Dagur - 04.01.1973, Blaðsíða 1

Dagur - 04.01.1973, Blaðsíða 1
Dagur LVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 4. janúar 1973 — 1. tölublað Sérstæðir Norðiendingar Feguri jóMur, hvíf jörð og vægi frosf á Húsevík Sauðárkróki, 2. janúar. Á Sauð- árkróki var mikið dansað og eitthvað drukkið um áramótin. Unglingar voru duglegir að safna í áramótabrennu eina mikla, sem höfð var hér uppi á Nöfunum. Dansleik sótti fjöldi manns í Bifröst á gamlárskvöld og að kveldi nýársdags gengust kvenfélagskonur fyrir dansleik á sama stað og höfðu þær bingó fyrr um daginn. Margt fólk sótti skemmtun kvenfélagsins. Þá ber að geta þess, að kirkju sína sóttu menn einnig mjög vel, en þar messaði séra Tómas Sveins- son. Lítill snjór er hér og flugfært um allar sveitir. G. O. Húsavík, 3. janúar. Að venju voru jól og áramót friðsæl á Húsavík. Veðrið var jólalegt, hvít jörð og vægt frost. Margir Húsvíkingar skreyttu hús sín og trjágarða með litríkum ljós- um. Bærinn hélt þeim sið að koma fyrir stóru jólatré á Garð- arstorgi. Unglingar í æskulýðs- félagi kirkjunnar útbjuggu jólapakka og færðu sjúkhngum þá í sjúkrahúsinu á aðfangadag. Ennfremur sendu sjúklingunum gjafir á jólanótt Lionsklúbbur- inn Náttfari. Lionsklúbbur Húsavíkur og Húsavíkurbær. Sóknarpresturinn á Húsavík, séra Björn Helgi Jónsson, söng alls sex messur um jólih, fjórar í Húsavíkurkirkju, eina í sjúkra húsinu og eina að Hallbjarnar- stöðum á Tjörnesi. Kirkjusókn var mikil. Hann gifti átta brúð- hjón í jólavikunni og skírði fimmtán börn. Eitt barn fæddist í sjúkrahús inu á jóladag og tvö á öðrum degi jóla. En þar fæddust á ár- inu 78 börn á móti 46 árinu áður. Kirkjukór Húsavíkur, Lúðra- sveit Húsavíkur og Karlakórinn Þrymur efndu sameiginlega til jólatónleika í Húsavíkurkirkju á annan jóladag. Stjórnendur voru Steingrímur Sigfússon og Robert Bezék. Flutt voru verk eftir innlenda og erlenda höf- unda. íþróttafélagið Völsungur efndi til jóladansleiks að kveldi annars jóladags í félagsheimil- inu og á þriðja í jólum hélt fé- lagið samkomu fyrir börn og unglinga og 30. des. efndi það til íþróttakeppni í íþróttasal skólanna. Ein áramótabrenna var á Húsavík á gamlárskvöld og um miðnætti var víða kveikt í blys- um og flugeldum skotið upp. Áramótadansleikur var haldinn í félagsheimilinu og stóð hann til kl. fjögur. Lögreglan á Húsa- vík telur dansleiki um jól og áramót hafa farið vel fram og hefur ekkert af þeim að segja frá sínum vettvangi. Aðal samkomusalur félags- heimilisins er nú næstum full- gerður og er hann mjög vist- legur og rúmgóður. Forráða- menn félagsheimilisins og eig- endur leggja ríka áherzlu á góða umgengni. Þ. J. Líkan gsrt af nýrri kirkju í Gferárhverfi Tveir Norðlendingar voru oft í fréttum síðari hluta liðins árs. Annar þeirra var kraftajötun- inn Reynir Leósson frá Akur- eéri, sem gert hefur þá hluti með afli handa sinna og líkama, sem engir skilja. Kvikmynd um aflraunir hans mun verða sýnd hér á landi á þessu ári og enn- fremur erlendis. Hinn maður- inn er Jóhann Pétursson, risinn úr Svarfaðardal, sem dvalið hef ur erlendis í aldarfjórðung, en kom heiin síðla árs og hefur dvalið hér á landi síðan, bæði í Reykjavík og á Akureyri. Hann hefur verið kallaður stærsti maður heims. Kirkja og danshús voru agætlega sótt Flugeldum var skotið á loft á Akureyri þegar árið var að kveðja. (Ljósm.: F. V.) i KIRKJUKVÖLD var haldið 29. desember í gamla barnaskólan- um í Glerárhverfi. Þar söng Kirkjukór Lögmannshlíðarsókn ar undir stjórn Áskels Jónsson- ar. Síðan var væntanleg kirkju- bygging á dagskrá. En ákveðið hefur verði í þessari kirkju- sókn, að byggja nýja kirkju í Glerárhverfi, en halda jafn- framt við kirkjunni í Lögmanns um og norðan hennar eða í Lög- hlíð. Glerá skiptir kirkjusókn- mannshlíðarsókn eru nú á þriðja þúsund manns. Valur Arnþórsson, formaður byggingarnefndar, flutti erindi um kirkjubygginguna, en Jón Geir Ágústsson og Gústaf Berg sýndu líkan af kirkjunni, sem þeir hafa gert, og skýrðu það. Kirkjunni hefur verið valinn staður norðan barnask. nýja. í sóknarnefnd eru: Hafliði Guðmundsson, formaður, Hjört ur L. Jónsson og Ásgeir Odds- son. En í byggingarnefnd, auk Vals Arnþórssonar, eru: Þórar- inn Halldórsson, ritari, Jóhann- es Óli Sæmundsson, gjaldkeri, Júdit Sveinsdóttir og Guðbrand ur Sigurgeirsson. Formaður sóknarnefndar tjáði blaðinu, að engar frekari ákvarðanir hefðu verið teknar í kirkjubyggingarmálum. Fram- kvæmdir myndu ekki hefjast á þessu ári, enda ekki búið að samþykkja teikningu. □ . Kirkjuskipið á að lúma 250 manns og safnaðarsalur 150 manns. Flatarmál kirkjunnar er 800 ferm, Keypti 160 fciin af brislingi NIÐURSUÐU VERKSMIÐ J A Kristjáns Jónssonar á Akureyri hefur keypt 160 tonn af brisl- ingi og hyggst leggja hann nið- ur í dósir, sem „brisling-sardín- ur“. Er þetta í fyrsta skipti, að verksmiðjan flytur inn hráefni til að vinna úr fyrir erlendan markað. En ástæðan er meðal annars sú, að smásíldveiðar eru bannaðar nú og ekki hægt að sækja hráefni til verksmiðjunn- ar hér fram á Pollinn eða innan- verðan Eyjafjörð. Brislingurinn er af síldarætt- inni, smávaxinn og verður ekki nema 16.5 sentimetrar, en kyn- þroska verður þessi fiskur 12— 13 sentimetra og er þá tveggja ára. Þetta er miðsvæðis-torfu- fiskur, veiddur við Noregs- strendur. Brislingur, sem ýmsar undirtegundir eru til af, er eink um notaður til niðurlagningar í dósir, verkaður á ýmsan hátt og þykir herramannsmatur. Ekki er þessi fisktegund til hér við land. □ Brislingur sá, sem hingað var keyptur, er frá Noregi. □ Yfir 40 kindur drápusf í Gilhaga BLAÐIÐ leitaði frétta af tjóni vegna ofviðrisins hjá þeim Kristjáni Ármannssyni kaup- félagsstjóra á Kópaskeri og Grími Jónssyni ráðunaut: í Gilhaga í Axarfirði fauk fjár hús, bæði þak og steyptir vegg- ir og drápust þar yfir 40 kindur. Bóndinn þar er Halldór Sig- valdason. Fjárhúsin voru tví- stæð, fyrir 140—160 kindur, Þak af viðbyggðri hlöðu fauk einnig í þessu fárviðri, bæði járn og viðir, en veggir stóðu. Hjá Einari Þorbergssyni á Gilsbakka fuku 14 járnplötur af nýlegu fjárhúsi. Á Vestara- Landi hjá Baídri Snorrasyni fauk járn af íbúðarhúsi að nokkru. Gömul fjárhús á eyði- býlinu Akurseli skemmdust verulega. En í þeim húsum var engin skepna. Hey fuku mjög víða bæði í Axarfirði og Kelduhverfi og veit enginn ennþá hve mikil þau hey voru samanlagt. Víða fuku hey um koll og er verið að ná heyinu saman, en sumt hvarf alveg. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.