Dagur - 18.06.1975, Page 2
2
rsping H.S.
w*w*w*rs»w*ty*w*w*v +^+r>^'
Dagana 3.—4. maí 1975 var 62.
ársþing Héraðssambands Suð-
ur-Þingeyinga haldið í Barna-
skóla Reykdæla að Laugum í
boði umf. Eflignar.
Hinn 31. október 1974 átti
HSÞ 60 ára afmæli. Sambandið
hélt upp á afmælið á Húsavík
2. nóvember með íþróttasýning-
um og glímukeppni í íþrótta-
húsinu og hófi í félagsheimil-
inu. Var þar margt góðra gesta.
Margar snjallar ræður fluttar
og fagrar gjafir gefnar. Við
þetta tækifæri voru nokkrir af
stofnendum sambandsins gerðir
að heiðursfélögum HSÞ, voru
sumir þeirra þarna viðstaddir
en því miður ekki allir. Þessir
menn voru: Jóhannes Laxdal,
Tungu, Svalbarðsströnd, Jón
Haukur Jónsson, Húsavík, Mar-
teinn Sigurðsson, Ystafelli, Mar
teinti Sigurðsson, Hálsi. Einnig
voru tveir aðrir gerðir að heið-
ursfélögum fyrir unnin störf í
þágu sambandsins, þeir: Gunn-
laugur Tryggvi Gunnarsson,
Kasthvammi og Þórður Jóns-
son, Laufahlíð. Báðir þessir
menn hafa unnið mjög mikið
fyrir HSÞ. HSÞ tók þátt í ellefu
alda afmælishátíð sem haldin
var að Laugum 16. og 17. júní.
Védís Bjarnadóttir æfði og
stjórnaði sýningu á þjóðdönsum
við það tækifæri. Að venju tók
HSÞ þátt í bindindismóti ásamt
félagasamtökum á Akureyri og
við Eyjafjörð, mótið var haldið
að Hrafnagili.
Fjárhagur sambandsins hefur
farið batnandi. Styrkir þeir sem
sambandið hefur notið á undan-
förnum árum frá sýslu, kaup-
félagi, bæjar- og sveitarfélög-
um, hækkuðu stórlega á árinu
til mjög mikilla hagsbóta fyrir
HSÞ. Fjár var einnig aflað með
ýmsu öðru móti, með sölu
margskonar minjagripa, svo
sem: glösum, lyklahringjum,
kortum o. fl. Seldar voru fána-
Stengur, einnig tók HSÞ þátt í
sölu happdrættismiða UMFÍ.
Iþróttafólk HSÞ tók þátt í
mörgum íþróttamótum, bæði
irman héraðs og utan ig verður
nú getið um þau helstu. Norður
landsmeistaramót í frjálsum
íþróttum var haldið að Laug-
um 24. og 25. ágúst, en því móti
var ekki hægt að ljúka eða
keppa í öllum greinum, vegna
norðan veðurs með slj’ddu og
kulda. HSÞ vann það mót með
167,1 stigi. Unglingakeppni FRÍ
var haldin að Laugum 31. ágúst
og 1. september, héraðsmót í
frjálsum íþróttum var haldið
með þátttöku gesta frá Ham-
borg í Þýskalandi sem kepptu
hér sem gestir, mótið vann umf.
Bjarmi með 102 stigum, héraðs-
(Framhald af blaðsíðu 4)
kerfinu í heild, þýðir það ekki
að það sá ánægt. Vinnuálagið
hefur stóraukist. Vilji menn
afla sér einhverra verulegra
aukatekna fara þeir dauðþreytt-
ir heim, að ekki sé talað um
roskið fólk sem t. d. þarf að
vinna með ungu fólki í keðju ó
þessum mikla hraða vikuna á
enda.
í greininni segir að uppb.vgg-
ing kerfisins eigi m. a. að
hindra streitu (stress) á vinnu-
stað. Þetta er rangt. Spenna og
jaínvel togstreita vex innan
vinnuhópsins og frjálsleg sam-
skipti og spjall við og við, sem
óöur var, nærri hverfur. Allt
eru þetta neikvæðir hlutir út
frá sjónarmiði fólksins. Hverjir
haía þá ástæður til að hrópa
húrra fyrir bónusnum? Hvernig
lítur dæinið út frá hlið fyrir-
tækisins? Hjörtur nefnir það
bara í framhjáhlaupi.
Dagvaktinni á skinnaverk-
mót fyrir unglinga í frjálsum
íþróttum var haldið, það mót
vann íþróttafél. Eilífur með 326
stigum, bikarkeppni unglinga í
frjálsum ílþróttum var einnig
haldið og það mót vann Eilífur
einnig með 49 stigum, við tók-
um þátt í Bikarkeppni FRÍ I.
deild og fleiri mótum. — Haldið
var héraðsmót í knattspyrnu í
tveimui' flokkum, í eldri flokki
vann íþróttafél. Magni en í
yngri flokki vann íþróttafél.
Eilífur. íþróttafél. Völsungur og
íþróttafél. Magni tóku einnig
þátt í íslandsmótum í knatt-
spyrnu. — Glímumenn HSÞ
tóku þátt í öllum helstu glímu-
mótum, m. a. íslandsglímunni,
Sveitarglímu GLÍ, Norðurlands
glímunni og fleiri. — Haldið
var héraðsmót í skíðagöng'u í
Mývatnssveit, haldin voru skíða
mót á Húsavík, þar á meðal eitt
punktamót, auk þess sem skíða-
menn frá Húsavík tóku þátt í
mörgum skíðamótum utan hér-
aðs. — Handknattleikur er mik-
ið stundaður á Húsavík og tóku
þeir þátt í mörgum mótum. —
Lið frá HSÞ tók þátt í íslands-
mótinu f blaki. — Badminton
er stundað hér á nokkrum stöð-
um og fer áhugi á því vaxandi.
Arngrímur Geirsson gjald-
keri HSÞ lagði fram reikninga
sambandsins. Niðurstöðutölur
rekstrarreiknings voru kr.
Ferðir, blað Ferðafélags Akur-
eyrar, er komið út, maíhefti 34.
árgangur. Ritið geymir að þessu
sinni grein Sverris Pálssonar,
Úr innstu byggð í Bávðardal,
og Kynningu á Austur-Skaga-
firði eftir Þormóð Sveinsson.
Ennfremur eru þar í bundnu
máli „Fertugir ferðadraumórar“
auk ýmis konar frétta af starf-
semi félagsins og ferðaáætlun
fyrir sumarið.
Þær ferðir, sem framundan
eru, eru þessar:
3. ferð: 21.—22. júní Grímscy.
4. ferð: 27.—29. júní. Herðu-
breiðarlindir — Askja.
5. ferð: 5.—6. júlí. Laugafell.
smiðjunni eru greidd ca. 100.000
krónur á viku í bónusálag. Til
glöggvunar má segja að þetta
tilsvari verðmæti 50 útseldra
gæra ef þær eru seldar á 2.000
krónur. Hins vegar lætur nærri
að gærunum sem í gegnum
verksmiðjuna fara fjölgi um
1000 á viku. Fremst í vinnu-
keðjunni, við þvott og klipp-
ingu er unnið alla daga vikunn-
ar, en bara 4 í fyrra, auk þess
sem dagsskammtarnir eru
stærri. Annar aukakostnaður
fyrir verksmiðjuna en bónus-
álagið til fólksins er lítill, fyrst
og framst fleiri hrágærur, en
verð á þeim er innan við 600
krónur hver.
Þessar tölur eru mjög óná-
kvæmar, en alla vega er hagn-
aðurinn mörg hundruð prósent
miðað vio útgjöld.
Verksmiðjuverkafólkið óskar
sjálfsagt SÍS til hamingju, en
frábiður sér hlutdeild í bónus-
fögnuði þess. Þ. II.
1.463.975. Helstu tekjuliðir voru
þessir: Skattar og styrkir kr.
701.466, íþróttamót og samkom-
ur kr. 298.256, og aðrar tekjur
kr. 448.449. Helstu gjaldaliðir
voru þessir; Kennslustyrkir kr.
356.666, ferðakostnaður íþrótta-
fólks kr. 152.360, íþróttamót og
samkomur kr. 172.904, stjórnar-
kostnaður kr. 392.305, og önnur
gjöld kr. 329.490. Rekstrarhalli
varð 12. 883. Eignir sambands-
ins viru kr. 456.386.
í kaffihléi seinni daginn voru
mættir góðir gestir. Það voru
fulltrúar frá Kiwanisklúbbnum
Herðubreið í Mývatnssveit og
Lionsklúbbnum Sigurði Lúter í
Ljósavatnsskarði og afhenti
Arnþór Björnsson fyrir þeirra
hönd kr. 200.000 gjöf til HSÞ.
Verður nú getið nokkurra til-
lagna sem samþykktar voru á
þinginu:
62. ársþing HSÞ felur stjórn
sambandsins og glímuráði að
vinna að því, að eitt af lands-
glímumótum GLÍ verði haldið
í Suður-Þingeyjarsýslu á næsta
ári.
Þingið hvetur glímuráð og
stjórn sambandsins til að vinna
að því að tilsögn í íslenskri
glímu verði tekin upp sem liður
í íþróttakennslu við barna- og
unglingaskóla á sambandssvæð-
E. t. v. gengið á Laugafells-
hnjúk.
6. ferð: 12.—20. júlí. Vestfirð-
ir. Ekið um Laxárdalsheiði í
Bjarkarlund, og um Barða-
strönd og Rauðasand allt til
Bjargtanga. Þaðan norður firði
til ísafjarðar. Farið með bát í
Jökulfirði. Síðan Djúpveg,
Þorskafjarðarheiði og Trölla-
tungu heiði í Bjarnarfjörð á
Ströndum. Þaðan heim. Verði
tími naumur við Djúp mun
Bjarnarfirði sleppt.
7. ferð: 26.—29. júlí. Vest-
mannaeyjar — Reykjancs.
Sennilega flogið með áætlunar-
flugvél til Reykjavíkur, og það-
an til Vestmannaeyja. Síðan
með Herjólfi til Þorlákshafnar,
eða flogið til lands. Ekið um
Reykjanesskaga. Með áætlunar-
flugvél aftur heim frá Reykja-
vík.
8. ferð: 2.—4. ágúst, verslunar
mannahelgi. Breiðafjarðareyj-
ar. Ekið að Reykhólum. Skoð-
unarferð um Breiðafjarðareyj-
ar. Heim um Skarðsströnd og
Fellsströnd, ef tími leyfir.
9. ferð: 7.—10. ágúst. Kverk-
fjöll. Kvekfjallasvæðið skoðað
eftir því sem tími og veður
leyfir. Væntanlega farið bæði
um Austur- og Vesturfjöllin.
10. ferð: 16.—17. ágúst. Svart-
árkot — Mývatnssveit. Ekið
austan Svartárvatns um Sel-
lönd í Mývatnssveit. E. t. v.
gengið á Hverfjall og Vindbelgs
fjall.
11. ferð: 23.-24. ágúst. Nýja-
bæjarfjall — Austurdalur. Til
greina kemur að ganga úr Vill-
ingadal um Nýjabæjarfjall í
Austurdal. Aðrir gætu svo ekið
í Austurdal, þar sem göngu-
fólkið yrði tekið.
12. ferð: 30.—31. ágúst. Hcil-
agsdalur — Seljalijallagil.
ínu.
62. ársþing HSÞ skorar á all-
blað Fer*
ar sveitarstjórnir á sambands-
svæðinu að koma upp aðstöðu
til skíðakennslu við alla skóla
héraðsins og fella skíðakennslu
inn í almenna íþróttakennslu í
eins ríkum mæli og frekast er
unnt.
Fundurinn samþykkir að
beina því til sambandsfélaga
sinna að taka upp áróður fyrir
bindindissemi og bindindis-
fræðslu hvert heima hjá sér
með umræðum og fyrirlestrum
á smærri samkomum sínum og
sé einkum bent á hve háskaleg
sú venja er að bjóða alltaf
tóbak og vín hverjum sem við
vill taka.
Þingið samþykkir að stjórn
HSÞ beiti sér fyrir bindindis-
samkomu á sambandssvæði
sínu t. d. á Laugum um versl-
unarmannahelgi og skipi til
þess framkvæmdanefnd.
Allsherjarnefnd leggur til að
aðalfundur HSÞ hveti félaga til
aukinnar landgræðslu. Fyrst og
fremst með því að stöðva upp-
blástur og gróðureyðingu. Einn
ig vill nefndin skora á stjórnina
að gangast fyrir melskurðar-
ferð. Ennfremur að reyna að
vekja áhuga fólk á skógrækt og
stuðla þar með að fegrun um-
hverfisins.
Úr stjórn HSÞ áttu að ganga
Jónas Sigurðsson, Sigurður
Jónsson og Vilhjálmur Pálsson.
Tveir þeir síðastnefndu gáfu
ekki kost á sér til endurkjörs
og var þeim þakkað mikið og
gott starf fyrir HSÞ.
Stjórn Héraðssambands Suð-
ur-Þingeyinga skipa nú: Oskar
Ágústsson, Laugum, formaður,
Arngrímur Geirsson, Skútustöð
um, Jón Illugason, Reykjahlíð,
Völundur Hermóðsson, Álfta-
nesi, Jónas Sigurðsson, Lundar
brekku, Halldór Valdimarsson,
Laugum og Hafliði Jósteinsson,
Húsavík.
Framkvæmdastjóri HSÞ er'
Arnaldur Bjarnason, Fosshóli.
(Fréttatilkynning frá HSÞ)
Islendingar eru dulræn þjóð
Merkar niðurstöður liggja fyrir
um dulræna reynslu íslendinga,
eftir könnun Sálfræðideildar
Háskóla íslands, sem birt hefur
verið. En könnun þessari veitti
dr. Erlendur .Haraldsson for-
stöðu. Níu hundruð manns á
aldrinum þrjátíu—sjötíu ára,
dregnir út eftir þjóðskrá, svör-
uðu spurningalista könnunar-
innar og komu þá í ljós þær
13. ferð: 13. september. Blciks
mýrardalur.
14. ferð: 14. september. Þor-
valdsdalur.
í helgarferðir skal taka far-
seðla á fimmtudagskvöld, en í
lengri ferðir með 14 daga fyrir-
vara, nema annað sé auglýst.
Skrifstofa félagsins að Skipa-
götu 12 verður opin í sumar á
mánudögum og fimmtudögum
kl. 6—7 e. h. Sími 2-27-20. Um-
sjón með skrifstofunni hefir
Björg Kristjánsdóttir, og veitir
hún upplýsingar um ferðir.
Stuttar gönguferðir og aðrar
aukafeiðir verða væntanlega
auglýstar með nokkurra daga
fyrirvara.
Ferðanefnd áskilur sér rétt
til breytinga á áætlun. □
niðurstöður, sem hér fara á
eftir:
31 af hundraði telur sig hafa
orðið varir við látinn mann,
36 telja sig berdreymna, 27 telja
sig hafa fengið hugboð, 55 af
hundraði telja mögulegt, lík-
legt eða öruggt að reimleikar
séu staðreynd.
Þá er það ekki síður athyglis-
vert, að 92% þeirra, sem spurn-
ingum svöruðu lesa Biblíuna
sjaldan eða ekki, en 97% telja
sig nokkuð eða lítilsháttar trú-
aða. 52% höfðu leitað til spá-
'kvenna og 41% til huglækna og
hjá þeim síðarnefndu telja 91%
sig hafa haft gagn. 36% höfðu
sótt skyggnilýsingarfundi og
32% miðilsfundi. 83% töldu sig
hafa haft gagn af því að sækja
miðilsfundi og 56% töldu sig
hafa náð sambandi við fram-
liðna og 21% hugsanlega. Þá
taldi 91% mögulegt, líklegt eða
víst, að hægt væri að sjá fram-
liðna. □
Hjúkrunarkona
H júkrunarkona óskast til starfa að Elliheimili
Akureyrar frá 1. júlí n. k.
Allar upplýsingar varðandi starfið veitir forstöðu-
kona Elliheimilis Akureyrar og ber að sencla um-
sóknir til hennar fyrir 24. júní n. k.
STJÓRN E. H. A. >
Fokheidar íbúðir
Til sölu eru 3ja og 4raiherbergja íbúðir við Selja-
hlíð sem seljast lok'heldar og frágengnar að utan.
Upplýsingar gcíur Guðjón Gunnlaugsson í síma
2-37-67 eftir kl. 7 á kvöldin.
FJÖLNIR SF.