Dagur - 14.12.1974, Blaðsíða 2
2
SMIÐUM A
VERKSTÆÐI
Allskonar innréttingar
og skápa.
Einnig útihurðir og
glugga-
Ý R H F.,
Gránufélagsgötu 45
Akureyri.
Sími 2-21-52.
Aöventuljósin
margeftirspurðu loksins komin.
Falleg og góð jólagjöf.
GUNNAR ÁSGEIRSSON HF.,
GLERÁRGÖTU 20. - AKUREYRI.
SKIPABÓKIN
STÓRMERKILEG FRÆÐIBÓK
Tapað
KÖTTUR í óskilum.
Hvít bleiða með brún-
um og svörum flekkum.
Uppl. í síma 2-19-76.
Lögtök
Utsvör, aðstöðugjöld og fasteignagjöld til bæjar-
sjóðs Dalvíkur gjaldfaliin en ógreidd árið 1974,
verða innheimt með lögtaki á kostnað gjald-
enda eigi síðar en 20. desember n. k., hafi greiðsla
ekki farið fram.
BÆJARSTJÓRINN Á DALVÍK.
Almenna bókafélagið hefur nú
gefið út mikla og fróðlega bók,
sem heitir SKIPABÓKIN.
Þessi stórmerkilega bók er
gefin út í samvinnu við sama
frumútgefanda og gaf út hina
vinsælu og eftirsóttu bók, Vík-
ingarnir, sem nú er gersamlega
uppseld.
Skipabókin er árangur sam-
starfs sérfræðinga í Svíþjóð,
Bandaríkjunum, Bretlandi, Dan
mörku, Finnlandi, Hollandi,
Noregi og Þýzkalandi. Þetta er
einstætt rit í sinni röð, hvort
sem litið er til efnismeðferðar
eða óvenjulegrar fegurðar í
myndum og búnaði. Hvorki
meira né minna en 1580 skýr-
ingamyndir og teikningar prýða
bókina og fræða lesandann um
era
Stofa verður heimilisleg á margan hátt,
Smekklegt val og röðun húsgagna ræður miklu.
Það gera blóm, myndir og munir einnig.
Gluggatjöldin mynda baksviðið og segja síðasta
orðið um samspil Jjóss og lita.
Val á þeim getur ráðið mestu um, hvernig til tekst.
Gefjunar gluggatjöld hleypa ljósifallegaígegn og
fást í ótrúlega fjölbreyttu litavali
Gefjunar gluggatjöld úr dralon
úrvals trefjaefni frá Bayer.
Auðveld lþvotti -
þarf ekki að strauja.
dralon
.BAYER
Úrvals trefjaefni
GEFJUN AKUREYRI
hverskonar búnað og gerð skipa
og báta frá fyrri og síðari tím-
um fram til kjarnorkubáta nú-
tímans.
Til skýringar myndunum er
tölusettur texti sem gerir hverj-
um lesanda fært að athuga og
átta sig á uppdráttum að reiða-
búnaði, seglum, seglrám, vél-
um, veiðarfærum, siglingafán-
um, jafnvel vopnum, sem hafa
á ýmsum tímum verið notuð
um borð í skipum. Hver kafli
bókarinnar hefst á inngangi um
þá þróun, sem orðið hefur á
hinum mismunandi sviðum sæ-
fara og skipa. Til að mynda
skýrir fyrsti kafli bókarinnar,
sem fjallar um skipsbolinn,
flesta þætti í þróun þessarar
smíði, allt frá því hún fvrst
kom fram sem kæna úr dýra-
húðum eða trjáberki til stór-
skipa nútímans. í öðrum köfl-
um bókarinnar er fjallað með
sama hætti um rár og reiða-
búnað, seglin, vélbúnað, fisk-
veiðar, snekkjusiglingar, vopna-
búnað, siglingafræði og skip-
stjórn.
Skipabókin er 280 bls. í stóru
broti. Hún er eitt fullkomnasta
uppsláttarrit, sem út hefur
verið gefið um skip og báta og
er því kjörin bók fyrir alla þá,
sem samskipti eiga við hafið,
hvort heldur er á stærri skip-
um eða smábátum og engu síð-
ur fyrir þá, sem aldrei hafa á
sjó kómið en hina sem stunda
eða hafa stundað sjósókn □
Sala
Til sölu grásleppunet og
slöngur.
Úppl.-í síma 6-14-26,
Dalvík.
Úrval vatnslitamálverka.
Þorgeir Pálsson,
Fjólugötir 12,
sími 2-39-82 eftir kl. 18.
Bensín-miðstöð til sölu.
Uppl. í síma 2-21-78.
Til sölu 10 ha. SAAB
dísel bátavél.
Fersk vatns kæld.
Agnar Þórisson,
sími 3-21-08.
Nýlegur hitavatns-
dunkur 150 lítra með
3ja kílóvatta túbu til
sölu.
Uppl. í síma 2-10-38
eftir kl. 19.
'íuniip:::::::::...... ........................ .............."injjjjjj
Hobin
URVALS
HVEITI
Fæst í kaupfélaginu