Dagur - 06.11.1974, Blaðsíða 8
NÝKOMIÐ
ÍBELO
rafmagns-
kveikjarar,
mikið úrval.
SMÁTT & STÓRT
við eitt þeirra. Hestur þessi var
mjög viðkvæniur er lagður var
á hann hnakkur, en engan
grunaði að þetta væri ástæðan.
Menn giska á, að hestur þessi
hafi orðið fyrir skoti rjúpna-
skyttu, nú í haust eða áður.
GAMANSEMI Á VINNUSTAÐ
Þar sem margir menn vinna, er
gamansemi oftast í hávegum
höfð. Eins og kunnugir vita,
myndast jafnan í rigningum
poilar við Slippstöðina. Morgun
einn þegar stjómendur fyrir-
tækisins komu til vinnu sinnar,
var búið að setja bjarghring við
einn pollinn. Þetta var þörf
ábending og fram borin á fynd-
inn hátt. Nú er verið að gera
þarna nokkrar úrbætur og búið
að ákveða nauðsynlega malbik-
un, sem mun gjörbreyta vinnu-
staðnum.
AÐALFUNDUR
TÓNLISTARFÉL.
AÐALFUNDUR Tónlistarfélags
ins á Akureyri verður haldinn
í sal Tónlistarskólans á Akur-
eyri 10. nóvember og hefst fund
urinn kl. 3 e. h. Allt áhugafólk
um tónlistarmál er hvatt til að
sækja þennan fund, og taka þátt
í stefnumótun tónleikahalds og
tónlistarmála í bænum.
Á dagskrá eru venjuleg aðal-
fundarstörf, umræður um vetr-
arstarfið, kynning á nýjum
hljómflutningstækjum og kaffi-
drykkja.
(Fréttatilkynning)
HRÓLFUR GEFUR
GÓÐAR GJAFIR
K I W A N I S KLÚBBURINN
Hrólfur á Dalvík, sem telur
hálfan fjórða tug félaga, gaf
100 þúsund krónur í norðlenska
neyðarbílinn og tók Rauði kross
inn á móti gjöfinni fyrir nokkru
síðan. Við sama tækifæri af-
henti klúbburinn 50 þúsund
króna gjöf til Barna- og ungl-
ingaskólans á Dalvík, til tækja-
kaupa, og Húsabakkaskóla í
Svarfaðardal 25 þúsund krónur
til sömu nota.
Klúbburinn hefur aflað fjár
með símaslcrárkápum og sölu
eldflauga, ennfremur með fisk-
verkun og hefur ýmsar aðrar
gjafir gefið þótt hann hafi að-
eins starfað um þriggja ára bil.
Núverandi forseti klúbbsins
er Hjalti Haraldsson, en fráfar-
andi forseti var Júlíus Snorra-
son.
(Samkvæmt viðtali við Símon
Ellertsson ó Dalvík).
BRESKI TOGARINN
NÁÐIST ÚT
Breski togarinn Port Vale, sem
strandaði á Héraðssandi á dög-
um með 18 manna áliöfn, sem
allri var bjargað, náðist út og
er talinn lítt skemmdur. Voru
það skip Landhelgisgæslunnar,
Ægir og Árvakur, sem drógu
togarann af strandstaðnum og
'færðu til hafnar á Seyðisfirði.
Tók þá norskur dráttarbátur
við, sem fenginn var til að koma
skipinu til Grimsby, heimaliafn
ar togarans. Breski sendiherr-
ann gekk á fund Einars Ágústs-
sonar og færði íslendingum
þakkir fyrir björgun sjómann-
anna.
Mynd þessi var tckin í sumar, er verið var að rannsaka hafnarsvæðið.
J
(Ljósm.: E. D.)
áæffs&r á 327 miHj. króna
BLAÐIÐ leitaði fregna um
hafnarmálin á Akureyri hjá
Stefáni Reykjalín stjórnarfor-
manni hafnarstjórnar, og sagði
hann þá m. a. eftiríarandi:
Frá 1929, er lokið var bygg-
ingu nyrðri Torfunefsbryggju,
heíur engin vöruhöfn verið
byggð á Akureyri. Búið er að
gera fjögurra ára áætlun um
hafnarframkvæmdir á Akur-
eyri og leggur hafnarstjóm þær
fram, að mestu samkvæmt áætl
unum Hafnarmálastofmtóarinn-
ar, en nokkrar minni fram-
kvæmdir áætlaðar af hafnar-
stjóra Ak. Voru áætlanir þess-
ar lagðar fyrir bæjarstjórnar-
fund í gær. Fullnaðarsamþykkt
þarf áætlunin að hljóta hjá
yfirvöldum.
Framkvæmdir, samkvæmt
þessari óætlun, eiga að dreifast
á árin 1957—1978, þó þannig, að
á árinu 1975 komist um helm-
ingur áætlunarinnar í fram-
kvæmd. En öll hljóðar hún upp
á 327 milljónir króna, miðað við
núverandi verðlag.
Stærsta verkefnið er að ljúka
fyrsta áfanga vöruhafnarinnar
sunnan á Oddeyrartanga, sem
áætlað er að kosti um 80 millj.
króna. Einnig er óætlað að setja
stálbakka eða viðlegukant sunn
an Slippstöðvarbyggingarinnar,
140 metra langan. Mundi þar
þá verða einhver besti viðlegu-
staður fyrir skip, sem eru til
viðgerðar.
Stærstu framkvæmdaliðir á
BYRJAÐ Á NÝJU
ÚTIBÚI KEA
í BYRJUN september hófust
framkvæmdir við byggingu á
útibúi Matvörudeildar KEA,
sem standa mun við Hrísalund
á Lundstúni, eða sem næst á
mörkum Gerðahverfis II og
Lundahverfis, nýjustu íbúða-
hverfa Akureyrar, sem mjög
hafa byggst upp á tveim síðustu
árum. Fullbyggð er gert ráð
fyrir að í báðum hverfunum
muni búa nær 3000 manns.
Grunnflötur hins nýja útibús
verður um 780 fermetrar, ein
hæð og kjallari. Lokið er við að
grafa út húsgr.unninn og ætlun-
in að steypa undirstöður húss-
ins fyrir veturinn. Frekari fram
kvæmdir bíða næsta árs. □
árinu 1976 eru: Annar ófangi
vöruhafnar, sem koma á austan
Stefán Reykjalín,
formaður hafnarstjórnar.
á Oddeyrartanga, sunnanverð-
an og áætlað er að kosti um 45
millj. króna. Einnig að bætt
verði aðstaða við Hraðfrystihús
Útgerðarfélags Akureyringa
h.f., en sú framkvæmd fer eftir
því, hvort félagið byggir fisk-
móttöku sunnan við frystihúsið.
Löndunarbryggja þessi er áætl-
uð að kosti 27 millj. króna.
Framkvæmdaupphæð ársins
1976 er áætluð 82 millj. króna.
Á árunurn 1977 og 1978 eru
ýmsar framkvæmdir áætlaðar,
og er kostnaður við þær áætl-
aður 85 millj. króna.
Við þessar framkvæmdir
greiðir ríkissjóður 75% en
Hafnarsjóður Akureyrar 25%.
Samkvæmt fundargerð hafn-
arstjórnar, á fyrsta áfanga vöru
hafnarinnar sunnan á Oddeyrar
tanga að vera lokið í september
lok 1975. □
HÁHYRNIN G A VEIÐ ARN AR
Franskir menn, sem kaupa vilja
lifandi háhyrninga, liina miklu
hrekkjalóma á síldarmiðum
Hornfirðinga, hafa nú látið út-
búa stór og mikil háhyrninga-
net til veiðánna. En auk þess
eru til Iandsins komin deyfilyf
og byssur til að skjóta þeim í
dýrin. En eftir er að sjá hver
árangurinn verður.
SÖFNUN KIWANISMANNA
Kiwanismenn söfnuðu víða uin
land fé til stuðnings geðsjúk-
um. AIIs söfnuðust um fjórar
milljónir króna. Talið er, að um
1200 manns hafi lagt hönd að
söfnuninni, með því að ganga í
hús og selja „Iykilinn“. En ef-
laust eru þeir margir, sem gjam
an vilja leggja fram einhverja
fjármuni til styrktar þessu mál-
efni og taka bankar, sparisjóðir
og pósthús á móti greiðslum á
gíróreikning 32331.
HÖGL f HROSSINU
f átta vetra gömlum hesti, sem
lógað var á Akureyri fyrir
nokkrum dögum og er austan
úr sveitum, fundust finnn högl
í síðunni og var ígerð byrjuð
silja lyrir laxvei!
AÐALFUNDUR Landssam-
bands stangveiðifélaga var hald
inn á Akureyri dagana 26. og
27. f. m.
Meðal helztu mála, sem rædd
voru á þinginu, var leiga ó lax-
veiðiám til útlendinga. Var
alger samstaða um að vinna að
því að tekið yrði fyrir slíkar
leigur, hvort heldur beint til
útlendinga eða gegnum svo-
kallaða umboðsmenn. Fundur-
inn taldi það algera réttlætis-
kröfu, sem vinna bæri mark-
visst að, að íslendingar sjálfir
sætu fyrir leigu á öllum veiði-
vötnum. Þetta ber þó engan
veginn að skilja þannig, að tek-
ið verði fyrir veiði útlendinga
í íslenzkum ám, eftir sem áður
verði þeim seld veiðileyfi, sam-
kvæmt ákvörðun stjórna hinna
ýmsu veiðifélaga, eða skrifstofu
Landssambands veiðifélaga,
enda hlýti viðkomandi þeim
reglum, sem settar eru um
varnir gegn smithættu erlendis
frá.
Þá samþykkti fundurinn að
stuðla að því að gerðar yrðu
allar tiltækar varúðarráðstaf-
anir í sambandi við mannvirkja
gerð eða aðrar framkvæmdir í
námunda við veiðiár og vötn,
sem hætta væri á að mengun
gæti stafað frá, ennfremur að
brýna fyrir veiðimönnum fyrir-
mannlega framkomu og góða
umgengni á veiðistað.
Fundurinn samþykkti að
vinna að stóraukinni fiskrækt
á vatnasvæðum undir leiðsögn
sérmenntaðra manna. Sérstakar
þakkir voru færðar Eldistöðinni
í Kollafirði, sem fúslega liefir
sent upplýsingar og fróðleik til
eldistöðva og áhugamanna víðs
vegar um landið, er eftir slíku
hefir verið leitað, einnig sam-
þykkti fundurinn að færa Skúla
Pálssyni, Laxalóni, þakkir fvrir
mjög óeigingjarnt brautryðj-
andastarf í þágu fiskræktar.
(Framhald á blaðsíðu 6)