Dagur - 18.12.1974, Síða 8
AliGLVSINGASÍMI
Daguk
Akureyri, miðvikudaginn 18. des. 1974
til ^
JÓLAGJAFA 1 i • GULI.SMIÐIB
Aldrei meira í\ StGTRY.GGÚR \J & PÉTUR
^ f AKUREYRI
SMÁTT & STÓRT
Fremri röð frá vinstri: Ottó Leifsson, Katrín Frímannstíóttir og Björn Víkingsson. Aítari röð. Viðar
Garðarsson, Tómas Leifsson, Ásgeir Magnússon, Karl Frímannsson, Haukur Jóhannsson og Kristinn
Sigursteinsson. Þetta er hópur skíðafálks. — Sjá í opnu blaðsins. (Ljósm.: Fr. Vestmann)
Blaðið leitaði frétta hjá Hirti E.
Þórarinssyni á Tjörn í Svarf-
aðardal, og sagði hann þá eftir-
farandi:
Síðasta hálfan annan áratug-
inn fækkaði fólki í Svarfaðardal
um nær hundrað manns. Nokkr
ir bæir fóru einnig í eyði á
þeim tíma. Nú sýnist mér, að
komið sé jafnvægi í búsetunni.
Bæir fara nú ekki í eyði og fólk
inu er hætt að fækka. Barns-
fæðingar, sem voru í einhvers-
konar öjdudal, glæðast að nýju,
enda hefur ungt fólk nú víða
tekið við af þeim eldri við bú-
skapinn.
Búskapur er jafn og allgóður
Síðan í október hefur veðrátta
verið hagstæð á Héraði. Er talið
óvenjulegt hve menn hafa mikið
getað unnið að byggingum
íbúða og gripahúsa þennan
tíma á sex vikna góðviðriskafl-
anum. Vel eru bændur taldir
heyjaðir. í haust var lógað yfir
70 þús. fjár á félagssvæði kaup-
félagsins og er það mun meira
en í fyrra. Féð reyndist lélegra
til frálags en í fyrra og lauslega
áætlað munar það samtals 25—
30 millj. kr.
Nú stendur yfir bygging
mjólkursamlags Kaupfélags Hér
aðsbúa og verður það mjög full
komin vinnslustöð. Jafnframt er
komin á áætlun kaupfélagsins
bygging sláturhúss, er teldð
gæti á móti öllu sláturfé á félags
svæðinu.
Um 40 íbúðir eru í byggingu
LUKKUPOTTl
Næstu daga verður bæjarbúum
gefinn kostur á þátttöku í nú-
tíma hlutaveltu. Félagar úr
Knattspyrnufélagi Akureyrar
munu ganga um bæinn og bjóða
hlutaveltumiða til kaups. Kosta
þeir 50,00 kr. Vinningaskrá
verður afhent um leið, þannig
að þeir er vinning hljóta geta
strax séð hver vinningurinn er.
Alls eru vinningarnir 2602 að
hér í Svarfaðardal eins og verið
hefur. Menn byggja mikið af
vélageymslum og heyhlöðum og
einnig eru nokkur íbúðarhús í
smíðum og stækkun íbúðar-
húsa.
Ymsir bændur hyggjast hætta
mjólkurframleiðslu vegna tank-
væðingarinnar, sem hér verður
1977, samkvæmt áætluninni, en
snúa sér þess í stað að meiri-
háttar sauðfjárbúskap. Þetta tel
ég mjög hæpna ráðstöfun því
Svarfaðardalur hefur ekki nægi
legt land til þess, nema til komi
stórbætt haglendi með einhvers
konar ræktun um leið.
Oft hefur verið talað um blóm
legt félagslíf í Svarfaðardal, en
ef litið er yfir sviðið núna, er
það hreint öfugmæli, hvort sem
það skánar eitthvað síðar í
vetur. Margt hjónafólk á bæj-
unum er orðið svo gamalt, að
það sinnir ekki mikið félags-
málum og skemmtanalífi, en
unga fólkið, sem víða hefur kom
ið í staðinn, leitar gjarnan til
Ðalvíkur. Ungmennafélagar láta
lítt á sér bera, en kvenfélagið
(Framhald á blaðsíðu 6)
„AUMINGJA ÞU“
Maður einn, f jögurra föngulegra
dætra faðir, fékk einhverju
sinni heimsókn; Aðkomuinpnni
varð starsýjrit'-á ■ dæturnar 6g
spurði föður þeirra, hvórt liamr.
ætti þær allar, og fékk jákvætt
svar. Varð gestinum þá að orði:
Aumingja þú. Faðirinn taldi, að
enginn þyrfti að vorkenna sér
vcgna dætranna, enda væru
þær það besta, sem hann ætti
og hann vissi ekki betur en þær
væru allar sæmilega efnilegar.
Gesturinn var nokkuð flumósa
og sagði: Já, já,-nfei, nei, ég var
nú ekki að méina það. Ég var
að hugsa um andskotans tengda
synina!
MÓTVÆGI MYRKURSINS
í gráum hversdagsleikanum,
þegar ofan á hann bætist skamm
degismyrkrið og amstur dag-
anna, er flestum nauösyn að
eiga sér heitar óskir og vinna
að því að þær rætist með hækk-
andi sól. Það er jafnvel nauð-
synlegt að eiga í huga sér fagur-
bláma. fjarlægðarinnar, til mót-
vægis við skammdegisdrung-
ann. Það er mælt, að flest leiti
jafnvægis, einnig í hugarheimi
heilbrigöra manna. En ýmsum
verður skammdegismyrkur
erfitt, jafnvel svo, að sjálf jóla-
hátíðin er þess ekki megnug að
eyða því nema litla stund.
Þegar svo er ástatt, er gagns-
lítið að gefa uppskriftir. En
flestir geta sjálfir glætt með sér
vonirnar, ef ekki einir, þá með
styrk vina sinna. Vart geta
menn gefið náungum sínum og
samborgurum betri jólagjafir,
en þann styrk.
í Egilsstaðakauptúni, misjafn-
lega lángt á veg komnar. Mörg
húsanna urðu fokheld í nóvem-
bermánuði. Þá hefur verið unn-
ið við sjúkrahúsið og verður
Jjað tekið í fulla notkun fljót-
lega upp úr áramótum. Verður
þá rúm fyrir 28 sjúklinga við
góða aðstöðu. Stöðugt er verið
að fullkomna tæki læknamið-
stöðvarinnar og aðstaða verður
fyrir sérfræðinga, sem væntan-
lega verða þar tíma og tíma
eftir þörfum.
Lokið er smíði fimm húsa,
dvalarheimili aldraðra á Egils-
stöðum, og eru margir á bið-
lista, en nýju húsin eru þegar
setin.
Snjólaust má heita á Héraði
og vegir allir vel færir, að því
er fréttir hcrmdu um síðustu
helgi. □
verðmæti kr. 300.000,00, m. a.
fjórar Noregsferðir, tvö arm-
bandsúr og mikill fjöldi eigu-
legra leikfanga.
Ágóðinn rennur til að efla
starf hinna einstöku deilda KA
og félagsins í heild.
Vinninga skal vitja á skrif-
stofu KA, Hafnarstræti 83, mið-
vikudaga og föstudaga milli kl.
5 og 7.
JÓLATRÉ FRÁ REGINA
MARIS
Þýska skemmtiferðaskipið Reg-
ina Maris, sem oft kemur til
Akureyrar með fjölda farþega,
hefur sent Akureyri jólatré,
sem búið er að setja upp nálægt
höfninni. Hafnarvörður tjáði
blaðinu, að bærinn hefði fengið
samskonar jólakveðju á síðustu
jólum.
ÓBOÐIN BJÖLLUTEGUND
Heilbrigðisyfirvöld bæjarins
hafa staðið í stímabraki ásamt
húsráðendum við að útrýma
óvelkominni bjöllutegund í húsi
einu á Akureyri. Bjöllutegund
þessi, sem lifir á korni og eykur
ört kyn sitt þar sem skilyrði
eru henni hagstæð, er lífseig og
erfitt að útrýma henni, með
þeim tegundum skordýraeiturs,
sem venjulega eru notaðar.
Vona menn þó, að síðastá til-
raunin og sú öflugasta, hafi
heppnast. Þessarar bjölluteg-
undar hefur víðar orðið vart á
undanförnum árum.
Aðalskipulag
bæjarins
staðfest
Eins ,og áður hefur komið fram,
hefur verið unnið að nýju aðal-
skipulagi Akureyrar á undan-
förnum árum. Þetta skipulag er
miðað við næstu 20 árin, en á
þó að endurskoðast á fimm ára
fresti. Nú er svo komið, að
bæjarráð, að tillögu skipulags-
nefndar leggur til, að áður aug-
lýstar tillögur af aðalskipulagi
Akureyrar verði samþykktar og
sendar félagsmálaráðuneytinu
til staðfestingar.
Þegar skipulagstillögurnar
voru lagðar fram og auglýst
eftir athugasemdum, komu eng
ar meiriháttar athugasemdir
fram, en þó nokkrar, svo sem
frá KEA og Kaupfélagi verka-
manna, sem áskildu sér rétt til
bótakrafna.
Eftir er að vinna að deiliskipu
lagi á nokkrum svæðum, þ. e.
nánari útfærslu í einstökum
atriðum. Ber þar hæst miðbæjar
svæðið. □
GEÐVERNDARFELAG
STOFNAÐ
Framhaldsstofnfundur Geð-
verndarfélags Akureyrar var
haldinn í Hótel Varðborg sunnu
daginn 15. desember. Stofn-
félagar eru 66 einstaklingar á
Akureyri og nágrenni.
Stjórn félagsins skipa: Brjmj-
ólfur Ingvarsson læknir formað
ur, Brynja Heiðdal, Kristinn
Pálsson, Sólveig Kristjánsdóttir
og Stefán^Þorláksson..
Sunnudaginn 15. dcsember afhenti Lionsklúbburinn Hængur á Daguk
Akureyri framkvæmdastjóra Rauða krossins 300 þúsund króna kemur næst út á föstudags-
gjöf til norðlenska neyðarbílsins. Formaður klúbbsins, Aðalsteinn kvöldið og verður það jafnframt
y ' i' , , , , ,, , „ v j- , . síðasta blað ársins. — Jólablað
Juliusson, sest her afhenda Guðmundi Blondal avisunma. , , , . v , ...
kemur ekki að þessi smm.
(Ljósm.: Fr. Vestmann)
Tannlæknavakt
Tannlæknavakt verður á Akur-
eyri um jól og nýár sem hér
segir:
Sunnudag 22. des. kl. 17—18
Tannlæknastofa Steinars Þor-
steinssonar, Skipagötu 1. Þor-
láksmessu 23. des. kl. 11—-12 f.h.
Tannlæknastofa Steinars Þor-
steinssonar, Skipagötu 1. Að-
fangadag 24. des. kl. 11—12 f. h.
Tannlæknastofa Jóhanns G.
Benediktssonar, Ráðhústorgi 3.
Jóladag og annan í jólum 25. og
26. des. kl. 17—18 báða dagana
Tannlæknastofan Glerárgötu 20.
Laugardag 28. des. kl. 17—18
Tannlæknastofa Baldvins Ring-
sted, Hafnarstræti 101. Sunnu-
dag 29. des. kl. 17—18 Tann-
læknastofan, Glerárgötu 20.
Gamlárdagur 31. des. kl. 11—12
f. h. Tannlæknastofan, Glerár-
götu 20. Nýársdagur 1. janúar
kl. 17—18 Tannlæknastofa Kurt
Sonnenfeld, Hafnarstræti 90. —
(Sjá auglýsingu). □