Dagur - 08.09.1976, Blaðsíða 8
AUGLVSINGASll
AGU
Akureyri, miðvikudaginn 8. sept. 1976
Barnahnífapör ÉT ^ ... ' ‘ *
og ví y GULLSMIÐIR
barnarammar Jjj V SIGTRYGGUR
nýkomið. 7 & PÉTÚR
^ I AKUREYRI
Hið nýja fjölbýlishús á Sauoárkróki.
Fiórtán íbú
: Stefán Pedersen, Sauðárkróki)
• • ^
nsið
Á Sauðárkróki voru í sl. mán-
uði teknar í notkun 8 íbúðir í
14 íbúða fjölbýlishúsi.
Líkur eru á, að sölutekjur
bænda af útflutningi hrossa á
þessu ári muni nema um eitt
hundrað milljónum króna. Verð
útflutningshrossa frá fyrra ári
er lítið breytt, þegar á heildina
er litið, en verð á einstökum
hrossum er alltaf nokkuð mis-
hátt. Líklegt er, að tvær flug-
vélar flytji hross'nú í haust á
erlenda grund, 40 með hvorri,
á vegum Búvörudeildar SÍS.
Hrossin, sem flutt eru úr
landi, eru nær öll tamin, geltir
hestar að stórum meirihluta. □
Er hús þetta byggt samkv.
lögum um leiguíbúðir í sveitar-
félögum en þau voru samþykkt
á Alþingi á árinu 1973.
Þessar 8 íbúðir eru tveggja
og þriggja herbergja, og afhend
ast fullbúnar, dúklagðar og
búnar öllum venjulegum lieim-
ilistækjum.
Smíði hússins hófst vorið
1974 og var samið við Bygginga
félagið Hlyn h.f. sem aðalverk-
taka, en yfirsmiður er Bragi
Haraldsson. Hefur tímaáætlun
byggingarinnar staðist nákvæm
lega með afhendingu þeirra 8
íbúða sem fyrr er getið, en þær
6 sem enn er ólokið, á að af-
henda 1. desember n. k.
Þeir sem taka við íbúðunum
tryggja sér leigurétt í næstu
5 ár — og forkaupsrétt að þeim
tíma loknum — verði þær seld-
ar, með því að kaupa skulda-
bréf af bæjarsjóði fyrir upphæð
SMÁTT & STÓRT
sem svarar 20% af byggingar-
kostnaði. Endanlegur byggingar
kostnaður liggur hins vegar
ekki fyrir.
Af þessum 8 íbúðum heldur
Sauðárkróksbær 3, en 5 var
ráðstafað til einstaklinga.
Auk þessa eru á annað hundr
að íbúða í smíður á Sauðár-
króki.
(Fréttatilkynning)
BLÖÐIN SKIPTA UM FOLK
Ritstjóri Alþýðumannsins, Iljör
leifur Hallgrímsson, hefur sagt
upp starfi sínu og auglýst er
eftir nýjum. Við þær breyting-
ar eru að mestu orðin starfs-
fólksskipti við vikublöðin, ís-
lending, Alþýðubandalagsblað
og Alþýðumann, öll á Akureyri.
Við þessi skipti kemur manni
ósjálfrátt í hug, að góður e!
hver genginn á þessum vett-
vangi, en að óreyndu verður
ekkert um það sagt, hvort illur
sé aftur fenginn, svo lokið sé
við talsháttinn. Nýr ritstjóri
fslendings er Gísli Sigurgeirs-
son. ,
EINKENNILEG ÁRÁTTA
f einu sunnanblaða segir frá
nýrri prentvél Alþýðubanda-
lagsblaðs á Akureyri og eitt og
annað er um útgáfu blaðsins
rætt. Þar er farið frjálslega með
tölur, hvað snertir upplag blaðs
ins, og mun kunnugum ekki
ætlað að lesa þær. Það er álíka
leiður vani blaða, að ljúga til
um upplag sitt og kaupenda-
fjölda og blaðamanna er þéir
kríta og kríta liðugt um fimdar-
sókn hjá flokki sínum.
MARGAR ORSAKIR
Fyrir tæpum hálfum mánuði
fannst kona myrt í fjölbýlishúsi
við Miklubraut 26 í Reykjavík,
Lovísa Kristjánsdóttir að nafni.
Viku síðar játaði Ásgeir Ingólfs
son, Reynimel 84 í Reykjavík á
sig verknaðinn. Litlu fyrr
fannst maður einn á bílastæði
í Reykjavík nær dauða en lífi
af barsmíðum tveggja manna.
verí á mjólkurvörum
Nýtt verð á mjólkurafurðum
tók gildi í gær. Samkvæmt því
kostar mjólkurlítrinn nú 67
krónur í stað 61 krónu áður og
er hækkunin 8,9%. Aðrar mjólk
urvörur hækkuðu hliðstætt að
kalla. Niðurgreiðslur og dreif-
ingarkostnaður er óbreyttur.
Þá hefur verðlagsgrundvallar
búinu verið breytt þannig, að
nú stækkar það um 10% — úr
400 ærgildum í 440 ærgildi.
Eftir framangreindar hækkan
ir fá bændur kr. 70,31 fyrir
hvern lítra mjólkur í stað 64,08
kr. áður. En annars er meðal-
talshækkunin vegna afurða
nautgripa 9,5%.
Fregnir af þessu tagi eru orðn-
ar óeðlilega tíðar og vekja um-
tal og óliug almennings, til við-
bótar fjármálaglæpum og öðr-
um glæpum. Fólk reynir að
leita skýringa. Það nefnir sjón-
varp, veðrið, lélega skóla, mátt-
lausa kirkju, verðbólguna, sem
alla ruglar í ríminu í meðferð
fjár, stutta vinnuviku og sitt-
hvað fleira. Margir benda jafn-
vel á eitthvert eitt þessara
atriða sem orsakavald. Líklegra
er þó, að mörg og samverkandi
öfl valdi þeirri ógæfu fjölda
manna sem svo að segja dag-
lega berast fregnir af á síðustu
tímum.
ÆTTI AÐ SENDA
AÐRA MENN
Norðlenskur félagsmálafrömuð-
ur, mjög kunnur, kom í sumar
að máli við blaðið og sagði þá
efnislega á þessa leið:
Eitt af því sem hindrar störf
funda og þinga, er áfengis-
hneigð margra trúnaðarmanna
fólksins, sem þar eiga sæti.
Þeir verða óvinnufærir sökum
ölvunar sömu mennirnir hvað
eftir annað, sem firra sig dóm-
greindinni og eru ekki aðeins
óstarfhæfir, heldur líka hverj-
um manni mjög Ieiðir. Fólk á
að sjá um, að kjósa sér aðra
fulltrúa en áfengissjúklinga á
fundi og þing.
Þessi orð eru verð fullrar
athugunar, því þau eru ekki
sögð út í loftið.
MIKIL ER SÚ ÞRJÓSKA
f nokkrum sunnanblöðum nú
um mánaðamótin eru þessar
fyrirsagnir um Kröfluvirkjun:
Tvöföld áhætta tekin með
Kröfluvirkjun, Engin trygging
fyrir nýtanlegri gufu, Mæling-
ar benda til vaxandi goshættu
við Kröflu, Gos gæti liafist í
byrjun næsta árs, Hætta á
hraungosi rétt norftan við virkj-
unina, Hraunkvika að brjótast
upp við Kröflu, Skjálftavirkni
hefur aukist um helming í þess-
um mánuði, Ekki ráðlegt að
halda áfram framkvæmdum,
(Framhald á blaðsíðu 2)
Fj órðimgsþingi Norðlendinga lokið
Fjórðungsþing Norðlendinga,
hið 18. í röðinni, var haldið á
Sigiufirði dagana 30. ágúst til
1. september. Fráfarandi for-
maður, Heimir Ingimarsson
sveitarstjóri á Raufarhöfn, setti
þingið og bauð ménn velkomna.
Starfsmenn þingsins voru kosn-
ir, þingforseti Bjarni Þór Jóns-
son bæjarstjóri, Siglufirði, vara
forseti Pétur Már Jónsson bæj-
arstjóri, Olafsfirði, þingritarar
Bjarni Jóhannsson kennari,
Hofshreppi og Stefán Gestsson
bóndi, Fellshreppi. Ráðinn rit-
ari þingfundargerðar var Sig-
urður Gunnlaugsson- bæjarrit-
ari, Siglufiði.
Bæjarstjórn Siglufjarðar
bauð til kvöldverðar á Hótel
Höfn á mánudagskvöld og
fluttu Siglfirðingar ýmis
skemmtiatriði á meðan á borð-
haldi stóð. Lagmetisiðjan Sigló-
síld bauð til kvöldverðar næsta
Sigurður G. Þorsteinsson
landafræðingur flutti erindi um
byggðaáætlanir fyrir sveitir.
Gunnar Haraldsson hagfræðing
ur hélt erindi um orkumarkað
Norðurlands. Tómas Sveinsson
viðskiptafræðingur talaði um
samgönguáætlun Norðurlands
og Sigurður Guðmundsson áætl
Sauðfjárslátrun hefst á Akur-
eyri 15. september, sagði Þórar-
inn Halldórsson sláturhússtjóri
í gær. Við vildum hefja slátrun
fyrr, en bændur ekki. Sauðfjár-
slátrun lýkur einhvern síðasta
dag októbermánaðar. Tekið
verður á móti 1250 fjár á dag.
Að slátrun og í kjötfrystihúsi
vinna um 120 manns í slátur-
tíðinni.
Á Akureyri verður lógað um
anafræðingur ræddi um iðn-
þróun á Norðurlandi. Þessir
ræðumenn starfa allir hjá Frám
kvæmdastofnun ríkisins. Að
lokum flutti Marteinn Friðriks-
son framkvæmdastjóri á Sauð-
árkróki erindi um sjávarútveg
á Norðurlandi.
40 þúsund fjár, á Dalvík 13.600
og hefst slátrun þar 14. septem-
ber og á Grenivík verður tekið
á móti 6.500 fjár og hefst slátr-
un þar 20. september. Samtals
er þetta rúm 60 þúsund fjár.
Erfitt er. sem jafnan áður, að
ráða fagfólkið í sláturhúsvinnu,
því mörg störf kalla að hjá því
fólki, en framboð af öðru fólki
er nægilegt, s'agði sláturhús-
stjórinn.
Á þinginu störfuðu 10 nefndir
sem lögðu fram tillögur sem
síðar voru ræddar og afgreidd-
ar. Þingið sóttu 71 fulltrúi og
um 40 gestir.
f lok þingsins var kosið í
gjórðungsráð og sjö milliþinga-
nefndir fyrir næsta starfsár.
Nokkur stórgripaslátrun fer
fram nú og síðan verður henni
fram haldið að aflokinni sauð-
fjárslátrun.
Göngur og réttir hefjast inn-
an fárra daga. Á Akureyri, í
Hrafnagilshreppi og Glæsibæjar
hreppi verður réttað á laugar-
daginn kemur.
Haustverð sauðfjárafurða er
væntanlegt fyrir miðjan mánuð
inn. □
Formaður Fjórðungssambands
Norðlendinga næsta starfsár
var kösinn Bjarni Þór Jónsson
bæjarstjóri, Siglufirði. Næsta
þing verður haldið í Varmahlíð
í Skagafirði að ári.
NOKKRAR TILLÖGUR Á
FJÓRÐUNGSÞINGI 1976.
Stofnun Norðurlandsvirkjtmar.
Fjórðungsþing Norðlendinga
telur miður að ekki skyldi tak-
ast að leggja frumvarp um
Norðurlandsvirkjun fyrir síð-
asta Alþingi. Skorar þingið á
ríkisstjórnina að leggjh fagai
frumvarpið um Norðurlands-
virkjun fyrir Alþinji í feaust og
beita sér fyrir affreiðslu þess
fyrir n. k. áramót. Þiagið telur
áríðandi að gengið feafi verið
frá stofnun Norðurlaadsvirkj-
unar áður en Kröftuvirkjun
(Framhald á blaðsíðu 4)
jársláfrun helsf I5. sepfember