Dagur - 26.11.1975, Side 1
fttaflit
paW'1
FILMUhÚSIÐ AKUREYRl
LVIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 26. nóv. 1975 — 48. tölubl.
Herskip á lei
Æ
i
*
Á mánudagskvöldið tilkynntu
breskir togaraskipstjórar á ís-
landsmiðum, að þeir færu af
miðunum, nema þeir fengju
ákveðið loforð fyrir herskipa-
vernd frá breskum stjórnvöld-
um. Nokkrir togaranna sigldu
út fyrir 200 mílna mörkin.
Um hádegi í gær bárust þær
fregnir, að breska stjórnin hefði
látið undan kröfum sjómanna
og útgerðarmanna og gefið það
loforð lítilli stundu fyrr, að her-
skip yrðu send á íslandsmið til
verndar togaraflotanum, sem í
óleyfi hefur fiskað þar frá 13.
nóvember, undir vernd nokk-
urra dráttarbáta. Togararnir
hafa og búið við nokkra áreitni
íslensku Landhelgisgæslunnar,
sem klippti vörpuna aftan úr
sex togurunum á fyrstu tíu dög
Vopnafirði, 24. nóvember. Hér
er snjólaust og greiðfært alla
leið til Hólsfjalla og hefur verið
svo um tíma og er það fremur
óvenjulegt um þetta leyti árs.
Flestir munu vera farnir að
hýsa fé sitt og gefa menn fisk-
mjöl með beitinni.
Atvinna í kauptúninu er
svona nokkurn veginn sæmileg.
Brettingur leggur afla sinn á
land og mi'nni bátar hafa róið,
en afli þeirra er fremur lítill.
í haust var lógað í Vopnafirði
um 16 þúsund fjár. Meðalvigt
dilka var 15,93 kg og er það
mun betra en í fyrra. Hæstu
meðalvigt hafði Haukur Krist-
insson á Eyvindarstöðum, 19,5
kg. En þyngsti dilkurinn var
frá Erlingi Pálssyni á Ljótsstöð-
Ný ljóðabók:
Sóiiii og ég
Ut er komin ellefta ljóðabók
Kristjáns skálds Einarssonar
frá Djúpalæk og ber hún nafnið
Sólin og ég, myndskreytt af
séra Bolla Gústafssyni í Lauf-
ási. Útgefandi er Bókaforlag
Odds Björnssonar á Akureyri.
Kristján frá Djúpalæk er
fyrir löngu þjóðkunnur og á
vaxandi vinsældum að fagna
sem skáld. Þessarar nýju bókar
hans verður nánar getið síðar
hér í blaðinu. □
Snæfel! með
1400 kassa
Hrísey, 24: nóvember. Loksins
sáum við fisk og nú liggur vel
á hríseyingum. Nýja Snæfellið
kom í morgun úr sinni fyrstu
veiðiferð með 1400 kassa af
ágætum fiski, sem mest var
mjög vænn þorskur og stórufsi.
Þetta eru líklega um 90 tonn.
Má því segja, að útgerð hins
nýkomna skips byrjar vel. Og
nú er nóg að gera í Hrísey og
verður svo næstu dagana.
Aflinn hjá minni bátunum er
lítill og hann hverfur alveg, í
samanburði við afla Snæfells.
Komið er örlítið föl, rétt í
skóvarp, kyrrt veður og ósköp
indælt. S. F.
VopnðlirSi
þangað á bíl
um, 32,6 kg. En hann er mjólk-
urframleiðandi og lagði aðeins
inn 7 dilka. Meðalvigt þeirra
var 28,4 kg. Þetta voru þrír ein-
lembingar og fjórir tvílembing-
ar. Sami maður lógaði geldri
tvævetlu og var kroppurinn af
henni 49,9 kg, sem mun fágæt
vigt. Svo endaði sláturtíðin með
því, að lógað var rúmlega 300
nautgripum. • Þ. Þ.
unum, eftir að veiðisamningar
féllu úr gildi.
Fyrsta herskipið er þegar
farið áleiðis til íslandsmiðanna
og fleiri leggja af stað á laugar-
daginn. Þá hefur Nimrod njósn-
arþota oftar en einu sinni verið
send á miðin, til að fylgjast
með því, sem þar fer fram, og
eflaust þó einkum til að njósna
um ferðir íslenskra varðskipa,
sem breskir sjómenn óttast svo
mjög.
Er. af þessu ljóst, að bretar
hafa ekki mikið l'ært af tveim
svokölluðum „þorskastríðum".
Nú blasir ennfremur við sú
kalda staðreynd, að bretar
kjósa, undir herskipavernd, að
ræna þeim fiski af íslandsmið-
um, sem þeir telja sér nauðsyn-
legt og leyfilegt, samkvæmt
„hefðbundnum rétti.“ Og þá er
að taka því. Eðli málsins sam-
kvæmt og einnig samkvæmt
þróun alþjóðamála á Hafréttar
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna,
er ósigur breta ljós. Hins vegar
býður valdníðsla þeirra á mið-
unum þeirri hættu heim, sem
jafnan fylgir beitingu vopnaðs
valds. □
SAMMNGSDRÖG
UM FISKVEIÐAR
Ríkisstjórnin og þingflokkarnir
hafa haft til meðferðar þau
samningsdrög um undanþágur
v.-þjóðverja til fiskveiða innan
200 mílnanna á íslandsmiðum,
sem íslensk sendinefnd kom
með frá Bonn á dögunum, eftir
samningaviðræður við stjórn-
völd þar í landi. Formaður ís-
lensku sendinefndarinnar var
Einar Ágústsson útanríkisráð-
herra.
Svo virtist í gær, að stjórnar-
blöðin væru samningsdrögun-
um samþykk en stjórnarand-
stöðublöðin ekki. Samnings-
drögin hafa ekki verið birt, en
ekki hefur það þó legið í lág-
inni, að í þeim felst le-yfi til
handa þjóðverjum til að veiða
55 þús. lestir af karfa og ufsa
og allt að 5 þúsund lestir af
þorski. Verksmiðju- og frysti-
togarar hverfi alveg af íslands-
miðum. V.-þjóðverjar lofa að
vinna að því á næstu vikum og
Dagu
kemur næst út á laugardaginn.
mánuðum, að „bókun sex“ um
tollalækkanir hjá Efnahags-
bandalagi Evrópu taki gildi, en
samkomulagið um fiskveiðar
falli að öðrum kosti úr gildi
eftir ákveðinn tíma. Samnings-
drögin munu verða til umræðu
á Alþingi í dag, miðvikudag. □
Stóri jarðborinn Jötumi er nú byrjaður að bora á Syðra-Lauga-
landi. (Ljósm.: E. D.jj
Búið eS ylirkeyra Sauðárkróksflugvöl
Sauðárkróki, 25. nóvcmber. —
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
vestra var haldið í Miðgarði
laugardaginn 22. nóvember. Um
60 fulltrúar sátu þingið. Meðal
gesta var Ólafur Jóhannesson
dómsmálaráðherra og Páll Pét-
ursson alþingismaður.
í stjórn kjördæmissambands-
ins voru kjörin: Guttormur
Óskarsson, Haraldur Hermanns
son, Sigurður Líndal, Grímur
Gíslason, Bjarni Þorsteinsson,
Skarphéðinn Guðmundsson,
Ólafur H. Jóhannsson, Jón
Bjarnason og Karlotta Bene-
diktsdótth'.
í miðstjórn flokksins voru
kjörin: Ragnar Jóhannesson,
Stefán Guðmundsson, Helga
Kristjánsdóttir, Ólafur Magnús-
son, Gústav Halldórsson,
Sveinn Þorsteinsson, Pálína
Skarphéðinsdóttir og Björn
Jónsson.
Ýmsar samþykktir voru gerð
ar á þinginu og almenn stjórn-
málayfirlýsing.
Flugvöllurinn við Sauðár-
krók verður tekinn í notkun
næsta sumar. Við hann hefur
verið unnið í allt sumar. Búið
er að yfirkeyra hann í fullri
lengd, en hann er tvö þúsund
metrar. Og Ijós eru komin að
hluta. Eftir er að malbika völl-
inn og verður það gert næsta
sumar og einnig þarf að fjar-
lægja háspennulínu, sem liggur
þvert yfir völlinn. Þá eru bygg-
ingar eftir og bíða betri tíma,
væntanlega næsta sumars.
Drangey landaði 100 tonnum
af þorski í dag.
Bændur eru yfirleitt farnir
að hýsa, beita ánum en hafa
lömb og hrúta inni. G. O.
bólusell og Ivíbaðað
Dagur verði efldur
Átjánda kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi
eystra lýsir yfir þeirri eindregnu ósk sinni, að vikublaðið Dagur
verði eflt sem almennt fréttablað kjördæmisins og Norðurlands
alls, norðlenskt málgagn í sókn og vörn og sem blað framsóknar-
og samvinnumanna. Stefna beri að því, að Dagur verði fyrsta dag-
blað landsins utan höfuðborgarinnar. □
Ási í Vatnsdal, 24. nóvember.
Komið er dálítið föl og menn
eru í þann veginn að taka fé á
gjöf. Flestir eiga næg hey og
sumir mikil. Tíðin hefur verið
mild og góð, en ofurlítið um-
hleypingasöm. Fámennt er á
heimilum því að börn og ungl-
ingar eru í skólum. Það gengur
allt sinn vanagang. Búið er að
fara í leitir á heiðar og finna
fé, eftir göngur. En nú vonar
maður, að ekki sé fé eftir. Suð-
ur við varnargirðinguna milli
Borgarfjarðar og Húnavatns-
sýslu, þar sem heita Fljótsdrög,
fundust til dæmis þrjár kindur
frá Þingeyrum. Þær sáust úr
leitarflugvél borgfirðinga og
voru svo sóttar. Þetta var ær
með tvö lömb sín.
Nú á að bólusetja féð gegn
garnaveiði frá Blöndu að Mið-
fjarðargirðingu og er dálítið
byrjað á því. Svo á að tvíbaða
vegna kláða. Er þetta mikið
álag bæði fyrir menn og skepn-
ur. G. J.