Dagur


Dagur - 08.09.1976, Qupperneq 1

Dagur - 08.09.1976, Qupperneq 1
Síðdegis á miðvikudag í síðustu viku var kært til lögreglunnar é Akureyri út af fölskum ávís- unum, sem komnar voru í um- ferð. Rannsókn var þegar hafin og beindist grunur að ungum manni, sem selt hafði ávísanir í verslunum í bænum og keypt nokkuð af vörum. Maður þessi leigði sér flugvél og var á leið 3'uður, en lögreglan lét flug- manninn snúa við, lenda á Akur eyrarflugvelli og handtók mann inn, sem síðan er í vörslu lög- reglunnar og hefur játað á sig verknaðinn. Vörurnar hafa komið í leitirnar, sem hann sveik út í verslunum. Sami maður hefur játað innbrot, ásamt öðrum, í Reykjavík skömmu áður og var með stimpla og nokkur stolin ávís- anahefti fyrirtækis í Reykjavík og hafði gefið út nokkrar ávís- anir áður en hann fór norður. Ávísanirnar, sem maðurinn gaf út hér á Akureyri, voru yfir 100 þúsund krónur. (Samkvæmt viðtali við Gísla Olafsson yfirlögregluþjón) □ Blaðið náði sem allra snöggvast tali af Hirti Eiríkssyni fram- kvæmdastjóra Iðnaðardeildar SÍS í gærmorgun og spurði hann um örfá atriði í sambandi við framleiðslu Iðnaðardeildar í sem fæstum orðum gat hann þess, að útflutningsframleiðsla iðnvara til Sovétríkjanna yrði á þessu ári 7—800 millj. kr. Þetta eru hvers konar prjónavörur, værðarvoðir og svo fimm þús- und mokkakápur. Þessar vörur eru að mestu framleiddar í verk smiðjunum á Akureyri en Sambandsverksmiðjurnar á Gleráreyrum á Akureyri. (Ljósm.: E. D.) sfð ek framleifia einnig á minni framleiðslustöð- um Iðnaðardeildar á öðrum stöðum á landinu. í sambandi við mokkakáp- urnar má segja, að þær eru orðnar mjög eftirsóttar. Þær dýrustu kosta í smásölu um 130 þúsund krónur hér heima og eru þær skreyttar með kraga úr þvottabjarnarskinnum, sem eru ákaflega dýr, eða álíka og allt annað efni kápunnar. Án þess- ara dýru skinna kosta kápurnar um helmingi minna. Framleiðsla mokkakápanna er í nýlega keyptu húsnæði, þar sem áður var trésmíðaverkstæði Einis. Heita má, að unnið sé í verk- smiðjunum dag og nótt og hefst þó engan veginn undan eftir- spurninni og er öll framleiðsla þessa árs og fram á það næsta fyrirfram seld frá vérksmiðjum samvinnumanna. Um 800 manns vinna hjá Iðnaðardeild SÍS og þar af nær 700 á Akureyri. Q Unnið við hifaveituna á Sigiufirði Orka frá Kröflu og Sigöldu verður hliðsfæð í verði Með gleiðletruðum fyrirsögnum sögðu sunnanblöð frá því í byrjun þessa mánaðar og höfðu fréttina frá Fjórðungsþingi Norðlendinga á Siglufirði, að raforkuverð frá Kröflu yrði 200% dýrara en orku- verð á svæði Landsvirkjunar. Mönnum hnykkti við, en þegar betur var að gáð, var fregnin á misskilningi byggð. Framkvæmdastofnun ríkisins leiðrétti hina óskammfeilnu og frá- leitu fregn með þeirri yfirlýsingu, að með því að reikna áætlað rafórkuverð frá Kröflu og Sigöldu á sama hátt, yrði raforkuverð virkjananna svipað. Q Byrjað er að bora níundu hol- una í Skútudal við Siglufjörð og er borinn Narfi þar að verki. En áttunda holan, sem nýboruð er, reyndist ónýt. Heita vatnið er nú um 22 lítrar á sekúndu, sjálfrennandi, en búist er við mun meira vatni við dælingu. í vetur voru um 100 hús tengd hitaveitu Siglufjarðar. í sumar er stöðugt unnið að dreifikerf- inu í bænum. Skútudalur er fimm kílómetra frá Siglufjarðar kaupstað og borstaður er svo hár, að vatnið rennur til notk- unarstaðar án dælingar. Atvinna hefur verið mjög mikil á Siglufirði allt þetta ár og oft vantað fólk til starfa, bæði í frystihúsin, Siglósíld og til starfa við hitaveituna. Nokk- uð er um íbúðabyggingar og skammt síðan fhnmtán lóðum undir íbúðarhús var úthlutað og verður bygging hafin á níu þeirra í haust að minnsta kosti. Hér á Siglufirði hafa orðið alger tímamót í atvinnulífinu. Sér þess hvarvetna glögg merki, og nú fjölgar íbúum kaupstaðar ins, gagnstætt því sem áður var. Húsnæðisskortur er hér til- finnanlegur og kemur í veg fyrir innflutning fólks, sem hingað vill koma. Finna forna Það var í okt. 1965, sem vopn fundust í djúpu gili í Grísa- tungufjöllum. Fianandinn var Davíð Gu»narsson, starfsmaður við mjólkursamlasið á Húsa- vík, er kaan var á rjúpnaveið- um. Vopain, sem þá fundust voru þrír atgeirar og sköft. Og eftir raaasókn voru vopn þessi talin síðaa um 1500 eða snemma á sexáadu öld. Mikil og gömul fönn var í þessu aili @g talið líklegt, að vopnin vawru þá nýlega komin undan fönainni. Hinnig var tal- ið hugsanlegt, að fleira kynni að leynast þarna. Nú, eftir hlýtt sumar í þessum landshluta og eftir snjóléttan vetur var talið líklegk, að fönnin í gilinu hefði minnkað svo, að ástæða væri til að svipast þar um. Við fórum svo tuttugu saman úr Rotaryklúbbi Húsavíkur í könnunarleiðangur á fyrrgreind ar slóðir. 1 mikilli grjóturð, upp af fönninni fundum við tæjur eða smápjötlur í gráum og rauðum lit og tréflísar, sem gsetu verið úr sköftum vopna. Fundur þessi gefur til kynna, að fleira kunni að leynast í skrið unni, en hún er geysilega mikil og mikið verk að rannsaka hana. Fönnin mun ekki hafa minnkað í gilinu en e. t. v. hef- ur hún eitthvað breytt sér. Fróðir menn hafa tjáð mér, að annálar segi frá eyfirðingum á leið úr Kelduhverfi, hafi ekki komið fram. Séu þetta leifar frá þeirri för, hafa ferðamennirnir villst af leið, en Grísatungufjöll eru suður af Tjörnesi. Um fyrri fundinn ritaði Krist- ján Eldjárn, þá þjóðminjavörð- ur, og var honum gert aðvart um þennan fund nú. Þ. J. Martin Haselböck orgelleikari. Næstkomandi sunnudagskvöld heldur Austurríkismaðurinn Martin Haselböck orgeltónleika í Akureyrarkirkju. — Martin Haselböck er aðeins 22 ára gamall og hefur nýlega lokið prófi úr orgeleinleikaradeild tónlistarfeáskólans í Vínarborg. Hann hefur haldið tónleika víðs (Samkvæmt viðtali við Boga Sigurbjörnsson skattaendur- skoðanda). Þrjár bílvellur í samtali við lögregluvarðstof- una á Akureyri kom fram að bíll hafði oltið út af vegi hjá afleggjaranum við Kristnes á föstudaginn. í bílnum voru tveir farþegar og viðbeinsbrotnaði annar þeirra. Þá sagði Reymar Þorleifsson lögregluþjónn á Dalvík blaðinu, að aðfaranótt sunnudags hefði bíll oltið norðan við Migindi í Ólafsfjarðarmúla. Endastakkst bíllinn og valt niður 8—10 metra háan vegarkant. Enginn slasaðist en bíllinn varð gjör- ónýtur. Þrennt var í bílnum. Þá valt annar bíll sunnan við Ásgarð, skammt frá Dalvík, og varð þar ekki slys á fólki, en bíllinn skemmdist nokkuð. Báð- ir bílamir voru frá Ólafsfirði. Að öðru leyti hefur umferð gengið án mikilla slysa. Q í Ak.kirkju vegar í Evrópu og hvarvetna hlotið frábæra dóma. Að þessu sinni er hann á leið í tónleika- ferð til Bandaríkjanna. Á efnis- skránni eru verk eftir Muffat, Bach, Messiaen og Reger. Bins og áður sagði eru tónleikarnir n. k. sunnudag og faefjast þeir kl. 21.80. P.O.B. 75 ÁRA Hinn 1 . september var Prent- verk Odds Björnssonar á Akur- eyri 75 ára. Hana stofnaði Odd- ur Björnsson prentmeistari og hóf hann, ásamt margskonar prentvinnu, merka bókaútgáfu. Sigurður O. Björnsson, sonur hans, tók við af honum og síðan hans sonur, Geir S. Björnsson, núverandi prentsmiðjustjóri. Er POB fullkomnasta prentsmiðja utan höfuðborgarinnar, sem auk venjulegrar prentvinnu hefur einnig mikla bókaútgáfu og bókband. Prentun ýmsra blaða hefur prentsmiðjan annast, og hefur Dagur verið prentaður þar frá byrjun eða allt frá árinu 1918. Nú er prentsmiðjan að reisa aýtt prentsmiðjuhús sem er við Tryggvabraut og verður starfsemin væntanlega flutt þangað á þessu ári. Q

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.