Dagur - 28.01.1976, Blaðsíða 1

Dagur - 28.01.1976, Blaðsíða 1
Viðræðurnar viS breta Um hádegi í gær stóðu enn yfir viðræður á milli ríkisstjórna ís- lands og Bretlands í London og vörðust samninganefndarmenn- irnir enn allra frétta. En búist var við yfirlýsingu að þeim fundi loknum. Þar eigum við Kasthvammi, 10. janúar. Ég tel snjóinn lítinn þótt óþægilegir kaflar séu á veginum, einkum í Gljúfrunum, en hann var hreinsaður f gær. Betra færi var á vegum um síðustu jól og áramót en nokkur undanfarin ár og var það vel notað. Unga fólkið kom heim í dalinn, bæði úr skólum og vinnu og fjörgaði það lífið. Vel var kirkjan sótt að Þverá milli hátíða þvf þang- að komu flestir úr sókninni og einnig burt fluttir laxdælingar, ásamt skylduliði. Er ölíu þessu fólki jafnan vel fagnað er það kemur heim. Það hefur lengi verið siður á Þverá, að gefa öllu messufólki kaffi eftir messu, hvort sem það er fleira eða færra. Við þau kaffiborð hefur Þverársöfnuður átt skemmtilegar stundir með presti sínum, prestfrú, forsöngv ara og gestum. Þakkar söfnuð- urinn þessar stundir. Ég vildi fá Jón Jónsson á Húsavík til að spá með mér góðum vetri, en ekki sá hann sér það fært. G. Tr. G. Krossgáfan Krossgátan var síðast á dagskrá sjónvarpsins fyrir þremur ár- um. Að þessu inni verða fluttir fimm þættir, og verða þeir sendir út annan hvern laugar- dag. Þættirnir verða með svip- uðu sniði og síðast. Fyrsti þátt- urinn var 24, janúar. Þeim, sem heima sitja, gefst kostur á að senda lausnir til sjónvarpsins, og er til verðlauna að vinna. Kynnir Krossgátunnar er Edda Þórarinsdóttir leikkona og höf. Andrés Indriðason. □ feppsf I hádegisfregnum frá London í gær segir, að svo virðist sem togvíraklipping Týs hafi komið samninganefndarmönnum á óvart. Samningafundirnir höfðu staðið í 15 klukkustundir sam- tals um hádegi í gær, en þeir hófust á laugardaginn. Bresku togararnir á íslands- miðum fengu þær orðsendingar frá bresku stjórninni á mánu- daginn, að þeim væri leyfilegt að veiða, en skyldu þó hífa inn veiðarfærin ef varðskip nálgað- ist. Varðskip hafa fylgst með togurunum og hafa þeir mjög lítið geta veitt undanfarin dæg- ur. Um 40 breskir togarar eru nú á íslandsmiðum, langtum fleiri en venjulegt er á þessum árstíma og þykja ruddalegar aðfarir, eins og fleira úr þeirri átt. ex$xsxsx$>3xs>3xíxíxsxíKSx$KíxsxMKSx?x$xs><s><^$<í>3xsxíxsxMx$xsxexíxsx®KSxs><s*$Kíxsxíxe*^x$^xsx$xsxsxsx$x5><s><sx®KSxíxsx$xs><sxsxsxíx^KS rn I Séð yfir eitt af nýjum hverfum Akureyrar. (Ljósm.: E. D.)j Tekjur bæjarsjófis Hkureyrar yfir milljarður kröna Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Ak- ureyrarkaupstaðar var til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi í gær, þriðjudag. En unnið hefur verið að henni undanfarnar vik ur. Áætlaðar tekjur fara nú í fyrsta skipti yfir einn milljarð króna og er hækkunin rúm 30% frá fyrra ári. Hækkanirnar stafa meðal ann ars af verðbólgunni, aukinni veltu, aukinni hlutdeild bæjar- Vegir geta nú lokast á lítilli stundu, sagði Björn Brynjólfs- son hjá Vegagerðinni fyrir há- degi í gær. Öxnadalsheiði er fær, sagði hann, en veður er vont þar, en ekki mikill snjór. En á mánudaginn voru vegir um Vallabakka, Vatnsskarð og Holtavörðuheiði ófærir. í dag á að reyna að opna til Blönduóss. Á mánudaginn var vegurinn til Ólafsfjarðar opnaður og einnig til Húsavíkur. Þann dag voru mjólkurbílar aðstoðaðir í Saur- bæjarhreppi og Hrafnagils- hreppi. Þar sem nú er útlit á versnandi veðri, geta vegir teppst á lítilli stundu, sagði Björn að lokum. □ sjóðs í jöfnunarsjóði og nokk- urri hækkun á gjaldstiga að- stöðugjalds, sem nú er notaður til fulls, samkvæmt lögum. Svokölluð rekstrargjöld hækka hliðstætt, en þó nokkuð misjafnlega mikið. Einna mest hækkar framlag til félagsmála, eða úr 117 milljónum í 171 milljón króna. En þar eru stærstu liðirnir framlag til sjúkra- og atvinnuleysistrygg- inga 69 milljónir, framlög til sjóða 28 milljónir og til reksturs barna- og dagheimila 35 milljón ir. Til menntamála eru áætlað- ar 130 milljónir króna, á móti 90 milljónum á síðasta ári. Lið- irnir félagsmál og menntamál hækka m. a. vegna nýrra laga, sem kveða á um, að ríkið hætt- ir þátttöku í kostnaði við vissa þætti, svo sem að styrkja dag- heimili og viðhald skóla. Einn stærsti liðurinn af ein- stökum gjaldaflokkum er gatna gerð, skipulag og bygginga- eftirlit, en til þeirra mála er áætlað að þurfi 238 milljónir króna. Þar af er áætlað að fari til nýrra gatna og endurbygg- ingar gamalla gatna, holræsa og fleiri nýverka 150 milljónir (Framhald á blaðsíðu 2) Akureyringar keppa á Ólympíuleikunum 1 Héðan frá Akureyri eru ný- farnir til Austurríkis keppend- ur, sem þátt taka í vetrar- Ólympíuleikunum fyrir íslands hönd, þeir Árni Óðinsson, Haukur Jóhannsson og Tómas Leifsson, sem allir keppa í alpa- greinum, og til viðbótar Hall- dór Matthíasson, einnig frá Akureyri, en hann hefur dvalið erlendis við ngm og keppir hann í göngu. r Er þetta gott framlag akur- eyringa í sveit íslendinga. □ llllllliliillllllllllllTlllllllllllllllllllllllllllllllillllllllliIIIIIIIIIIII RÍKISSTYRKUR I TIL BLAÐANNÁ Hermsnn Jónasson er láfinn Hermann Jónasson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, andaðist 22. janúar, eftir langvarandi vanheilsu. Hermann var fæddur 25. desember 1896, skagfirskur bóndasonur, lögfræðingur að menntun. Lögreglustjóri í Reykjavík varð hann árið 1929, þingmaður strandamanna 1934 og eftir þær kosningar varð hann forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn og síðan um áratuga skeið einn mesti áhrifamaður í íslenskum stjórnmálum. For- maður Framsóknarflokksins var hann 1944—1962. Hann lét af þingmennsku 1967. Hermann Jónasson var gáf- aður maður og vaskur svo af bar, glímukóngur íslands árið 1921 og mikið glæsimenni. Með honum er genginn einn af eftir- minnilegustu þjóðmálaskörung- um landsins á þessari öld. Eftirlifandi kona hans er Vig- dís Steingrímsdóttir. □ „Blaðstjórn Dags á Akureyri saniþykkir á aðalfundi sínum 24. janúar 1976, að beina þeirri ákveðnu ósk til stjórnvalda, að stærri liluti ríkisstyrks til blaða útgáfu landsmanna renni til blaða utan Keykjavíkur en nú er. Tillaga blaðstjómar Dags í þessu efni er sú, að styrkur ríkissjóðs til dreifbýlisblaða, sem eru vikublöð og koma reglulega út allt árið, nemi kr. 1.000.000,00 — einni milljón króna — á ári, miðað við nú- verandi verðlag og átta síðu blöð í venjulegri dagblaðs- stærð. Styrkurinn verði hlut- fallslega minni eða meiri ef um r annan tölublaðafjölda er að ræða og verði liann veittur beint til viðkomandi blaða. Er þess vænst að þingmenn þessa kjördæmis, svo og aðrir alþingismenn dreifbýlisins, fylgi máli þessu fast fram.“ Þessi ályktun blaðstjórnar er í beinu framhaldi af þeirri stað- reynd, að landsbyggðarhlöðin hafa ýmist engan opinberan styrk fengið,. hér norðanlands a. m. k.. á síðasta ári, eða svo óverulegan að vart er nefnandi. En dagblöðin í höfuðborginni njóta margra milljóna króna hvert. í þessu efni liefur byggða stefnan brugðist illa og þarf úr að bæta. □ llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.