Dagur - 18.10.1972, Page 6
6
I.O.O.F. 1541020 — 9 — 0 =
AKUREYRARKIRKJA. Mess-
að verður n. k. sunnudag kl.
2 e. h. Vetrarkoma og dagur
aldraðra í söfnuðinum. Eftir
messu býður sóknarnefnd og
safnaðarráð eldra fólki til
kaffidrykkju í kapellunni.
Kiwanisklúbburinn Kaldbak-
ur sýnir enn þann góðvilja að
aka öldruðum til og frá
messu, og er fólk beðið að
hringja í síma 21045 frá 10—
12 á sunnudagsmorguninn.
Sálmar í messunni: 484 —
368 — 199 — 252 — 485. —
B. S.
SUNNDDAGASKÓLl
Akureyrarkirkju verður n. k.
sunnudga kl. 10.30 f. h. Öll
börn hjartanlega velkomin.
— Sóknarprestar.
MÖÐRU V ALL AKL AU STURS-
PRESTAKALL. Guðsþjón-
usta að Glæsibæ n. k. sunnu-
dag 22. okt. kl. 2 e. h. —
Sóknarprestur.
LAUGALANDS PRESTA-
KALL. Messað á Grund n. k.
sunnudag kl. 13.30. Prófastur-
inn, séra Stefán Snævarr,
predikar og vísiterar kirkj-
una.
SJÓNARHÆÐ. Almenn sam-
koma verður n. k. sunnudag
kl. 17. Unglingafundur n. k.
laugardag kl. 17. Verið hjart-
anlega velkomin.
GLERÁRHVERFI. Sunnudaga-
skóli verður n. k. sunnudag í
gamla skólahúsinu kl. 13.15.
Öll börn velkomin.
SAMKOMA votta Jehóva að
Þingvallastræti 14, II hæð.
Opinber fyrirlestur: Ham-
ingjusamt fjölskyldulíf,
sunnudaginn 22. október kl.
16.00. Allir velkomnir.
BAHAI. Ó afkvæmi duftsins.
Ver ekki ánægður með þæg-
indi líðandi daga, og sviptu
ekki sjálfan þig hinum eilífa
friði. Skiptu ekki á garði
eilífrar gleði fyrir rykhaug
dauðlegrar veraldar. Stígðu
úr fangelsi þínu í hið dýrð-
lega engi hið efra og haf þig
til flugs úr búri dauðans til
Paradísar, sem á sér ei stað
né stund. — BAHÁ ’U’ LLÁH
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZÍON.
Sunnudaginn 22. okt. Sunnu-
dagaskóli kl. 11 f. h. Öll börn
velkomin. Samkoma kl. 8.30
e. h. Ræðumaður Reynir
Hörgdal. Allir hjartanlega
velkomnir. Böm takið eftir,
fundir falla niður hjá
K.F.U.M. og K. n. k. laugar-
dag vegna bazars í húsinu.
FÍLADELFÍA, Lundargötu 12.
Sunnudagaskóli hvern sunnu
dag kl. 11 f. h. Öll börn vel-
komin. — Almenn samkoma
hvern sunnudag kl. 8.30 síðd.
Verið velkomin. — Fíladelfía.
Æ.F.A.K. Fundur verð
jVwvM ur í stúlknadeild í
kirkjukapellunni n. k.
N S miðvikudagskvöld kl.
8. Kosningar, kvikmynd o. fl.
Allar stúlkur, sem fermdust
síðastliðið vor velkomnar. —
Fundur verður í aðaldeild
n. k. fimmtudag kl. 8.0. Kosn-
ingar o. fl. Mætið vel og
stundvíslega. — Stjórnin.
ÁHEIT á Strandarkirkju kr.
500 frá G. G. og kr. 2.000 frá
G. M. — Beztu þakkir. — B. S.
BRÚÐHJÓN. Þann 30. septem-
ber sl. voru gefin saman í
hjónaband af séra Óskari J.
Þorlákssyni brúðhjónin ung-
frú Guðrún Maríanna Frið-
jónsdóttir og Pálmi Björn
Jakobsson íþróttakennari.
BRÚÐHJÓN. Hinn 14. október
voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Svanhildur Sig-
urðardóttir hjúkrunarnemi
og Júlíus Kristjánsson mjólk-
urfræðingur. Heimili þeirra
verður að Austurbyggð 12,
Akureyri.
HJÓNAEFNI. Hinn 7. október
sl. opinberuðu trúlofun sína
Guðrún Jóhannesdóttir,
Klambraseli, Reykjahverfi og
Guðmundur Kristján Guð-
mundsson framreiðslumaður,
Reykjavík.
I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr.
275. Fundur fimmtudaginn
19. okt. kl. 21 í félagsheimili
templara, Varðborg. Venju-
leg fundarstörf. Inntaka
nýrra félaga. — U.m. St.
I.O.G.T. ísafoldarfélagar. Mun-
ið kvöldvökuna á sunnudag-
inn 22. okt. kl. 8 e. h.
I.O.G.T. Haustþing Umdæmis-
stúkunnar nr. 5 verður hald-
ið í Varðborg, félagsheimili
templara, laugardaginn 21.
okt. n. k. og hefst kl. 2 e. h.
Rætt verður um reglustarfið
í umræminu. Ólafur Þ. Krist-
jánsson, stórtemplar, flytur
ræðu á þinginu. — Fram-
kvæmdanefndin.
KVENFÉLAGIÐ FRAMTÍÐIN
heldur fund miðvikudaginn
18. okt. kl. 8.30 í Elliheimili
Akureyrar. — Stjórnin.
GJÖF. Til afgreiðslu blaðsins
hefur borizt gjöf til fólksins
á Króksstöðum, er brann hjá,
frá starfsfólki Iðunnar, alls
kr. 3.800.
GJAFIR. Til hjónanna Heiðrún
ar Steingrímsdóttur og Þor-
steins Jónatanssonar hafa bor
izt peningagjafir á afgreiðslu
blaðsíns: Kr. 2.000 frá G.
Kristjánsdóttur, kr. 11.800 frá
starfsfólki á Bjargi, kr. 2.000
frá 'S. B. J., kr. 500 frá Unni
Jónsdóttur, kr. 500 frá G. R.,
kr. 1.000 frá í. Á., kr. 1.000 frá
K. H., kr. 5.000 frá Bílasölu
Norðurlands, kr. 1.000 frá
J. B. J. og kr. 600 frá ónefnd-
um. — Samtals kr. 25.400. —
Þeir er vilja leggja eitthvað
af mörkum til þeirra hjóna er
bent á, að fyrirhugað er að
hætta söfnuninni um næstu
mánaðamót.
ÞAKKIR. Fundur haldinn í
Náttúrujækningafélagi Akur-
eyrar 15. okt. 1972, sendir
bæjarstjóra og bæjarstjórn
Akureyrar sitt innilegasta
þakklæti fyrir þá höfðinglegu
gjöf, sem félaginu barst á 110
ára afmæli Akureyrarbæjar
þann 29. ágúst síðastliðinn, að
upphæð ein milljón kr. til
byggingar hressingarhælis.
TIL sjúkraflugvélarinnar krón-
ur eitt þúsund frá M. F. og
krónur eitt þúsund frá P. R.
— Beztu þakkir. — Sesselja
Eldjárn.
SLYSAVARNAFÉLAGSKON-
UR. Munið að bazarinn er á
sunnudaginn 22. okt. kl. 3.
Vinsamlegast komið munum
og brauði til nefndarinnar,
hverfisstjóra, Markaðinn eða
látið vita og það verður sótt.
Gefum allar. — Nefndin.
BARNAVIKA Hjálpræðishers-
ins. Samkomur fyrir börn á
hverju kvöldi kl. 5 frá og með
sunnudeginum 22. okt. til og
með laugard. 28. okt. Öll börn
hjartanlega velkomin.
GJÖF. Nýlega færði kvenfélag-
ið Iðunn í Hrafnagilshreppi
Grundarkirkju góða gjöf, sem
eru 25 sálmabækur hinar ný-
útgefnu, og þakka eigendur
kirkjunnar hér með þessa
hugvitsömu gjöf. — F. h. eig-
enda kirkjunnar, Gísli Björns
son.
LIONSKLUBBURINN
TÍWfk H U G I N N. Fundur
fimmtudaginn 19. þ. m.
kl. 12 á Hótel KEA. —
Stjórnin.
BAZAR hefir Kristniboðsfélag
kvenna í Zíon laugard. 21.
okt. kl. 4 e. h. Margt góðra
muna, einnig kökur og blóm.
Komið og styrkið starfið.
GJAFIR. Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri hafa borizt
eftirfarandi gjafir: Frá Kven-
félagi Fnjóskdæla kr. 30.000.
Áheit frá Kr. Sig. kr. 5.000.
Áheit frá Valgerði Aðalsteins
dóttur kr. 5.000. Gjöf frá N.
N. kr. 5.000. Áheit frá N. N.
kr. 250. Minningargjöf um
Sigríði Sigurðardóttur frá
gamalli konu kr. 5.000. Minn-
ingargjöf frá Lovísu og Jóni
kr. 12.935. — Með kærri þökk
móttekið. — Torfi Guðlaugs-
son.
„RÉTTLÆTIÐ upp hefur lýð-
inn, en syndin er þjóðanna
skömm.“ (Orðskviðir Saló-
mons 14. 34.). „Hann, hinn
réttláti þjónn minn (Jesús
Kristur), mun gera marga
réttláta, og hann mun bera
misgerðir þeirra,“ segir Guð.
(Jes. 53. 11.). Þeir, sem vilja
upp hefja íslenzku þjóðina,
eiga því að snúa sér til Krists.
— S. G. J.
GOÐAR
GOTT
VERÐ
N Ý K -O M I Ð :
MJÖG FALLEGT ÚRVAL AF
HERRASKYRTUM
SÍMI 21400
^HERRADEILD
TILKYNNING
frá Stofnlánadeild Landbúnaðarins
Með tilkynningu dags. 10. ágúst s. 1. var auglýst,
að lánsurnsóknir, sem til greina ættu að koma á
árinu 1973, vegna framkvæmda, annara en véla-
kaupa, ættu að berast bankanum fyrir 15. októ-
ber 1972.
Ákveðið ær nú að frestur þessi verði framlengdur
til 15. nóvember 1972.
Að öðru leyti er tilkynning vor frá 10. ágúst s. 1.
óbreytt.
Reykjavík, 9. október 1972
BÚNAÐÁRBANKI ÍSLANDS,
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS.
©•i-5!W-©-i-ir<S-©-i-i!'í'}-©-i-iit'}-©-i-5!'t'}-©-i-ii'c'}-©-i-*S-©-i--*'}.©-i--:!É'}.©'}-:i';'}.©.i.i&'}-©-^
* ?
lI
I
Öllnm þeim mörgu Sebi glöddu mig á áttrœðis-
afmœli míuu. 5. okt. s. L, sendi ég minar i?i7iileg-
ustu kveðjur og hjartans þakliir.
Guð blessi ykkur.
ÞORBJÖRN KAPRASÍASSON. ,
^d-i»4-}-©'i-*'í-©'i-S
I
f
©•5-?S^©'}-5^©'í-'-:S-J-©'i-?!h}'©'i--:;s}-©'i-*'M3'i-*'}-©'HiN-®'i--3H-<
I |
Innilegar þakliir til allra þeirra, er heiðruðu mig ý
í með heimsóknum, gjöfum og lilýjum, ,ófikum á f
nírœðisafmceli mínu. ?
s
KRISTJAN E. KRISTJÁNSSON
Krossum.
f
f
©-i--as>!-©'i-íi't'}-©'i-ii^©'i-i!1'r^-©^-;'í->-©-i-:s^-©-i-ii^©-i-*s-©-i-i!:-^.©^5^©^-*'}.©^*.
BERGLJÓT GUÐBJARTSDÓTTIR
lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 14. okt-
Jarðarförin ákveðin frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 21. okt. kl. 13.30.
Fyrir hönd okkar systkinanna
Ingólfur Magnússon.