Dagur - 18.07.1973, Blaðsíða 2

Dagur - 18.07.1973, Blaðsíða 2
2 FYRSTA BÓKÍN UM HEIMAEYJARGOSIÐ FYRSTA heimildarbókin um gosið í Vestmannaeyjum kom á markaðinn daginn sem lýst var yfir að gosinu væri lokið. Ice- land Review gefur þessa bók út og ber hún heitið „VOLCANO — Ordeal by Fire in Iceland’s Westmann Islands“. Er þetta mikil myndabók en texti á ensku, eins og flest það, sem útgáfa Iceland Review lætux frá sér fara ,enda hefur það frá upp hafi verið hiutverk útgáfunnar að dreifa erlendis fróðleik una ísland, vandamál og viðfangs- efni, til aukins skilnings meðal annarra þjóða á högum lands- manna og viðhorfum. Þessi nýja bók er mjög lit- auðug, myndirnar nær 80 tals- ins og flestar í htum. Óhætt er að segja, að hér sé að finna ýmsar althyglisverðustu mynd- irnar, sem teknar voru í Eyjum. Margir af fremstu ljósmyndur- um þjóðarinnar hafa lagt til myndir í bókina, en hér hefur veríð safnað saman úrvali frá 21 myndasmið. Flestar myndir eiga Sigurgeir Jónasson og Gunnar Hannesson. Bókin er tvískipt. Fyrri hlut- inn greinir frá hfinu í Vest- mannaeyjum eins og það var fyrir gosið, bregður upp mynd- um af fólkinu í starfi og leik — svo og af undurfagurri og sér- stæðri náttúru eyjanna með fjöl skrúðugu fuglalífi. Síðari hlutinn og sá lengri segir frá upphafi gossins, ham- förum náttúrunnar og mannleg- um átökum — baráttunni við ofureflið. Hér er ekki aðeins um myndasögu að ræða, því Árni Gunnarsson, fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, skrifar ýtarleg- an texta, bæði um Eyjar fyrír gosið — og hildarleikinn mikla. Árni er manna bezt fallinn til að inna þetta verk af hendi, bæði þekkti hann Eyjar áður — og svo fylgdist hann náið með gosinu. Hann flaug yfir Eyjar strax fyrstu nóttina og flutti út- varpshlustendum fréttimar jafn óðum í margar vikur May og Hahberg Hallmunds- son þýddu texta bókarinnar, en uppsetningu og útht annaðist Fanney Valgarðsdóttir hjá Aug lýsingastofu Gísla B. Björnss. Bókin kostar kr. 995.00 í verzl unum og er önnur í flokki, sem nefnist Icéland Review Books. Sú fyrsta kom út í fyrra og ber heitið ICELAND — The Un- spoiled Land, og er fyrst og . fremst myndabók. Q Sumarhappdræífi Framsóknarflokksins 1973 VINNINGASKRA: 1. Hjólhýsi nr. 1093. 2. Hraðbátur nr. 34856. 3. Vatnabátur nr. 10100. 4. Sunnuferð til Mallorca nr. 44657. 5. Kvikmyndavél nr. 36861. 6. Tjald og viðleguútbúnaður nr. 34671. 7-15. Vatnabátar nr. 15892, 37140, 38913, 44785, 42011, . , . 22000, 25885, 25167 og 8241. 16-18. Myndavélar nr. 7162, 43657 og 63807. 19-20. Myndavélar nr. 6328 og 56940. 21-22. Myndavélar nr. 8151 og 44159. 23-25. Myndavélar nr. 68237, 37467 og 44730. 26-35. Veiðivörur nr. 2324, 5775, 8322, 3479, 30379, 32012, 37626, 47473, 49499 og 63221. 36-50. Sportvörur nr. 17670, 627, 21456, 22770, 27191, 35952, 38575, 43949, 32789, 68461, 21224, 40658, 58540, 13500 og 16143. Birt án ábyrgðar. 1 í il • • i' I j j! i !BA og FRAM á sunnudag r r I. flokkur IA og IBA næstk. fimmtudagskvöld Á SUNNUDAGINN fer fram á Akureyrarvelli leikur í 1. deild, og er það fyrsti leikur IBA í síðari umferð. Framarar koma norður og leika við Akureyr- inga og hefst leikurinn kl. 16.00. Á mörgúh, fimmtudag, leika Akureyringar við Akurnesinga í Bikarkeppni KSÍ, 1. flokki, og eru það undanúrslit í þeirri keppni. Það lið sem sigrar leik- ur til úrslita. Leikurinn fer fram á Akureyrarvelli og hefst kl. 20.00. Q Ful! atvinna Flugfélag íslands h.f.,, Akureyri, vantar starfs- mann og stúliku til starfa á söluskrifstofu félags- ins í Kaupvangsstræti 4, frá og með 1. september (1. október) n.k. Tungumálakunnátta nauðsyn- leg. Umsókn með upplýsingum um menntun og störf skal kccnið til Sveins Kristinssonar, Flug- félagi íslands b.f., Akureyri, fyrir 7. ágúst n.k. FLUGFÉLAG ÍSLANDS H.F., Akureyri. Sumarhátíð IBA á Akureyri tóksf vel : UNDANFARNA VIKU hefur staðið yfir Sumarhátíð ÍBA, og hefur verið mikið um að vera á íþróttasviðinu. Flest aðildar- félög íþróttabandalags Akur- eyrar hafa tekið þátt í þessari hátíð. Hátíðin hófst laugardag- inn 7. júlí með skrúðgöngu íþróttafólks og forustumanna íþróttahreyfingarinnar og var gengið frá íþróttavellinum upp að sundlaug. Þar flutti ísak Guð mann, form. ÍBA, ávarp, og varaforseti ÍSÍ, Sveinn Björns- son, flutti kveðjur frá ÍSÍ. Það vakti atbygli, að mest bar á yngstu félögum KA og Þórs í göngu þessari, en þeir eldri létu ekki sjá sig og nokkuð marga vantaði af forustumönnum hinna ýmsu aðildarfélaga ÍBA. Tilgarigur íþróttahátíðarinnar var sá að vekj'a athygli bæjar- búa og forustumanna bæjarins á hinu mikla starfi sem liggur að baki allri starfsemi íþrótta- hreyfingarinnar í bænum, sem unnið er svo til eingöngu af áhugamönnum og er algerlega ólaunað. Það gera sér sennilega ekki allir Ijóst, að íþróttahreyf- ingin gegnir stærsta hlutverk- inu í æskulýðsmálum bæjarins. Þúsundir barna, unglinga og fullorðinna aka þátt í starfsemi íþróttahreyfingarinnar sér til ánægju og heilsubótar. Ekki eru það allir sem vinna stóra sigra, en eru samt þátttakendur. Það er einmitt styrkur íþróttahreyf- ingarinnar að allir geta verið með. Flestar fjölskyldur bæjar- ins taka þátt í íþróttastarfinu, einhver fjölskyldumeðlimur eða allir stunda einhverja íþrótt, golf, sund, knattspyrnu, hand- knattleik, skíðaíþrótt, skauta- íþrótt, skotfimi, siglingar, róður, sjóstangveiði, trimm o. s. frv. Aðstaða til íþróttaiðkana hér í bæ er allgóð á flestum sviðum, t. d. er aðstaðan í Hlíðarfjalli sú bezta á landinu, enda árangur skíðafólks eftir því. Vonandi á íþróttahreyfingin á Akureyri eftir að eflast mikið á ókomnum árum með góðum stuðningi for- ráðamanna bæjarfélagsins, og bæjarbúar verða að gera sér grein fyrir því, að það kostar mikla fjármuni að koma upp fyrirmyndar aðstöðu fyrir íþróttafólk þessa bæjar og rekst ur íþróttafélaga kostar mikið. Sundmót Akureyrar var háð laugardag og sunnudag 7.—8. júlí. Sundsamband íslands sendi 5 keppendur, sem kepptu sem gestir. Þeir urðu að vonum sig- ursælir á mótinu. Einnig komu 13 gestir frá Húsavík og kepptu. Þriðjudaginn 10. júlí var frjálsíþróttamót fyrir yngstu keppendurna. 42 keppendur voru á þvf'móti frá KA og Þór. Mörg ágæt afrek vann unga fólkið á .þvimóii. Það mun algért nýmæli hér á landi að halda skíðamót um miðjan júlí, en það var gert miðvikudáginn 11. júlí. Keppni fór fram í svigi við Stromp. Þátt takendur voru 29. Sigurvegarar urðu: Haukur Jóhannsson, KA, Jónas Sigurbjörnsson, Þór, og Tómas Leifsson, KA. Ennfrem- ur voru 3 keppendur í göngu, sem fram fór uppi við Hlíðar- fjallsbrún. Göngubrautin var um 10 km. Sigurvegari varð Halldór Matthíasson, KA, 2. Reynir Sveinsson, Fljótum, og 3. Þórólfur Jóhannsson, KA. Á fimmtudaginn 11. júlí var golfkeppni að Jaðri. Fimleikafólk frá Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku sýndi leikfimi í íþróttaskemmunni á föstudag. Áhorfendur voru því miður færri en æskilegt hefði verið. Mikið var um knattspyrnu á Sumarhátíðinni og var efnt til móts fyrir 5. og 4. fl. með þátt- töku liða frá Ármanni, Rvík, og liða frá Vestra, ísafirði. í 5. fl. sigraði lið Þórs, Ak., en lið KA sigraði í 4. fl. Lið ÍBA sigraði UMSE í 3. aldursflokki. Á laugardag 14. júlí kom mfl. karla frá handknattleiksdeild Fram og keppti við lið ÍBA. Framarar sigruðu með nokkr- um yfirburðum. Á undan þeim leik sýndu félagar úr Skotfélagi Akureyrar skotfimi með rifflum og boga. Tókst sú sýning vel, að öðru leyti en því, að áhorfendur voru of fáir. Þennan dag fór fram keppni í blaki milli ÍMA og UMSE. UMSE sigraði, vann tvær hrinur, ÍMA eina. Sunnudaginn 15. sýndu félag- ar úr Sjóferðafélagi Akureyrar siglingar við góðar undirtektir. Badmintonleikarar frá Völs- ungi á Húsavík háðu keppni við félaga úr Badmintondeild ÍBA. En jafntefli var í tvíliðaleik en Akureyrmgar sigruðu í öllum 4 leikjunum í einliðaleik. Á eftir badmintonkcppninni háðu piltar úr 3. fl. KA og Þórs keppni í handknattleik. KA-pilt arnir sigruðu með töluverðum yfirburðum. Einum líð íþróttahátíðarinnar er ólokið, þ. e. leik milli ÍBA og Keflvíkinga. Enn er óráðið hvenær leikurinn verður, en menn bíða hans með mikilli eftirvæntingu. Q Námskeið í meðferð seglbáta Enn eru laus nokkur pláss fyrir drengi og stúlk- ur eldri en 15 ára. SJÓFERÐAFÉLAG AKUREYRAR. Daguk óskar að ráða blaðburðarbarn á Syðri-Brekkuna. Upplýsingar á skrifstofu blaðsins og í síma 1-11-67. Samkvæmt skýrslum um sjúklinga, sem látizl Hafa af völdum kransæSastiflu á Landsspítala íslands siðustu árin, dóu stórreykingamenn í þeim hópi 12 árum yngri en hinir, sem ekki höfðu reykt. Þetta er skýrt íslenzkt dæmi um tengsl sígarettureykinga og kransæðasjukdóma. Láttu sorglega reynslu annarra verða þér víti til varnaðar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.