Dagur - 04.02.1976, Blaðsíða 1

Dagur - 04.02.1976, Blaðsíða 1
- * •* - áKð m v LIX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 4. febrúar 1976 — 5. tölubl. wm &odák tvda^ifevat FILMUhúsið akureyri W] Verkföl! 17. febrúar? Alþýðusamband íslands og verkalýðsfélögin innan þess, sem nú hafa lausa samninga, búa sig undir allsherjar verk- fall 17. febrúar, hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Samningaviðræður virðast ekki hafa borið verulegan árangur til þessa. En þess er að vænta, að samningamálin verði nú tekin föstum tökum fram til 17. febrúar. □ Dagur kemur næst út miðvikudaginn 11. febrúar. Eru þeir afl undirbúa stjórnarslitin? Rógsherferð sú, sem beint er um þessar mundir að dómsmála ráðherra, Ólafi Jóhannessyni, hefur vakið mikla spennu um land allt. Nokkur dagblöð í Reykjavík hafa sameinast um herferð þessa, og svo langt var gengið, að færa rógsmálin inn í sali Alþingis á mánudaginn. Var verulegum hluta þess þing- fundar sjónvarpað, og má um hann segja, að þar snerist vöm í sókn á eftirminnilegan hátt. Menn velta því fyrir sér, hvernig það megi vera, að blöð sjálfstæðismanna skuli beina hnífum sínum í bak eins ráð- herrans á meðan Framsóknar- flokkur og Sjálfstæðisflokkur fara sameiginlega með stjórn landsins. Og menn hljóta að Stríð fremur en Kópavogssamninga Gunnarsstöðum, 2. febrúar. Á laugardagskvöldið blótuðum við þorra á Þórshöfn og’öllum líður vel. Hlákubloti var hér á laugar daginn. Snjór er lítill, þótt all- miklir skaflar séu við hús, og vegir eru greiðfærir, svo sem til Raufarhafnar og Bakka- fjarðar. Afli er enginn, að kalla. Tal- aði ég við sjómann, sem er með 40 tonna bát. Hann hefur verið með net síðan 9. janúar og hef- ur aðeins aflað 5 tonn af fiski. Menn hafa mikinn hug á grá- sleppuútgerð þetta árið og búa sig undir hana. Fyrra sunnudag fundust hér jarðskjálftakippip en ekki síðan. Sprunga kom í nýbyggða hlöðu og fjárhús í Hagalandi. Um aðrar skemmdir er mér ókunn- ugt. Fyrir hálfum mánuði fannst lamb niður við sjó, á milli bæja, sem úti hefur gengið í vetur og var það hrútur, nokkuð vel á sig kominn. Það getur lengi leynst lamb undir steini, þótt ekki sé það grátt. Menn ræða hér í sveit um Búa sig undir grásleppuveiðar Grímsey, 2. febrúar. Veðrið er alveg ljómandi og hefur svo verið síðustu daga. Aðeins einn bátur rær hér eins og er, og er það Bjargey og aflar sæmilega vel þegar á sjó gefur, en óstillt veðurfar hefur mjög hamlað sjósókninni það sem af er árinu. Við vorum að skemmta okkur á þorrablóti um helgina. Þar skemmtu menn sér hið besta. Kvenfélagið hér í eynni hefur haldið dansleiki og spilakvöld, sem flestir taka þátt í, á meðan hlé er á sjósókninni. Menn eru að undirbúa sig á grásleppuveiðarnar. Matgir freista gæfunnar í því efni, enda lítur út fyrir hækkandi verði á grásleppuhrognum þetta árið. S. S. landsmálin og mikið síðustu daga, m. a. um landhelgismálin og virðast menn ekki samninga- fúsir, þeir sem ég hef talað við. Þeim finnst lítið til skiptanna og þótt menn séu í eðli sínu friðsamir, vilja þeir frekar stríð en Kópavogssamninga. Ó. H. velta þeirri spurningu fyrir sér, hvort sjálfstæðismenn séu að undirbúa stjórnarslit, með þess um ógeðslega hætti. Stjórnmála slit geta verið eðlileg ef djúp- tækur ágreiningur verður milli stjórnarflokka. En rógburður, þótt skipulagður sé, gegn þeim stjórnmálaforingja, sem þjóðin ber mest traust til um þessar mundir, mun mistakast herfi- lega. Um þessi mál er nánar rætt í forystugrein blaðsins í dag. Gunnar Thoroddsen hefur gefið út opinbera yfirlýsingu og segir í niðurlagi hennar: „Ég vil taka það fram, að ég hef skömm á skrifum blaðsins (Vísis) undanfarna daga um dómsmálaráðherrann.“ Landhelgisviðræðumar. Síðdegis í gær ætlaði Geir Hallgrímsson forsætisráðherra að gefa Sameinuðu þingi skýrslu um viðræður sínar við Wilson forsætisráðherra breta á dögunum og hefur blaðið ekki tækifæri til að bíða frétta a£ þeim þingfundi. Q Ekkert fiskimagn til að semja um við breta Ólafur Jóhannesson, dómsmál ar áðher ra. í útvarpsþættinum „Bein lína“ á sunnudaginn svaraði Olafur Jóhannesson dómsmálaráðherra spurningu fréttamanns á þessa leið: Mín persónulega skoðun er sú, að það sé enginn eða nær enginn grundvöllur fyrir sám- komulagi við breta. Framsókn- Jóhannes Óli Sæmundsson heiSraður Fimmtudaginn 29. janúar af- henti formaður Akureyrardeild ar Rauða krossins, Halldór Hall dórsson læknir, Jóhannesi Óla Sæmundssyni heiðursmerki R.í. úr silfri vegna frábærra starfa fyrir vangefna. Rauði kross Islands heiðraði Hjálmar Vilhjálmsson ráðu- neytisstjóra, Árna Björnsson, Árna Gunnarsson og Guðrúnu Brandsdóttur á sama hátt í Reykjavík 19. desember sl. Jóhannes Óli Sæmundsson var fyrsti formaður Styrktar- félags vangefinna á Akureyri, sem gekkst fyrir byggingu Vist- heimilisins Sólborgar. Sagt er, að þetta heimili vangefinna hefði ekki risið ef Jóhannesar hefði ekki notið við, og víst er, að hann var driffjöður félagsins og framkvæmdanna öðrum fremur. Jóhannes Óli Sæmundsson er af Árskógsströnd ættaður, varð snemma barnakennai'i og skóla- stjóri, og námsstjóri á Austur- landi um margra ára skeið. Síðari árin hefur hann stundað fornbóksölu og einnig annast útgáfu bóka og rita. Ðlaðið árnar honum 'heilla með þá viðurkenningu, sem Rauði krossinn hefur veitt hbnum. Q BÍLAINNFLUTN- INGURINN 1975 Bílainnflutningur árið 1975 drógst mjög saman, enda orðin mikil bílaeign í landinu. Alls voru fluttir inn 3.494 bílar á móti 10.633 árið 1974. Mest var flutt inn af Ford Cortina, 226 bifreiðar, þá Mazda 929, 144 bifreiðar. Landrover er í þriðja sæti og voru 117 fluttir inn af þeirri tegund og 109 af Ford Excort. Q arflokkurinn hefur ekki tekið formlega ákvörðun í þessu efni, en ég geri ráð fyrir því að stefna hans fari ekki langt frá skoðun minni. Ástæður mínar fyrir þessari skoðun eru þær, að bretar hafa fengið umsam- inn, réttmætan umþóftunar- tíma. Þeir hafa komið þannig fram síðan samningurinn rann út, með hernaðarárás og öðrum hætti, að ekki er ástæða til þess að sýna þeim sérstaka linkind. Og í þriðja lagi er ekkert fisk- magn í raun og veru afgangs til að semja um. i Þessi ummæli dómsmálaráð- herra vöktu mikla athygli og voru fyrstu fréttir breska út- varpsins á mánudagsmorgun- inn og einnig forsíðuefni blaða þar í landi og víðar. |i Samkvæmt framangreindum ummælum dómsmálaráðherra, sem jafnframt er formaður, Framsóknarflokksins, þykja nú ekki lengur miklar horfur á, að samið verði við breta að þessu sinni um fiskveiðar í íslenskri landhelgi. Q Hafði sjóræningjafána Týr klippti á mánúdaginn báða togvíra bresks togara, er eng- um fyrirmælum hlýddi og hafði auk þess uppi sjóræningjafána í ögrunarskyni. Löndunarbið á VopnafirSi F. Vestm. tók þessa Ijósmynd af athöfninni. Vopnafirði, 2. febrúar. Snjólétt hefur verið í allan vetur og svo er enn. Vegir eru því greiðfærir og löngum fært um Sandvíkur- heiði til Bakkafjarðar. I vetur hefur verið of lítil atvinna í kauptúninu, en nú eru komin 9500 tonn af loðnu til síldarbræðslunnar og þrær fullar. Góð atvinna verður á meðan loðnubræðslan fer fram. Og svo er Brettingur á veiðum og landar sínum fiski hér. Eitt fiskiskip gefur að vísu ekki alveg stöðuga atvinnu, ef ekki berst afli á land úr öðrum skip- um eða bátum til uppfyllingar. Fólk blátar að venju þorra og öðru hverju er eitthvað til til- breytingar. Til marks um það tóku áhugamenn í menningar- málum sig til og boðuðu til kvöldvöku, sem var einstaklega vel sótt og hin besta samkoma með heimafengnu skemmtiefni. Verður vonandi framliald á þessu hjá þeim, þvi þetta er vel þegið og auðvitað vel hægt ef vilji er fyrir hendi og einhverjir vilja leggja það á sig að undir- búa skemmtikvöld af þessu tagi. Þ. Þ.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.