa verið á
ferðinni og hafa þrjú greni ver-
ið unnin og við eitt grenið fund
ust lambaræflar. Sigurgeir Jón-
asson frá Vogum vann dýrbít í
Lúdent. Hann fann tófudrepið
lamb og lagðist hjá því sam-
dægurs. Ekki leið á löngu þar
til móðir lambsins kom þangað
á flótta undan refnum og fylgdi
henni hinn tvílembingurinn.
Sigurgeir, sem er grenjaskytta
góð, skaut ref þennan á 100
metra færi með kúluriffli. Síðar
fannst grenið og var það að fullu
unnið.
Dagsframleiðslumet hafa ver-
ið sett í Kísiliðjunni og eru
afköst á undan áætlun. Stöðugt
er dælt úr vatninu og fram-
leiðslan er seld fyrirfram.
Sem dæmi um þann usla, sem
minkurinn veldur á fuglalífi, er
það, að fyrir 10-—15 árum var
Kiðey fram af Geiteyjarströnd
mikil varpeyja. Þar verptu topp-
endur og húsendur mjög mikið,
svo og aðrar tegundir í minna
mæli. Nú er varpið að fullu horf
ið vegna minksins. Þar er eitt
hrafnsandarhreiður nú. Það er
líka af völdum minksins, að
varp í Slútnesi er nálega horfið.
En þar voru áður tekin um 10
þúsund andaregg á ári.
(Samkvæmt viðtali við Jón
Árna Sigfússon í Víkurnesi).
FRÁ LÖGREGLUNNI
Fjallkonan: Katrín Gísladóttir.
17. JÚNÍ
HÁTÍÐAHÖLDIN 17. júní á
Akureyri fóru fram undir beru
lofti að venju og voru þau fjöl-
breyttari en oft áður. Veður var
svalt og þátttaka því minni en
annars hefði orðið, en þó furðu
góð.
Lúðrasveit Akureyrar undir
stjórn Roar Kvam setti svip
sinn á hátíðina, er hófst upp úr
hádegi á Ráðhústorgi. Ávarp
fjallkonunnar flutti að þessu
sinni Katrín Gísladóttir.
Á íþróttavellinum var lúðra-
blástur og helgistund, sem séra
Pétur Sigurgeirsson annaðist.
En aðalræðu dagsins flutti Barði
Friðriksson hæstaréttarlögmað-
ur og nýstúdentinn Sigurgeir
Þorgeirsson flutti einnig ræðu.
Frjálsar íþróttir voru öðru
hverju, á milli annarra atriða
dagskrárinnar, ennfremur hand
knattleikur karla á milli KA og
Þórs.
Þótt kalt væri biðu flestir þess
að flugsýning hæfist. Húnn Snæ
dal flaug sínum fljúgandi diski
eða hvað farartækið hans, mjög
verða hagstæð getur fólk átt
dýrðardaga á Laugum um þessa
helgi. Halldór É. Sigúrðsson
ráðherra verður meðal ræðu-
manna á hátíðinni. O
SAMKVÆMT viðtali við yfir-
lögregluþjóninn í gær:
Honda-bifhjóli var stolið frá
Norðurgötu 11, aðfárarnótt 17.
þ. m. Lögreglan biður um að-
stoð í málinu.
Hinn 17. júní var mjög mikil
umferð í bænum en án slysa.
Um kvöldið var dansað til mið-
nættis á Ráðhústorgi og dans-
leikið voru í Alþýðuhúsinu og
Sjálfstæðishúsinu til kl. 2. Frá
klukkan 9 að kveldi hátíðadags
bar talsvert á ölvun, einkum
meðal unglinga, mun meira en
fyrirfarandi ár. Margir ungling-
ar voru fluttir heim, ósjálf-
bjarga, og 10 manns gistu stein-
inn þá nótt.
Það sem af er þessu ári hafa
fangelsanir verið mun tíðari en
á sama tíma í fyrra. Hinn 20.
júní í fyrra höfðu 203 gist stein-
inn, en nú 388. □
Ileykökuverksmiðjan nýja.
(Ljósm.: E. D.)
ý heyverkunaraðlerð reynd á Akureyri
Á FOSTUDAGINN var ný hey-
verkunaraðferð reynd á Búfjár-
ræktarstöðinni á Akureyri. Þar
var búið að setja upp danska
heykökuverksmiðju frá Taarup
á Fjóni, sem Búnaðarsamband
Eyjafjarðar keypti á 5 milljónir
ísl. króna. Er þetta fyrsta verk-
REYRI
Karlakór Akureyrar söng undir
stjórn Jóns Hlöðvers Áskelsson-
ar á Ráðhústorgi á tíunda tím-
anum.
Knattspyrnufélag Akureyrar
sá um undirbúning og fram-
kvæmd 17. júní hátíðahaldanna
á Akureyri. □
smiðja sinnar tegundar, sem
flutt er til landsins, en von mun
á fleiri í sumar. Henni má skila
í haust, ef hún svarar ekki þeim
kröfum, er til hennar eru gerð-
ar, eða hentar ekki staðháttum
eftir notkun í sumar. Það er
Véladeild SÍS, sem verksmiðjur
þessar flytja inn og hefur sá inn
flutningur verið í undirbúningi
í nokkur síðustu ár.
Ármann Dalmannsson setti
verksmiðjuna í gang, að við-
stöddum stjórnarmönnum BSE,
SNE, Rannsóknarstofu Norður-
lands, ráðunautum héraðsins og
úr Skagafirði, bændum og blaða
mönnum. Þá var þar og staddir
verkfræðingur framleiðenda,
Arne Riis, og Ove Jensen tækni
maður, og svo þeir Gunnar
Gunnarsson og Jón Þór Jóhann-
esson frá Véla- og Búvörudeild.
Heykökuverksmiðjan vegur 8
tonn og er hún á hjólum, um
10 metrar á lengd. Aflvél henn-
ar brennir olíu. Verksmiðjunni
fylgir sláttuvél, sem slær grasið,
saxar það og blæs því á 8 rúm-
metra flutningavagn, er skilar
því upp í verksmiðjuna. Véla-
samstæðan er sjálfvirk' og getur
einn maður annast heyskapinn,
slegið og ekið heyinu í verk-
smiðjuna. En heykökurnar þarf
svo að taka og láta á geymslu-
stað. Afköstin telur framleið-
andi 700 kg. af heykökum á
klukkustund, eða ca. 500 fóður-
einingar.
Framleiðsla verksmiðjunar er
pressað gróffóður, mjög fallegt,
mótað í kökur. Hér er hvorki
(Framhald á blaðsíðu 5)
Snjóaði í fjöll
Haganesvík 19. júní. Tún eru
víða orðin vel sprottin hér í
sveitum og átti sláttur að hefj-
ast nú um helgina, en var frest-
að vegna þess hve illa viðraði.
Mun verða farið að slá þegar
veður skánar.
Hér eru ýmiskonar bygginga-
framkvæmdir á döfinni, en vönt
un er á smiðum, en mun þó úr
rætast. Það eru einkum útihús
og stækkun útihúsa, sem bænd-
ur hafa með höndum, vegna
stækkandi bústofns.
Um helgina snjóaði niður að
byggð, en veður fer nú batn-
andi. E. Á.
undarlegt, heitir nú, og Harald-
ur Ásgeirsson sýndi svifflug. Þá
stökk Eiríkur Kristinsson í fall-
hlíf úr mikilli hæð og lenti á
miðjum íþróttavellinum.
Barnaskemmtun var á Ráð-
hústorgi, skemmtiþættir sýndir
og hljómsveitir gerðu sitt bezta.
V
A AKU