Dagur - 17.11.1973, Blaðsíða 2

Dagur - 17.11.1973, Blaðsíða 2
2 tælo Húsavík, 25. okt. 1973. KVENFÉLAG Mývatnssveitar gaf í haust Sjúkrahúsinu á Húsa vík öndunarvél. Stjórn kven- félagsins afhenti gjöfina í sjúkra húsinu 11. október sl. Gísli Auðunnsson, læknir, lýsti tæk- inu og framkvæmdaráð sjúkra- hússtjórnar veitti gjöfinni mót- töku fyrir hönd sjúkrahússins. Formaður sjúkrahússtjórnar, Þormóður Jónsson, þakkaði gjöfina með stuttri ræðu. Kvenfélag Mývatnssveitar hefur ætíð sýnt Sjúkrahúsinu á Húsavík mikinn vilvilja og oft gefið því mjög verðmætar gjaf- ir. Ondunarvélin er af gerðinni „Bromton M'anley, Model BM 2“. Að henni er mikill fengur fyrir sjúkrahúsið. Hún er mikið öryggistæki fyrir fóik, sem af einhverjum ástæðum á í önd- unarerfiðleikum, svo sem af völdum slysa, astma og lömunar í öndunarfærum. Hún er fyrst og fremst sniðin með þarfir gjör gæzludeildar í huga. Hún er einnig mikilvægt tæki til að auð velda læknum vinnu við erfiðar skurðaðgerðir. f stjórn Kvenfélags Mývatns- sveitar eru: Helga Pétursdóttir, formaður, Hildur Ásvaldsdóttir og María Þorsteinsdóttir. □ EMBÆTTISMENN GUÐLAUGUR Þorvaldsson hef ur verið kjörinn rektor Háskóla íslands. Friðjón Guðröðarson hefur verið skipaður lögreglustjóri í Hafnarhreppi í Austur-Skafta- fellssýslu. □ Frá Ræklunarfélagi Norðurlam AÐALFUNDUR Ræktunar- félags Norðurlands var haldinn að Hótel KEA á Akureyri þriðjudaginn 30. okt. sl. Á fundinn komu fulltrúar úr öllum sýslum Norðlendinga- fjórðungs og ævifélagadeildinni á Akureyri, ennfremur allflest- ir ráðunautar og formenn bún- aðarsambandanna í fjórðungn- um, sem ekki voru fulltrúar. Þá kom á fundinn Gunnar Guð- bjartsson formaður Stéttarsam- bands bænda og hélt erindi um tilraunastarfsemi landbúnaðar- ins. Formaður félagsins, Jónas Kristjánsson, setti fundinn og stýrði honum ásamt Agli Bjarna syni, ráðunaut. Fundarritarar voru kosnir Þórarinn Kristjáns- son í Holti og Helgi Jónasson á Grænavatni. Starfsmenn Ræktunarfélags- ins, þeir Jóhannes Sigvaldason og Þórarinn Lárusson, gáfu skýrslur um starfsemi félagsins á liðnu ári. í skýrslum þessum kom fram að starfsemi félagsins er fyrst og fremst fólgin í þrem þáttum, þ. e. þjónustuefnagrein- ingum á mold og heyi fyrir bændur, rannsóknum á ýmsum vandamálum, sem landbúnaður inn á við að stríða og útgáfu Ársritsins. Á sl. ári þárust til stofunnar 1759 sýni af mold frá 282 bændum hér á Norðurlandi. Voru bændum sendar ábending ar um áburðarnotkun með nið- urstöðumí þessara sýna. Frá því rannsóknarstofan hóf starfsemi sína 1965 hafa borizt til hennar frá bændum samtals 16488 jarð- vegssýni. Heysýni af heyfeng frá sumrinu 1972, sem stofunni bárust frá bændum, urðu 1055, og voru þau úr öllum sýslum á Norðurlandi auk nokkurra sýna af Austurlandi. Á liðnu ári var hafin meltanleikaákvörðun á heyi á rannsóknarstofunni. Er því nú hægt að segja bændum mun betur um fóðurgildi töð- unnar en áður, þegar einungis var hægt að efnagreina stein- efni og prótein í henni. Geta bændur nú, ef þeir hafa efna- greiningu á sínu heyi, gert eða fengið gerðar mun betri fóður- áætlanir en áður var. Þær helztu rannsóknir, sem unnið hefur verið við á liðnu ári, eru athuganir á efnamagni í heyi og jarðvegi á nokkrum bæjum hér á Norðurlandi, en niðurstöður þessara athugana ásamt ýmsum upplýsingum um meðferð túnanna, áburðar- notkun o. fl. í búskapnum, eiga að gefa okkur nokkrar upplýs- ingar um áhrif þessara þátta hvern á annan og samspil þeirra. Er áætlað á komandi Gunnar T ryggvason fyrrv. bóndi Brettingsstöðum, Flateyjardal Fæddur 30. júní 1885. — Dáinn 23. október 1973. Nú fækkar þeim óðum sem byggðu sitt bú í blómlegum sveitum, en fluttu í bæinn. Þeir höfðu þó alltaf á túnræktun trú og tækninni meiri við sæinn. Þótt farinn sé öldungur heiður og hár með hamingju árin að baki. Er liugurinn vinanna saknaðar sár, en samt mælir þakklátu kvaki. Þú óvannst þér hylli að höfðingja sið varst hjálpsamur örlátur granni. Búmaður góður, á sjó gafst ei grið, en greipsí margan feng handa ranni. Þó afíi hjá ntörgum væri a”3 ckki hár var ætíð þinn bátur full hlaðinn. En aldraða sjóhetjan nú ertu nár og nátthvíld er fögur í stao.rm. Og dalurinn fagri nú syngur þér söng er sólgeislar loga á hlaði, og minningin bjarta um gæfunnar göng það glampar um Brcttingsstaði. Að síðustu gestrisni þakka ég þína þreyttur er kom ég af heiði á „dal“, en oft sinnis hýstirðu ættingja mína ávallt þess minnist, og virða það skal. Svo breiði guðs almætti, frið þér í fang á fagnaðar ströndinni góðu. Og launin þú hlýtur fyr góðlífsins gang göfug, bak jarðneskrar móðu. Jón Guðni Pálsson, frá Garði í Fnjóskadal. vetri að vinna að uppgjöri þess- ara gagna. Rekstrarreikningur fyrir árið 1972 sýndi verulegan halla á rekstri Ræktunarfélagsins. Er hann einkum til kominn vegna þess að hækkanir á verðlagi urðu meiri en ráð hafði verið fyrir gert. Framlag ríkisins, sem er hluti af rekstrarfénu, fékkst ekki hækkað eins og óskað var eftir og ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun og ekki fengust nýjar tekjur þess í stað. Starfsemi félagsins var og nokkuð umfangsmeiri en áætl- að var. Á fundinum voru samþykktar tillögur þar sem skorað er á landbúnaðarráðherra að beita sér fyrir því að efla Tilrauna- (Framhald á blaðsíðu 6) - MINNISVARÐI SKALÐKONUNGSINS (Framhald af blaðsíðu 8) hann verið búinn að fara víða um heim og sjá mörg undur veraldar, þegar hann orti kvæð ið. Þó verður ekki betur séð en hin mikla náttúrufegurð norður við Skjálfanda grípi sál hans sterkari tökum en allt annað. Og það jafnt hvort hún birtist honum í mildu og björtu vor- skrúði eða tröllauknum ham- förum haustbrims. Þessi sterku áhrif skilja eftir minningar í brjósti hins unga manns. Þar vaka þær unz hann einn góðan veðurdag færir þjóð sinni þær að gjöf, klæddar listrænum búningi. Gamla húsið á Héðinshöfða er fallið úr tízku. Það fullnægir ekki lengur hinum fyrirferðar- . miklu kröfum nútímans. Það gegnir ekki lengur hinu sama hlutverki og það hefur gegnt í nærri því heila öld. En nú tekur þjóðin húsið að sér svo að það geti gegnt nýju, veglegu hlut- verki. Annað er henni ekki sæmandi. Nú kappkostar þjóðin öll, með Þingeyinga í fararbroddi, að hlynna svo vel að 93 ára gömlu húsi, þarna norður á hjar anum, að það geti með þeim virðuleik, sem hæfir skáldkon- ungi, staðið vörð um menningar verðmæti — menningarverð- mæti, sem eru einstök í sinni röð og íslendingum er lífsnauð- syn að tileinka sér eftir megni. v f. \ * OSTA PINNAR Hér eru nokkrar hugmyndir en, möguleikarnir eru ótakmarkaðir. 1. Leggið heilan valhnetukjarna o'fan á teninga af goudaosti. 2. Vefjið skinkulengju utan um staf af tilsitterosti, setjið sultulauka efst á pinnan og skreytið með steinselju. 3. Skerið gráðost í teninga, ananas í litla geira, reisið ananasinn upp á rönd ofan á ostinum og festið saman með pinna. 4. Helmingið döðlu, takið steininn úr og fyllið með gráðostlengju. 5. Skerið tilsitterost í teninga, setjið lifrakæfubita ofan á ostinn og skreytið með agúrkusneið og stein- selju. 6. Mótið stafl úr góudaosti, veltið þeim upp úr þurrkaðri papríku og skreytið með sultulaukum. 7. { v Setjið ananasbita ög rautt kokkteilber ofan á geira af camembert osti. 8. Setjið mandarínurif eða appelsínu- bita ofan á fremur stóran tening af port saíut osti. 9. Festið fyllta olífu ofan á tening af ■port salut osti. Skreytið með stein- selju.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.