Dagur


Dagur - 01.08.1973, Qupperneq 5

Dagur - 01.08.1973, Qupperneq 5
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Sírnar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERJLINGUR DAVlÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Bjömssonar b.f. Bændadagur EFTIR að þjóðin fór að skiptast í hinar ýmsu stéttir og starfsgreinar, með fjölbreyttari atvinnuháttum, helguðu þær sér ákveðna daga, til að treysta samtök sín og halda hátíð. Bændur landsins voru flestum seinni og hafa ekki enn eignazt sinn bar- áttudag, en fyrir allmörgum árum var sá siður vxða upp tekinn, að halda sérstakan bændadag fyrir við- komandi liérað. Svo hefur það verið hér við Eyjafjörð. Fyrsti eyfirzki bændadagurinn var haldinn 4. ágúst 1957 á Árskógsströnd og þar var honum enn valinn staður á sunnu- daginn. Eldri menn, sem þar vox-u, muna enn ræðu þjóðskáldsins frá Fagraskógi og þeirrar hrifningar, sem hún vakti þeirn á þessum fyrsta Bændadegi Eyfirðinga. Þau orð eiga enn við. En þjóðskáldið sagði þá meðal annars: „Btxskapur á ekkert skylt við hera- að eða happdrætti, eftiisókn eftir vindi né verðlaunafýsn. Hann er hið hljóðláta og virðulega staxf, sem veit- ir vel fenginn arð, ef allt gengur að óskxxm. Framleiðsla bóndans er ekki frá neinum tekin. Hún er uppskera jarðar og ávöxtur, lífsviðurværi heiðarlegra manna, sem að loknu dagsverki geta gengið til hvíldar án alls samvizkubits. Starf bóndans er ræktun og friðarstarf, andstætt öfg- úm og rótleysi. Það stuðlar að jafn- vægi þjóðfélagsins og andlegum þroska.“ Og síðar í ræðunni: „Einsatklingurinn skiptir mestu. Án þroska hans er allur félagsskapur einskis virði. íslenzk bændastétt þai-f ekki að vantreysta gæfu sinni. Erfið- leikarnir eru alls staðar, og það er lögmál h'fsins, að hver maður verður að glíma við sín Grettistök í lífs- baráttunni. Og hver er of góður til iað reyna krafta sína?“ Ræðumaður sagði ennfremur, „að nú myndi Helga magra vel líka, ef hann stigi niður af fjallinu og liti byggðir Eyjafjarðar, svo byggilegar væru þær nú og manndómur mikill í bændastétt. Hverri jörð væri skilað betri og lífvænlegri í hendur afkom- endanna og vinnugleðin væri enn hinn sanni fögnuður allra þeirra manna, sem lifðu og störfuðu með gróandi jörð. Ljjift væri og skylt að minnast forfeðranna og blessa þá, en það skyldu menn gera í störfum sín- um, fyrst og fremst. Slíkt væri ekki neitt dekur við fortíðina, en aðeins virðing við erfleifð okkar.“ í ræðulok bað skáldið menn að minnast þess, að vanrækja ekki að ganga á hin andlegu sólarfjöll, til að skynja fegurð lífsins og öðlast vizku til að elska skapara sinn. D Svar við opnu bréfi Eiðs Guðmundssonar bónda HEILL og sæll óðalsbóndi, Eið- ur Guðmundsson. Þú óskar eftir svari við bréfi þínu og vil ég ekki láta undir höfuð leggj- . ast að verða við því fljótt, því ellin nálgast okkur bæði og oft er tími naumur. Því er bezt að vinna meðan stundir gefast, en þess bið ég þig að minnast, er þú lest svör mín, að þau eru umbeðin. Okkur ber saman um að - Benedikt hafi verið af vamm- lausu dugnaðarfólki og góð- bændum kominn, en lifði á verstu tímum er yfir ísland hafa gengið, .sífelld harðindi, hallæri, hafís og Móðuharðind- in. Foreldrar hans eignuðust sex börn, fimm þeirra og allt fullorðið fólk á bænum, annað en hjónin, dóu í harðindunum. Búpeningur féll allur og hrökt- ust hjónin á vergang með Bene- dikt. Nútímafólki hrís hugur við að heyra um þær hræðilegu hörmungar, er það fólk er á vergang fór þurfti að ganga í gegnum. Bernska og æska Bene dikts var því með afbrigðum dapurleg og erfið. Foreldrar hans fóru fljótlega aftur að búa, en auðvitað við lítil efni. Hann hefur því, að fenginni reynslu, vitað að betra var að hokra við búskap og að börnum var meira öryggi í því að vera heima, en lítilmagnar meðal vandalausra. Hann vann því af óþreytandi elju og dugnaði, reyndi að bjarg ast og óskaði aðeins að fá að vera í friði með sitt og sína, enda óáleitinn við aðra menn. Hann giftist ungur Rósu Odds- dóttur og þau eignuðust 19 börn, 8 dóu ung en 11 komust upp, mörg lifðu til hárrar elli. Þetta vitum við bæði. — Ekki veit ég hvað þú telur viðhlýt- andi rök, en ég nefni heimildir mínar í greininni: Kirkjubækur Myrkársóknar, sóknarlýsingar, annálar, skráðar heimildir úr ritum um þjóðlegan fróðleik, sagnir bæði skyldra og vanda- lausra. Hvergi læt ég liggja að því, að ég telji þig eiga eitt orð í þætti þeim í Grímu, er ég vitna í, aðeins nota ég hann sem heimild og tek fram, að hann sé skráður af Jónasi Rafn- ar eftir heimildum manna er hann nefnir, þar er efst á blaði nafn föður þíns. Hvergi getur Jónas þess í þættinum, hvað sé eftir hverjum haft og því er ekki á nokkurs manns færi að sanna neitt um það. Þetta er óþarft um að pexa og eftirlæt ég þér það. Um húsakostinn í Flögúseli segir þú (bls. 192 í Súlum IV.): „Á tíð Benedikts í Flöguseli var húsakostur þar mjög bágborinn og lélegri en á flestum bæjum öðrum.“ Því segi ég aðeins: í Grímu er húsa- kynnum í Flöguseli lýst ýtar- lega. Fróðir menn, sem athugað hafa þá lýsingu, telja bæinn ekkert frábrugðinn því sem þá gerðist og jafnvel fram til 1910 —20. Séra Jón Jónsson, lærði, segir einnig í Sóknarlýsingu sirini frá 1841: „Vel byggð torf- hús, hentug en ekki of mörg né of stór sýnast þeim íslenzka "bórida, sem lifir af tómum bús- ávexti sínum, hentugust vera.“ Flónskjaftur minn og/eða ill- menni segir ekki meira um þetta. — Hvergi hef ég heyrt eða séð að Sigga hafi verið ofdrykkju- manneskja. Um drykkjuskap hennar segi ég aðeins það sem stendur í greininni í Grímu. Þar segir, að ýmsir vestur þar í sveit hafi haft gaman af að gefa Siggu í staupinu og hlusta síðan á drykkjuraus hennar um föður sinn og aðra. Jónas Rafn- ar segir þar, að sumt af því sem eftir Siggu sé haft, ef rétt sé hermt, sé svo ljótt og augljós- lega í ölvun sagt, að ekki sé tak andi mark á því. Það er alveg víst, að fleiri feðrum en Bene- dikt á Flöguseli mundi verða það lítill virðingarauki að orð og gjörðir bama þeirra, undir slíkum kringumstæðum, séu notuð sem sagnfræðilegar heim ildir. Mörg vitleysa er í ölæði sögð þakklátum áheyrendum. Séra Jón Jónsson, lærði, segir í Sóknarlýsingu sinni 1841, þá nýlega kominn að Möðruvalla- klausturprestakalli: „Útvortis siðferði eftir manna lögum er ekki mjög lastvert og engir eru hér stórfelldir drykkjumenn, en þó yrði siðferðið mun betra ef brennivín væri alls ekki til.“ Ættingjar töldu þetta svo aug- Ijóst vera, svo og væri auðvelt að sjá af hvaða rótum sögurnar um illsku föður hennar við hana væru runnar, að þeir töldu ekki leiðréttinga þörf, er þátturinn kom í Grímu. Hvort ættingjar munu vita betur hið sanna um heimilishætti og að- búð þar heima, og því ekki vera lakari þær heimildir, er frá þeim kunna að vera runnar, en slúðursögur vandalausra, legg ég í dóm lesenda. Einnig er vert að benda á þá staðreynd, að samkvæmt kirkjubókum, hafa verið mörg töku- og fósturbörn í Flöguseli, bæði skyld og vandalaus, sum árum saman. Við lauslega athugun fann ég hátt á annan tug barna, frá 1816 og fram til 1846, að Benedikt dó. Gaman er að geta þess, að Jónatan, sonur Guðrúnar, elztu dóttur Flöguselshjóna, er þú segir í Súlugreininni merkis mann verið hafa (bls. 188), var alinn upp hjá afa og ömmu. Björn sonur þeirra, sá er þú segir í Súluþætti þínum að hafi „alizt upp á betri bæ“ en misst ungur heilsuna og látist fyrir miðjan aldur, „fyrr en hin syst- kinin er upp komust", eftir miklar sjúkdómsþrautir, var heima í Flöguseli með konu og börn eftir að hann missti heils- una, samkvæmt sömu heimild. Merkilegt að fólk skyldi láta þarna vera heimkynni barna sinna, er svo var illræmt af sveitungum, að sögn nágranna! Ég vil benda þér á að þú segir í grein þinni í Súlum (bls. 192) orðrétt: „Stundum sýndist svo sem Benedikt mæti líf og heilsu barna sinna einskis.“ Þetta virðist mér ekki vera alveg meinlaus ásökun og því segi ég, í grein minni í Súlum, að ég telji þetta ekki satt og mjög ómaklegt, sem ég muni sanna. í neðstu grein á sömu síðu seg- ir þú, orðrétt: „Svo sem fyrr getur var Benedikt verstur við Stuttu-Siggu, barna sinna allra. Þegar hún var á þriðja ári, skildu foreldrar hennar hana eina eftir frammi á Hörgárdal, síðsumarkvöld eitt, er þau fóru þaðan heim frá heyverki. Lá barnið þar um nóttina, en var þó vitjað daginn eftir og flutt heim.“ Nú segir þú í Degi að Sigga hafi verið kornabarn er hún lá úti. Eru börn á þriðja ári talin kornabörn í Hörgár- dal? Orðabækur skýra orðið á þann veg að það þýði reifabörn, og svo held ég að það sé alls staðar annars staðar notað. Kornabörn liggja þar sem þau eru lögð og því auðvelt að finna. Sannleikurinn um atburðinn er svohljóðandi: „Hjónin fóru með börnin sín til heyskapar á engi, þar týndist Sigga og fannst ekki um kvöldið þrátt fyrir mikla leit fram í myrkur. Von- uðust foreldrar Siggu eftir, að hún væri á heimleið, en fundu hana ekki fyrr en birti og þá heila á húfi.“ Það hefur marg- oft komið fyrir, bæði fyrr og síðar, að börn hafa týnzt, rangl- að frá fólki, þreytzt af göngu, lagzt fyrir og sofnað. Ekki er hægt að sjá að foreldrarnir hefðu getað brugðizt öðru vísi við vandanum en þau gerðu. Það þarf undramikla illgirni til að nefna svona atvik sem dæmi um harðneskju og grimmd við barnið, raunar alveg óskiljan- legt, því ekkert getur talist óvenjulegt við atburðinn annað en það að barninu skildi ekki verða meint af. Saga þín um kornabarnið mun eiga að hnekkja þessari frásögn minni Sagan um er Benedikt sótti son sinn vestur í Hjaltadal er þannig í aðalatriðum: Benedikt sendi son sinn vestur að Reykj- um í Hjaltadal, vetrarmorgun einn í góðu veðri og færð. Leið- in er löng, 6—7 klukkustunda gangur yfir há fjöll og klungur. Seint um daginn brast á stór- hríð. Þá varð Benedikt svo hræddur um drenginn, að hann lagði af stað, svo sem hann var klæddur, tók aðeins staf sinn. Hann komst að Reykjum og fann þar drenginn. Þú segir svo frá í Súlum bls. 193: „Beztur var Benedikt við Sigfús og mat hann mest barna sinna.“ Síðar á sömu blaðsíðu: „Fúsi hafði náð að Reykjum rétt áður en hríðin brast á. Þá grét Benedikt í Flöguseli og var það víst í eina skiptið, sem hann sást vikna.“ Jónas Rafnar segir í Grímu, skýrt og greinilega, að það hafi verið Friðfinnur, sá er talinn er lítill bógur verið hafa, er Benedikt sótti vestur í stór- hríðinni. Ekki er getið heimilda fyrir því sérstaklega fremur en öðru í (greininni) þættinum, en það sýnir þó að menn hafa tal- ið, sumir að minnsta kosti, að það hafi ekki endilega þurft að vera uppáhalds sonurinn, er hann fór að sækja. í þættinum í Grímu er einnig sagt frá því, að Sigga hafi í bernsku orðið fyrir því slysi, að yfir hana helltist úr heitum súpudiski. Hún brenndist í and- liti og hafði ör alla ævi. (Tekið er fram í Grímu, að hún hafi ekki verið ófríð þrátt fyrir ör- in. Þú talar um í grein þinni í Súlum að þau hafi verið ófríð öll börnin). Benedikt fór þá til Akureyrar til að leita læknis og meðala við sárunum. Að sögn Grímu, taldi Sigga að þetta hefði verið eini vottur um föður lega hlýju, er henni hefði verið sýndur. Rétt er að geta þess, að Sigga náði aldrei fullum líkams eða sálarþroska, var á stærð við 10 ára barn. Kunnugir töldu að hún hefði þroskazt eðlilega fram að 5 ára aldri. Jónas Rafn- ar staðfestir þetta. Ekki er vitað með vissu hvað þá hefúr komið til, en um það leyti veiktust börnin í Flöguseli af einhverj- um óþekktum sjúkdómi. Tvö þau yngstu dóu, en Sigga og Friðfinnur báru þessa menjar alla ævi. Jónas Rafnar getur þess einnig að Sigga hafi haft beinkröm. í æsku minni var ég eitt sinn stödd á fjölmennum vinnustað þar sem talað var um Stuttu- Siggu, því þarna var fólk ættað eða kunnugt þar vesturfrá. Það talaði um framkomu vanda- lausra við hana, en ekki um grimmd föður hennar. Stendur mér enn ógn af þeim lýsingum er ég heyrði þar. Erfitt er að sanna slíkt og það því fremur er umkomulaus lítilmagni á í hlut. Frásögn Grímu staðfestir, að er leitað var að barnsföður Siggu, hafi sýslumaður látið sýna henni marga menn, hún bent á einn og sagt: „Þarna er hann helvítis beinið“. Gríma segir þetta bæði á venjulegu máli og tæpitungumáli Siggu. Lítið mun hún hafa elskað þennan barnsföður sinn að minnsta kosti. Svo sem þú veizt, eru ævaforn lög, samhljóða fyrir öll Norðurlönd, um það, er þú skilgreinir svo ýtarlega og smekklega í 11. lið greinar þinnar í Degi. Það er aðeins ein sök og ein refsing, sem það varðar ef í hlut á kornung stúlka eða aumingi. Merkin sýna verkin í máli Siggu. Sekir menn hafa þá ekki hlotið þá refsingu er lög mæltu fyrir, ef hvergi er neitt um það að finna á sakaskrá. Meiri líkur eru einn ig til, að betra hefði verið að leita í skjölum frá því eftir miðja öld, ef eitthvað ætti um þetta að finnast. Oþarft er með öllu að óttast um að ég skaði saklausa merin með orðum mín- um, einmitt af því að ég nefni engin nöfn. Það er eirtnig alltaf betra að lofa löngu liðnu fólki að hafa grafarró en rjúfa ekki nema af illri nauðsyn. Séra Gamalíel Þorleifsson og ættfræðingar verða ekki að- skildir í þessum skýringum. Eina ritaða heimildin, er þú til- færir í grein þinni í Súlum (bls. 194), til að sanna staðhæfingar þínar um að Benedikt hafi verið fyrirlitinn, er umsögn séra Gamalíels í kirkjubókinni er hann nefnir hann „bóndanefnu“ svo segir einnig í Grímu. Ég var einmitt að sýna fram á, að aðrir ættfræðingar hefðu ekki tekið dóma prests um sóknarbörn sín, sem óyggjandi rök. Ættfræð- ingarnir voru: Vigfús Guð- mundsson frá Keldum, Bragi Sveinsson frá Flögu, séra Benja mín Kristjánsson og fleiri er Helgi Valtýsson kvaddi sér til aðstoðar, er hann var að undir- búa útgáfu hins ágæta rits „Söguþættir landpóstanna.“ Hann var mjög vandvirkur og heiðarlegur í öllum ritstörfum. Það munu einkum hafa verið Vigfús og Bragi, sem könnuðu kirkjubækur og önnur rit, er þá voru aðeins til í söfnum fyrir sunnan. Þar segir: „Það er fá- séður vitnisburður, sem sóknar- prestur gefur þeim hjónum í kirkjubókinni og virðist varla geta verið laus við kerksni og persónulega áreitni. Hann er nefndur „bóndanefna eða vesældarbóndi“ og kona hans „konumynd eða konunefna“. Þeir vissu, að þessi maður hafði aðeins til góðra að telja og kona hans var myndarkona. „Konu- myndin“ fékkst við Ijósmóður- störf, en að vísu ólærð. Þeir koma, seinna í ritinu, með frá- sögn af henni, er ekki mun hafa aukið trú þeirra á réttmæti dóma prests. Við athugun á kirkjubókum Myrkársóknar kemur þetta í ljós: Benedikt í Flöguseli og fólk hans liefur. ekki farið var- hluta af „kerskni prests og áreitni", því prestur lætur sér ekki nægja „bóndanefnu“ nafn- giftir. Vitnisburðir hans fyrstu árin eru með mjög venjulegum hætti, bóndi og kona með börn, læs og ekki út á neitt að setja, þá er jafnvel Sigga orðin staut- andi. Svo fer nú heldur að koma afturför í mannskapinn og það er orðið „ólæst“, „óskíkk anlegt" og „fávíst“. Svo gengur það ár eftir ár, en 1841 tók séra Gamalíel sér aðstoðarprest, séra Pál Jónsson. Árið 1842 er svo Flöguselsfólkið aftur orðið læst, hegðun þess góð, kunnátta góð eða sæmileg eftir atvikum. Bókakostur virðist vera þar meiri eri víða annars staðar, þar á meðal er Vídalínspostilla. Ein- kennilegt hjá ólæsu fólki! Þó er Sigga ennþá ófermd og hinn síðasti harði dómur séra Gam- alíels var: „Getur ekkert gott lært“. Oft höfðu fallið niður fermingar í Myrkársókn hin síðari ár, stundum tvö ár í röð, samkvæmt kirkjubókum. Séra Páll tók Siggu heim til sín að Myrká, kenndi henni og fermdi síðar, með leyfi stiftprófasts Á. Helgasonar. Segir þá meðal annars að hún kunni Lúters litlu fræði, höfuðlærdóminn, líka vers og bænir, en sé mál- hölt. Það er auðséð á vitnis- burði og framkomu þessara presta við sóknarbörnin að þeir hafa verið ólíkir menn. í sóknar lýsingu segir séra Magnús Jóns son, að vísu um aðra sókn en Myrkár: „Siðferðið hefur til skamms tíma ekki verið sem skyldi, það hefur máske nokkuð verið að kenna prestum er hingað hafa komið fyrr meir, er að sögn flestir hafa verið breysk ir, sinn með hverju móti og ekki hirt um eða haft tök á að koma á góðri skipan og sið- semi.“ Geta má þess, að sú erfiða kvöð hvíldi á Flöguselsbónda, að gæta búfjárhaga er Möðru- vallaklausturskirkja átti, þar fram frá. Var leigð þar haga- ganga, bæði fyrir naut og sauð- fé. Það þurfti því auðvitað oft að stugga við óviðkomandi bú- peningi er þangað sótti. Mjög óvinsælt verk og ekki líklegt til að afla vinsælda þeim er fram- kvæmdi. Gaman er að geta þess að á elliárum fór Sigga, þrátt fyrir ötullegar tilraunir fólks vestur þar til að kyrrsetja hana, fót- gangandi til Siglufjarðar, Snorri sonur sr. Páls Jónssonar var þar þá verzlunarstjóri. Hún taldi sig hafa fóstrað hann forðum á Myrká og mun það rétt vera, en öllum heimildum, sem ég veit um ber saman um að hún hafi verið barngóð. Hún er sögð hafa haft með sér pottköku til að gefa Snorra. Vestur komst hún og fékk hinar ágætustu móttökur. Var hún þar síðan veturlangt í góðu yfirlæti. Einu sinni var hún þar í veizlu með mörgu stórmenni, þar á meðal var læknir þeirra Siglfirðinga, Helgi Guðmundsson. Kona ein er þar var bauðst til að gefa Siggu klæðispeysu ef hún vildi ganga til læknisins og kyssa hann. Sigga var feimin og treg til, en langaði auðvitað mjög í peysuna. Læknirinn fékk pata af þessu, gaf Siggu merki um að koma og kyssa sig. Vann hún þá til verðlaunanna. (Þessa er líka getið í Grímu). Víða er til góð mynd af Siggu í peysunni, þar sem hún stendur við stól og er litlu hærri. Læknirinn mundi ekki hafa gefið henni leyfi til að kyssa sig ef hún hefði verið óhrein eða ógeðsleg, enda mun Flöguselsfólk ekki hafa verið óþrifið. Þetta er eina frásögnin úr lífi hennar, er ég hefi heyrt, þar sem hægt er að finna fegurð og manngæzku. Ekki get ég gert svo lítið úr jafn ágætum ættfræðingi, sem þér, að fara að telja upp afkom- endur þeirra Flöguselshjóna, er lokið hafa háskólaprófum, eru embættismenn, listamenn eða aðrir merkismenn. Þó vil ég segja, að þér er óhætt að fara víða um land í leit þinni. Sjálfur segir þú, í Súlnagrein þinni, að ættmenn Rósu Odds- dóttur, konu Benedikts, hafi margir verið merkir menn, þar á meðal alþingismenn og for- sætisráðherrar, en þú talar um að hún hafi verið fávís og greindarlítil. Þetta heimskutal er sýnilega frá séra Gamalíel runnið og er því vorkunn. Dóm- Endurmat lífsgæfla ÚR RÆÐU JÓNASAR JÓNSSONAR AÐSTOÐAR- RÁÐHERRA Á BÆNDADEGI EYFIRÐINGA ar þínir um konu Benedikts eru samt það, sem margir ættingjar eru hvað reiðastir yfir, enda mjög ljótir og ósanngjarnir. Hvergi koma fram hjá ættmenn um eða afkomendum hennar þeir eiginleikar er þú eignar henni. Það er varasamt að skrifa illar umsagnir í kirkju- bækur og einnig að hafa þær eftir. Ég hef haldið mig við rit- aðar heimildir er ég hef tilnefnt jafnóðum og er merkilegt að geta fundið svo margt eftir svo langan tíma, 100—200 ár. Ef skrifaðar heimildir eru einskis metnar, er ekki hægt um að ræða og ég mun ekki eyða tíma í slíkt, því ekkert hefst upp úr dómum frá eigin brjósti eða skattyrðum. Að lokum þetta: Lofum þessu löngu látna fólki að hvíla í friði svo og öllum öðrum, því ekki eru allir svo lánsamir, sem við er af Flöguselsfólki erum kom- in, að eiga aðeins ættingja og forfeður, er gengið hafa vegi réttvísinnar. Það er mörgu sak- lausu fólki þung raun að sjá á prenti frásagnir um misstig sinna, oft færð í búning. Látum hvern og einn í friði með sinn Drottinsdóm og biðjum aðeins að við, nútímafólk, stöndum eins vel í skuldaskilum á efsta degi eins og þetta þrautpínda fólk frá hörmunga tímum. Svo bið ég þig vel og lengi lifa. Sigríður L. Árnadóttir. - SMÁTT OG STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8) SMÁFISKURINN Bæjarbúi scndir eftirfarandi: 250 tonn, þannig hljóðaði afla fréttin í útvarpinu um daginn. Og það er lireint ekki svo lítið, jafnvel þótt togari eigi í hlut. Það er ekki furða þótt gárung- arnir segi: Skuttogari inn á hvert heiniili. Við erum miklir fiskimenn, íslendingar, en samt liálf skammaðist maður sín, þegar aflinn sást. Þar var smá- fiskur, sem varla hefur verið vinnsluhæfur. Út yfir tók þegar heilir bílfarmar af þessum smá- fiski voru fluttir í bræðslu. AÐ VERA SJÁLFUM SÉR SAMKVÆMUR Og bréfritari heldur áfram: Nú vita allir, að við fslend- ingar erum að vernda fiskimið- in og fiskistofnana, svo að fisk- inum verði ekki útrýmt. Auð- vitað eigum við að fá stærri fiskveiðilögsögu, en þá þarf líka að treysta því, að við stund um veiðar á skynsamlegri hátt. Það er ekki meiningin að áfell- ast eiim öðrum fremur í þessu efni, lieldur er þetta ritað til að benda á, að við verðurn að vera sjálfum okkur sanxkvæmir. (Framhald af blaðsíðu 8) Akureyrarkirkju, en um kvöld- ið bauð bæjarstjórn Akureyrar þeim til kvöldverðar í Sjálf- stæðishúsinu. Jón G. Sólnes, forseti bæjarstjórnar, stjórnaði samsætinu, en Ólafur Þ. Krist- jánsson, stórtemplar, þakkaði fyrir. Á föstudaginn voru flutt erindi í Borgarbíói um efni nám skeiðsins „Börnin og -við“ og -fóru þar jafnframt fram um- ræður. Hópvinna fór fram í Oddeyrarskólanum. Á laugardaginn var farið í Mývatnssveit og Reykjahverfi með erlendu gestunum í glaða sólskini. Dáðust þeir mjög að Mývatnssveit og sáu Stóra-hver gjósa í Reykjahverfi. Á sunnudag héldu umræður JÓNAS JÓNSSON, aðstaðar ráðherra, flutti ræðu í Árskógi, er þar var haldinn Bændadagur Eyfirðinga á sunnudaginn. — Hann sagði þá meðal annars: Við lifum nú á ákaflega merkilegum tímamótum. Svo hefur að vísu oft verið sagt áður. Mannkynið stendur nú á þeim krossgötum, að segja má að ef tekin væri beina brautin áfram, sem virðast kann auð- veldust fyrsta spottann, þá leið- ir hún örugglega til tortímingar fyrr eða síðar. Við okkur blasir sem sagt tortíming á lífsmögu- leikum jarðarinnar, ef svo verð- ur lengi haldið, sem nú horfir. Vonandi verður okkar tíma síðar minnzt, sem byltingar- og' umsköpunaraldar í sögu mann- kynsins. Þá verður ekki fyrst og fremst minnzt atomsprengj- unnar, geimfaranna eða hljóð- frárra þota, heldur verður þess tíma minnzt vegna þess, að nú hefur mestur hluti hugsandi manna um heim allan gert sér ljóst, að nú verður að spyrna við fótum og stöðva taumlausa sóun náttúruverðmæta. Sívax- andi mengun og allsherjar eyð- ingu lífsgæða og lífsmöguleika. Þetta eru stór orð en það er staðreynd, að ekki er langt und- an að bein fordjörfun lífsmögu- leikanna blasi við á stórum svæðum. Tæknisamfélagið er knúið áfram af skeíjalausum þörfum um svonefndan hagvöxt — aukna framleiðni og síaukna neyzlu og þar með eyðslu á verðmætum, sem ekki verða sköpuð aftur eða aldrei í sama mæli og þau eru nú. Þetta stefn ir því að eigin tortímingu. Stöð- ugt kapphlaup um að finna upp nýjar framleiðslugreinar og skapa framleiðslunni markað — býr til nýjar og áður óþekkt- ar þarfir — sem enginn fann til áður. En eftir að þær hafa verið kynntar með auglýsingum og tilheyrandi skrumi, verður ekki linnt látum fyrr en þeim er full- nægt. Þetta er m. a. sú Gróttu- kvörn mannkynsins, sem nú malar og malar og mun mala þar til allt fer í kaf, ef ekki verður snúið inn á aðra braut. Á þessum krossgötum stöndum við nú. Andsvarið við þessu hlýtur að verða nýtt og breytt gildis- mat hlutanna — annað viðhorf til þess hvað séu raunveruleg verðmæti. Menn verða að meta áfram í Hrafnagilsskóla um efnið, hvernig hægt væri að ala upp bindindissama æsku, sem laus væri við böl áfengis, eitur- efna og tóbaks. Þá um kvöldið kom þotan aftur og flutti gest- ina til Reykjavíkur. Unaðsleg sumarblíða var alla þessa daga og rómuðu gestirnir mjög náttúrufegurð landsins. í Reykjavík fer fram kynning á sögu landsins og bindindis- hreyfingunni hér á landi. Móttökur þessara norrænu gesta önnuðust templarar á Akureyri og voru í móttöku- nefnd Arnfinnur Arnfinnsson, Sveinn Kristjánsson og Eiríkur Sigurðsson. Svona mót auka kynningu og tengja vináttubönd milli hinna norrænu þjóða E. S. það að nýju, eftir. hverju sé rétt að sækjast og hvað sé hjóm og hégómi. Ein leiðin ti) ,þess áð þjóna kröfum um aukna tækni, si- aukna framleiðslu og svonefnd- an hagvöxt, er stækkun eining- anna á sem flestum sviðum. Jónas Jónsson, aðstoðarráðherra í ræðustól. Stóreiningar í framleiðslu, verzl un og annarri þjónustu dragast þá auðvitað saman í stórborgir. Þangað dregst fólkið einnig, til að vera í nálægð ímyndaði-a við skiptamiðstöðva og svonefnds athafnalífs. Þessi nálægð er þó meira og minna ímyndunin ein. Enginn, sem ekki hefur komið í stóriðnaðarborgir hinna þétt- býlu landa, getur gert sér í hugarlund, hvílíkt samfélags- afskræmi þær eru. Og allir geta verið sammála um það, að þær eru ekki það samfélagsform, sem stefna ber að. Sú hugmyndavakning, sem ég áður nefndi, byrjaði með við- vörunarorðum náttúruverndar- manna. Nú eru það áköf hróp vistfræðinga og umhverfis- verndarmanna, einnig félags- fræðinga, sem knýja menn til að hugleiða, hvernig byggð skuli háttað, er þjóni sem mest velferð fólks og veiti því lífs- fyllingu. Og þá er stórborgar- byggðin ekki ofarlega á blaði. Bein, hagræn sjónarmið er stór- borgunum ekki heldur í vil. Menn sjá, að stórbo.rgarbyggð- in er langt frá því að vera hag- kvæm. Það er ekkj. hagkvæmt að þurfa að byggja á tveim stöð um yfir einkabílinn. Vegá- og gatnakerfi stórbprganna eru margföld. Þau eru á jörðu,'uppi í lofti eða undir yfirborði jarðar. jTi )a j ^ Maðurinn er félagsvéra, en ekki múgdýr. Hann þjriíst ' í frjálsu samfélagi en ekki í of- þröng maurasamfélagsins, serti stórborgir minna á. Félags- ■ og afbrotafræðingar eru þess i)ú fullvissir, að ofþröngin leiðir fram ranghverfuna og ónáttúru mannlegs eðlis. í Svíþjóð, þar sem byggð hafa verið heil skólablokkahverfi í útjöðrum borganna, standa nú æ fleiri nýjar íbúðir og blokkir auðar, vegna þess, að fólk vill ekki, að fenginni reynslu, vera í þeim samfélögum, sem þessar byggingar skapa. Þrátt fyrir þetta, er hér á landi haldið áfram að byggja stórhverfi eins og Breiðholtið, þar sem ætlunin er að múra inn í asvalt og stein allt að 8—10% þjóðarinnar. Þannig erum við sein að draga lærdóma af reynslu annarra, sem ætti að vera okkur ljós. Erlendis er fólk löngu farið að streyma út úr borgunum. Þær eru að tæmast. Þurfum við að láta sömu þróun renna sitt skeið hér á landi? Þurfum við að safna öllu saman í Reykjavík, til þess að flytja svo burt á ný? Er ekki mál að linni, að fólk sé dregið til Reykjavíkur vegna þess að það fái ekki atvinnutækifæri á öðr- um stöðum? Allir, sem hafa áhuga á jafn- vægi í byggð landsins, ættu að gefa þessu gaum. Við eigum ekki að líta á sveitabyggðina, sem vandamálið og ekki þorpin á ströndinni, heldur borgina. Borgirnar eru þegar orðnar byggðavandamál fjölbýlisland- anna. Það er ánægjulegt að vita til þess, að hin nýja alda, sem nú fer um lönd og álfur, hún er með okkur, íslendingum. Hún er með þeim, sem vilja að við byggjum landið, og trúa því að það sé hægt. Þó er það fyrst og fremst það, að við eigum að varðveita þá samfélagsgerð, sem er bundin við dreifðar byggðir. Ég á þar við sveitasamfélögin og þorpasamfélögin, og þau sam félög, sem eru fremur smáar einingar. Þessi samfélög eru bundin beinum, föstum tengsl- um við frumgæði landsins —■ við að afla hinna raunverulegu verðmæta úr sjónum og af land inu. Þar birtist mönnum til- gangur lífsins og hinnar eðli- legu lífsbaráttu. Þar finna menn hin náttúrulegu tengsl við land- ið, sem við lifum af. Þar verður ekki sú lífsfyrring, sem fylgir stórborgai-samfélaginu, þar sem hver og einn er aðeins lítil skrúfa í ógnar stórri og flókinni vél. Sú hugmyndafræði, sem ég hef verið að reyna að lýsa, hef- ur verið nefnd hinn „græni sósíalismi“. Margt ungt fólk að- hyllist þetta nú — þetta er þó ekki skylt sósíalisma, sem rek- inn er í ákveðnum ríkjum. Þvert á móti. Inntak hinnar nýju hugmyndafræði er það, að við eigum að lifa í takt við náttúruna og byggja gildismat okkar á því, sem eru raunveru- leg lífsverðmæti, fremur en eft- irkröfum hagvaxtarkenningar- innar, sem að nokkru er eftir- sókn eftir vindi. Framleiðsla er annað hvort skapandi framleiðsla eða eyð- andi. Það er einungis landbún- aður og hvers konar ræktun, sem er raunverulega skapandi framleiðsla. Hitt eyðir og geng- ur á heildarverðmætin, sem mannkynið hefur úr að spila. Því hlýtur landbúnaðurixm að búa við aukna virðingu í fram- tíðinni. En tökum eftir því, að byggð- ir eins og Eyjafjörður falla að þessu mynstri. Hér fer saman og er í órofatengslum landbún- aður og fiskveiðar og full- vinnsla afurðanna, sem aflað er úr sjó og af landi. Því vænti ég þess, að í framtíðinni verði byggðinni í landinu meira hátt- að eins og nú gerist í hinum beztu héruðum. o - Norrænt góðtemplaranámskeið

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.