Dagur - 05.02.1975, Side 8
Akureyri, miðvikudaginn 5. febrúar 1975
Dömu og
herra
6teinhringar.
Mikið úrval.
ÁBYRGÐ -ÁBYRGÐARLEYSI SMÁTT & STÓRT
Eitt ár er liðið frá sögulegum
stjórnai'kosningum í Verkalýðs-
félaginu Einingu, stærsta og
áhrifámesta verkalýðsfélagi
utan Reykjavíkur. Þær kosning
ar vöktu athygli um land allt,
en úrslitin urðu þau, að skipt
var um forystu fyrir félaginu:
Fyrrverandi formaður, Jón Ás-
geirsson, féll, en ný stjórn tók
við undir forustu Jóns Helga-
sonar. En Jón Ásgeirsson hefur
illa unað falli sínu. Nú hyggst
hann vinna á ný fyrri titil, völd
og áhrif.
Eins og áður eru þeir nafnar,
Jón Helgason og Jón Ásgeirs-
son í formannssætum á fram-
boðslistum í félaginu. En hvað
er það, sem einkum ber á milli,
um hvað er deilt, og hverju
skiptir það, hvor listinn fer með
sigur af hólmi?
Þar er öðru fremur um að
ræða grundvallarsjónarmið inn-
an verkalýðshreyfingarinnar, og
þá fyrst og fremst það, hvort
verkalýðshreyfingin á að vera
ábyrgt afl í þjóðfélaginu eða
hvort hún á að reka tillitslausa
kröfupólitík, sem miði að því
einu að skapa glundroða, leggja
atvinnuvegina í rúst og koma á
öngþveiti byltingarsinnuðum
öfgaöflum til framdráttar.
Þótt margt hafi hrjáð íslenska
þjóð, hefur hún notið þess lengi,
að hér hefur aðeins eitt alls-
herjar-verkalýðssamband verið
starfandi, Alþýðusamband ís-
lands, og forustumenn þess og
helstu áhrifamenn verkalýðs-
samtakanna hafa verið ábyrgir
menn í afstöðu sinni, leitast við
að vinna vel að hagsmunamál-
um umbjóðenda sinna með því
að fá laun þeirra hækkuð og
kjörin bætt að öðru leyti. En
jafnframt hafa þeir gert sér
ljóst, að grundvöllur allra kjara
bóta er blómlegt atvinnulíf og
að um engar kjarabætur verður
að ræða, ef atvinnuvegirnir eru
lagðir í rúst.
Fyrir þetta hafa þeir óspart
fengið að heyra það, að þeir
væru lélegir fulltrúar verka-
fólks og gengju erinda atvinnu-
rekenda í hverju máli, væru
senditíkur þeirra og launaðir
agentar. Ollum helstu verkalýðs
leiðtogum landsins hefur verið
borið þetta á brýn, eins og t. d.
Birni Jónssyni, Eðvarð Sigurðs-
syni, Snorra Jónssyni og Her-
manni Guðmundssyni, svo að
nokkrir séu nefndir.
Og þeir, sem fremstir hafa
staðið í baráttu gegn þessum
mönnum vegna heiðarleika
þeirra í störfum og þeirrar
ábyrgðartilfinningar sem þeir
hafa sýnt, eru Jón Ásgeirsson
og' félagar hans í Einingarsam-
tökum kommúnista (marx-
leninista), KSML. Að þeirra
dómi ber verkalýðssamtökunum
ekki að sýna neina ábyrgð í
störfum sínum, heldur ber að
stefna að glundroða og byltingu.
í þeirri byltingu á að skera alla
atvinnurekendur við trog en
fela Jóni Ásgeirssyni, Guð-
mundi Sigurjónssyni og Co.
stjórn allra mála. Þeir eiga ekki
aðeins að annast um málefni
verkalýðssamtakanna og ráð-
stafa fé lífeyrissjóðanna, heldur
einnig að hafa með allan rekstur
atvinnufyrirtækjanna að gera.
Halda menn ekki að það verði
glæsilegt um að litast eftir að
Jón Ásgeirsson hefur tekið við
stjórn Útgerðarfélags Akureyr-
inga, Guðmundur Sigurjónsson
orðinn forstjóri Slippstöðvarinn
ar og Rögnvaldur Jónsson kaup
félagsstjóri. En skyldi verka-
fólkið bera meira úr býtum þá
en það gerir nú eða líklegt er að
unnt verði að tryggja því í ná-
inni framtið undir forustu þeirra
manna, sem nú halda um stjórn
völ ASÍ, og með Jón Helgason
við stjórnvölinn hjá Einingu. Ég
þori að fullyrða, að svo yrði
ekki, heldur kæmist þjóðin
undir forystu slíkra manna fljót
lega niður á það hungurstig,
sem hér ríkti fyrir hundrað ár-
um, þegar stór hluti landsmanna
sá þann kost vænstan að flýja
land og reyna að bjarga lífi sínu
í annarri heimsálfu.
Sem betur fer, eru ekki mikl-
ar líkur til að svona fari. Þó er
þess nauðsyn, að fólk geri sér
grein fyrir stefnu manna á borð
við Jón Ásgeirsson, geri sér
grein fyrir markmiði þeirra og
hvað af myndi hljótast, ef ekki
er í tæka tíð spornað við fram-
gangi „hugsjóna" þeirra.
En þetta er í stuttu máli það,
sem um er deilt í Einingu:
Hvort starfa á að velferðar- og
hagsmunamálum alþýðu á
ábyrgan rátt og með það fyrir
augum að atvinna haldist og
laun miðist við það, hvað þjóð-
arbúið hefur til skiptanna
hverju sinni, kökunni verði
skipt sem réttlátast en hún ekki
mulin niður þannig að ekkert
verði til skipta. Eða hvort leyfa
á niðurrifsöflum að mylja kök-
una og gera að engu til þess að
þau fái að sjá hylla undir sitt
margþráða byltingarástand.
Ég treysti því, að félagar í
Einingu, jdirgnæfandi meiri-
hluti þeirra, velji fyrri kostinn,
standi við hlið þeirra, sem vilja
vera ábyrgir í störfum. En það
er ekki nóg að hugsa á þann
veg. Það verður líka að sýna
viljann í verki við komandi
stjórnarkjör. Verði lítill munur
á atkvæðatölum, fá spillingar-
öflin blóð á tönnina og magnast
í eyðileggjandi aðgerðum sín-
um. Þessi öfl þurfa að sjá það
svart á hvítu, að Einingarfélag-
ar eru ekki ginnkeyptir fyrir
boðskap þeirra. Þess vegna má
helst enginn Einingarfélagi láta
atkvæðisréttinn ónotaðan um
næstu helgi.
Með nokkrum rétti má halda
því fram, að starf Einingar á
síðasta ári hafi ekki verið nógu
fjölbreytt eða rismikið. Orsök
þessa er sú, að innan félagsins
hefur draugur riðið húsum og
m. a. eyðilagt að mestu almenna
fundastarfsemi félagsins. Þetta
þarf ekki að skýra nánar fyrir
þeim, sem einhverntíma hafa
komið á félagsfund á árinu.
í samræmi við glundroða-
kenningu sína hafa Jón Ásgeirs
son og félagar lagt sig fram um
að eyðileggja alla fundi með
langlokuupplestrum úr blöðum,
hávaðalátum og hverskonar
ófélagslegum aðferðum. Þá er
sérstök skrifstofa starfrækt í
nafni Alþýðusambands Norður-
lands en í þeim tilgangi einum
að spilla fyrir störfum Einingar
(Framhald á blaðsíðu 5)
AKSTURSK APPNL Á
ISLANDI
Hér í blaðinu hefur oft verið á
það bent, hve vel íslenskir vegir
væru vel til þess fallnir að þol-
prófa á þeim bíla. Á þetta hefur
ekki verið fallist, enda okkar
vegir ekki með holum og hnút-
um af „hinni réttu gerð.“ Hins
vegar lítur svo út nú, að liækki
hagur Strympu, og að vegimir
hér á landi veki athygli á vett-
vangi heimsins. Komið hefur til
tals, að alþjóða aksturskeppni
verði haldin á íslandi innan
tíðar, eða svokölluð Rally-
keppni, sem fer fram á misjöfn-
um vegum.
I. Á- . . króna liverjum þeim, sem getur
gefið lögreglunni í Keflavík upp,
lýsingar sem verða til þess að
hvarf Geirfinns Einarssonar upp
lýsist. Þeim, sem upplýsingar
geta gefið um livarfið, skal því
bent á að snúa sér til lögregl-
unnar í Keflavík, sem mun fara
með allar upplýsingar sem al-
gjört trúnaðarmál. Sparisjóður-
inn í Kefiavík mun síðan greiða
áðurnefnda pcningaupphæð út
að fengnu samþykki lögregl-
TOGVEIÐIRANN VIÐ NOREG
Togveiðihann á þrem veiðisvæð
um undan Norður-Noregi gekk
í gildi 1. febrúar. Bretar, Frakk
BÍLAÍÞRÓTTIR / - • ' ,og Vestur-Þjóðverjar hafa
Félag íslenskra bifreiðaeigenda fáífist á að ábyrgjast að skip
hefur aksturskeppni í undi'r- þeirra framfylgi reglum, sem
húningi og fjalla vinnuhópar ganga í gildi og veiði ekki á
þess um ýmiskonar tæknilegan þessum svæðum. Norsk og
úndirhúning, fræðslu og öryggi, ~
og á að hyrja keppnina í smáum
stíl með íslenskum keppendum
að mestu eða öllu leyti. Ástæða
er til að ætla áhuga íslendinga
mikinn á þeim íþróttum, sem
kenndar eru við híla.
HREINSITÆKI FYRIR
TVO MILLJARÐA
Nú mun loks ákveðið að kaupa
loftlireinsitæki í álverksmiðjuna
syðra og kosta þau um tvo
milljarða króna, að sögn heil-
bj-igðisfulltrúa Hafnarfjarðar-
kaupstaðar.
HÁLF MILLJÓN BOÐIN
Ónefndur aðili hefur boðist til
þess að greiða liálfa milljón
FRÉTTATILKYNNING
Fréttatilkynning frá fram-
kvæmdaráði B-listans, lista
verkafólks í væntanlegum
stjórnarkosningum Verkalýðs-
félagsins Einingar 1975.
Framkvæmdaráð B-lista, lista
verkafólks, vill vekja athygli á
eftirfarandi:
a) að þessar kosningar eru
bundnar málefnalegum ágrein-
ingi innan félagsins, er varðar
hvern einasta félagsmann þess
og hagsmuni okkar allra í kaup-
og kjaramálum, sem og hinum
félagslegu málum.
b) að þessar kosningar snúast
um, þ. e. hvort við viljum fá
stjórn, er hefur vald á þeim
verkefnum, sem 1700 manna
félag, með verkafólk innan
sinna vébanda í mörgum starfs-
greinum, þarf að hafa, svo far-
sællega farnist, eða hvort við-
viljum stjórn, sem ekki veldur
verkefnum félagsins og gengur
í berhögg við þann grundvöll
er félagið er byggt á.
c) að í þessum kosningum er
tekist á um þann rétt, er við
teljum verkafólk eiga, hvað líf-
eyrissjóðina snertir og því beit-
um við okkur fyrir yfirráðum
verkafólks á lífeyrissjóðunum
og þar með möguleikum til
breytinga á reglugerð sjóðanna
til hagsbóta fyrir verkafólkið
sjálft. Eða hvort við viljum
afsala okkur öllum rétti til líf-
eyrissjóðanna og þar með öllum
möguleikum til breytinga á
reglugerðum sjóðanna til hags-
bóta fyrir verkafólkið.
d) að þessar kosningar snú-
ast um rétt okkar til samnings-
gerðar heima í héraði með fólk-
ið sjálft að bakhjarli, eða hvort
við afsölum okkur öllum samn-
ingsmöguleikum og afhendum
ASÍ og Vinnuveitandasamband
inu öll forráð í þeim efnum, svo
og ákvörðunarvald til verkfalla.
e) að þessar kosningar snúast
um lífdaga Alþýðusambands
Norðurlands, sem er samnefnari
verkalýðsfélaganna hér á Norð-~
urlandi og sá aflgjafi er einstök
verkalýðsfélög hafa sameinast
um, til þess að hafa úrslitaáhrif
í deilum okkar við Vinnuveit-
andasambandið, eða hvort við
viljum leggja Alþýðusamband
Norðurlands niður og standa
frammi fyrir þeirri staðreynd,
að þau félög, sem nú standa að
sambandinu, yrðu reköld ein.
f) að þessar kosningar snúast
um þá staðreynd, að núverandi
stjórn félagsins gætir hagsmuna
Vinnuveitandasambands íslands
í ríkum mæli, en ekki að sama
skapi hagsmuna verkafólksins
sjálfs í hinni hörðu lífsbaráttu.
Framkvæmdaráð B-listans,
" lista verkafólks, vill hvetja
hvern einasta félaga félags okk-
ar til að velja og hafna á rök-
rænan hátt, en ekki meta mál-
efni af sögusögnum einum.
Sýnum það í verki og kjósum
B-listann, lista verkafólks.
(F réttatilkynning)
hresk eftirlitsskip eru komin á
svæðin og fylgjast með og síðar
bætast við skip Frakka og Þjóð-
verja. Verði bannið brotið er
kveðið svo á um í samkomulagi
þjóðanna fjögurra að viðkom-
andi mál verði tekin fyrir í
heimalandi þess, sem brotlegur
gerist. Bann þetta nær einnig til
norskra. fiskiskipa á nánar til-
greindum tímabilum. Norðmenn
hafa undirritað svipað samkomu
lag við Sovétríkin og Austur-
Evrópulönd.
KEYPTU ÍSLENDINGAR
ÍBÚÐIR Á SPÁNI?
Tíminn hefur sagt frá því, að
fjöldi íslendinga, sem keypt
hafi íbúðir á Spáni, tapi nú fé
sínu, þar sem íbúðabygginga-
fyrirtækið Sofíco sé gjaldþrota,
en íslendingar muni einkum
liafa keypt af því íbúðimar á
baðstrandarbæjum á Costa del
Sol. En íbúðakaup hérlendra
manna eru óheimil þar og
annars staðar á erlendri grund.
Segir blaðið, að samkvæmt
áreiðanlegum lieinúldum sé
talið fullvíst, að þessu ólöglegu
kaup hafi verið gerð.
' I
HÓLASTÓLL
Öldungar tveir, þeir Snorri Sig-
fússon og Gísli Magnússon í
Eyhildarholti, báðir áhuga-
menn um endurreisn Hólastóls,
hafa gefið peningaupphæð, sem
nú er komin í Landsbankaúti-
búið á Akureyri, til þessa endur
reisnastarfs. Sparisjóðsbókin er
lijá ritstjóra Dags, sem tekur á
móti framlögum, en einnig má
afhcnda gjafirnar í Landsbanka
útibúinu.
Óskað hefur verið bygginga-
leyfis fyrir næsta áfanga við
Vistheimilið Sólborg á Akur-
eyri. Teikningar að viðbótar-
byggingum eru eftir arkitekt-
ana Helga Hjálmarsson og Vil-
hjálm Hjálmarsson.
Lagður hefur verið fram upp
dráttur af stað fyrir asfaltgeyma
Malbikunarstöðvarinnar, austan
við lóð Slippstöðvarinnar en
norðan við viðlegukantinn.
Hefur hafnarstjórn samþykkt
þennan stað fyrir sitt leyti.
Fjarlægð frá viðlegukanti er að
væntanlegum geymum um 40
metrar og 8 metrar að austur-
mörkum lóðar Slippstöðvar. Inn
flutningur asfalts til að~:krta' á
geyma, mun hagkvæmari en
tunnuinnflutningurinn.
Bygginganefnd hefur sam-
þykkt nöfn á nýjum götum í
Glerárhverfi, nýju byggða--.
hverfi, allt frá Glerá og norður
tunguna vestan þjóðvegarins.
Götunöfnin eru þessi: Bakka-
hlíð, Brattahlíð, Fosshlíð, Sunnu
hlíð, Mánahlíð, Bjarmahlíð,
Skarðshlíð, Smárahlíð, Selja-
hlíð, Bugðuhlíð, Drangshlíð,
Hvammshlíð og Höfðahlíð.
Bæjarráð hefur samþykkt að
heimila bæjarverkfræðingi að
gera pöntun á uppmokstursvél
og lítilli jarðýtu af Caterpiller-
gerð. Áætlað verð vélanna e
17 millj. kr.
Bæjarráð heimilar bæja
stjóra að gera tilboð í hús c
lönd Rannsóknarstofnunar lar
búnaðarins (gömlu Gróðra
stöðina). [
SKAKÞING
NORÐLENDINGA
Skákþing Norðlendinga hefst á
Akureyri á föstudaginn, 7.
febrúar. Það verður sett kluklc-
an 8 síðdegis á Hótel Varðborg.