Dagur - 01.12.1973, Qupperneq 1
NÝLEGA var nýtt félagsheimili
vígt á Hofsósi, eign þriggja
sveitarfélaga óg nokkurra fé-
lagasamtaka á Hofsósi, og hlaut
Akureyrartogararnir
KALDBAKUR landaði 26. nóv-
ember 88 tonnum.
Svalbakur landaði 21. nóvem-
ber 71 tonni.
Harðbakur landaði 19. nóvem
ber 72 tonnum.
Sólbakur landaði 28. nóvem-
ber 121 tonni. □
HUSMÆÐUR
AKUREYRI
LION SKLÚBBUR Akureyrar
ætlar í dag, laugardag, að senda
meðlimi sína með úrval af jóla-
pappír í sem allra flest hús á
Akureyri.
Um leið og þið styrkið okkur
í starfi fyrir Vistheimilið Sól-
borg, en þar er alltaf þörf fyrir
eitthvað, sparið þið ykkur spor-
in og veitið góðum málstað lið.
Gleðileg jól. □
það nafnið Skjöldur. Það er all-
stórt, hefur verið nokkur ár í
smíðum og er nú fullbúið og hið
myndarlegasta, og mun kosta
um 20 milljónir króna.
Ollum íbúum hinna þriggja
hreppa, Hofsóshrepps, Hofs-
hrepps og Fellshrepps, 15 ára
og eldri, var boðið til vígslunn-
ar, einnig burtfluttum ásamt
mökum og kom þarna saman
nær hálft fimmta hundrað
manns til að fagna framkvæmd-
inni. Voru myndarlegar veit-
ingar fram bornar.
Byggingameistari var Björn
Guðmundsson, Sauðárkróki,
yfirsmiður Gunnar Stefánsson,
Hofsósi, Sólmundur Karlsson sá
um hita- og vatnslagnir og Sig-
urbjörn Magnússon sá um raf-
lögn.
Nafnanefnd, sem óskað hafði
tillagna um nafn félagsheimilis-
ins, opnaði umslögin og varð
nafnið Skjöldur hlutskarpast.
Eftir þetta fóru fram almenn
ræðuhöld og tóku margir til
máls. Ennfremur söng söng-
félagið Harpan og að lokum var
dansað af miklu fjöri fram eftir
nóttu. Allt fór þetta hið bezta
fram. □
Frá Grímsey.
(Ljósm.: E. D.).
AFLI, KOMIÐ RENNANDIVATN
Orkumálafuiidur
F J O R Ð UNGSSAMBAND
Norðlendinga boðaði til fund
ar á Akureyri um orkumál
í gær, 30. nóvember, og var
fundurinn haldinn á Hótel
Varðborg. Haukur Harðar-
son, formaður Fjórðungssam
bandsins, setti fundinn, en
kvaddi Stefán Reykjalín til
að stjórna fundi og Valdimar
Bragason til að rita fundar-
gjörð. Síðan var gengið til
dagskrár og fluttu eftirtaldir
menn erindi fyrir hádegi:
Magnús Kjartansson, iðn-
aðarráðherra, Jokab Björns-
son, orkumálastjóri, Björn
Friðfinnsson, framkvæmda-
stjóri og Jón ísberg, sýslu-
maður.
Sjá nánar um ræðu iðn-
aðarráðherra í leiðara. □
Grímsey, 30. nóvember. Snjór
er alveg óvenjulega mikill, og
alveg sérstaklega hérna í Sand-
víkinni, svo það er vont að bera
sig yfir. Flugvöllurinn er þó
góður, því af honum skóf allan
snjó og eru póstferðir hingað,
flugleiðis, tvisvar í viku og
Drangur kemur einu sinni í
hálfum mánuði. Frosthörkur
hafa verið alveg óvenjulega
miklar.
Tveir þilfarsbátar og stór
trillubátur róa með línu. Gæftir
eru að vísu fremur stopular en
fiskur er ágætur þegar hægt er
að fara á sjó, og raunar meiri
en venja er. Sjósóknin á þess-
um árstíma er höfninni að
þakka. Hafa því allir nóg að
gera. Við vorum í vandræðum
þegar skólafólkið fór, því að þá
vantaði okkur vinnuafl. Nú er
nægileg vinna fyrir þá, sem
heima eru, við þessa þrjá báta.
Við erum alveg í sjöunda
himni yfir því að hafa rennandi
vatn í hverju húsi. Vatnið er
bæði mikið og gott, enda tekið
á talsverðu dýpi. Síðasta sumar
var óvenjulegt þurrkasumar og
þornuðu allir brunnar á eynni,
en samt er nægilegt vatn í bor-
holunni, sem gefur okkur þetta
ágæta vatn. Enn höfum við að-
eins litla dælu, en samt er flæð-
andi vatn.
Mér finnst ég vera komin upp
á meginlandið síðan við fengum
sjálfvirka símann og getum
hringt hvenær sem manni dett-
ur í hug. S. S.
Senn kenuir hitaveita á Blönduós
Ási í Vatnsdal, 28. nóvember.
Kuldinn hefur verið óvenjulega
mikill að undanförnu og jörðin
frýs verulega vegna þess að
snjólaust má kalla, aðeins föl á
jörð, sem bjargar jörðinni lítið.
í raun og veru er snjórinn allt
of lítill hér um slóðir.
Hraðað nýtingu orkulinda
HINN 23. nóv. sl. fól iðnaðar-
ráðuneytið verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsens að fram-
kvæma „könnun á því, hvernig
unnt sé með sem skjótustum
hætti að nýta innlenda orku-
gjafa í stað olíu til húsahitunar
og annarra þarfa.“ Var verk-
fræðistofunni falið að hafa sam-
ráð við opinberar stofnanir og
MEÐALVIGTIN
15,07 IÍG. Á AIÍ.
MEÐALVIGT dilka, sem lógað
var í sláturhúsi Kaupfélags Ey-
firðinga á Akureyri í haust var
15.07 kg, án mörs, og er það
talin góð meðalvigt hér um
slóðir, og heldur meiri cn árið
áður.
Höfum við því 60 tonnum
meira af dilkakjöti en í fyrra,
sagði Haukur Olafsson slátur-
hússtjóri KEA, þ. e. á Akureyri
og Grenivík, enda veitir okkur
ekkert af því, því að í fyrra
þurftum við að kaupa 120—130
tonn, þar sem okkar kjöt entist
. ekki. Q
aðra aðilá, sem hlut eiga að
máli, um lramkvæmd þessarar
könnunar og hraða henni, svo
sem kostur er.
Á sviði hitaveituframkvæmda
á könnunin m. a. að beinast að
því að flýta framkvæmdum í
Kópavogi, Hafnarfirði og öðrum
nágrannabyggðum Reykjavík-
ur, lögn hitaveitu frá Svartengi
til þéttbýlisstaðanna á utan-
verðu Reykjanesi, lögn hita-
veitu frá Deildartunguhver í
Borgarfirði til Akraness og
Borgarness og að ýmsum
smærri hitaveituáformum, eftir
því sem hagkvæmt er talið.
Á sviði raforkuframkvæmda
er verkfræðistofunni ætlað að
kanna, hvernig unnt sé að flýta
áformum um notkun raforku til
húshitunar, m. a. með samteng-
ingu orkuveitusvæða, þannig að
næg raforka verði fáanleg á
sama heildsöluverði um land
allt og unrit að nota hana til
húshitunar á Austfjörðum, Vest
fjörðum og í öðrum byggðar-
lögum, þar sem jarðhiti er eltki
tiltækur eða notkun hans ekki
hagkvæm. í því sambandi er nú
unnið í iðnaðarráðuneytinu að
frumvarpi til laga um heimild
til allt að 55 MW jarðgufuvirkj-
unar á Kröflusvæðinu til þess
að styrkja raforkukerfið á Norð
urlandi og Austfjörðum.
Þá hefur iðnaðarráðuneytið
snúið sér til Seðlabankans og
farið þess á leit, að bankinn
hefji undirbúning að gerð fjár-
mögnunaráætlunar um sem
skjótasta nýtingu innlendra
orkugjafa í samvinnu við verk-
fræðistofu Sigurðar Thorodd-
sens. □
í kuldunum er mönnum oft-
ar hugsað til heita vatnsins en
endranær. Á Hvammstanga býr
fólkið við nýja hitaveitu, sem
reynist ágætlega. Blönduós-
hreppur hefur tryggt sér hita-
réttindi á Reykjum. Og þótt
leiðin sé nokkuð löng, virðist
heita vatnið nægilegt. Bæði
kemur þar talsvert mikið magn
af heitu vatni upp úr jörðinni
og talið öruggt, að unnt sé að
ná miklu meira af því með bor-
un. Hitaveita fyrir Blönduós er
í undirbúningi. Gera þarf ýms-
ar athuganir óður en hafizt
verður handa, svo sem skiljan-
legt er. Leiðin til Hveravalla er
löng, en mikið er þar af heita
vatninu, ef unnt væri að leiða
það til byggða! í sveitum er
rólegt og búskapur áfallalaus.
G. J.
heyskapur í sumar og góS veiSi
Vopnafirði, 30. nóvember. Snjór
er lítill, en mikil frost, svo að fé
hefur verið í húsi, enda nægileg
hey og minna sinnt vetrarbeit
en óður var.
Utivinna stöðvaðist þegár tók
að frjósa verulega, en atvinna í
kauptúninu var nægileg fram
að þeim tíma og er raunar enn.
Á morgun verður árshátíð,
sem er árleg skcmmtun um 1.
desember. Konur sjá um hana
annað árið en karlar hitt og nú
eru það karlmennirnir, sem
undirbúa árshátíðina. Hátíðin
verður haldin í félagsheimilinu
Miklagarði.
í iiaust var lógað um 15 þús.
fjár og er það fleira en áður.
Meðalþungi dilka var 15.6 kg.
Það er örlítið minni meðalvigt
en sl. ár, en áreiðanlega enn
fleira af tvílembingum en í
fyrra. Heimtur voru góðar í
haust, Þyngsta meðalvigt var
hjá Jóni Þorgeirssyni í Skóg-
um, 18.6 kg og voru dilkárnir
]oó flestir tvílembingar. Jón
liefur fremur lítið fjárbú en
afurðasamt. Þyngsta lambið var
30.2 kg og það átti Jósep Þor-
geirsson á Frémri-Nýpum.
Ló'gað var 215 nautgripum og
er það með langmesta móti, og
voru þetta fyrst og fremst geld-
neyti, sem alin voru til slátr-
unar.
Hofsá var óvenjulega gjöful
síðasta sumar og veiddust úr
henni 1112 laxar og er það 400
löxum fleira en árið áður, sem
þó var metár. Ástæður eru m. a.
skynsamleg nýting og hin
ágætu skilyrði órinnar til að
rækta sig upp. Ur Selá komu
um 440 laxar og Vesturdalsá
var gjöful eins og árið óður og
var veiðin vel í meðallagi. Þ. Þ.
FRÁ LÖGREGLUNNI
NEI, nú gerist bara alls ekki
neitt frósagnarvert. Þjónar eru
í verkfalli, vínbarir lokaðir og
hér er allt með rólegasta móti,
sagði yfirlögregluþjónninn í
gær. □