Dagur - 17.12.1975, Blaðsíða 5

Dagur - 17.12.1975, Blaðsíða 5
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Við eigum ekkerf val í góðu erindi, em Eysteinn Jónsson flutti í útvarp I. desember sl., minnti hann á baráttu Jóns Sigurðssonar og sagði: Jón Sigurðsson var óþreytandi að minna þjóðina á, að ekki væri nóg að sinna hinni stjórnarfarslegu hlið frelsisbaráttunnar, það yrði einnig að skilja og sýna í verki, að þjóðin gæti séð sér farborða atvinnulega og í efnalegu tilliti. Eg hvet ekki til einangrunarstefnu í samskiptum við aðrai' þjóðir, en legg áherslu á, að hver þjóð verður að sjá fótum sínum forráð og líta raunsætt á stöðu sína og annarra þjóða. Það hlýtur að vera afar þýð- ingarmikið fyrir smáþjóð að hafa full tök á atvinnulífinu í landinu sjálfu og eiga þar sem minnst undir öðram komið. íslendingar mega aldrei gleyina því, að einn þýðingar- mesti þátturinn í frelsisbaráttunni á tímum áþjánar og umkomuleysis, var að losna við yfirráð erlendra í viðskipta og atvinnulífi landsins. Menn mega ekki eitt andartak missa sjónir af því, að ein styrkasta stoð frelsis og sjálfstæðis, er framtak lands manna sjálfra og atvinnurekstur ís- lenskra manna. Gætilega verður að fara í því, að treysta á atvinnurekstur erlendra aðila í landinu. Þótt menn telji allt vel skorðað, þá jafngildir þess háttar rekstur aldrei því, sem íslendingar hafa sjálfir með höndum og ráða að fullu. Og gæta verður þess vandlega, að slíkur rekstur verði ekki of stór þáttur í þjóðarbúskapnum. Hér verður því að gæta liófs og viðhafa nauðsynlega varúð. Við eigum nú við rnikla örðug- leika að etja. Viðskiptakjör hafa hríð versnað og enginn dregur í efa, að þjóðin eyðir nú meira en hún aflar. Nýjustu upplýsingar um ástand fisk- stöfna og áætlanir um það, hve mikla veiði megi taka á miðum okk- ar, sýna ástandið alvarlegra en við höfum talið fram að þessu og hefur það þó verið álitið afar alvarlegt. Það ér þungt áfall fyrir þjóðina hvernig komið er. Hér er því við ærinn vanda að etja. Þjóðin verður að hætta að eyða um efni fram og samtímis að kosta miklu til að breyta atvinnuháttum stórlega. Enginn veit á þessari stundu hve róttækar eða kostnaðarsamar breytingamar þurfa að verða. Meðal annars veit enginn í dag, hve mikið af fiskstofnunum á íslandsmiðum okkur tekst að varð- veita í okkar eigin þágu. Við vitum, að engin þjóð getur varðveitt sjálf- stæði sitt nema hún geti staðið á eigin fótum fjárhagslega. Þessa þraut verða íslendingar þvi að leysa. Það er ekkert val. □ Aðventutónleikar 1 Akureyrarkirkju - Frá bæjarstjórn ... (Framhald af blaðsíðu 1) ar umræðu í bæjarstjórn reglur um réttindi og skyldur bæjar- starfsmanna. Þetta er mikill bálkur og eflaust nauðsynlegur, því fram að þessu hefur verið stuðst við meginreglur er gilda fyrir ríkisstarfsmenn. í þessum reglum er ýmislegt ljósara en í reglum ríkisstarfsmanna. I Lóðarúthlutun. Nýlega var auglýst eftir um- sóknum um lóðir undir íbúðar- hús í nýja Hlíðarhverfinu í Glerárhverfi. Veittar hafa verið 22 einbýlishúsalóðir en 9 um- sóknir um tveggja hæða rað- hús hafa borist en ekki verið afgreiddar. Þessi einbýlishús verða við Bröttuhlíð og Bakka- hlíð. Ennfremur hafa ný götu- nöfn, svo sem Litlahlíð og Steinahlíð, verið ákveðin og Hlíðarbraut heitir stór gata, sem nær frá Krossanesbraut yfir Hörgárbraut og alla leið að Þingvallastræti. □ Benedikt Ingimarsson: Ljóð. Ak. 1975. Frá vordögum að í röðinni frá sinni hendi. Lausavísur eru allmargar í bók inni, sem sverja sig í ættina, eins og þessi: Fyrir tæpum fimmtíu árum eignaðist ég ofurlítið kvæða- kver, Vökudrauma, eftir Bene- dikt Einarsson á Hálsi. Faðir minn taldi til skyldleika við höfundinn, man ég eigi hvernig hann rakti það. Þarna voru skemmtilegar vísur, sumar al- kunnar verðlaunastökur, ásamt kvæðum, eins og þau gerast best á alþýðuvísu. Nú er hér kominn niðji Benedikts Einars- sonar með nýtt ljóðakver, ann- - Góð gjöf ... (Framhald af blaðsíðu 8) eyrar þakka þessum aðilum öll- um, höfðingleg framlög, sem gerðu klúbbnum fært að ráð- ast strax í kaup á þessu bráð- nauðsynlega tæki, og nemur framlag þessara félaga og fyrir- tækja, röskum þriðjungi inn- kaupsverðsins. En gefendur voru þessir: Kvenfélagið Hlíf, Akureyri, Kvenfélagið Framtíðin, Akur- eyri, Kvenfélagið Baldursbrá, Glerárhverfi, Kvenfélagið Vor- öld, Öngulsstaðahreppi, Kven- félagið Aldan, Öngulsstaða- hreppi, Kvenfélagið Hvöt, Ár- skógshreppi, Kvenfélagið Vaka, Dalvík, Kvenfélagið Iðunn, Hrafnagilshreppi, Kvenfélag Hríseyjar, Kvenfélag Svalbarðs - strandar, Kvenfélag Hörgdæla, Kvenfélag Akureyrarkirkju, Iðnaðarbanki íslands h.f., Akur eyri, Slippstöðin h.f., Akureyri, Hj úkrunarkvennafélag íslands, Akureyrardeild, Ljósmæðra- félag íslands, Norðurlandsdeild, starfsstúlkur á Fataverksmiðj- unni Heklu, starfsfólk ■ á Rönt- gendeild, Rannsóknarstofu, Þvottahúsi og fleiri deildum F.S.A., Zontaklúbbur Akureyr- ar, Lionsklúbburinn Hrærekur, Lionsklúbburinn Huginn, Lions klúbburinn Vitaðsgjafi. Þar sem þessum áfanga er nú náð, vonast gefendur til að tæk- ið komi að sem bestrun notum. Formaður Lionsklúbbs Akur- eyrar er Ellert Guðjónsson. □ Enginn hræðist myrkramátt. Meiri er gæða kraftur. Myrkrið læðist lágt og hátt. Ljósið glæðist aftur. Nokkur af kvæðunum virðast ekki nógu föstum tökum tekin, og einstakar athugasemdir falla stundum ekki nógu markvisst inn í kvæðisheild. En hitt er meira vert, að margt ljóðanna eru verulega vel gerð að þessu leyti, og má þar til nefna þau sem heita: Klukkan, í morgun- sól, Ljós, Geislar, Rógberinn, Atvik og framkoma. — Engu ofaukið og stefna ákveðin að vissu marki án innskota. Ljóð- ið Ást hefir einkum tekist vel að formi, auk þess ólíkt venju- legu nútímarugli, minnir að gerð og einfaldleik á hvorki meira né minna en viðkunnan- legustu smákvæði Frödings. Hugleiðingar um lífið, þokka- lega samið, beinn þráður hugs- unar, en mætti vera léttara yfir því. Guðmundur skólaskáld sagði: Æskan kemur aftur, börnin góð. — Enda eru hérna mörg ljóð á alveg annari bylgju lengd en Huðleiðingarnar: Gæfumaður, Hetjur dagsins, Drykkjumaður dáinn, Árstíða- skipti, og Peningamaður. í þeim er vel tempruð glettni, sem höfundur ætti að leggja meiri rækt við. Þeim hópi tilheyrir smellin skopvísa: Mikil sorg og sálarraunir setja mark á þína brá. Þú ættir helst að borða baunir með bræddu floti ofaná. : \ I Þakka bókina, áritaða stil- góðri rithönd, sem gefur til kynna að við alþýðustéttamenn gætum kennt ráðherrum að sveifla pennastönginni. Sig. Draumland. málaraöherra. Þessi marg eítirspuröa búk, sern verið hefur uppseld árum samán er nú komin aftur i bókaverzlanir. Lög og réttur fjallar á greinargóöan hátt um ýmis meginatriði islenzkrar réttarskipunar. Bókin fæst hjá helztu bóksölum, og kostar kr. 2.700.- (+ sölusk.). Félagsmenn,— og aö sjálfsögöu þeir, sem gerast félagsmenn nú, fá bókina meö 20% afslætti í afgreiöslu Hins íslenzka bókmenntafélags aö Vonarstræti 12 í Reykjavík. Hiö íslenzka bókmenntafélag. ii9Lmí . ' ÍillSi® AMBER GLOW ARINELDIVIÐUR Kubburinn endist í 3 klukkutíma. Sótar ekki. „Þá fullreynt það er, að' ég flogið ei get, ef flugþráin óró mér kyndir, við starfanna hljómfall í stuðla ég set, án stækkunar — hversdagsins myndir. Þó hilluna réttu ég hæfist ei á, þó hneigist til listrænni starfa, í fábreytni sinni þær fróun mér ljá, — og fyrst vil ég lifa til þarfa.“ fólk er velkomið svo lengi sem húsrúm leyfir. 325 nemendur stunda nám við Tónlistarskólann í vetur, og skiptast þeir í 11 námsgreinar. Nemendur eru á öllum aldri, allt frá 5 ára til 65 ára. Kennarar eru 16 við skólann, og eru 12 af þeim fastráðnir. ( Fr éttatilky nning) Verðtilboö NATTFOT fyrir herra kr. 1.495. NATTFOT fyrir drengi kr. 1.225. HERRADEILD SIMI 21400 Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi. Við hljóðfall starfsins Prentverk Odds Björnssonar. Þetta er 150 bls. ljóðabók og síðurnar nýttar til fulls. Guð- munduv er orðinn aldinn að árum. Kunnur er hann þjóð sinni fyrir marga holla hug- vekju í útvarpi og blöðum. Hann er einn af þessum þjóð- hollu, sívakandi postulum sjálf- stæðisbaráttunnar og ung- mennafélagshreyfingarinnar sem mótaði svo mjög aldarhátt þessarar umbrota aldar okkar. Steindór Steindórsson skrifar formála fyrir bókinni og gerir þar grein fyrir lífi og starfi Guðmundar. Formáli Steindórs endar svó: „Kvæði Guðmundar frá Lundi eru ekkert híalín, ekkert tæpitungumál né skýjaborgar- draumar. Þar er sterkur ís- lenskur vefnaður unninn til að veita skjól og vernda heilbrigði þjóðarinnar í hugsun og hætti. En umfram allt eru þau einlæg, kveðin úr hjarta þess manns, sem ann þjóð sinni, menningu hennar, starfinu og hinum fornu dyggðum. Það er þeirra styrkur, hversu sem þjóðin kann að meta.“ Hér verður ekki um bætt í frásögn af bók þessari. Síðasta kvæði bókarinnar ber nafn bókarinnar sjálfrar. Það er upp gjör höfundar og greinargerð. Næst síðasta erindi hljóðar svo: Á síðastl. hausti hóf blönduð hljómsveit strengja og blásara æfingar í Tónlistarskólanum. Hljómsveitina skipa nemend- ur skólans, en þeim til viðbótar leika aðilar, sem á einn eða annan hátt hafa verið tengdir skólanum. Það má segja, að hér sé um merkan áfanga að ræða í sögu skólans, og er þessi hljómsveit vonandi vísir að kammer- eða sinfóníuhljómsveit á Akureyri. Miðvikudaginn 17. des. kem- ur hljómsveitin fram í fyrsta sinn á tónleikum, en þeir verð'a í Akureyrarkirkju og hefjast kl. 20.30. Þar leikur hún þætti úr Vatnasvítunni eftir Hándel und ir stjórn Michael Clarke, en auk hans vinna aðrir kennarar á blásturs- og strengjahljóðfæri að uppbyggingu sveitarinnar. Auk hljómsveitarleiksins verður á efnisskrá orgelleikur, einsöngur, einleikur á þver- flautu, og fiðlur, strengjasveit yngri nemenda, og fleiri sam- leikshópar. Tónleikarnir verða einskonar aðventutónleikar, og í lok þeirra leikur hljómsveitin jóla- sálm undir almennan söng. — Fólk er hvatt til að sækja þessa tónleika, en aðgangur er ókeypis. Jafnframt þessu efnir Tón- listarskólinn til nemendatón- leika í sal skólans þriðjudaginn 16. des., og hefjast þeir kl. 20 (8). Þar fer fram einleikur og samleikur nemenda á píanó, fiðlur, flautur og orgel. Áhuga- 5 Til jólagjafa! Dömu velourpeysur, maroir og I ítir. O O ítalskar dömublússur, mjög rnikið úrval. Dömujakkar, margar gerðir. Dömu og barnapevsur í fjölbreyttu úrvali. VERZLUNIN DRÍFA SÍMI 2-35-21. TÖSKUR í miklu úrvali koma á morgun. Einnig þunnar rúllu- kragapeysur. Ný sending af kjólum væntanleg. Lúffur, treflar, og slæð- ur, margar gerðir. MARKAÐURINN NYKOMNAR Glæsilegar samkvæmisblússur og peysur SIMI 1-10-95. Brekkubúar Ykkur til liagræðis fást allar nýútkomnar BÆKUR BÓKABÚÐIN HULD Hafnarstræti SÍMI 1-14-44. í Shell-húsinu við Mýraveg. Sími 2-35-08. TILBUINN RÚMFATNAÐUR Straufrítt Darnask. Léreft. Kjörin jólagjöf. A ni a r o Bifreidir Til sölu Chevrolet Nova árg. 1974 ekinn 10 þús. km. Uppl. í síma 6-13-53 eftir kl. 8 á kvöldin. Til sölu tvenn jakkaföt, sem ný. Seljast ódýrt. Uppl. í síma 2-21-51 eftir kl. 7 e. h. Indriði G. Þorsteinsson: ÁFRAIV! VEGINN Sagan um Stefán Islandi Hér er sagan um hinn unga, skagfirzka sveitapilt, sem ruddi sér leið til frægðar og frama úti í hinum stóra heimi. Hún er ,,auð- ug að skemmtilegum sögum og svipmynd- um . . . fróðleg sem ævisaga, fjölbreytt og skemmtileg minningabók og skilur eftir minnisstæða mypd af glöðum dreng og góð- um listamanni.“ — Helgi Skúli Kjartansson. Bókin er myndskreytt. Verð kr. 3.600 Þorsteinn Stefánsson: FRAWiTÍÐIN GULLNA Þessi hugljúfa, íslenzka skáldsaga á sér nokkuð óvenjulögan feril. Höfundurinn, Þorsteinn Stefánsson, hefur verið búsettur í Danmörku um langt árabil og þar kom bókin fyrst út. Hlaut hún hinar beztu við- tökur og höfundurinn var heiðraður með H. C. Andersen bókmenntaverðlaununum. Nú gefst íslenzkum lesendum tækifæri til að kynnast þessari ágætu skáldsögu á móðurmáli höfundarins. — Verð kr. 2.460. Guðjón Sveinsson: HÚMAR AÐ KVÖLDI Hér kemur Guðjón Sveinsson með skáld- sögu fyrir fullorðna á tæpitungulausu máli og fjallar um vandamá! ungu kynslóðarinnar í dag. í frásögninni er mikil spenna sem helzt til óvæntra söguloka. Veið kr. 1920. Guðný Sigurðardóttir: ÞAÐ ER BÁRA SVONA Þetta er bráðskemmtileg og fyndin nútíma- saga, full af þeírri kýmni og gáska, sem höf- undinum er svo eiginlegur Verð kr. 1800. Frank G. Slaughter: HVÍTKLÆDDAR KONUR Ný og spennandi læknaskáldsaga eftir hinn vinsæla metsölubókahöfund. Verð kr. 2460. Dougal Robertson: HRAKNINGAR Á SÖLTUM SJÓ Þetta er einhver frægasta skipbrotssaga seinni ára. Hin óbilandi úrræðasemi og þrautseigja Robertson-fjölskyldunnar hef- ur vakið aðdáun og hrifningu milljóna les- enda um allan heim. Verð kr. 2460. Ingebrigt Davik: ÆVINTÝRI í MARARÞARABORG Fjörug og skemmtileg barnabók í þýðingu Kristjáns frá Djúpalæk. Verð kr. 720. Theodór Gunnlaugsson frá Bjarmalandi: JÖKULSÁRGLJÚFUR — íslenzkur undraheimur Með litríkurn myndum og leiðarlýsingu er hér vísað á ótal unduríagra staði, sem hinn almenni ferðamaður hefur aldrei augum litið hingað til. E.n nú kemur tækifæriö upp í hendurnar. — Verð kr. 4920. Kristján frá Djúpalæk: SÓLIN OG ÉG ' Það vekur alltaf fögnuð hins stóra aðdá- endahóps Kristjáns frá Djúpalæk, þegar hann sendir frá sér Ijóðabók. Verð kr. 1800. Jenna Jensdóttir: ENGISPRETTURNAR HAFA ENGAN KONUNG Þetta er fyrsta Ijóðabók höfundar, gefin út í 300 tölusettum og árituðum eint. Myndir eftir Sigfús Halldórsson. Verð kr. 1800. Finnur Sigmundsson: SKÁLDIÐ SEM SKRIFAÐI MANNAMUN Sendibréf frá Jóni Mýrdal í þessum sendibréfum Jóns Mýrdals kynn- umst við sérstæðum manni í óblíðri lífs- baráttu. Verð kr. 1920. Ármann Kr. Einarsson: LEITARFLUGIÐ Þessi skemmtilega bók um Árna og Rúnu í Hraunkoti hefur verið ófáanleg um árabil en kemur nú í nýrri útgáfu sem 8. bókin í Ritsaíni Ármanns. Verð kr. 1800. Hreiðar Stefánsson: BLÓMIN BLiÐ Þessi nýja og fallega bók er prentuð með stóru og skýru letri og skreytt af Þóru Sig- urðardóttur. Verð kr. 1440. Ármann Kr. Einarsson: AFASTRÁKUR Þessi nýja og skemmtilega bók hins vin- sæla barnabókahöfundar er tilvalin til lestr- ar og endursagnar fyrir yngstu börnin. Myndir eftir Þóru Sigurðardóttur Kr. 1440. Arthur Hailey: BÍLABORGIN Höfundur metsölubókanna HÓTEL og GULLNA FARIÐ (Airport) opinberar ieynd- ardóma bifreiðaiðnaðarins, flettir ofan af baktjaldamakki forstjóra, vei'kaiýðsforingja og óprúttinna bílasala, kynnir okkur einka- líf og ástalíf fólksins, sem kemur hér við sögu. Verð kr. 2460. Bókaforlag Odds Björnssonar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.