Dagur - 20.11.1974, Side 6
6
I.O.O.F. 2 — 15511228V2
o RÚN 597411207 = 7
Messað verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 2
e. h. Sálmar: 291, 193, 207, 10,
186. Bílaþjónusta í síma 21045.
Síðasti sunnudagur kirkju-
ársins. — B. S.
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju verður n. k. sunnudag
kl. 11 f. h. Skólaskyld böm
uppi í kirkjunni, en yngri í
kapellunni. Öll börn velkom-
in. — Sóknarprestar.
Messað í Lögmannshlíðarkirkju
kl. 2 e. h. á sunnudag (síðasti
dagur kirkjuársins). Sálmar:
346, 207, 127, 326, 26. Bílferð
úr Glerárhverfi kl, 1.30 e h.
■ ! — p. s.
Munkaþverársókn. Messað 24.
nóv. kl. 13.30. Minnst 130 ára
afmæli kirkjunnar. — Sóknar
prestur.
Möðruvallaklaustursprestakall.
Barnaguðsþjónusta að Möðru
völlum n. k. sunnudag kl. 11
f. h. — Sóknarprestur.
*Hjálpræðisherinn. —
Fimmtudag kl. 17.00.
^Kærleiksbandið.
Fimmtudag kl. 20.00.
Æskulýður. Sunnudag kl.
14.00. Sunnudagaskóli. Sunnu
dag kl. 17.00. Almenn sam-
koma. Mánudag kl. 16.00.
i Heimilasambandið. Kaptein
Ása Endresen, Löytnant Hild
ur Stavenes stjórnar og talar.
Söngur og vitnisburðir. Allir
velkomnir.
Lionsklúbburinn Hug-
inn. Konukvöld föstu-
daginn 22. nóv. kl. 8 e. h.
5 Hótel KEA.
„Þegar þér leitið mín af öllu
hjarta, vil ég láta yður finna
mig“ — segir Drottinn. (Jer.
29. 13, 14.) Hefir þú leitað
Drottins? — S. G. Jóh.
Dalvík. Opinn stúkufundur
verður á Dalvík í Víkurröst
kl. 8.30. Þar verða ræður og
ávörp. Indriði Indriðason og
fleiri. Eftir fundinn kaffiveit-
I ingar og bingó. Allir vel-
komnir. — Æ.t.
I.O.G.T. Akureyri — Dalvík.
Bindindisdagurinn, sunnudag
urinn 24. nóv. Félagsheimili
templara í Varðborg. Upp-
lýsingaþjónusta og kynning á
Góðtemplarareglunni, íslenzk
! um ungtemplurum og barna-
stúkunum kl. 1—3. Opinn
stúkufundur kl. 4. Allir vel-
komnir. Ræðumaður Indriði
Indriðason. Skemmtikraftur
Kristín Ólafsdóttir. Kaffiveit-
1 ingar. >
Kristniboðshúsið Zíon: Sunnu-
daginn 24. nóv. Sunnudaga-
skóli kl. 11 f. h. Öll börn vel-
komin. Samkoma kl. 8.30 e. h.
er K.F.U.K. sér um. Allir
hjartanlega velkomnir.
Köku- og munabasar verður í
Kristniboðshúsinu Z í o n
sunnudaginn 24. nóv. kl. 3.30.
— K.F.U.K.
§Frá Sjálfsbjörg. Síðasta
spilakvöldið fyrir jól
verður í Alþýðuhúsinu
n. k. sunnudag 24. nóv.
kl. 8.30 síðd. Fjölmennið
stundvíslega. — Nefndin.
Minningarspjöld Minningar-
sjóðs Steinunnar Sigursteins-
dóttur, Akurbakka, Grenivík,
fást í Markaðirium og í sím-
um 21216 og 21194.
Minningarsjóði Kvenfélagsins
Hlífar hafa borist eftirtaldar
gjafir: Frá ónefndri konu kr.
500, frá Stefáni Snælaugs-
syni, Lækjargötu 4, kr. 1.000,
eyfirsk kona kr. 1.000. —
Alúðar þakkir. — Laufey
Sigurðardóttir. — Gjafir og
áheit á sjóðinn ganga til
barnadeildar Fjórðungssjúkra
hússins á Akureyri.
Sextugur. Ellert M. Jónasson,
Eyrarvegi 7 A á Akureyri,
verður sextugur 21. nóv.
Hann dvelst nú í heilsuhæli
í Hveragerði.
Samkoma votta Jehóva að Þing
vállastræti 14, 2. hæð, sunnu-
daginn 24. nóvember kl. 16.00.
Fyrirlestur: Hve náið þekkir
þú Guð? Allir velkomnir.
Opið hús fyrir aldraða er á
hverjum fimmtudegi kl. 15—
19 í Hótel Varðborg. — Félags
málastofnun Akureyrar.
Skógræktarfélag Tjarnargerðis
heldur afmælisfund í Þing-
vallastræti 14 miðvikudaginn
20. þ. m. kl. 8.30 síðd. Félags-
konur. mætum allar. —
Nefndin.
Köku- og munabasar heldur
Náttúrulækningafélag Akur-
eyrar laugardaginn 30. þ. m.
Nánar auglýst síðar. —
Nefndin.
Lionsklúbburinn Hæng-
ur. Fundur fimmtudag
21. nóv. kl. 7.15 á Hótel
KEA
Konur í Kvenfélaginu Baldurs-
brá. Fundur fimmtudaginn 21.
nóv. kl. 8.30 e. h. í Barnaskól-
anum Glerárhverfi. — Stjórn
in. i
Gjafir. — Til Bangladesh frá
ónefndum hjónum kr. 10.000,
frá N. N. kr. 1.000. — Til
kristniboðs frá S. og Á. kr.
100. — Til Strandarkirkju frá
Guðjóni Björnssyni kr. 1.000.
— Kærar þakkir. — Pétur
Sigurgeirsson.
Náttúrugripasafnið verður lok-
að vegna innréttinga og flutn-
! ings fram yfir áramót.
Nonnaliús er aðeins opið eftir
samkomulagi við safnvörð,
sími 22777.
Minjasafnið á Akureyri er lokað
vegna byggingarframkvæmda.
Þó verður tekið á móti ferða-
fólki og skólafólki eftir sam-
komulagi við safnvörð. Sími
safnsins er 11162 og safn-
. varðar 11272.
Amtsbókasafnið. Opið mánud.—
föstud. kl. 1—7 e. h. Laugar-
daga kl. 10 f. h. — 4 e. h.
Sunnudaga kl. 1—4 e. h.
Bamaverndarfélag Akureyrar
heldur fund á Hótel Varð-
borg laugardag 23. nóv. n. k.
kl. 17. Félagsráðgjafi bæjar-
ins, Björn Þorleifsson, kemur
á fundinn og ræðir félagsmál.
Félagar taki með sér gesti. —
Stjórnin.
Áheit á Akureyrarkirkju kr.
1.000 frá N. N. og kr. 2.000 frá
N. N. — Áheit á Strandar-
kirkju kr. 2.000 frá N. N. —
Bangladeshsöfnunin: Kr.
2.000 frá I. S., kr. 500 frá S.
og A., kr. 3.000 frá N. N. og
kr. 1.000 frá N. N. — Bestu
þakkir. — Birgir Snæbjörns-
son.
Brúðhjón: Hinn 16. nóvember
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju eftirtalin
brúðhjón: Ungfrú Eyrún Ey-
þórsdóttir hjúkrunarnemi og
Jónas Finnbogason lögreglu-
maður. Heimili þeirra verður
að Álfabyggð 10, Akureyri.
Ungfrú Hrafnhildur Fríða
Gunnarsdóttir og Helgi Frið-
jónsson verkamaður. Heimili
þeirra verður að Brekkugötu
10, Akureyri. Ungfrú Ágústa
Ólafsdóttir verkakona á tré-
smíðaverkstæði og Guðmund
ur Pétursson sjómaður. Heim
ili þeirra verður að Langholti
10, Akureyri.
Húsmæðraskólafélag Akureyr-
ar heldur fund laugardaginn
23. nóvember kl. 3.30 e. h. í
Húsmæðraskólahúsinu. —
Kynnt verður starfsemi félags
ins frá upphafi og skólastarf-
ið nú. Frú Margrét Kristins-
dóttir skólastýra mun koma á
fundinn, upplýsa margt um
kennslufyrirkomulag og sýna
húsið. Félagskonur, komið og
takið gesti með, drekkið eftir-
miðdagskaffið, eigið skemmti
lega og fróðlega stund í gamla
góða og fallega skólahúsinu.
— Stjórnin.
I.O.G.T. stúkan Ísafold-Fjallkon
an nr. 1. Fundur í félags-
heimili templara, Varðborg,
fimmtudag 21. nóv. kl. 8.30
e. h. Fundarefni: Vígsla ný-
liða. Venjuleg fundarstörf.
Eftir fund. Afmæliskaffi. —
Æ.t.
Hjálparsveit skáta. Mæting kl.
8 á miðvikudagskvöld við lög-
reglustöðina. Verið vel klædd.
Lugtir.
Náttúrulækningafélag Akureyr
ar heldur félagsfund sunnu-
daginn 24. nóvember kl. 3 síð
degis í Amaro. Fundarefni
vetrarstarfið og framtíðar-
verkefnin. Nauðsynlegt að
félagar mæti vel. Kaffi og te-
drykkja. — Stjómin.
Kylfingar. —
Mætið við
vinnu að Jaðri
miðvikudag og
fimmtudag kl.
19.30. — Hús-
nefnd.
^SJU Frá Sjálfsbjörg, félagi
fatlaðra á Akureyri. —
ifvi f Félagið heldur sinn ár-
lega jólabasar í Laxa-
götu 5 sunnudaginn 24.
nóvember kl. 4 e. h. Óskað er
eftir að félagar (bæði aðal- og
styrktarfélagar), svo og aðrir
velunnarar félagsins gefi kök-
ur, prjónavörur eða aðrar góð
ar basarvörur. Koma má bas-
armunum til Sigríðar í Löngu
hlíð le, Sigurbjargar, Skarðs-
hlíð 21, Guðrúnar, Oddeyrar-
götu 36, Margrétar, Langholti
15, Iðunnar, Ránargötu 5,
Snæfríðar, Ránargötu 18,og í
Laxagötu 5 kl. 2—6 e. h. á
laugardag 23. þ. m. og frá kl.
11—1 á sunnudag 24. þ. m.
Æskilegt væri að komið væri
með brauð á sunnudaginn.
Verum samtaka og höldum
stóran og góðan jólabasar. —
Nefndin.
Áfengisvarnarnefnd Akureyrar
hefur opnað skrifstofu að
Hótel Varðborg mánudaga og
fimmtudaga kl. 5—6.30 e. h.
•©rti dagöinö*
•á akureprij
• öími 2 18 40*
J^ringiti ogj
• íjluótib!....•
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
BLÓMABÚÐIN LAUFÁS AUGLÝSIR:
Sjón er sögu ríkari
BLÓMABÚÐIN LAUFÁS
WEED SNJÖKEÐJUR
FLESTAR STÆRÐIR
á fólksbifreiðar, jeppa og vörubifreiðar.
Keðjuhlutir, þverbönd, krókar, lásar
og keðjutengur.
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
VÉLADEILD
SÍMAR 2-14-00 OG 2-29-97.
4ra herb. íbúð til sölu
AÐALGEIR og VIÐAR HF.
FURUVÖLLUM 5. - SÍMI 2-13-32.
$ Eigi alls fyrir löngu var mér fœrð vönduð og
ö góð gjöf, i nafni þriggja sókna Vallaj)restakalls, f
7 i tilefni af sextugsafmœli mínu fyrr á þessu ári. %
§ Um leið og ég þakka þá gjöf vil ég þakka þeim ®
f sóknarbörnum minum, vinum og vandamönn- f
$ um og félögum, sem áður heiðruðu mig með gjöf- 7
+ um, skeytum og heimsóknum af sama tilefni.
± Ykkur öllum ástarþakkir.
STEFÁN SNÆVARR.
Eiginmaður minn
KARL GUÐMUNDSSON
lést föstudaginn 15. nóv. í Fjórðungssjúkráhús-
inu á Akureyri.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 22. nóv. kl. 13,30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hans er bent á Elliheimili Akureyrar eða
líknarstofnanir.
Eiginkona hins látna, Sigriin P. Jónsdóttir
og fóstursonur.
Þökkurn auðsýnda samúð við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmti
JÓNÍNU SIGFRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR
Sandgerði, Glerárhverfi.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfs-
fólki á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Börn og tengdaböm.
Maðurinn minn
JÓHANNES WÆHLE
Grænumýri 13,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 12.
nóv. sk, verður jarðsunginn frá Akureyrrkirkju
miðvikudaginn 20. nóv. kl. 13,30 e. h.
Fyrir mína hönd og dætra okkar,
Birna Ingimarsdóttir Wæhle.