Dagur - 28.01.1976, Blaðsíða 4
4
5
Skrifstofur, Hafnarstrœti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Hitaveita
Akureyrar
Landhelgisdeildan við breta, jarð-
skjálftamir miklu í Þingeyjarsýslum
og kjarasamningarnir eru hið brenn-
andi áhugamál og erfiðu viðfangs-
efni um þessar mundir og veit eng-
inn enn hvert stefnir á þeim sviðum,
sem mönnum er þó sjálfráð, og enn
síður hver endir verður hinna miklu
náttúruhamfara, sem geysað liafa
síðair fyrir jól. Akureyringar hafa til
viðbótar eignast nýtt áliugamál og
viðfangsefni, sem er hitaveita kaup-
staðarins og nágrennis lians.
Jarðborinn Jötunn, sem fluttur
var frá Þorlákshöfn til Eyjafjarðar
snemma á þessum vetri, til þess að
leita að lieitu vatni á Syðra-Lauga-
landi í Eyjafirði, lenti út af vegi á
Vatnsskarði og lofaði það strax
góðu, ef marka má það fornkveðna,
að fall sé fararheill, því lieitt vatn
tók að streyma úr fyrstu borholunni
í byrjun desembermánaðar og jókst
síðar svo, að þessi borhola gefur nú
meira vatnsmagn en nokkur önnur
hefur gert hér á landi. Vatnið er yfir
90 gráðu heitt og magnið 80—90 1 á
sekúndu. Nægir það til að hita upp
verulegan hluta Akureyrarkaupstað-
ar, sein á síðasta ári brenndi gasolíu
fyrir 400 milljónir króna og eyddi
þar að auki dýrmætu rafmagni til
upphitunar í meira en fjórða hvert
hús í bænum. Heita vatnið frá Syðra-
Laugalandi verður leitt til Akureyr-
ar, hvort sem meira vatn næst þar
iir jörðu eða ekki. En eftir fáar vikur
byrjar Jötunn á nýrri holu skammt
frá hinni fyrri, og vænta menn fast-
lega enn aukins árangurs. En áætluð
vatnsþörf hitaveitu fyrir bæinn fram
yfir 1980 hefur verið talin 230 sek.l.
af 100 giáðu heitu vatni.
Hitaveita Akureyrar er nii ekki
lengur óskliyggja manna, því lieita
vatnið lét ekki lengi bíða eftir sér og
færði óskhyggjuna inn á fram-
kvæmdasviðið með skjótum og
ánægjulegum hætti. Hitaveitan er
þar með orðið stærsta framkvæmda-
mál kaupstaðarins á þessu ári og
þeim næstu, og um leið eitt áhuga-
verðasta verkefni bæjaryfirvalda fyrr
og síðar. Framundan er meiri borun,
lagning hitaleiðslu til Akureyrar og
dreifikerfi í bænum.
Ríkisvaldið hefur lagt kapp á inn-
lenda orkuöflun og telur liana for-
gangsverkefni. Samkvæmt því mun
það styðja þá miklu fjáröflun, sem
er forsenda slíkra stórframkvæmda.
Kallar ný hitaveita fyrr á fram-
kvæmdir og fjármögnun en gert var
ráð fyrir, þótt fara beri að öllu með
gát til að fyrirbyggja mistök. □
I
Sígarettan í sessi riðar,
— sú á það nú ekki gott.
Unnum henni aldrei friðar,
uns hún er flæmd af landi brott.
Þannig hljóðar kviðlingur
einn. Sem flest annað er hann
vafalítið umdeilanlegur. Eigi að
síður skulum við líta á hann,
stutt og gagngjört í þeim tveim
þáttum, sem hann gefur tilefni
til.
Breytt almenningsálit.
Síðastliðin ár hef ég átt í ná-
vígi við sígarettuna. Það, sem
hér fer á eftir, er því mælt af
persónulegri reynslu.
Ekki hef ég þreytt nágvígi
þetta einn, heldur með allmikl-
um fjölda víghraustra kvenna
og manna. Hér tala ég um nám-
skeiðin, sem ég hef veitt for-
stöðu, fyrir þá, sem vildu hætta
að reykja, — þ. e. 5 — Daga
Áætlunina.
Námskeið þessi hafa leitt
glögglega í ljós, að síaukinn
fjöldi fólks tekur niðurstöður
vísindanna um hættu reyking-
anna alvarlega, og vill segja
skilið við sígarettuna. Þannig
hafa 30 manns hætt hér, 50, 60
þar, 80 og hátt yfir 100 á enn
öðrum stöðum — fólk, sem dag
lega hefur reykt allt frá 10
sígarettum upp í 3 pakka.
Skaðsemi reykinganna leikur
ekki lengur á tveim tungum.
Hún er gjörsönnuð um allan efa
fram, svo hvergi verður lengur
um villt fyrir fólki. Sem sjúk-
dómsvaldur eru reykingarnar,
í afleiðingum, efstar á lista.
Sem dánarorsök skipa þær
einnig efsta sess með slysunum.
Þessar vísindalegu upplýs-
ingar, gefin fræðsla, svo og
áróður gegn reykingum hefur
á síðastliðnum árum leitt af sér
gjörbreytt almenningsálit. Stöð
ugt fjölgar þeim, yngri og eldri,
sem í sambandi við reykingar
sjá það eitt skynsamlegt að
hætta. Sífellt verða þeir fleiri
og fleiri, sem losna vilja úr
þrældómi reykinganna, og
hætta með því að lama heilsu
sína, baka sér óþarfan, ótíma-
bæran sjúkleika, er gæti dregið
til dauða. Um nokkurra áratuga
bil hafa aukning lungnakrabba
og aukning reykinga haldist í
hendur. Aukning hjarta- og æða
sjúkdóma annars vegar og aukn
ing reykinga hins vegar virðast
einnig í allnánum tengslum.
Hvernig standa þá málin?
Þau standa 'eins og segir í fyrri
hluta kviðlingsins, að sígarettan
riðar í sessi. Meginþorri þeirra,
sem hafa sótt námskeiðin hefur
verið á aldrinum 17, 18, jafnvel
16 ára til 45, 50 ára og fjölmarg-
ir þar yfir. Á þessu aldursskeiði
reykir fólk mest, og þess vegna,
þeim mun fleiri, sem á þessum
aldri hætta, því meiri sigur
vinnst gegn reykingunum........
En, hér með er mál þetta þó
ekki allt á svið sett.
Úrslita atriðið.
í sambandi við umrædd nám-
skeið hef ég jafnan lagt áherslu
á að heimsækja alla skóla, sem
ég hef til náð og haft tíma til á
hverjum hlutaðeigandi stað.
Þar hafa börn og unglingar ver-
ið vöruð við hættunni, vísinda-
legar staðreyndir lagðar fram
og ágætlega gerðar kvikmyndir
um þessi mál sýndar. Þannig
geta bömin og unglingarnir
heýrt, séð og allt að því þreifað
á sannreyndunum............ En,
hvað gerist varðandi þennan
hóp barna og unglinga?
Síðastliðið hálft annað ár
hefur gengið svo miskunnarlaus
reykinga-tísku-alda yfir ungl-
ingana, að enginn hefur talist
maður með mönnum, nema
hann reykti. Hefur þetta sogað
ótölulegan fjölda unglinga út í
reykingar og verkað uggvæn-
lega freklega niður í barnaskól-
ana. Reynsla mín og náin kynni
á þessum vettvangi hafa leitt í
ljós, að lengur er það ekkert
furðumál að sjá 12 ára börn
reykja fyrir opnum tjöldum.
Fjöldi 10 ára barna er farinn að
reykja, að fá sér ,,smók,“ að
„fikta,“ eins og þau kalla það.
Nýjustu fréttirnar herma, að nú
fjölgi ört 9 ára börnum, sem
farin eru að gera hið sama. Á
sl. ári fann ég fjóra 8 ára drengi,
sem farnir voru að reykja ótrú-
lega mikið. En þeir heyra sjálf-
sagt og vonandi algerum undan
tekningum til.
Þannig er heildarmynd þessa
alvarlega máls í senn björt og
skuggaleg....... Hvað er þá
hægt að gera? .... Hvað eldri
hópinn snertir þarf að hjálpa
honum meira, hvetja hann bet-
ur, samstilla hann rammlegar í
sókninni gegn sígarettunni og
leggja hana að velli. Samtímis
þarf að sækja fram til varnar
börnum og unglingum með því
að FYRIRBYGGJA, FYRIR-
BYGGJA, FYRIRBYGGJA.
.... ÞETTA ER ÚRSLITA
ATRIÐIÐ — AÐ FYRIR-
BYGGJA.
Álit mitt er, að einungis á
þessum grundvelli sé hægt að
vinna þetta alvarlega og mann-
skæða mál til sigurs. Meðan
börnin og ungmennin dragast
inn í hildarleikinn virðist mér
málið horfa sem vonlaus, og í
rauninni vitlaus, eltingaléikur,
þar sem fyrirfram er vitað, að
enginn endanlegur sigur næst,
enda heldur ekki raunhæft að
honum stefnt. Slík aðferð er
ósamboðin raunhæfri, glöggri,
mannlegri dómgreind. Þess
háttar vinnubrögð minna mig
mest á aðferðina að vinna
Fjallarefinn með hundum, en
við það fékkst ég á æskuárum
mínum. Á beinu hlaupi dregur
fljótt saman með stórum, fráum
hundi og skolla. Bregður rebbi
því þá fyrir sig að hlaupa krapp
an hring, en það á hann létt
með, vegna smæðar sinnar og
léttleika. Þegar hann finnur
óöryggi hundsins og mistök
aftur og aftur í þessum krappa
hring, tekur hann á beinan
sprett aftur lengra til fjalls.
Skjótt dregur saman á ný, því
hér stendur seppi aftur betur
að vígi, en þá hefst sama,
krappa hringhlaupið. Þannig
gat þessu lengi farið fram. Sá
ég margan, slíkan eltingaleik og
gat flestum brugðið til beggja
vona. Auk þess átti rebbi sér
marga holu og felustað, sem
skjótt gat ráðið öllum úrslitum.
Sígarettan á sér líka margt
skúmaskot. Skúmaskot, sem oft
hefur ráðið úrslitum um, hvort
þessi eða hinn unglingurinn eða
barnið fór eða fór ekki að
reykja.
Svo ómarkvisst, óraunhæft
og óvirðulega sem þetta megum
við ekki starfa gegn tóbaks-
eitrinu, af því að við erum
nienn......Nei, við þurfum að
fyrirbyggja, fyrirbyggja. Upp-
fræða, uppfræða, uppfræða.
Eitt góðskáldanna okkar kvað
forðum: „Ef æskan vill rétta
þér örvandi hönd, þá ertu á
framtíðarvegi.“ Þetta leiðir okk
Ur að seinni hluta kviðlingsins
í upphafi þessa spjalls: „Unnum
henni aldrei friðar, uns hún er
flæmd af landi brott.“ Ekki
geng ég þess dulinn, að mörg-
um mun við fyrsta lestur finn-
ast hér um goðgá og firru að
ræða. Slíkt misvirði ég ekki, né
verð undrandi. Því miður er
mönnum ekki orðið mjög tamt
að hugsa svo djarft. Hugsjóna-
eldar brenna nú fremur fáir og
ekki mjög heitir. Glóðir þeirra
eru þó til, og skjótt myndu
þær loga glatt, væri vel í þær
blásið og rétt eldsneyti notað.
í þessu tilviki eru staðreyndin
glóðirnar, upplýsingin og síauk-
in fræðsla eldsneytið. Þá stend-
ur sígarettan ekki einungis höll
um fæti, heldur yrði hún óhjá-
kvæmilega fiæmd um landi.
.... Það getur nú aldrei orðið,
hugsar einn og mælir annar.
Slíkar athugasemdir og við-
brögð eru mér ekkert undrunar
efni. Leyfið mér þó að segja, og
réttilega minna á, að hið sama
var sagt, þegar einhverjum datt
í hug að athuga, hvað væri
„hinum megin við hafið,“ þegar
öðrum hugkvæmdist að finna
„endann á jörðinni," svo að
ekki væri minnst á þá hættu-
legu firru, að „hún snerist,“ eða
enn verri fjarstæðu, að hægt
væri að láta vagni hreyfast án
þess að hann drægju hross eða
uxar.
Þegar ég var drengur, tíðkað-
ist, að börn og unglingar sátu
saman í rökkrinu, sögðu sögur
og sungu margraddað meðan
fullorðna fólkið fékk sér blund.
Ekki sögðum við sögur af geim-
Teiknimyndasamkeppni
Menntamálaráðuneytið efnir í
samráði við Umferðarráð til
teiknimyndasamkeppni fyrir 9
ára skólanemendur. Öll skóla-
börn fædd 1966 hafa rétt til þátt
töku í keppni þessari.
Heiti verkefna:
1. Á leið í skólann.
2. Hjálpsemi við aldraða.
' 3. Sendiferð.
Aðferð við myndgerð er frjáls
(teiknað, litað, málað, mótað
o. s. frv.). Æskilegt er að stærð
teiknaðra og málaðra mynda sé
ekki minni en 30x40 cm.
Tilgangur með keppni þessari
er að vekja nemendur til um-
hugsunar um umferðina, og til
að rifja upp þá fræðslu sem
þeim hefur verið veitt. Kennar-
ar hafa verið beðnir að ræða
viðfangsefnið við nemendur
áður en vinna við það hefst til
að auka skilning og áhuga nem-
enda. Þar er t. d. lögð áhersla á
umræður um staðbundnar að-
stæður sem hver og einn hefur
við að glíma.
10 verðlaun verða veitt:
1. Reiðhjól, Raleigh 24“, gef.:
Fálkinn h.f., Rvík. 2. íþrótta-
búningur, gef.: Sportvöruversl-
un Ingólfs Óskarssonar, Rvík.
3.—10. Bækur úr foókafl. Lönd
og landkönnun Handan við sjón
deildarhring, gef.: Bókaútg.
Örn og Örlygur, Rvík.V
Skilafrestur ■ skólanna er til
1. mars 1976 og skal senda
myndir til Guðmundar Þor-
steinssonar umsjónarkennara í
umferðarfræðslu, Gnoðarvegi
44, Reykjavík. Dómnefnd skipa:
Árni Þór Eymundsson upplýs-
ingafulltrúi, Borghildur Óskars
dóttir myndlistarkennari og
Þórir Sigurðsson námsstjóri.
(Fréttatilkynning)
förum, er hringsóluðu um tungl
ið eða væru á leið til Mars til
að athuga, hvort þar væri menn
að finna. Svo hátt flug áttu hug
myndir okkar ekki. Þær snerust
um álfa, huldufólk og forynjur
samkvæmt tíðarandanum.
Má ég draga langa sögu sam-
an í kjarna? Þegar mannsand-
inn hefur risið hæst í hugsjón-
um til framkvæmda, hefur
efinn, tregðan og vantraustið
jafnan bært á sér. Það varð að
vísu að gera margar tilraunir
óður en síminn, hljóðvarpið,
ratsjáin og sjónvarpið verkuðu
á þann hátt, sem er svo sjálf-
sagt í dag, að óeðlilegt væri, ef
þau gerðu það ekki. En, það
tókst eigi að síður, þrátt fyrir
allar hrakspár, neikvæða af-
stöðu og blinda fordóma. Með
réttu er hægt að segja, að þetta
viðhorf hefur verkað sem
hamla á öll vísinda- og hug-
sjónaleg afrek.
í ljósi þess, sem að framan
segir er gild ástæða til að minna
á, að hugtakið „það er ekki
hægt,“ er úrelt nú á tímum.
Sérhver, sem það hugsar eða
talar, dæmir sjálfan sig úreltan
forneskjusinna, því allt er mögu
legt. Spekin segir: „Maður get-
ur allt, sem maður vill, ef mað-
ur vill allt, sem maður getur.“
Það, sem áðui^ fyrr var talið
óframkvæmanlegt og menn
voru ofsóttir fyrir að hugsa og
halda fram — jafnvel drepnir —
verkar nú sem sjálfsagt væri.
.... Þess vegna: Það er hvorki
goðgá né firra sem kviulingur-
inn segir. Ef við hjálpmn nógu
dyggilega þeim, sem ánetjast
hafa reykingunum, og losum þá
úr þessum viðjum, fyrirbyggj-
um samtímis, að börnin dragist
út í reykingafenið, riðar sígar-
ettan ekki einungis í sessi,
heldur verður hún blátt áfram
„flæmd af landi brott.“
Þegar við getum svo að lok-
um bætt því allra þýðingar-
mesta við þennan málflutning,
að sjálft Alþingi starfar og
áformar um þessar mundir að
því að gera ráðstafanir til þess
að vinna gegn reykingum ís-
lendinga, er þá ekki ástæða til
að syngja:
'■ ■ I I
Sígarettan í sessi riðar.
Sú átti það of lengi gott.
Unnum henni nú aldrei friðar,
uns hún er flæmd af landi brott.
Göngum til starfsins, aldnir,
ungir
með yfirvaldinu á fullum skrið
atlöguvissir, átaksþungir,
eiturnorninni ei veitum grið.
Þar sem hér er um lífshættu-
legan óvin að ræða, megum við
ekki, drengskapar og mannúðar
vegna, hugsa í smærri sniðum.
| Við áramót 1975—1976.
Jón Hj. Jónsson.
Unnifi áfram vifi Kröflu
Stöðugt er unnið við Kröflu-
virkjun og starfa þar nú 40—50
manns að staðaldri. Jarðskjálft-
arnir hafa ekki valdið skemmd-
um á mannvirkjum, svo vitað
sé, stjórnvöld hafa ekki séð
ástæðu til þess að stöðva eða
fresta framkvæmdum, sem enn
hafá gengið samkvæmt áætlun.
Almannavarnir f Mývatns-
sveit hafa skipulagt mjög vel
sín mál, bæði í sveitinni og við
Kröflu, svo fyrirvaralaust er
unnt að yfirgefa vinnustað við
Kröflu, ef eða þegar þess er
þörf. Þá hefur verið ráðgert að
ýta upp varnargarða, ef til
hraunrennslis kemur, til þess
að varðveita mannvirki.
Fjórir vísindamenn við Raun
vísindadeild Háskólans, þeir
Sigurður Þórarinsson, Þorleifur
Einarsson, Eysteinn Tryggva-
son og Sigurður Steinþórsson,
rituðu iðnaðarráðherra bréf í
síðustu viku og töldu óráðlegt
að halda áfram virkjunarfram-
kvæmdum við Kröflu vegna
Bændðklúbbsfundurinn
Saga Jónsdóttir og Þórir Steingrímsson i hlutverkum sínum í Gler-
dýrunum, sem mikið orð fer af. (Ljósmyndastofa Páls)
Fyrsti Bændaklúbbsfundur á
þessu ári var haldinn á Hótel
KEA sl. mánudagskvöld. F-ram-
sögumaður var Gunnar Sigurðs
son fóðurfræðingur frá Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins.
í fróðlegu framsöguerindi
kom meðal annars fram nauð-
syn þess að vanda alla fóður-
öflun sem best, þannig að gæði
þess fóðurs sem notað væri
væru sem mest. Margir þættir
geta haft þar áhrif á s. s. gras-
tegundir, sprettustig grasa,
ERFIÐ FJÁRLEIT BÁRÐDÆLINGA
Stórutungu, 10. janúar. Þótt
snjólétt sé, er fé alveg á gjöf,
sem er farið að þykja eðlilegt,
þar sem ekki þarf lengur að
„telja stráin“ eins og nálgaðist
fyrr á árum.
Hér í sveit sem víðar annars
staðar er fylgst með landhelgis-
deilunni og bretar eiga hér enga
velunnara, svo sem eftirfarandi
vísa hagorðs bónda sýnir:
Hertu þig Norðri, hertu á
hrektu þá bresku dalla
þangað sem engan fisk er að fá.
Fjandinn hirði þá alla.
Ekki veit ég hvort bóndi þessi
er kraftaskáld.
Jarðhræringar finnast hér í
sveit og eru þeir í sambandi
við meiri jarðskjálfta annars
staðar.
En fleira gerist en að framan
er sagt. I haus.t gekk víða illa
að ná fénu af fjalli og á sumum
bæjum vantaði svo margt fé,
svo sem á Mýri og Bólstað,
fremstu bæjunum að vestan-
verðu í Bárðardal, að einhvern
'tíma hefði verið talið til gjörn-
inga eða útilegumanna. En lík-
lega hefur sumt af því, sem
kennt var vondum heimtum
áður fyrr, verið af svipuðum
toga og nú.
Menn undu þessum heimtum
illa og því fóru þeir bræður
Tryggvi og Héðinn frá nefndum
bæjum í fjárleitir sunnudaginn
11. janúar. Daginn áður höfðu
þeir athugað Mjóadalsá, sem
margir kannast við og er á
Sprengisandsleið, oftast mein-
leysisleg á sumrin þegar sú leið
er farin. Nú var hún hins vegar
eins og forynja, stoppfull af
krapi og engan veginn fær. En
frost voru mikil og leit út fyrir,
að krapið myndi frjósa vel.
Lögðu þeir bræður af stað suð-
ur frá Mýri, vestan ár og héldu
suður í Mjóadal, þar sem loks
var fær ís á ánni. Þeir leituðu
dalinn með sér suður og svæðið
þar fram af, allt suður að Kiða-
gili, austur um, að Skjálfanda-
fljóti, norður um Kvíar að
Helgastöðum. Þar fundu þeir
sex ær, sem þeir áttu feðgar
Héðinn, Tryggvi og Höskuldur.
Þarna höfðu þær góðan haga.
Ær þessar ráku þeir norður
í Lækjadali. Þar var einnig
hagi. Aftan í öðrum vélsleðan-
um höfðu þeir félagar léttan
sleða, „þotu“ og komu þrem
ánum með sér norður að Mjóa-
dalsá en þrjár urðu eftir á sæmi
legum haga. Ætluðu þeir að
sækja þær síðar. Ferðin gekk
greitt og er þeir komu að ánni,
var hún óbreytt. Komust þeir
ekki yfir, óku fram í Mjóadal,
þar yfir ána og héldu heim, en
höfðu skilið ærnar eftir við
Mjóadalsá.
Að morgni næsta dags, 12.
janúar, átti að sækja ærnar,
sem vera áttu við Mjóadalsá,
og var þá allur ís horfinn, en
aðeins ruðningur eftir við bakk
ana, en sjálf var áin „niðri í
grjóti“. Auðvelt var því að
koma ánum yfir, þótt kalt væri,
25 gráðu frost. En það var ekki
langt til húsa. Meira var ekki
gert þann daginn. Dagurinn leið
og annar rann upp, 13. janúar,
og þá héldu þeir bræður enn af
stað til þess að sækja kindurnar
þrjár í Lækjardölum. í Lækjar-
dölum fundu þeir kindurnar
ekki og urðu að hverfa frá við
svo búið. En 14. janúar vai* enn
frost og bjart og þá var enn
haldið af stað. Fundu þeir þann
dag ærnar í Hrafnabjargahlíð
og var þar haglaust. Settu þeir
ærnar á sleða sinn og héldu
heim á leið, allt að Mjóadalsá,
þar sem Ingileif á Bólstað tók
ó móti þeim og rak ærnar heim,
en bræður urðu að fara sinn
fyrri krók til að komast yfir
ána með sleðana, en þessi krók-
ur og heim að Mýri mun vera
50—60 km. Þ. J.
verkun og geymsla á fóðrinu.
Allir þessir þættir þurfa að
vera í góðu lagi til þess að góð-
ur árangur náist í fóðrun.
Þá gat framsögumaður þess
að komið hefði fram í tilraun-
um að miðað við að ekkert
kjarnfóður væri gefið þá gæti
kýrin etið um 12,8 kg af þurr-
efni í heyi, en við hvert kg þurr
efnis í kjarnfóðri þá minnkaði
það magn þurrefnis í heyi sem
kýrin æti um 370 gr.
Þá kom það einnig fram í
framsöguerindi að graskögglar
eru fyllilega eins gott fóður og
kjarnfóður að því marki sem
gæði þeirra segja til um. Gras-
köggla má bæta mjög mikið
með íblöndun á fitu og hafa
farið fram tilraunir með slíka
íblöndun sem sýnt hafa mjög
góðan árangur og hefur verið
notuð allt að 7% íblöndun í
grasköggla. Benti frummælandi
á að hér á landi væri mjög
mikið magn til af fitu og mætti
örugglega draga stórlega úr inn
flutningi á kjarnfóðri með því
að nýta þá möguleika sem fel-
ast í graskögglum og fitu.
Þá sýndi framsögumaður
kvikmynd frá rannsóknastöð í
Hollandi og Danmörku þar sem
fram fara ýmsar mælingar á
nýtingu dýra á fóðri.
Að loknu framsöguerindi
vom fyrirspurnir og umræður.
Um 35 manns sóttu fundinn
og er það með lélegri fundar-
sókn á fundi þessa. Fundar-
stjóri var Haukur Steindórsson
í Þríhyrningi. □
ALLIRIVERKFALL"
Bæjarlýsingar og feikningar úr Eyjafirði fram
Nýlega er út komin hjá SÖGU-
FÉLAGI EYFIRÐINGA bókin
BÆJ ARLÝSINGAR OG
TEIKNINGAR ÚR EYJA-
FIRÐI FRAM (140 bæir fyrir
og um síðustu aldamót) eftir
JÓNAS RAFNAR fyrrum yfir-
lækni á Kristneshæli. Bókin er
í takmörkuðu upplagi og verð-
ur hvorki send félagsmönnum
né öðrum föstum áskrifendum,
fyrr en vitað er hvort þeir vilja
hana í forlagsbandi eða óinn-
bundna. Þetta er þriðja bindið
í ritröðinni EYFIRSK FRÆÐI:
1.1. h. Eyfirðingarit (eyfirskir
þættir), óib., verð 400 kr.
I. 2. h. Bændur og búhagir í
Amarneshreppi 1824—1960 e.
Hannes Davíðsson, Hofi, óib.,
verð 800 kr.
I. 3. h. Akureyrarþættir (er í
undirbúningi og kemur út ó
yfirstandandi ári), óib.
II. Sýslu- og sóknalýsingar
Eyjafjarðarsýslu 1837—1854,
óib., verð 1200 kr.
III. Bæjarlýsingar og teikn-
ingar, innbundin í vandað for-
lagsband verð 5760. Félagsm.
verð 4032 kr., óib. 2760 kr.
Söluskattur er innifaliim í
tilgreindu verði.
Skilyrði fyrir lægra verðinu
er að teknar séu allar bækur
félagsins. Sé pantað eftir þess-
ari skrá og fylgi greiðsla pönt-
un, verða bækurnar póstlagðar
án aukakostnaðar.
Afgreiðsla Sögufélagsins er í
Lönguhlíð 2, Akureyri (hjá
Jóhannesi Óla Sæmundssyni).
I í
Sögufélag Eyfirðinga,
Akureyri.
u
Gamanleikurinn „Allir í verk-
fall“ var frumsýndur að Mel-
um í Hörgárdal 16. þ. m., en
alls er búið að sýna hann 5 sinn
um. Aðsókn hefur verið allgóð
og leiknum vel tekið. Umf.
Skriðuhrepps stendur fyrir
þessari leiksýningu, en leik-
stjóri er Júlíus Oddsson, Akur-
eyri. Höfundur þessa leikrits er
Duncan Greenwood en þýðandi
Torfey Steinsdóttir. Leikendur
eru: Þórður Steindórsson, Arn-
steinn Stefánsson, Sesselja Ing-
ólfsdóttir, Ásta Finnbogadóttir,
Gísli Pálsson, Þórunn Guð-
mannsdóttir og Snjólaug Páls-
dóttir.
Leikrit þetta, „Allir £ verk-
fall“ er fyrst og fremst gaman-
leikrit, þar sem mýmörg spaugi
leg atvik og virkilega smellin
tilsvör koma fram, en bak við
allt gamanið leynist viss ádeila,
sem margir hefðu gott af að
hugleiða.
Ekki verður fjallað um
frammistöðu hvers og eins leik-
ara, en margt gera þeir vel, t. d.
er framsögn þeirra yfirleitt góð.
Það er mikið átak hjá fá-
mennu félagi, við erfiðar að-
stæður, að standa að svo öflugri
15.00.
Þ. J.
hættu á eldgosum. Þeir minntu
á Mývatnselda fyrir 250 árum
og gosið í Leirhnjúk tuttugu
árum síðar og í Sveinagjá fyrir
hundrað árum, segja að í
Sveinagjárgosinu og Mývatns-
eldum hafi orðið sambærilegar
jarðskjálftahrinur og nú eru í
Mývatnssveit.
Vinnuflokkurinn í Kröflu
vinnur að því nú, að styrkja
stöðvarhúsið, en þar átti meðal
annars eftir að steypa þak á
strengjasteypubita.
í skugga náttúruhamfara á
hinu nýja virkjunarssvæði,
verða menn að leiða hugann að
því, að ef tafir verða þar á fram
kvæmdum eða stöðvun, verður
að leggja alveg sérstaka áherslu
á byggðalínuna að sunnan. □
Gunnlaugur Tryggvi
Kristinsson,
Karlsbraut 24, Dalvík. ^
Fæddur 21. október 1916.
Dáinn 30. desember 1975.
Flutt við útför. i
6. janúar 1976.
KVEÐJA FRÁ EIGIN- 1
KONU OG DÓTTUR. j
Þökk og kveðja |)
þér skal goldin -» I
vinur, með virðing djúpri,
ofin í angurværð
1 frá innstu rótum jt
1 nú, að leiðarlokum. , ,
leikstarfsemi sem Umf. Skriðu-
hrepps hefur gert á undanförn-
um árum og eiga allir, sem þar
hafa lagt sitt lið fram, bestu
þakkir skilið.
Með góðri samvisku er hægt
að hvetja fólk til að sækjá þessa
leiksýning'u Umf. Skriðuhrepps,
ef það vill gera geði sínu daga-
mun.
Næsta sýning verður í Lauga-
borg í kvöld (miðvikudag)
klukkan 21.00 og síðan í Hlíðar-
bæ sunnudaginn 1. febrúar kl.
Fengum við gjörla
fyrr og síðar
ríkulega að reyna:
ástrikur faðir
og eiginmaður
varstu í verki og orði.
Á alla lund
og ævinlega
lilúðir að okkar högum.
Umliyggju sýndir
og ósérhlífni
nætur og nýta daga.
i jl
ii
Leiknir í heimsókn
Um síðustu helgi fóru fram
tveir leikir í íslandsmótinu í
handknattleik, annarri deild, í
íþróttaskemmunni á Akureyri.
Það var Leiknir, Reykjavík,
sem sótti Akureyri heim og lék
við Þóx- á laugardaginn. Leiknir
sigraði í þeim leik með 24—23.
Á sunnudag lék Leiknir við KA.
KA sigraði með yfirburðum,
36—22.
KA-liðið er nú í öðru sæti í
deildinni með 14 stig, en Þór
hefur hlotið 4 stig. Q
Hógvær, liljóður
og lilýsinnaður
gekkstu götu þína.
Æðraðist aldrei
þó öndvert blési
lífs í önn og erli.
, : f,
I ’ i
' \
! '1
'Ú I
'Þ S,
Minningar margar, * \
mærar og ljúfar 1
hugans á skuggsjá skarta, i
okkur á ókomnum
ævidögum 1
hita xmi hjartarætur. \\ ;1
Vertu sæll, vinur, 1 fi
á vegferð nýrri i
fylgi þér fararheill. > i
Nýárssól í
yfir nýjum miðum
skíni þér lieið og hlý. 1
H.Z, j