Dagur - 05.02.1975, Side 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-06 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðamiaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Hæftumerki
Síðasta dag janúarmánaðar komu tíu
alþingismenn þjóðarinnar, þéirra á
meðal núverandi og fyrrverandi ráð-
herrar, fram fyrir almenning í sjón-
varpi, svöruðu spurningum frétta-
manna og ræddust við um efnaliags-
málin.
Fulltrúar allra stjórnmálaflokka
lýstu versnandi þjóðarhag, sem fyrst
og fremst stafar af verðfalli íslenskra
vara erlendis, hækkuðu verði á inn-
fluttum vörum og gengdarlausri
einkaneyslu landsmanna. En ekki
voru allir sammála um stærð ])css
vanda, er við hlasir og þaðan af síður
voru menn á eitt sáttir um stefnu
stjórnvalda á síðustu tímuin.
En þegar fréttamenn leituðu svara
við þeirri spurningu, hversu við yrði
brugðist, stóð á svörum. Það er 1>Ó
ljóst hættumerki, að gjaldeyrisvara-
sjóðurinn, sem fyrir ári síðan var
verulegur, er nú upp eyddur og
auknar lántökur þjóðarinnar leysa
ekki efnaliagsvandann, nema um
takmarkaðan tíma. Og viðskiptakjör-
in, sem ]>jóðin er háðari en allar
þjóðir nálægra landa, líta út fyrir að
fara enn versnandi. Þessar efnahags-
staðreyndir eru að vísu skuggalegar
og nýrra efnahagsaðgerða þörf. Enn
er þó næg atvinna í landinu, kaup-
geta almennings mikil, þótt skert
hafi verið og lífskjör góð þegar á
heildina er litið.
Alþýðusamhand Islands með
flest verkalýðsfélög að baki og
öll með lausa samninga, er sest að
samningaborði með atvinnurekend-
um. Samtök verkalýðsfélaganna eru
traust og vald þeirra mikið. Að þessu
sinni er það meðal annars yfirlýst
stefna þeirra, að tndurlieimta fyrri
kaupmátt launa. Forystumenn þeirra
vita þó, að verulegar beinar kaup-
liækkanir eru með öllu óraunhæfar
að óhreyttum viðskiptakjörum, en
hafa talið sig fúsa til að meta aðrar
kjarabætur, er gerðar kunna að
verða, til jafns við kauphækkanir.
Þá liafa báðir aðilar vinnumarkaðar-
ins talið sig fúsa til meiri launajöfn-
unar, með hag hinna lægst launuðu
fyrir augum. Stefna verkalýðsfélag-
anna virðist nú ábyrgari en oft áður
í kaupdeilum, jafnframt því að vera
ákveðin og samræmd. Að sjálfsögðu
eiga atvinnuvegirnir að greiða það
kaup, er þeir þola. Hins vegar á sá
árangur að nást án verkfalla, og mun
gera ]>að í samningum ábyrgra aðila,
þar sem öfgastefnur og öfgamenn
eiga ekki heima. D
Við, sem komnir erum á átt-
ræðisaldur eða meira, hljótum
að finna til þess í vaxandi mæli
eftir því, sem árin líða, að við
erum eins og rofabarð, sem er
að blása upp. Við erum smám
saman að rýrna og eyðast, ekki
aðeins vegna þess, að líkamlegir
og andlegir kraftar fara síþverr-
andi heldur miklu fremur af
þeim orsökum, að samferða-
mönnunum, sem við höfum starf
að og strítt með í blíðu og stríðu
um langa ævi, fer sífellt fækk-
andi. Þeir hverfa einn af öðrum
yfir móðuna miklu og hætta að
veita okkur það skjól og þann
styrk sem maður er jafnan
manni í næðingum lífsins. Rofa-
barðið fer því síminnkandi, svo
bráðum verður ekki eftir annað
en örfcka melurinn. Við hljót-
um að finna því meira og sárara
til þessarar aðvífandi nektar,
sem þeir, er af sjónarsviðinu
hverfa, eru eftirminnilegri og
hafa staðið okkur nær í starfi
og viðfangsefnum hins daglega
lífs. Við nefnum þetta einu
nafni söknuð og þessi saknaðar-
og tómleikatilfinning greip
mig óvenjulega sterkt, þegar
mér barst fregnin um andlát
Jónasar Kristjánssonar, samlags
stjóra, en svo var hann jafnan
nefndur og undir því nafni var
hann kunnur um gervalt land,
en hann lést á sjúkrahúsinu á
Akureyri að kveldi þess 27. jan.
sl., þá nýlega orðinn áttræður
að aldri.
Við Jónas vorum að heita
mátti jafnaldrar og hófum störf
hér á Akureyri um svipað leyti,
Jónas aðeins lítið eitt síðai', fyr-
ir hálfri öld síðan. Undirbúning
ur okkar til starfa var líka
áþekkur, að sumu leyti eins en
hliðstæður í öðrum efnum og
þótt viðfangsefni okkar, fljótt á
litið, væru næsta ólík, þá voru
þau samt svo skyld og eðlislík
í grundvallaratriðum, að þau
hlutu að mætast og tengjast á
ýmsa vegu, þó urðu samskipti
okkar ekki verulega náin fyrr
en ég gerðist samstarfsmaður
hans í nautgriparæktinni, en sú
kollsteypa mín gerðist fyrir til-
stilli Jónasar og þurfti mig
aldrei að iðra þess.
Um það geta naumast verið
skiptar skoðanir, að Jónas
Kristjánsson var brauti'yðjandi
í mjólkurframleiðslumálum Ey-
firðinga og reyndar landsins
alls, því ýmist voru störf Jónas-
ar, að þessum málum hér í Eyja
firði, höfð til fyrirmyndar ann-
ars staðar við skipan þeirra,
eða hann kvaddur þar til ráðu-
neytis. Þegar Jónas kom til
starfa voru þessi mál í mesta
ólestri og mjólkurframleiðslan
hér í Eyjafirði alger aukabú-
grein, en á fáum árum tókst
Jónasi að koma skipan á vinnslu
og dreifingu mjólkurinnar og
leggja þannig grundvöllinn að
aukinni mjólkurframleiðslu, svo
hún varð brátt aðalbúgrein land
búnaðarins í héraðinu.
Jónas lét sér ekki nægja að
hyggja upp og skipuleggja
vinnslu og dreifingu mjólkur-
innar á starfssvæði sínu. Hann
gerði sér frá upphafi glögga
grein fyrir, að líka varð að efla
afkomu búanna og það varð að
gerast með auknum afköstum
búfénaðarins annað hvort með
bættri meðferð eða kynbótum.
Hann beitti sér því frá upphafi
fyrir mjög efldri nautgriparækt
í héraðinu og átti drýgstan þátt
í stofnun Sambands nautgripa-
ræktarfélaga Eyjafjarðar (S.N.
E.), sem hann stjórnaði með
miklum sóma alla tíð meðan
hann var samlagsstjóri. Þessi
félagasamtök tengdi Jónas
mjólkursamlaginu á mjög hagan
legan hátt, svo þeim voru þann-
ig tryggður nokkur fjárhagsleg-
ur grundvöllur. Var þetta naut-
griparæktinni ó m e t a n legur
stuðningur en samlaginu jafn-
framt til sóma, álitsauka og
óbeinnar eflingar. Má í því sam
bandi nefna svínaeldisstöðina á
krafði, og sparaði þá hvorki
tíma né fyrirhöfn. Fór ég ekki
varhluta af hjálpsemi og velvild
Jónasar í samstarfi mínu við
hann og tel hann því einn af
mínum mætustu velgerðarmönn
um. Ég mun líka minnast hans
sem ágæts og skemmtilegs fé-
laga utan við strit og stríð dags-
kvatt hópinn. Við, sem enn
þraukum á rofabarðinu, kveðj-
um hann með einlægum sökn-
uði og þakklæti og vitum, að
minning hans mun lengi lifa,
því:
„Þó að hríði í heila öld
harðsporarnir sjást í snjónum.“
Ólafur Jónsson.
Grísabóli og fleira mætti til
tína. í öllu þessu sýndi Jónas
frábæra skipulagsgáfu, mikla
víðsýni og ódrepandi áhuga. Á
þessu tímabili urðu stórfelldar
breytingar í nautgriparækt og
var Jónas jafnan fyrstur til að
innleiða í S.N.E. nýjungar, er
til framfara máttu verða, með
þeim árangri, að það um langt
skeið hefur verið í fremstu röð
nautgriparæktarsambanda lands
ins. Það er á þessum vettvangi
að samstarf okkar Jónasar verð
ur nánast, og að ég lærði til
fulls.að meta áhuga hans, þraut
segju og hagsýni, en þó fyrst og
fremst lægni hans við að þoka
góðum málum áfram þótt oft
væri þungur róðurinn, en Jónas
átti mörg áhugamál og stóð oft
í stórræðum. Slíku kunni hann
vel, því hann var fyrst og fremst
maður athafnanna, er vildi þoka
málunum áfram, láta eitthvað
gerast. Ekki vann Jónas að
áhugamálum sínum með hávaða,
brauki og bramli, því að í eðli
sínu var hann hæglátur og jafn-
vel hlédrægur, þótt undirniðri
brynni lifandi áhugi og tak-
markalaus athafnaþrá.
í samstarfi var Jónas framúr-
skarandi traustur og velviljaður
og því var gott að vinna með
honum. Ekki svo að skilja, að
hann gæti ekki verið ráðríkur
og nokkuð kröfuharður, ef því
var að skipta, því það hljóta
allir áhuga- og framkvæmda-
menn að vera, en hann var
aldrei einstrengingslegur, kunni
vel að hlíða á mál annara og
setti sig inn í viðhorf þeirra og
skoðanir. Hann gat líka tekið
þátt í, og stutt áhugamál ann-
ara, án þess að sælast þar til
áhrifa.
Þegar ég minnist Jónasar
Kristjánssonar verða tiltölulega
náin persónuleg kynni mér rík-
ust í huga og kærust. Þar stend-
ui' mér fyrir sjónum hæglátur,
virðulegur, velviljaður og hjálp-
fús persónuleiki, reiðubúinn til
stuðnings hvenær sem þörf
ins á löngum gönguferðum um
dali og drög Eyjafjarðar, en þær
voru jöfnum höndum tengdar
náttúruskoðun, og minjum
eyddra byggða, en hvort tveggja
kunni Jónas vel að meta. í þess-
um ferðum bar margt á góma
af léttara tagi, en Jónas kunni
vel að beita léttri, græskulausri
kímni og naut þess að gefa hug-
anum lausan tauminn. Þessar
gönguferðir okkar voru sumar
erfiðar öldruðum mönnum og
ekki beinlínis arðbærar fljótt á
litið, en mér verða þær ógleym-
anlegar og það er þó alltaf
nokkuð.
Ég hefi áður vikið að því að
Jónas hafi átt mörg áhugamál
og vafalaust fleiri en ég kann
að nefna og verða þau því ekki
rakin hér, þó vil ég rétt nefna
Minjasafnið á Akureyri, sem á
Jónasi að verulegu leyti að
þakka tilveru sína og Bænda-
klúbbinn eyfiska, sem hann
studdi jafnan með ráðum og
dáðum.
Um ætt og uppruna Jónasar
Kristjánssonar fjölyrði ég ekki.
Um það efni eru margir mér
miklu fróðari. Þess skal aðeins
getið að Jónas kvæntist 1930
Sigríði Guðmundsdóttur, út-
gerðarmanns Péturssonar, hinni
ágætustu konu. Því miður varð
sambúð þeirra ekki löng, því
hún andaðist 1958 eftir langvar-
andi vanheilsu og varð það
Jónasi mikil raun, er hann þó
bar með stillingu. Börn þeirra
eru Sólveig gift og búsett vest-
ur í Kaliforníu og Hreinn bú-
settur í Reykjavík, en um langt
skeið hefur Jónas notið um-
hyggju og aðhlynningar bróður-
dóttur sinnar, Kristínar Hannes
dóttur frá Víðigei'ði. Votta ég
börnum Jónasar og nánustu
aðstandendum dýpstu samúð
mína.
Þetta er engin ævisaga og
átti ekki að vera það, lieldur
aðeins stutt og fátækleg minn-
ing um ágætan og minnisstæð-
an samferðamann, sem hefur
Jónas Kristjánsson lést í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
að kveldi 27. janúar og var til
moldar borinn í gær, 4. febrúar.
Hann var þá nýkominn úr heim
sókn til Sólveigar dóttur sinnar,
sem búsett er í Bandaríkjunum,
og hann dvaldi hjá á áttræðis-
afmæli sínu.
Jónas Kristjánsson var fædd-
ur í Víðigerði í Eyjafirði 18.
janúar 1895, sonur hjónanna
Kristjáns Hannessonar bónda
þar og Hólmfríðar Kristjáns-
dóttur, og þar ólst hann upp.
Hann varð búfræðingur frá
Hvanneyri 1914, vann landbún-
aðarstörf og byggingarvinnu til
1924, en gerðist síðan mjólkui'-
fræðingur, tók próf frá Land-
brugs- og Meieriskólen Lade-
lund í Danmörku 1927 og kynnti
sér einnig þessa grein í öðrum
nágrannalöndum okkar. Bygg-
ing mjólkursamlags var þá þeg-
ar komin á dagskrá meðal ey-
firskra bænda og Vilhjálmur
Þór, þáverandi kaupfélagsstjóri
KEA, var mikill áhugamaður
málsins, og mun hafa hvatt Ey-
firðinginn til náms.
Þegar Jónas kom heim frá
námi var hafist handa um undir
búning samlagsstofnunar og
jafnframt þurftu að liggja fyrir
upplýsingar um væntanlegt
mjólkurmagn og möguleika til
aukinnar framleiðslu. Mjólkur-
fræðingurinn lá ekki á liði sínu
og ferðaðist ríðandi um héraðið
til að hafa tal af bændum og
gera áætlanir. Árið eftir tók
Mjólkursamlag KEA til starfa,
fyrst mjólkursamlaga með ný-
tískusniði á landi hér og því var
valinn staður í Grófargili. Inn-
vegin mjólk fyrsta heila árið er
það starfaði var 975.000 lítrar,
en er nú yfir 20 milljón lítrar
á ári.
Þróun þessa fyrsta mjólkur-
samlags á íslandi var mikil og
farsæl og mjólkurvörurnar frá
Akureyri þóttu öðrum betri,
undir frábærri stjórn Jónasar
Kristjánssonar, er hann síðan
hafði á hendi þar til hann varð
sjötugur. Hann var til ráða
kvaddur þegar næstu mjólkur-
samlög voru stofnuð víðsvegar
um land og hann var til ráða
kvaddur af ríkisstjórnum í
mjólkur- og framleiðslumálum.
En Jónas Kristjánsson var
ekki aðeins stjórnandi mjólkur-
stöðvar héraðsins, því hann var
einnig hinn óþreytandi ráðu-
nautur og leiðtogi í ræktunar-
málum jarðar og búpenings, og
eru eldheitar hvatningarræður
hans á óteljandi fundum bænda
samtakanna öllum Eyfirðingum
í fersku minni. Hygg ég, að
hann eigi meiri þátt í örum fram
förum í eyfirskum landbúnaði
en flesta grunar. Jafnframt var
hann náttúruunnandi, og gædd-
ur ríku fegurðarskyni. Hann
helgaði bændastéttinni hina
óvenjulegu miklu starfsorku
sína alla ævi og hlaut að laun-
um almenna viðurkenningu og
virðingu.
Jónas Kristjánsson var lífið
og sálin í Sambandi nautgripa-
ræktarfélaga og þeirri byltingu,
sem fyrsta sæðingarstöð naut-
gripa var. Enn djarfari stofnun
5
var Búfjárræktarstöðin á Lundi,
sem einnig má þakka Jónasi
öðrum fremur, og hann var
meðal fárra fremstu áhuga-
manna um þá almennu búnaðar
fræðslu, sem eyfirsku bænda-
klúbbsfundirnir hafa verið á
undanförnum árum.
Á síðustu árum vann hann
þrotlaust að stofnun, vexti og
viðgangi Minjasafnsins á Akur-
eyri og hélt einnig áfram að
vinna fyrir bændastéttina, eftir
því sem tími og heilsa leyfði,
allt til hinstu stundar.
í Framleiðsluráði landbúnað-
arins sat Jónas í mörg ár, í
stjórn Búnaðarsambands Eyja-
fjarðar, Ræktunarfélagi Norður
lands og Minjasafnsins.
Jónas Kristjánsson var skap-
ríkur maður og ákveðinn í skoð
unum, í senn laginn samninga-
maður og harður í horn að taka
þegar fortölur og samningar
báru ekki árangur. í viðskiptum
og málflutningi nutu sín vel fjöl
þættir hæfileikar hans og hrein
skiptin framkoma. Þess minn-
ist ég glöggt á ferðalagi í fjar-
lægum landshluta, að sam-
ferðamaður okkar einn andað-
ist. Þá var Jónas hinn umhyggju
sami, viðkvæmi, huggandi og
trausti maður. í sömu ferð sá
ég hann og heyrði, aðsópsmik-
inn og einarðan, flytja mál sitt
á mannfundi af sínum mikla
sannfæringarkrafti, en þess á
milli taka þátt í gamansömum
samræðum um daginn og veg-
inn og leika þar á als oddi. Og
til þess að bregða upp enn fleiri
einkennum þessa sérstæða og
mikilhæfa manns, frá þessu
ferðalagi, naut hann landslags-
fegurðarinnar manna best og
orðræður hans var sannkall-
aður dýrðaróður um sveitirnar,
landbúnaðinn og svo bænda-
stéttina, en hann vildi hag
hennar og reisn sem mesta.
Og ég minnist einnig heim-
sókna hans á skrifstofur Dags,
þar sem hann var í senn gagn-
rýnandi, ræddi hugðarefni og
hugsjónamál eða sló á léttari
strengi. Þakka ég þær stundir,
ferðalög okkar, en þó fyrst og
fremst hið árangursríka ævi-
starf í þágu bændastéttarinnar.
Megi sú minning verða Eyfirð-
ingum ljós á vegi menningar og
framfara.
E. D.
ÍÓRÐ DagSINS
’SÍMI S
Til sölu lítið notaður
heylileðsluvagn.
Uppl. í síma 3-21-19.
Vélhundin taða til sölu.
Rafn Helgason,
Stokkalilöðum,
sími um Grund.
Til sölu 7 mánaða göm-
ul steríótæki á mjög
hagstæðu verði.
Uppl. veittar í síma
2-13-56 eftir kl. 6 e. h.
Nýleg TRILLA til sölu.
Uppl. í síma 2-39-12.
Brúðaikjóll og hattur til
sölu no. 40—42.
Uppl. í síma 2-26-15.
Atvinna \
Óska eítir vinnu á
kvöldin og um helgar.
Uppl. í síma 2-15-55.
ATVINNA!
1!) ára piltur óskar eftir
vinnu strax.
Margt kemur til greina.
Uppl. í síma 2-25-73.
Get bætt við mig verk-
efnurn í viðgerðum eða
nýsmíði utanbæjar sem
innan.
Sími 2-37 87 eftir kl. 7
á kvöldin.
Hermann Aðalsteinsson,
húsasmiður.
Tapad
Peningar töpuðust í
merktu launaumslagi.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 2-27-43.
Silfurlitað kvenúr tap-
aðist í Sjálfstæðishúsinu
laugardaginn 25. janúar.
Finnandi gefi sig fram
við afgreiðslu blaðsins,
gegn fundarlaunum.
Gulbröndóttur köttur
týndist sl fimmtudag
í Glerárhverfi.
Hafi einhver orðið var
við hann, hringið í síma
2-11-84.
Húsnæói
4 reglusamir mennta-
skólapiltar óska eftir
lítilli íbúð sem fyrst
og/eða næsta vetur.
Góðri umgengni og skil-
vísri greiðslu 'heitið.
Uppl. í herbergi 41,
heimavist, í síma 1-10-55
milli kl. 16—22.
HERBERGI er til leigu
Uppl. í síma 2-23-59
eftir kl. 7.
Ungt barnlaust par ósk-
ar eftir ÍBÚÐ.
Reglusemi heitið.
Uppl. í síma 2-26-58
eftir kl. 7 á kvöldin.
Herbergi óskast til leigu
sem fyrst.
Uppl. í síma 2-20-64
milli kl. 5 og 7.
Lítil íbúð óskast til leigu
sem næst miðbænum.
Uppl. gefur Haraldur
Ásgeirsson, sími 1-10-24.
HAMSTRAR óskast.
Uppl. í síma 2-36-47
eftir kl. 17.
Notuð skíði óskast til
kaups, ennfremur skíða-
skór, ef til væru.
Uppl. í síma 2-21-67.
- ABYRGÐ ...
_(Framhald af blaðsíðu 8)
og rægja forustulið félagsins.
Má furðu gegna, ef einhver
verkalýðsfélög finnast, sem
kosta vilja þá starfsemi til
lengdar.
Segja má, að þessir menn hafi
bitið höfuðið af skömminni, er
þeir lögðu til á síðasta fundi
félagsins, að neitað yrði að veita
samninganefnd ASÍ umboð til
að leita eftir því, að leiðrétting
fáist á kjörum verkafólks og
samningum verði framfylgt. í
þess stað lagði Jón Ásgeirsson
til að Alþýðusambandi Norður-
lands (þ. e. honum) yrði falið
að annast þau mál. Lifi.glund-
roðinn og byltingin!
Þess má einnig geta, að á
fundi einum í félaginu á síðasta
ári lagði Guðmundur Sigurjóns
son til, að þegar í stað og fyrir-
varalaust yrði farið í verkfall.
Síðan, þegar verkfallið væri
byrjað, skyldi tekið til athug-
unar, hvaða kröfur ætti áð gera
á hendur vinnuveitendum. Sem
sagt, verkfall verkfallsins
vegna!
í nútímaþjóðfélagi er nauð-
syn, að starfandi sé öflug og
ábyrg verkalýðshreyfing. Al-
mennt séð má segja, að verka-
lýðshreyfingin á íslandi sé nú
nokkuð öflug og tiltölulega
ábyrg. En að henni sækja, eins
og stundum fyrr, óheillaöfl, sem
leitast við að grafa undan inn-
viðum hennar og máttarstoðum
og gera hana óhæfa til að gegna
hlutverki sínu. Um sinn hefur
Verkalýðsfélagið Eining flest-
um félögum fremur orðið fyrir
ásókn þessarra óhamingju-
manna.
Ég trúi því og treysti, að næst
komandi laugardag og sunnu-
dag sýni allur þorri Einingar-
félaga það í verki, að þeir bera
ekki traust til sundrungarafl-
anna heldur fylkja sér um A-
listann í félaginu, lista stjómar
og trúnaðarmannaráðs með Jón
Helgason í sæti formanns.
Stöndum vörð um félag okk-
ar, eflum það og styrkjum til
góðra verka.
Þorsteinn Jónatansson.
BÍLAR:
Cortina 1974.
Cornet 1974.
Hornet 1974.
Mazda 818 cupe 1973.
Mazda 818 station 1974.
Chevrolet Nova 1969,
1970 og 1973.
Pontiac 1971.
Opel station 1973,
nýinnfluttur.
Opel Cadet cupe 1971.
Blaiser 1974 ekinn
10.000, skipti á ódýrari.
Volkswagen 1302, 1972.
Volkswagen 1300, 1972.
Fíat 128, 1972, 1974.
Fíat 127, 1973.
Fíat 132 GLS, 1974.
Saab 96 1971.
Peugeot station 1974.
Bronco 1966, 1973, 1974
Land Rover 1962, 1971,
dísel.
Harley Davidson snjó-
sleði árg. 1974.
Bílarnir seljast hjá
okkur.
Tökum bíla í sýningar-
sal í Tryggvalrraut 12.
BÍLASALINN
SÍMI 1-11-19.
FéSagsmálasföfnun
Akureyrar og Kvennadeild
Slysavamarfél. Akureyrar
gangast fyrir skennntun fyrir aldraða sunnudag-
inn 9. febrúar kl. 15,00—17,00 í Sjálfstæðishúsinu
VEITINGAR.
SKEMMTIAFRIÐI.
DANS.
Þeir sem óska eftir akstri á skemmtunina,
tilkynni ]>að til félagsmálastofnunar fyrir hádegi
á íöstudag. - SÍMINN ER 2-10-00.
TIL SÖLU:
2ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi.
Tvær 5 herbergja íbúðir í tvíbýlishúsi á Nyrðri
Brekkunni.
Tvær 4ra herbergja íbúðir í timburhúsum við
Hafnarstræti.
6 herbergja íbúð við miðbæinn.
3ja herbergja íbúð, nýuppgerð, við Hafnarstræti.
ÁSMUNDUR S. JÓHANNSSON hdl.,
Glerárgötu 20, Akureyri, sími 2-17-21.
Sölustjóri:
KRISTBJÖRG RÚNA ÓLAFSDÓTTIR,
heimasími 2-22-95.
HARLEY DAVIDSON
vélsleðar fyrirliggjandi.
BÍLAÞJÓNUSTAN - Tryggvabraut 14
SÍMI 2-35-15.
NV ÞJÓNUSTA!
OPIÐ TIL 23,00 ALLA DAGA
DEKKAVIÐGERÐIR.
NÝ DEKK. 1 ' ; I :
SÓLUÐ DEKK.
Neglurn alla hjólbarða, einnig vörubíladekk.
Ávallt vörubíladekk fyrirliggjaridi.
BRIDGESTONE-UMBOÐIÐ, AKUREYRI:
BÍLAÞJÓNUSTAN - Tryggvabraut 14
SÍMI 2-35-15.
Hey fil Noregs
Með tilvisun til auglýsingar í DEGI 8. jan. sl.,
um útivegun á heyi til Noregs, viljum vér hér
með biðja þá bændur, sem eiga aflögu hey er
þeir vildu selja, að hafa tal af fulltrúa kaupfélags-
stjóra hið allra fyrsta og eigi síðar en 20. þ. m.
Eins og tekið var fram i' fyrri auglýsingu, kem-
ur ekki annað hey til greina en vel verkað og vél-
bundið.
Greitt verður fyrir lieyið koniið á útskipunarstað
kr. 12,00 pr. kg.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA