Dagur - 26.11.1975, Side 8
AGU
Akureyri, miðvikuclaginn 26. nóv. 1975
GILTU
TÍSKUHÁLS-
KEÐJURNAR
NÝKOMNAR
GULLSIVIIÐIR
SIGTRYGGUR
& PÉTUR
AKUREYRI ' ‘
SMÁTT & STÓRT
Þetta er liópur akureyringa, sem utan fer til æfinga.
Nýlega hélt skíðalandsliðið er-
lendis til æfinga fyrir Olympiu-
leikana í Innsbruck á næsta
I ári.
Alpagreinafólkið fór til Aust-
j urríkis, en norrænugreinamenn
til Noregs.
í þessa ferð, sem stendur til
j 22. des. voru valdir 7 piltar og
3 stúlkur, en endanlegt
Olympiulið samanstendur af 6
piltum og 2 stúlkum og verður
það valið um áramót.
Frá* Akureyri voru valdir
Árni Óðinsson, Ilaukur Jó-
hannsson, Tómas Leifsson, Hall
dór Matthíasson, Margrét Bald-
vinsdóttir.
Undirbúningur fyrir Olympiu
leika kostar stórfé og lætur
nærri að Skíðasamband íslands
og liin vmsu skíðaráð úti á
Frá lösrefiflunni
| Innbrot og þjófnaður var fram-
ið í Útvegsbankanum á Akur-
| eyri aðfaranótt síðasta miðviku
j dags. Brotin var rúða á bakhlið
hússins og farið þar inn í bank-
ann. Stolið var 70—80 þúsund-
um króna, sem mest var í er-
lendum gjaldeyri. Málið er ekki
upplýst, en rannsókn stendur
yfir.
Nokkrir árekstrar hafa dag
hvern orðið í umferðinni, allt
til mánudags.
Kristján S. Jónsson.
Á föstudaginn varð eldur laus
í Ránargötu 24. Slökkvilið kom
þegar á vettvang. Eldurinn
kom upp í baðherbergi. Ein-
hverjar skemmdir urðu.
Farið var á föstudaginn inn í
matvörulager Matvörudeildar
KEA, en litlu einu stolið. Málið
er upplýst. Unglingar voru að
verki, 14—15 ára.
Snemma á sunnudagsmorg-
un, klukkan 4.45, var tilkynnt
úr Glerárhverfi, að þar væri
maður einn úti með byssu í
höndum og hefði skotið. Lög-
reglan ók þangað, sá manninn
og handtók hann með varúð,
þar sem hann hafði byssu í
höndum. Það reyndist loft-
byssa og hafði hann, er blaðið
fregnaði af atburðinum hjá lög-
reglunni fyrir hádegi í gær,
ekki viðurkennt að hafa skotið
hlaðinni loftbyssunni. Skot-
hvellir þeirrar byssu eru líkir
og þegar skotið er með riffli.
Sagt var, að byssumaðurinn
hefði skotið að fólki. Enginn
reyndist sár.
í gær var allt með kyrrum
kjörum hjá lögreglunni, og
einnig á mánudag. □
landi þurfi að leggja fram 3
milljónir til að sómasamlega'
megi takast.
Til fjáröflunar hefir S.K.Í.
efnt til all nýstárlegs happ-
drættis. Útgefnir miðar eru að-
eins 4000, vinningar eru Ford
Escort og ferð á Olympiuleik-
ana í Innsbruck. Verð miða er
kr. 1000 og vinningshlutfall
1:3.5.
Það er skorað á Akureyringa
að bregðast vel við þessu happ;
drætti og styðja með því skíða-
íþróttina og þá sér í lagi sitt
eigið skíðáfólk.
Við skulum gera okkur grein
fyrir því að eins og sakir standá
getur vart nokkuð nema slys
komið í veg fyrir að Akureyri
eigi 5 af 8 manna Olympiuliði.
Við skulúm líka gera okkur
grein fyrir því að vagga skíða-
íþróttarinnar hefir um árabil
verið á Akureyri og skíðafólk
hefir borið hróður Akureyrar
víðar en annað íþróttafólk
þessa bæjar. S.R.A.
Frá Tónlistarfélagi
Akureyrar
VEGFARANDI SPYR:
Umferðarljósin á Þingvalla-
stræti og niðri í bæ virðast
ekki í lagi. Stöðugt eftirlit er
með Ijósunum og þau eru í
góðu lagi. Hins vegar vantar
eitthváð á, að allir vegfarendur
hafi áttað sig á þeim til fulls.
Önnur spuming vegfarenda:
Hvers vegna eru ekki sett um-
•ferðarmerki við vegamót eins
og við Hlíðarbæ og Kristnes,
svo það sé á hreinu hver vegur-
inn er aðalbraut. Þáð virðist
Ijóst, að biðskyldumerki á þess-
um gatnamótum hefðu komið í
veg fyrir árekstra. Svar: Vega-
gerðin á að sjá um merkingar
á þjóðvegrun. Þar sem þau eru
ekki, eins og á umræddum vega
mótiun, eru báðir vegir jafn
réttháir og ber að haga sér sam-
kvæmt því.
INNKAUPAFERÐ KVENNA
Bretar hafa hótað að senda her-
skip á íslandsmið til að vernda
veiðiþjófa sína og gera að cngu
störf Landhelgisgæslunnar á
miðunum. í framhaldi af þessu
og innkaupaferðum íslenskra
liúsmæðra til Bretlands segir
Tíminn: „Það kvað rétt vera,
að Bretland sé nu eina landið í
nálægð við okkur, þar sem vöru
verð er lægra yfirleitt heldur
en hér á landi. Eigi að' síður
mun verða að gera meira en
- lítil kaup til þess að verðmunur
inn vegi upp ferðakostnaðinn,
og tæpast munu bankar leggja
ferðafólki í hendur þær fúlgur,
er liafa þarf í höndum til slíks.“
LÍTIL ERU GEÐ GUMA
Ritstjórinn segir síðar í sömu
grein: „Hitt er ekki síður atriði
til uniliugsunar, að liér (með
innkaupaferðunum) opinberast
lágkúrulegt geðleysi og átakan-
leg vöntun á heilbrigðu þjóðar-
stolti, andspænis mikilli ögrun
og hótunum, sem ekki verða
kallaðar annað en grimmilegar,
þegar til þess er litið, hvað við
eigum í húfi. Hér á það þess
vegna við, að lítil eru geð
guma.... Nú er uppi margt
fólk, sem í allsnægtum stenst
ekki þá freistingu að fara í búð-
ir í öðrum löndum, og einmitt
í því landi, sem stjórnað er af
Cellótónleikar Kvalbeins og
Bratlies, sem vera áttu á sunriu.
daginn, fejlu niður vegna þess
að ekki- var flugveður að sunn-.
an. Seldir miðar verða endúr-
greiddir í Bókabúðinni Huld'.
(Fréttatilkynning)
r
álverkasýning
Ungur akureyringur, Kristján
S. Jónsson, opnar sína fyrstu
málverkasýningu í Myndsmiðj-
unni á Akureyri, Gránufélags-
gotu 9, á föstudagskvöldið,
klukkan 20.00 og verður sýning
in opin um tvær helgar, 28.—30.
nóvember og 5.—7. desember.
Á föstudagskvöldum verður
sýningin opin frá klukkan 20.00
—23.00, en laugardaga og sunnu
daga frá 15.00—23.00.
Á sýningunni eru 23 myndii',
18 olíumálverk og 5 vatnslita-
myndir. Myndaefnið er lands-
lag, uppstilling og ljóðrænar
myndir. Kristján, sem aðeins er
18 ára gamall, hefur verið tvo
vetur við myndlistarnám hjá
Ármanni Sigurjónssyni, en byrj
aði barnungur að fást við að
teikna og mála. AÖgangur er
ókeypis. □
fi! viðfals
Skrifstofa Framsóknarflokks-
ins, Hafnarstræti 90, verður
opin fyrst um sinn á fimmtu-
dögum og föstudögum, kl. 5—7
e. h., og á laugai'dögum kl. 10—
12 f. h. Á þessum tímum verður
einhver bæjarfulltrúi flokksins
á skrifstofunni, og situr fyrir
svörum, ef svo má segja.
Margir bæjarbúar eiga erindi
við bæjarfulltrúana og er þetta
kærkomið tækifæri til að skipt-
ast á skoðunum, sem báðum
aðilum á að geta orðið til gagns
og ánægju.
Framsóknarfélagið.
Ingvar Gíslason,
alþingismaður.
þeim mönnum, sem nú vilja
enn á ný beita afli sínu til þess
að niðurlægja okkur og kippa
grundvellinum undan lífsaf-
komu okkar. Það er lítilsiglt að
falla fyrir þeirri freistingu.“
HVER A LAUNAMIS-
MUNUR AÐ VERA?
Undanfarin ár hafa verkalýðs-
félög, vinnuveitendur og stjóm
málaflokkar talið það sjálf-
sagðastan hlut í kjarasamning-
um, að bæta hag þeirra lægst
launuðu, og undir þetta hafa
flestir tekið. Reynslan hefur
þótt nokkuð önnur, enda hafa
slagorðin um launajafnrétti og
bættan liag liinna lægst laun-
uðu, verið innihaldslítil. Til
þess að glöggva sig á þessum
málum, þyrfti að liggja fyrir
rökstudd skilgreining á því,
hvað við er átt. Hvar eru mörk-
in milli hárra og lágra launa?
Og live mikill á launamismunur
að vera? Svör við þessum spurn
ingum hafa ekki legið á lausu
hjá þeim, sem mikið tala um
þessi mál. Og allt er það tal
markleysa ein, ef þessum spurn
ingum er ekki svarað.
REYKINGATÍSKAN
SÆKIR FAST A
Allir hafa veitt þeim upplýsing-
um athygli, hve reykingatískan
hefur náð mikilli fótfestu meðal
barna og unglinga, og jafnt til
telpna sem drengja. Læknar
eru ekki í efa um aflciðingarn-
ar og foreldrar virðast standa
ráðalausir gagnvart þessum
vanda. Sígarettur fást í hverri
verslun og reglugerð tekur ekki
lengur af tvímæli um það, hve
ungu fólki sé lieimilt að selja
þessa vöru. Útvai-p og sjónvarp
fara herferð gegn reykingun-
um og eflaust ber hún árangur,
en hve mikinn? Er ekki nauð-
synlegt, að skólarnir lief ji einn-
ig herferð gegn reykingunum,
ekki aðeins með banni, heldur
miklu fremur með fræðslu?
Vísnspfiir
Út er komið annaö kver me5
vísnagátum Ármanns Dalmanns
sonar á Akureyri, sem fjölritað
er í Reykjavík. Ármann segir í
formála: „Ástæðan fyrir því, að
annað kver með vísnagátum
laumast inn á bókamarkaðinn,
er sú, að flestir þeirra, sem
ráðningar sendu, óskuðu eftir
að fá þær ráðningar, sem ég
miðaði við og létu í ljósi ánægju
sína yfir að fást við þetta tóm-
stundagaman."
1 kverinu eru svo ráðningarn
ar, sem fólkið var að glíma við
um jólin í fyrra, og svo nýjar
vísnagátur. Bókaverðlaun eru
veitt. Vísnagátur Ármanns Dal-
mannssonar var mörgum kær-
komin dægradvöl í fyrra, og
svo verður enn. □
Framsóknarvist á föstudag
Framsóknarfélagið á Akureyri
hefur skemmtikvöld á Hótel
KEA á föstudaginn, 28. nóvem-
ber, og hefst hún klukkan 8.30.
Spiluð verður framsóknar-
vist, Ingvar Gíslason alþingis-
maður flytur ávarp og að lokum
verður dansað.
Margir hafa óskað eftir því,
að framsóknarfélagið gæfi fólki
kost á að koma saman til að
skemmta sér, og er þess því
vænst, að þátttaka verði góð, og
eru utanbæjarmenn velkomnir,
til að taka þátt í þessum fagn-
aði. □