Dagur - 17.11.1973, Side 1
LVI. árg. — Akureyri, laugardaginn 17. nóv. 1973 — 51. tölublað
KodaK
ndavöat
papp''
FILMUhúsið akureyri
Nú er allt fé komið á fulla gjöf
FRÉTTÁRITARI Dags í Þistil-
firði, Öli Halldórsson, sagði
blaðinu eftirfarandi á fimmtu-
daginn:
Lógað var 11700 fjár á Þórs-
höfn. Meðalvigt var 16.54 kg,
sem er aðeins minni meðalvigt
en í fyrra. Þyngsta meðalvigt
PERUSALAN í DAG
í DAG, laugardag, drepa Lions-
menn Hugins á dyr hjá bæjar-
búum og bjóða perur til sölu,
og kannast fólk við þessar heim
sóknir frá fyrri árum. Fólk ætti
að hafa í huga, er þessir menn
kveðja dyra, að ágóðinn af peru
sölunni rennur allur til kaupa
á lækningatækjum til handa
Fjórðungssjúkrahúsinu. ‘ Q
FRÁ LAUGASKÓLA
HÉRAÐSSKÓLINN á Laugum
í Reykjadal var settur 7. októ-
ber og voru 115 ungmenni við
skólasetningu, og skiptast nem-
endur nokkurn veginn jafnt
milli kynja. Er skólinn um það
bil fullskipaður. Skólinn starfar
í fimm bekkjardeildum. Kenn-
arar eru sjö, auk skólastjórans,
Björns Pálssonar.
Unnið er að byggingu nýs
íþróttahúss, sunnan við tjörn-
ina og er byggingin skammt á
veg komin ennþá.
Nemendur búa í þrem heima-
vistarhúsum, en auk þess búa
átta í nágrenninu og ganga
heiman og heim. Q
í DAG, 17. nóvember, verður
nýtt félagsheimili vígt á Hofs-
ósi. En það hefur verið í smíð-
um allmörg undanfarin ár og
framkvæmdum þokað í áttina,
og nú er það tilbúið til notkun-
ar, vandað, vistlegt og rúmgott.
Það verða engin vandræði fyrir
íbúa hreppanna þriggja, sem
eiga það, Hofsóshrepps, Hofs-
hrepps og Fellshrepps, að dvelja
þar í einu. En íbúar þessara
hreppa munu vera yfir 600 tals-
insð sagði Óli Þorsteinsson,
deildarstjóri á Hofsósi, nú í
vikunni.
Það eru hrepparnir þrír, enn-
fremur mörg félög, sem eiga
félagsheimilið og hafa komið
því upp með sameiginlegu átaki.
FYRIR utan hneykslismálin er
orkuskorturinn nú alvarlegasta
vandamál Bandaríkjanna og
hafa verið boðaðar sparnaðar-
ráðstafanir á olíu og raforku.
Orsökin er sú, að hin olíuauð-
ugu Arabaríki hafa takmarkað
olíusöluna, og er olían þeirra
stærsta vopn í baráttunni við
ísraelsríki, ásamt því að vera
mesta tekjulind þeirra.
Hollendingar urðu fyrstir
Evrópuþjóða til að taka upp
skömmtun á benzíni, svo að
dilka á einu búi var hjá Tungu-
selsfeðgum, Jóhanni Lúther og
sonum hans, Kristbirni og
Gunnlaugi. Þeir slátruðu 459
dilkum, sem jöfnuðu sig með
18.40 kg. Þar af voru aðeins 64
einlembingar og 40 gemsalömb.
Þessir bændur búa við ein-
hverja beztu afrétt landsins,
Tunguselsheiði, og er þar fátt
fé, en þó telja þeir hag að því
að rækta kól til haustbeitar, og
kom það vel í ljós í haust. Þeir
lóguðu tvisvar í haust. f fyrra
skiptið lóguðu þeir hrútlömbum
og einlembingum og fengu þá
18.20 kg meðalvigt. Eftir þrjár
vikur lóguðu þeir í síðara skipt-
ið og fengu þá 18.98 kg meðal-
vigt og höfðu dilkarnir þá fitað
sig á fóðurkálinu.
Hér er kominn ofurlítill snjór,
þó bílfært um sveitir. Allt fé er
komið á gjöf. Q
Skólastarf og
HÓLASKÓLI var settur föstu-
daginn 19. október. Nemendur
eru 36 talsins og jafn margir í
hvorri deild. Er skólinn nær
fullskipaður. Mun fleiri um-
sóknir lágu fyrir, en heimtur
urðu verri hér en vonast var til
og mun svo hafa víðar verið um
aðsókn að hinum ýmsu skólum,
sennilega vegna óvenjulega
mikillar atvinnu um land allt,
sagði skólastjórinn, Haraldur
Árnason frá Sjávarborg, er
Gunnar Stefánsson á Hofsósi
hefur verið framkvæmdastjóri
byggingarinnar, en yfirsmiður
er Björn Guðmundsson á Sauð-
árkróki. Formaður byggingar-
nefndar er Jón Guðmundsson á
Óslandi.
Til vígsluhátíðar hefur verið
boðið öllu fólki í hreppunum
þrem, fimmtán ára og eldri,
ásamt mökum, ennfremur burt-
fluttu fólki af þessu svæði. Q
Þótt hér sé kominn ofurlítill
snjór og búpeningur á fullri
gjöf, eru menn ánægðir og jafn-
bannaður var sunnudagsakstur
bifreiða, að viðlögðum gífurleg-
um sektum. Bretar undirbúa
víðtækar sparnaðarráðstafanir
hjá sér og Vestur-Þjóðverjar
hafa þegar látið prenta skömmt
unarseðlana. Ýmsar Vestur-
Evrópuþjóðir búa sig undir að
mæta skorti á olíu og benzíni.
Við erum svo heppnir, hér á
landi, að hafa tryggt okkur olí-
ur og benzín til næsta árs og
hafa því engar sparnaðarráð-
stafanir verið gerðar
búskapur á
blaðið spurði hann frétta í gær.
kennarar eru fjórir, auk skóla-
stjóra.
Aðspurður um búskapinn
sagði skólastjórinn meðal ann-
ars: Við erum með hálft fimmta
hundrað ær, níutíu hross en
fremur fátt í fjósi ennþá. Allt
féð er í tilraunum, undir stjórn
Stefáns Aðalsteinssonar og eru
það einkum ullartilraunir, sem
gerðar eru. Það hefur gengið
vel að ná upp hreinhvítu fé og
er ekki sjáanlegt, að það hafi
áhrif til minni afurða að öðru
leyti. Hér er eina hrossakyn-
bótabú ríkisins, sem til er í
landinu. Við köllum þetta aust-
anvatnahross, sem verið er að
kynbæta. Búið er ekki ennþá
komið á það stig, að við getum
selt nema þau hross, sem ekki
falla inn í ræktunarstarfið hjá
okkur. Síðar getum við farið
að selja folöld og tryppi.
Á næstsíðasta sumri hófum
við jarðræktartilraunir í sam-
vinnu við Tilraunastöðina á
Akureyri. Búnaðarsambandið
hér stendur einnig að þessum
vel stoltir, enda gerast um þess-
ar mundir fréttir á heimsmæli-
kvarða, með okkar litlu þjóð og
það eru sigurfréttir. Ég held að
það hljóti að vera í fyrsta sinn
í veraldarsögunni, sem vopn-
laust smáríki, sem verið hefur í
styrjöld við stórveldi, gangi
með sigur af hólmi, knýi and-
stæðinginn til undanhalds með
tveggja ára samningi. Getur það
síðar orðið hárbeitt vopn til stór
sigra okkar og margra annarra
Jjjóða og á ég þar við væntan-
lega hafréttarráðstefnu og ligg-
ur þá mikið við. Hafa hers-
höfðingjar hlotið heiðursmerki
fyrir minna, en sigurför Ólafs
Jóhannessonar til London í
haust. En þar kom fram hæfi-
leiki hans til að slá á dreng-
spakarstrengi í brjósti forsætis-
tilraunum. Voru tilraunir þess-
ar auknar til muna í sumar.
Ennfremur eru dreifðar tilraun
ir í héraðinu. Er hér bæði um
áburðartilraunir að ræða og
ennfremur athugun á ýmsum
grænfóðurstofnum. Matthías
Eggertsson kennari sér að
miklu leyti um tilraunirnar, í
samvinnu við Bjarna Guðleifs-
KARLAKÓRINN ÞRYMUR á
Húsavík hélt afmælistónleika 1.
nóvember sl. Kórinn varð 40
ára í haust. Hluta tónleikana
flutti kórinn og Lúðrasveit
Húsavíkur saman. Stjórnandi
kórs og lúðrasveitar er Robert
Bezdekk frá Prag. En tveir af
fyrrverandi stjórnendum, þeir
séra Friðrik A. Friðriksson og
Sigurður Sigurjónsson, stjórn-
uðu nokkrum lögum, sem þeir
fyrr á árum höfðu látið kórinn
syngja sig inn í hjörtu Húsvík-
ráðherra brezka heimsveldisins.
Hér um slóðir hafa þessar að-
gerðir og málsmeðferð þótt
bæði merkar og stórviturlegar.
Það þykir líka trúlegt í minni
sveit, að þeir sem greiddu at-
kvæði gegn samningunum við
Breta á Alþingi núna á þriðju-
daginn, ættu ekki að þurfa að
ómaka sig í framboð í næstu
kosningum.
Af búskaparmálum er gott
eitt að frétta. Heimtur urðu að
lokum góðar og féð reyndist
vænt. Dilkar jöfnuðu sig með á
16. kg. Heyin eru mikil og menn
líta björtum augum fram á veg-
inn. Og eilthvað mun um það,
að bændur hyggi á mirini fóður
bætiskaup en áður og einnig
minni áburðarkaup, vegna
hinna miklu heyja. B. B.
son tilraunastjóra á Akureyri.
Mun þessum tilraunum fram
haldið.
Ég hef ekki hitt neinn bónda,
sem ekki er nokkuð bjartsýnn
í búskaparmálum, þótt yfir þá
dynji verðbólgan, eins og aðra
landsmenn, sagði skólastjórinn
að lokum og þakkar blaðið upp-
lýsingarnar. Q
inga. Verkefnaval tónleikanna
var fjölþætt og skemmtilegt og
meðal verkefna lög fyrri stjórn-
enda frá Prag. Tónleikarnir
voru mjög vel sóttir og fögnuð-
ur áheyrenda mikill. Þrír af
stofnendum Þryms: Benedikt
Jónsson, Birgir Steingrímsson
og Hallgrímur Steingrímsson,
eru í honum enn og voru þeir
heiðraðir með gjöfum. Enn-
fremur heiðraði kórinn tvo af
fyrrverandi stjórnendum sínum,
þá séra Friðrik A. Friðriksson
og Sigurð Sigurjónsson. Einnig
hefur um stundarsakir stjórnað
kórnum Ingimundur Jónsson
og í skamman tíma Birgir Stein
grímsson og Sigurjón Péturs-
son. Hin síðari ár hefur kórinn
að jafnaði haldið 10 hljómleika
á ári og oftast í samvinnu við
Lúðrasveit Húsavíkur. Þ. J.
KJÖTÍÐJA KÞ
í NÝJU HÚSNÆÐI
Húsavík, 15. nóvember. Kjöt-
iðja K. Þ. hóf starfsemi í mjög
vistlegum húsakynnum sínum,
nú í dag, í hinu nýja sláturhúsi
sínu. Keyptur hefur verið reyk-
ofn af fullkomnustu gerð og all-
ur vélakostur endurnýjaður.
Kjötiðjan er nú að hefja pökk-
un á dilkakjöti í neytendaum-
búðum fyrir Bandaríkjamarkað.
Um 20 manns vinna við þessa
starfsemi. Þ. M.
Orkuskorfurinn í heiminum
r
smariKi sigrar siorvei
Þrymur á Húsavík 40 ára