Dagur - 04.01.1973, Blaðsíða 6

Dagur - 04.01.1973, Blaðsíða 6
•t 6 □ RÚN 5973165 — Atkv. . Frl.'. H.'. og V.'. Ath. breyttan fundartíma. MESSAÐ í Akureyrarkirkiu kl. 2 e. h. á sunnudaginn kemur. Sálmar nr. 110 — 250 — 112 — 108 — 111. Bílaþjónusta Kiwanisklúbbsins. Hringið f. h. á sunnudag í síma 21045. — P. S. SUNNUDAGASKÓLI Akureyrarkirkju er á sunnu- daginn kemur kl. 10.30 f. h. Eldri börn í kirkjunni. Yngri börn í kapellunni. Oll börn ! velkomin. — Sóknarprestar. SAMKOMA votta Jehóva að Þingvallastræti 14, II hæð. Opinber fyrirlestur: Þeir sem kallaðir eru til himnesks ríkis Guðs, sunnudaginn 7. janúar kl. 16.00. Allir velkomnir. KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION. Samkoma n. k. sunnudag kl. 8.30 e. h. Ræðumaður Reynir Hörgdal. Allir hjartanlega vel komnir. SJÓNARHÆÐ. Almennar bænasamkomur hvert kvöld þessa viku kl. 8.30. Almenn samkoma n. k. sunnudag kl. 17. Sunnudagaskóli kl. 13.30. Unglingafundur n. k. laugar- dag kl. 17. Verið hjartanlega velkomin. HJALPRÆÐISHERINN Mgjfeí N. k. sunnudag kl. 2 e. h; sunnudagaskóli. Kl. 8.30 e. h. almenn samkoma. Mánudaginn kl. 4 e. h. Heim- ilisbandið. Verið hjartanlega velkomin á þessa samkomu. KONUR í Styrktarfélagi van- gefinna á Norðurlandi. Fund- ur á Sólborg miðvikudaginn 10. janúar kl. 20.30. — Stjórn- in. ORÐ LÍFSINS. Drottinn Jesús sagði: „Ég er dyrnar ef ein- hver gengur inn um mig, sá mun hólpinn verða.“ (Jóh. 10. 9.) „Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn.“ (Tím. 1. 15.) Við verð um hólpin og frelsumst fyrir Jesúm Krist, engan annan. — Sæm. G. Jóh. I.O.G.T. stúkan fsafold-Fjall- konan nr. 1. Fundur fimmtu- daginn 4. þ. m. kl. 8.30 e. h. í félagsheimili templara, Varð- borg. Fundarefni: Vígsla ný- liða, önnur mál. Eftir fund? — Æ.t. I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99. Fundur í félagsheimili templ- ara, Varðborg, mánudaginn 8. þ. m. kl. 9 e. h. Hagnefndar- atriði, kaffi eftir fund. — Æ.t. ÁHEIT á Munkaþverárkirkju: Ónefndur kr. 1.000, N. N. kr. 200, S. B. kr. 100. — Kærar þakkir. — Sóknarnefndin. HJÚKRUNAR- KONUR. Munið fundinn að Systraseli mánudaginn 8. jan. — Stjórnin. GJAFIR til Ásmundar kr. 1.000 frá M. Á. og kr. 1.000 frá Bergi og fjölskyldu og kr. 100 frá sjúklingi. á Norðurlandi. — Til nauðstaddra á jarð- skjáltasvæðunum kr. 500 frá N. N., kr. 100 frá Akureyr- ingi, frá Þuríði Jóhannesdótt- ur kr. 1.000, frá Jóhönnu Gunnlaugsdóttur kr. 1.000 og frá Birni Jónssyni kr. 1.000. — Beztu þakkir. — Birgir [ | Snæbjömsson. TRÚLOFUN. Á jóladag opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Guðrún Gísladóttir frá Kýr- holti í Skagafirði og Jóhannes Mikaelsson prentnemi, Eyrar- landsvegi 20, Akureyri. BRÚÐKAUP: Þann 26. des. sl. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju brúðhjón- in ungfrú Kristín Jóhannes- dóttir sjúkraliði og Þorkell Ingi Rögnvaldsson húsasmið- ur. Heimili þeirra er í Möðru- vallastræti 9, Akureyri. 1 Þann 29. des. sl. voru gefin saman í hjónaband í Akureyr arkirkju brúðhjónin ungfrú Þórhalla Gísladóttir rann- sóknardama og Samúel Jón Samúelsson stud. med. frá ísafirði. Heimili þeirra vreður að Birkimel 10 A, Reykjavík. Þann 30. des. sl. voru gefin saman í hjónaband í Akur- eyrarkirkju brúðhjónin ung- frú Guðbjörg Sigríður Þor- valdsdóttir og Sigbjörn Gunn arsson gagnfræðaskólakenn- ari. Heimili þeirra er að Grenivöllum 18, Akureyri. Þann 30. des. sl. voru gefin saman í hjónaband í Akur- eyrarkirkju brúðhjónin ung- frú Dóra Björk Ingólfsdóttir kennari, Smáratúni 18, Kefla- vík og Jón Kristinn Sólnes i stud. jur., Bjarkarstíg 4, Akureyri. Þann 31. des. sl. voru gefin saman í hjóriaband í Akur- eyrarkirkju brúðhjónin ung- frú Bryndís Arnfinnsdóttir og Sigurður Halldór Jóhannsson flugvirkjanemi. Þau dvelja í Bandaríkjunum og heimilis- fang þeirra er: 1623, S. 131 East Place, Tulsa, Oklahoma, 74108, USA. BRÚÐHJÓN: Hinn 21. des. sl. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju ungfrú Sig urlaug Þóra Gunnarsdóttir skrifstofustúlka og Sveinn Ingi Halldórsson múrari. Heimili þeirra verður að Brekkugötu 21, Akureyri. 23. des. sl. voru gefin sam- an í hjónaband í Akureyrar- kirkju ungfrú Sumarrós Guð- jónsdóttir og Heimir Sig- tryggsson verkamaður. Heim- ili þeirra verður að Skarðs- hlíð 33 C, Akureyri. 25. des. sl. voru gefin sam- an í hjónaband í Akureyrar- kirkju ungfrú Jóhanna Júlíus dóttir skrifstofustúlka og Árni Anton Þorvaldsson verkamaður. Heimili þeirra verður að Bjarmastíg 3, Akur eyri. Sama dag voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju ungfrú Ragnheiður Sigurgeirsdóttir og Þorsteinn Heiðar Jónsson verkamaður. Heimili þeirra verður að Skarðshlíð 4 H, Akureyri. Sama dag voru gefin saman í hjónaband í Minjasafnskirkj unni ungfrú Sigríður Sigur- laug Jónsdóttir afgreiðslu- stúlka og Stefán Sveinbjörns- son vélamaður. Heimili þeirra verður að Þórunnarstræti 106, Akureyri. Þann 30. des. sl. voru gefin saman í hjónaband í Akur- eyrarkirkju ungfrú Anna Marý Jónsdóttir og Jón Ragn arsson vélvirki. Heimili þeirra verður að Hafnarstræti 2, Akureyri. | 30. des. sl. voru gefin sam- an í hjónaband í Akureyrar- kirkju ungfrú Jónína Þórey Friðfinnsdóttir iðnverkakona og ívar Herbertsson iðnverka maður. Heimili þeirra verður að Oddagötu 3, Akureyri. Sama dag voru gefin sam- an í hjónaband í Akúreyrar- kirkju ungfrú Ágústa Hall- dóra Kristjánsdóttir hjúkrun- arkona og Sigurður Einar Gíslason skrifstofumaður. — Heimili þeirra verður að Dala landi 5, Reykjavík. Sama dag voru gefin sam- an í hjónaband í Akureyrar- kirkju ungfrú Anna Eiríks- dóttir bankam. og Kjartan Hörður Bragason kjötiðnað- arnemi. Heimili þeirra verður að Reynivöllum 4, Akureyri. Sama dag voru gefin sam- an í hjónaband í Akureyrar- kirkju ungfrú Sigrún Brynja Hannesdóttir og Jónas Vignir Karlesson stud. polyt. Heimili þeirra verður að Þórunnar- stræti 134, Akureyri BRÚÐKAUP. Þann 16. des. sl. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju ungfrú Steinunn Eggertsdóttir og Jó- hann . Jóhannsson. Heimili þeirra verður að Akuregrði 7 F, Akureyri. — Ljósmynda- stofa Páls. Þann 17. des. sl. voru gefin saman í hjónaband í Akur- eyrarkirkju ungfrú Anna Halldórsdóttir og Einar Jóns- son. Heimili þeirra verður að Þórunnarstræti 87, Akureyri. — Ljósmyndastofa Páls LION SKLUBBURINN HUGINN. Fundur fimmtudaginn 4. janúar kl. 12 á Hótel KEA. — Stjórnin. KJÓLAR, síðir. KÁPUR, einlitar og köflóítar. MARKAÐURINN t - I I Alúðar pakkir til ykkar'allra, sem rninntust mín með gjöfum, blómum og skeytum á sextugsaf- % mœli mínu 26. desember s. I. ? Lifið heil. SVAVAR HELGASON. -I I I I * f?> . ? t * Maðuirinn rninn og faðir okkar GUNNAR JÓNSSON, Tjörnum, lézt að iheimili sínu að kvöldi annai's jóladags. Jarðarförin ákveðin frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 5. janúar kl. 1,30 e. h. Rósa Halldórsdóttir, börn og tengdabörn. Konan mín SVEINBJÖRG EIRÍKSDÓTTIR, sem lézt 28. desember, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 9. jan. kl. 13,30. Þeirn, sem vildu minnast hennar, skal bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Sveinn Þorsteinsson. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi JÓN PÁLSSON trésmiður, Aðalstræti 32, AkureyTÍ, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 4. janúar kl. 1.30 e. h. Kristín Ólafsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Arngrímur Jónsson, Guðrún Hafliðadóttir og barnabörn. Illl■lllll III' M I ■!! III BIHHmBMB—aBMM—MBH Þakka innilega auðsýnda samúð og hjálp við andlát og jarðarför EIÐS JÓNSSONAR, Grýtu. Sólveig Guðmundsdóttir. Öllunr þeim er sýndu oikkur samúð við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður og tengda móður, færurn við okkar innilegustu þakkir. Júlíus Oddsson, börn og tengdasynir. Innilega þökkum við öllum þeim, sem vottuðu okkur samúð og vinarhugivið anidlát og jarðarför FRÍMANNS FRIÐRIKSSONAR, Grenivöllum 22, Akureyri. Gunnfríður Jóhannsdóttir, Hörður Frímannsson, Ásta Kristinsdóttar, Sævar Fr,ímannsson, Helga Árnadóttir 11 og barnabörn. Þökkum auðsýnda sanrúð og vinarhug við and- lát og útför rnóður okkar, tengdamóður og ömrnu LÁRU ÓLAFSDÓTTUR frá Ytri-Haga. Nanna Steindórsdóttir, Sigurður Traustason, Eva Steindórsdóttir, Due Björnsson, Sigríður Steindórsdóttir, Jón Hjaltason, Helga Steindórsdóttir, Ólafur Stefánsson, Ólína Steindórsdóttir, Árni Jónsson og barnabörn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.