Dagur - 18.07.1973, Blaðsíða 1

Dagur - 18.07.1973, Blaðsíða 1
Bændadagur Eyfirðinga BÆNDADAGUR Eyfirðinga verður að þessu sinni haldinn sunnudaginn 29. júlí n. k. að Árskógi á Árskógsströnd. Dagskráin hefst með helgi- stund, sem sr. Kári Valsson annast. Ræðu dagsins flytur Jónas Jónsson aðstoðar land- búnaðarráðherra. Þá verða ýmis atriði til skemmtunar og fróðleiks. Sem og undanfarin ár verða veitt verðlaun fyrir góða umgengni á sveitabýlum. Þá fara fram íþróttaleikir, s. s. handbolti, knattspyrna og bænddagshlaupið. Um kvöldið verður svo stig- inn dans í Víkurröst á Dalvík. Gautar frá Siglufirði leika. Að venju er samvinna um þessi hátíðahöld milli Búnaðar- sambands Eyjafjarðar og Ung- mennasambands Eyjafjarðar. Er það von þessara aðila, að bænd- ur og búalið fjölmenni á sam- komu þessa. □ Bindindismóf verður á Hrafnagili AÐ þessu sinni verður bind- indismótið ekki í Vaglaskógi, svo sem verið hefur undanfarin ár, heldur á Hrafnagili, og segja forráðamenn mótsins að það verði, sem fyrr, tilvalið fjöl- skyldumót og fjölmargt til skemmtunar. Fer mótið fram um verzlunarmannahelgina. — Verður mótssvæðið mikið skreytt og tjaldstæði skipulögð. Þeir, sem að bindindismótinu standa eru: ÍBA, HSÞ, UMSE, IOGT, ÆFAK, skátar og Æsku- lýðsráð Akureyrar. Mótið verður auglýst nánar síðar. Q Þetta 30 ferm. hús, byggt á verkstæði Jóns Sigurjónssonar, eigandi Baldur Sigurðsson, verður flutt suður að Gæsavötnum um næstu helgi. Smiður og eigandi við húsið. (Ljósm.: E. D.). Skattskráin liggur frammi Tvenn hjón fórust ÞAU hörmulegu tíðindi urðu á sunnudaginn, að tvenn ung hjón fórust, er þau voru á leið frá Reykjavík til Þórshafnar í fjögurra sæta flugvél Vængja. Þau, sem fórust voru: Jórunn Rannveig Elíasdóttir og Sigurð- ur Davíðsson, og Sigríður Guð- mundsdóttir og Ingimar Davíðs- son. Eiginmennirnir voru bræð- ur, synir Davíðs Sigurðssonar forstjóra FIAT-umboðsins j Reykjavík. Flugvélin fórst í Snjófjöllum. Orsakir eru ókunnar. Q Sauðárkróki 16. júlí. Mikið hef- ur verið að gera í frystihúsun- um hér á Sauðárkróki að undan förnu. Togararnir Drangey og Hegranes afla vel. Drangey kom í síðustu viku með 170 lestir og er væntanleg einhvern næsta dag með afla. Hegranesið landaði 130 tonnum, einnig í síðustu viku. Færabátarnir afla sæmilega á handfæri. Sláttur er mjög víða hafinn og þeir fyrstu eru búnir að hirða eitthvað af heyi. Spretta er að verða sæmileg. SUMARHÁTÍÐ Framsóknar- manna í kjördæminu, sem hófst á Raufarhöfn 13. júlí, lauk á Laugum á sunnudaginn, 15. júlí. Gestir á þessum samkomum voru samtals á þriðja þúsund ALMENNIR stjórnmálafundir verða á vegum Framsóknar- flokksins sem hér segir: í Bárðardag laugardaginn 21. júlí kl. 21. — í Ljósvetningabúð mánudaginn 23. júlí kl. 21. — Á Breiðumýri þriðjudaginn 24. júlí kl. 21. SKATTSKRÁ Norðurlandsum- dæmis eystra hefur verið lögð fram og koma þar fram m. a. eftirgreindar upplýsingar: Heildar fjárhæð álagðra gjalda í umdæminu er kr. 847.618.891 hjá 11.275 gjaldend- um, þar af er álagður tekju- skattur kr. 383.659.384 hjá 5.787 einstaklingum og kr. 46.966.964 hjá 168 félögum. Eignarskattur með viðlaga- gjaldi er kr. 13.639.907 hjá 1.912 Búið er að reka sauðfé og hross á fjall. En samkvæmt nýj- um reglum mátti ekki reka hross í sumarbeitilönd heiðanna fyrr en 15. júní og var það ákveðið í gróðurverndarskyni. Nú í sumar er ekkert sigið í björg í Drangey og hefur aldrei í manna minnum fallið úr sum- ar fyrr en þetta. Við höfum verið að kaupa svartfuglsegg frá Vestfjörðum, og er það auð- vitað einnig nýtt fyrir Skag- firðinga. G. Ó. manns. En mest var fjölmennið á útisamkomunni á Laugum á sunnudaginn. Einar Ágústsson utanríkisráðherra flutti þar ræðu dagsins og var henni mjög vel tekið. Þar flutti ávarp Ragn- Á fundinum mæta alþingis- mennirnir Ingvar Gíslason og Stefán Valgeirsson og varaþing- mennirnir Jónas Jónsson og Ingi Trj'ggvason. Fundirnir eru almennir og öllum opnir. □ einstaklingum og kr. 17.569.436 hjá 246 félögum. Heildar upphæð álagðra út- svara á Akureyri er kr. 163.741.100 hjá 4.252 gjaldend- um. Aðstöðugjald greiða 339 einstaklingar á Akureyri kr. 3.162.700 og 200 félög kr. 27.214.900. Viðlagagjald af að- stöðugjaldi og útsvari greiða 4.129 einstaklingar og 168 félög á Akureyri, samtals kr. 36.194.100. í reglum um álagningu út- svars og viðlagagjalds 1973 seg- ir svo: Útsvör eru lögð á samkvæmt IV. kafla laga nr. 8/1972, um tekjustofna sveitarfélaga, sbr. III. kafla reglugerðar nr. 118/ 1972, um útsvör. Samkvæmt 25. gr. nefndra laga eru útsvörin reiknuð 10% af brúttó tekjum samkvæmt skattframtali með þeim frávik- um, sem lögin heimila, og sem hér greinir í meðinatriðum: 1. Lagt er á hreinar tekjur af atvinnurekstri. 2. Eigin húsaleiga og skyldu- sparnaður eru undanþegin út- svarsálagningu. heiður Sveinbjörnsdóttir bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði og Stefán Valgeirsson alþingismaður. En Ingi Tryggvason formaður Kjör dæmissambandsins setti sam- komuna og stjórnaði henni. Dansleikurinn, að lokinni úti- hótíð á Laugum, vakti athygli sökum þess hve ungir og gamlir skemmtu sér þar vel og án áfengis. Þeir, sem að samkomunni stóðu, eru mjög ánægðir og hafa beðið blaðið að skila kærum kveðjum til allra þeirra, sem þar lögðu hönd að verki, og einnig til þeirra, sem komu til að skemmta sér og njóta þess er fram fór. □ 3. Hverskonar endurgreiddur kostnaður, sem talinn er til tekna, er dreginn frá brúttó tekjum. 4. Veittur er frádráttur fyrir námskostnaði barna innan 16 ára aldurs, þó ekki hærri en nemur tekjum barnsins. 5. Notuð er heimild í 4. máls- gr. 23. gr. nefndra laga um að áætla þeim, sem stunda sjálf- stæða starfsemi, útsvarsskyldar tekjur. Samkvæmt ákvörðun bæjar- Stórutungu 15. júlí. Hinn 12. þ. m. voru 14 konur úr Axar- firði á ferð um Bárðardal og var ætlunin að fara að Aldeyjar fossi, um Stórutungu, en ganga verður þaðan að fossinum nema um litla bíla sé að ræða. Nokkurn spöl frá bænum vildi það óhapp til, að bíllinn lenti út í lausan vegarkant og rann þar útaf og valt á hliðina. Vegurinn er þarna uppbyggður en mjór, eins og flestir vegir voru í sveitum til skamms tíma. Konurnar komu heim að Stóru- tungu, þær sem hressar voru gengu þennan spöl, en öðrum var ekið í bíl og fengu þær að- hlynningu eftir því sem kostur var á. Ekki var um stór meiðsli að ræða, en þó smávægilegt mar og skrámur, einnig tauga- áfall. Flestar jöfnuðu sig fljótt. A MANUDAGINN tók Björn Jónsson alþingismað- ur fomilega við embætti fé- lags- og samgöngumálaráð- herra af Hannibal Valdimars syni, á ríkisráðsfundi. A þeim fundi lagði Ólafur Jó- stjórnar og framtalsnefndar, og með heimild í 27. gr. framan- greindra laga, er veittur frá- dráttur á öllum bótum sam- kvæmt II. kafla laga nr. 67/1971. Einnig er veittur frádráttur fyrir kostnaði vegna veikinda, slysa eða dauðsfalla, sem á gjaldendur hefur fallið, ef veru- legan má telja, eða skerða gjald getu þeirra verulega. Veittur er frádráttur fyrir námskostnaði þeirra, sem stundað höfðu nám (Framhald á blaðsíðu 4) Hringt var eftir lækni og sjúkra bíl og var þá hjálp veitt eftir þörfum. Sjúkrabíllinn flutti þær, sem frekast þörfnuðust hjálpar til Húsavíkur, en þang- að eru um 90 km. Annar bíll kom og fóru konurnar með hon- um heim til sín. Fengin var jarðýta til hjálpar við hinn oltna bíl og var honum síðan ekið til Húsavíkur. Þ. J. ÞRJÚ BÚRHVELI ÞAÐ bar við á Oddsstöðum á Sléttu í vor, að þrír búrhvalir, miklar skepnur, tóku sig út úr hvalavöðu við Sléttu og syntu á land nálægt Oddsstöðum. Engin not voru að þessum skepnum og grotna þau niður í fjörunni. □ iiiililliiiiini liannesson fram tillögu sína um þetta efni og forsetinn, dr. Krlstján Eldjám, stað- festi ráðherraskiptin. En Hannibal Valdimarsson hafði áður beðið um lausn frá embætti. □ ii iii iiiiiiiiu iii 1111111111111111 n IIII1111 ii iii iii iiiiiiiiiui III iiin in III iiiiiiiin II iii » iii 11111111111111111111111111111111111111 Góður aili og mikil vinna Sliiíiarhátíðiii tókst mjög vel Almennir fundir í kjördæminu Bílveifa í Bárðardalnum RÁDHERRASKIPTI iii ii n iii iii n 11111111111111111111111

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.