Dagur - 08.09.1976, Blaðsíða 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síinar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Aö veiða og friða
Góð voru þau tíðindi, sem fiskifræð-
ingar færðu þjóðinni í sumar um
framúrskarandi vel heppnað klak
náttúrunnar hjá þorsk- og ýsustofni
á landgrunninu. En þessir árgangar
verða nytjafiskar eftir fimm ár. Þá
virðist loðnustofninn vera sterkur
og sumarveiðarnar fyrir Norður-
landi og út af Vestfjörðum gefa nú
þegar góðar tekjur í þjóðarbúið.
En um fiskveiðarnar á þessu ári
er það að segja, að fyrstu sjö mánuð-
ina var búið að veiða 300.000 tonn
af fiski, og áætlað, að þar af sé þorsk-
ur yfir 70%. En samkvæmt „svörtu
skýrslunni“ lögðu fiskifræðingar
okkar áherslu á, að mjög væri var-
hugavert að veiða meira af þorski en
230 þúsund tonn á ári, ef þorskstofn-
inn ætti að ná viðhlítandi vexti á
næstu árum. Málin stóðu því þannig,
að búið var að veiða árskvótann í júlí
lok. En sjósóknin heldur áfram, að
vísu með þeirri áhugaverðu breyt-
ingu, að leitað hefur verið veiða fisk-
tegunda er áður voru vart eða ekki
nefndar í tölu nytjafiska. Til við-
bótar eru svo fiskveiðar erlendra
þjóða, samkvæmt samkomulagi. □
Yfirgripsmikil
fjársvikamál
Umboðsdómarinn í ávísunarmálinu
alkunna, Hrafn Bragason borgar-
dómari í Reykjavík, hélt fyrir síð-
ustu helgi sinn fyrsta blaðamanna-
fund í þessu umfangsmikla fjársvika-
máli. Þar kom fram, að fjármagn
ávísananna, sem um er fjallað nemur
tveim milljörðum króna og nær yfir
árin 1974 og 1975 hjá 26 aðilum,
sem eru félög og einstaklingar. Af
könnun, sem þegar liggur fyrir, er
ljóst, að 5 aðilar hafa hver um sig
gefið út ávísanir fyrir 100—557
milljónir króna á tímabilinu. Aðal-
bankarnir í máli þessu eru: Lands-
bankinn, Búnaðarbankinn, Alþýðu-
bankinn, Ú tvegsbankinn, Verslunar-
bankinn, Iðnaðarbankinn og Spari-
sjóðurinn Pundið. Þá sagði urnboðs-
dómarinn, að bankarnir hefðu enn
ekki lokað fyrir alla þessa reikninga,
og ennfremur sagði liann: „Hitt vil
ég segja, að nöfn þessara reiknings-
hafa og þeirra, er starfa í skjóli
þeirra, ættu ekki að sæta neinum tíð-
indum í bankakerfinu.“ Eru þessi
ummæli liarður vitnisburður um
eftirlit Seðlabankans með banka-
starfseminni í landinu og einnig gefa
þau auga leið um það, að hin stór-
fellda fjársvikastarfsemi hlýtur að
hafa lengi verið á vitorði margra
bankastarfsmanna. □
KAHL GRANT
PÍANÓLEIKARI1HEIMSÓKN
KVEÐJUORÐ
Þann 6. sept. sl. var til moldar
borinn í Akureyrarkirkju
sæmdarmaðurinn Karl Grant,
fyrrverandi verkstjóri á Ullar-
verksmiðjunni Gefjun, Akur-
eyri.
Karl var fæddur að Veiga-
stöðum í S.-Þing. árið 1905.
Foreldrar hans voru hjónin
Kristjana Halldórsdóttir, Veiga
stöðum og Einar Grant beykir.
Þau eignuðust þrjá syni og var
Karl elstur þeirra. Miðsonur
þeirra, Halldór, lést ungur, en
yrígsti sonurinn, Einar, býr að
Litla-Hvammi á Svalbarðs-
strönd.
Þegar Karl var fimm ára varð
fjölskyldan -fyrir þeirri miklu
sorg að missa heimilisföðurinn.
Kristjana varð því ein með syni
sína tvo. Kristjana var mikil
mannkostakona og ól syni sína
upp í guðsótta og góðum siðum.
Hugur Karls stóð til mennta,
og það var Kristjönu þung raun
að geta ekki stutt hann til náms.
Karl byrjaði snemma að
vinna fyrir sér, fyrst við sjávar-
síðuna, en 1932 hóf hann störf
við Ullarverksmiðjuna Gefjun
og vann þar fyrst sem vefari en
var verkstjóri síðustu tíu árin,
eða þar til hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir.
Karl var grandvar til orðs og
æðis, vann fyrirtæki sínu af
samviskusemi og trúmennsku.
Snyrtimennskan var honum í
blóð borin. Það var til þess tekið
hvað hann hafði fallega rithönd
og oft var leitað til hans, ef
vanda þurfti sérstaklega til
skriftar.
Karl var gæfumaður í einka-
lífi sínu. 11. ágúst 1934 kvænt-
ist hann Ellen Christiansen,
danskri konu. sem hann kynnt-
ist þegar hann var á ferðalagi
Laugardaginn 28. ágúst var
stofnuð deild úr „Foreldrasam-
tökum barna með sérþarfir“,
Akureyrardeild. Deildin mun
starfa í nánu samráði við aðal-
samtökin, sem hafa aðsetur í
Reykjavík.
Helga Finnsdóttir, formaður
aðalsamtakanna, sat stofnfund
deildarinnar.
Ástæða þótíi til, vegna þess
fjölda þroskaheftra barna, sem
eru á Akureyri, að hér væri
sérstök deild innan samtakanna,
en reynsla foreldra þessarra
barna hefur orðið til þess, að
þeir hafa bundist samtökum til
að berjast fyrir málefnum barna
sinna, sem eiga samkvæmt
landslögum að njóta sömu rétt-
inda og önnur börn, en í reynd
hafa að verulegu leyti orðið
útundan.
Aðaltilgangur samtakanna er
í Danmörku. Þau Karl og Ellen
voru mjög samrýmd, enda
hjónaband þeirra eftir því far-
sælt.
Þeim hjónum varð fimm dug-
mikilla barna auðið. Þau eru:
Erna, búsett í Bankok, Kristján,
býr á Akureyri, Bryndís, bú-
sett í Ohio, USA, Ásgeir, bú-
settur í Kaupmannahöfn og
Einar, býr á Akureyri.
Ég og kona mín vottum frú
Ellen og aðstandendum Karls
Grant innilega samúð.
Hvað er það, sem hinumegin clylst?
Hver vill svara því, uns gátan skilst?
Því mnn hann, er þetta líf oss gaf
og þýddi oss þess fyrsta rúnastaf.
Þessum orðum séra Matthíasar
skaut upp í huga mér, þegar ég
frétti sviplegt fráfall Jóns
Orvars Geirssonar. Þau rök er
hníga til þess, að ungur maður
í blóma lífs síns skuli skyndi-
lega hverfa yfir landamæli lífs
og dauða, eru okkur dulin og
virðast jafnvel grimm á stund-
um. Eftir er aðeins, að beygja
sig fyrir þessari köldu stað-
reynd og sækja styrk í minn-
ingu um góðan dreng.
Jón Orvar Geirsson var fædd
ur í Reykjavík 2. febrúar 1947,
sonur hjónanna Sólveigar Jóns-
duttur og Geirs G. Jónssonar
stórkaupmanns. Hann lauk
stúdentsprófi frá Kennaraskóla
íslands 1968 og kandidatsprófi í
læknisfræði frá Háskóla íslands
vorið 1975. Hann kom til starfa
við Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri 1. júní 1975, en gegndi
auk þess störfum við Kristnes-
hæli um tíma. Jón Örvar hafði
nýlega fengið vitneskju um, að
hann skyldi taka við störfum
héraðslæknis á Fáskrúðsfirði
með haustinu, er hann andaðist
af völdum umferðarslyss á
Spáni þann 12. ágúst sl.
Kynni okkar Jóns Örvars
urðu ekki löng, en þau voru
góð. Hann kom til starfa beint
frá prófborði ungur og óreynd-
ur, en það kom fljótt í ljós, að
þar sem Jón Örvar var fór góð-
því, að aðstaða til líkamlegrar
og andlegrar þjálfunar verði
stóraukin þessum börnum til
handa því að nú er ljóst að með
þjálfun, sem hefst nógu
snemma, er hægt að hjálpa börn
unum mjög mikið.
Staðreynd er að þau þurfa að
fá daglega þjálfun kunnáttu-
fólks en flest barnanna fá ekki
aðra þjálfun en þá, er aðstand-
endur þeirra eru að reyna af
mjög takmarkaðri þekkingu og
oft með ömurlegum afleiðing-
um fyrir börnin.
Fundurinn kaus eftirtalda
félaga í stjórn deildarinnar:
Guðríði Bergvinsdóttur, Baldur
Ragnarsson, Jón E. Aspar, Sig-
urð Kristinsson, Sigþór Bjarna-
son.
„Foreldrasamtök barna
með sérþarfir“,
Akureyrardeild,
Einn af bestu píanóleikurum
Bandaríkjanna Arthur Tollef-
son, leikur á fyrstu tónleikum
Tónlistarfélags Akureyrar á
nýju starfsári, og fara þeir fram
í Borgarbíói mánudaginn 13.
september kl. 19.00.
Arthur er fæddur árið 1942,
og hóf píanónám fimm ára
gamall Tollefson hefur hlotið
fjölmörg verðlaun fyir píanó-
leik, og á unglingsárunum var
hann sá yngsti, sem hlotið hafði
„Kimber“-verðlaunin, en þau
eru ein mesta viðurkeenning,
sem ungum tónlistai'manni get-
ur hlotist þar um slóðir. Doktors
prófi lauk Tollefson frá Stan-
ford háskólanum 1968, en var
Ur drengur. Hann var hlýr í
viðmóti, samvizkusamur, vinnu
drjúgur og glöggur. Gætinn
maður var hann, sem vissi tak-
mörk þekkingar sinnar og
reynslu og óragur við að spyrja
sér eldri menn ráða. Því var
gott og notalegt að vera á vakt
með Jóni Örvari. Honum gat
maður treyst, og fljótur var
hann að ávinna sér traust
sjúklinga sinna.
Þegar Jón Örvar lagði upp
héðan til Spánar var ljóst, að
dvöl hans f þessu sólríka héraði
yrði brátt á enda. Slíkt hefði
verið eðlilegur gangur lífsins,
en engan grunaði, að þetta sum-
ar yrði hans hinzta. Við söknum
þess nú, að vita ekki af honum
við skyldustörf annars staðar á
landinu. Sárastur er samt sökn-
uður ástvina. Þeim sendum við
kollegar Jóns Örvars á Akur-
eyri innilegar samúðarkveðjur.
Magnús Stefánsson.
útnefndur prófessor við háskól-
ann í Maryland—Baltimore
1970. Árið 1975 kom Tollefson
fram sem einleikari með
Atlanta sinfóníuhljómsveitinni
undir stjórn Robert Shaw, og
fór hann með sömu aðilum á
tónleikaför um Bandaríkin ári
(Framhald af blaðsíðu 1)
tekur til starfa og hafi hún frá
upphafi með rekstur hennar að
gera.
Fyrirvari um aðild að
Norðurlandsvirltjun.
Fjórðungsþing Norðlendinga
áskilur sér þann fyrirvara um
aðild að Norðurlandsvirkjun
f. h. sveitarfélaga á Norður
landi, að tryggt verði af hálfu
stjórnvalda, að fyrirtækinu
verði gert kleift að selja raf-
magn í heildsölu í landshlutan-
um á sama verði og Lands-
virkjun.
Efling iðnaðar á Norðurlandi.
Fjórðungsþing Norðlendinga
tekur undir þá skoðun fulltrúa
síðar. Tollefson er nú á tón-
leikaferðalagi til Evrópu, óg
vegna skammrar viðkomu á
íslandi getur hann aðeins leikið
á þessum einu tónleikum.
Á efnisskránni eru verk eftir
Haydn, Beethoveril Reger, De-
bussy og Virgil Thöinson.
Aðgöngumiðasgla fer fram í
Bókabúðinni Huld og við inn-
ganginn. □
60 þúsuíid tonn
Að kveldi 2. sept. var loðnu-
aflinn orðinn nær 60 þús. tonn.
Þessi 60 þús. tonna afli svarar
til helmings af vetrarveiddu
loðnunni hvað útflutningsverð-
mæti snertir, svo miklu betri
fiskur er loðna sú, sem nú er
veidd. 15—20 skip hafa verið á
veiðum í seinni tíð en voru
áður mun fleiri. Á Siglufirði
var búið að landa 35 þús. tonn-
um um mánaðarhótin’. Q
í nefnd um Norðurlandsvirkjun,
að stórefla þurfi iðnað á Norður
landi í kjölfar aukins framboðs
á raforku í fjórðungnum. Minn-
ir þingið á, að þegar ráðist var
í byggingu Búrfellsvirkjunar,
gengust stjórnvöld jafnhliða
fyrir uppbyggingu orkufrekrar
stóriðju til að styrkja raforku-
markaðinn og halda niðri raf-
orkuverði.
Sanigönguáætlun Norðurlands.
Fjórðungsþingið leggur til, að
nýútkomin Samgönguáætlun
Norðurlands, sem í reynd er út-
tekt á ríkjandi ástandi og hug-
myndir um úrbætur, verði
unnin áfram og gerð að raun-
verulegri áætlun með tímasetn-
ingu og ákvörðunum um fjár-
magn.
Við endurskoðun vegalaga
verði réttur sveitarfélaga, sýslu
nefnda og landshlutasamtaka
viðurkenndur í lögum, sem um-
sagnaðaðila um ráðstöfun vega-
fjár og röð framkvæmda.
Biskup til Hóla.
Fjórðungsþing Norðlendinga
leggur á það áherslu að frum-
varp það er lagt var fram á
síðasta Alþingi um skiptingu
landsins í tvö biskupsdæmi nái
fram að ganga hið fyrsta og
verði biskupssetur í Hóla-
biskupsdæmi í samræmi við
það sem í frumvarpinu er lagt
til.
Landhelgissamningurinn
við breta.
Fj órðungsþingið leggur á það
ríka áherslu, að landhelgissamn
ingurinn við breta verði ekki
framlengdur eða gerður samn-
ingur við Efnahagsbandalagið,
sem feli í sér veiðiréttindi út-
lendinga í íslenskri landhelgi.
Jafnframt leggur þingið
áherslu á, að íslendingar einir
nytji fiskstofnana við landið,
sem undirstöðu að áframhald-
andi góðum lífskjörum þjóðar-
innar.
Verðtryggingu stofnlána
landbúnaðarins mótmælt.
Fjórðungsþingið mótmælir
þeirri ráðstöfun stjórnvalda, að
verðtryggja stofnlán til land-
búnaðarins. í þess stað bendir
þingið á þá leið, að leggja beri
sérstakt verðjöfnunargjald til
að verðtryggja sjóði Stofnlána-
JON ORVAR
GEIRSSON
læknir
Fæddur 2. febr. 1947.
Dáinn 12. ágúst 1976.
Kveðja frá
Helgu Þórðardóttur
og börnum.
I vökudraumum meðal hárra lialla
ein hugsjón, vinur, jók þér kjark og mátt.
A vakinn lífsþrótt vorið tólt að kalla,
og viðfangsefnin mörgu risu hátt.
Þú eðliskostum bestu reyndist búinn,
að bjarga sjúkum, veita hjálp og lið.
Þér léttu störfin ljúfmennskan og trúin,
er lyftu þér á hærra þroska svið.
Að námi þínu loknu í læknisfræðum,
þér lífsbraut fögur, háleit blasti við.
Þú starfið hófst með orkuglóð í æðum,
en óvænt hvarfstu brott á æðra svið.
f myrkri sorgar ei er unnt að skilja
þau örlög, sem oss virðast stundum hörð.
Ó, lífsins Guð, vér lútum þínum vilja
og lyftum til þín bæn og þakkargjörð. •
Vér þökkuin ást og Ijúft er oss að láta
í Ijós: þú sýndir göfugt liugarþel.
Þú Iiafðir unnið hjörtun. sem þig gráta.
Þú, horfni vinur, mynd þín geymist vel.
J. S.
Foreldrasamtök
Hjörtur Eiríksson.
JÚN ÖRVAR GEIRSSON,
læknir. - Minningarorð.
Arthur Tollefson.
5
NorSurlandsmól í frjálsum íþróHum á Akureyri
i'Mt.
_NorðurIandsmót í frjálsum
íþróttnm var haldið á Akureyri
um síðustu helgi. Keppendur
voru á annað hundrað alls stað-
ar að. af Norðurlandi.
Veður á laugardag var mjög
götU sleikjahdi sólskin og hiti.
Á sunnudag rigndi lítið eitt en
stytti upp þegar leið á daginn.
Mót þétta gekk mjög vel,
hver greinin rak aðra og var
það þéim er að því stóðu til
sóma. Þingeyingar voru sigur-
sælir á mótinu,_enda höfðu þeir
-nývarið setu sína í fyrstu deild
frjálsíþrótta. Mót þetta er jafn-
framt einstaklingskeppni svo og
keppni milli félaga og sam-
banda. Besta afrek mótsins var
100 metra hlaup Sigríðar Kjart-
ansdóttur, KA, en hún hljóp á
12,2 sek. og jafnaði um leið ís-
landsmet Ingunnar Einarsdótt-
ur. Þá ber að geta afreks Þor-
steins Þórissonar,. UMSS, * en
hann setti Islandsmet sveina í
hástökki, stökk-1,'87 ní.
deildar landbúnaðarins. Sé ekki
hægt að útvega fjármágri méð
öðrum kjörum, enda gangi það
gjald beint inn í-vei’ðlagsgrund-
völlinn og sé það hlutverk Stofn
lánadeildar landbúnaðarins og
Framkvæmdasjóðs að gera það.
Iðnaðarkönnun á Norðurlandi.
Fj órðungsþing N ör ðlendinga:
fagnar yfirstandandi köririun á
iðnaði á Norðurlaridi, sem ték-
ur til almenns frariiléiðsluiðn--
aðar og aukins framboðs ájorku
í fjórðungnum7 Þingið leggur
þunga áherslu á, að á gfuridvélli:
þessarar könnunar_ verði gerð
raunhæf áætlun um frámtíðár-
þróun iðnaðar-á Norðurlandi'og
í því sambandi-fari fraifr sér-
stök athugun á auðlindum, sem-
hugsanlega mætti nýta til- iðn-
aðarframleiðslu. Þingið felur'
iðnþróunarnefnd að gangast
fyrir ráðstefnu um iðnaðarmál
á Norður-lándi og iðnkyriningu
fyrirtækja í fjórðurignúm. Nið-
urstöður ráðstefnunnar verði
lagðar fyrir næsta fjófðungs-
þing. ' -4ÉI
Aðalsteinn Bernharðsson.
UMSE var stigahæstur einstakl
inga í mótinu, hlaut 39,71 stig.
Hann náði góðum árangri í
mörgum greinum, m. a. hljóp
hann 400 metra á 50,4 sek.
Annars urðu úrslit í einstök-
um greinum þessi:
K VENN AGREIN AR.
100 nietra hlaup. sek.
Sigríður Kjartansd., KA 12,2
(Jafnt íslandsmeti)
Hólmfr. Erlingsd., UMSE 12,5
Ragna Erlingsdóttir, HSÞ 12,7
Langstökk. m
Ragna Erlingsdóttir, HSÞ 5,13
Hólmfr. Erlingsd., UMSE 4,99
Laufey Skúladóttir, HSÞ 4,80
1500 metra hlaup. mín.
Sigurbjörg Karlsd., UMSE 5.20,9
(Héraðsmet)
Sigríður Karlsd., HSÞ 5.31,0
(Héraðsmet)
Vilborg Björgv.d., UMSE 5.35,1
Ásta Ásmundsdóttir, KA 4.41,0
(Akureyrarmet)
Ásta setti glæsilegt Akur-
eyrarmet, en hún er aðeins 12
ára gömul.
Kúluvarp. m
Sigurl. Hreiðarsd., UMSE 10,92
Sólveig Þráinsd., HSÞ 9,78
Margrét Sigurðard. UMSE 9,64
4x100 metra boðlilaup. sek.
Sveit HSÞ 52,0
Sveit UMSE 52,9
A sveit KA 55,5
100 nietra grindalilaup. sek.
• Ragna Erlingsdóttir, HSÞ 17,0
Sigfíður Kjartansd., KA 17,3
Hólmfr. Erlingsd., UMSE 17,9
" ' -rwV.
200 metra hlaup. sek.
Sigríður Kjartansd., KA 26,5
Guðrún Höskuldsd., UMSE 27,4
. Laufeý Skúladóttir, HSÞ 27,5
Kringlukast. m
"SÓlveig Þráinsdóttir, HSÞ 29,90
- Sigurl. Hreiðarsd., UMSE 28,59
Kristjána Skúlad., HSÞ 27,06
*
' 800 riietra hlaup. mín.
Sigurbj. Karlsd., UMSE 2.31,0
Sigríður Kjartansd., KA 2.31,0
Sigríður Kai'lsd., HSÞ 2.34,0
SÍÐASTI LEIKUR ÞÓRS í ANNARRI DEILD
Þór og Selfyssingar mættust á
Akureyrarvelli sl. föstudags-
kvöld og var það síðasti leikur,
beggja aðila í annarri deild í ár,
en fyrirfram var vitað að Þór
þyrfti að leika gegn Þrótti,
Reykjavík um sæti f fyrstu
deild á næsta sumri.
Fyrsta mark leiksins kom á
10. mín. fyri'i hálfleiks. Árni
Gunnarsson sendi góðan bolta
fyrir markið og Sigurður Lárus
son skallaði örugglega í markið
og kom Þór á blað. Fyrri hálf-
leikur var nokkuð þófkenndur
og fátt um fína drætti ef markið
og aðdragandi þess eru frátekin.
Selfyssingar áttu þó nokkur
tækifæri sem þeim tókst ekki
að nýta.
Sama þófið hélst í seinni hálf
leik en á 15. mín. jöfnuðu Sel-
fyssingar eftir hai'ða sókn. Það
var „Mullerinn" í liði þeirra
sem það gerði. Eftir að hafa
skorað fæi’ðist nú fjör í Selfyss-
inga og sóttu þeir nú nokkuð
um stund og áttu góða mögu-
leika á að skora en það heppn-
aðist ekki. Voru nú áhangendur
Þórs farnir að vona a'ð inná yrði
skipt „marka-Birni“ þeirra en
hann hefur skorað þrjú mörk
fyrir félag sitt þær stuttu stund
ir sem hann hefur verið inná.
Þjálfari Þórs skipti heldur inná
alls óreyndum leikmanni og lét
þá Björn Víkingsson og Oskar
Gunnarsson sitja áfram á vara-
mannabekk, þrátt fyrir að sókn
liðsins var í molum. Á 41. mín.
varði einn varnarmanna Sel-
fossliðsins mark sitt með hend-
inni og dæmdi dómarinn um-
svifalaust vítaspyrnu. Magnús
Jónatansson skoraði úr henni
af öryggi, og þannig lauk leikn-
um með sigri Þórs, tvö mörk
gegn einu.
Þórsarar gulltryggðu sér nú
annað sætið í deildinni og eins
og fyrr segir leika þeir við Þrótt
um sæti í fyrstu deild að ári.
Verður sá leikur háður í Hafnar
firði n. k. laugardag.
Úrslit í II. deild
ÍBV 16 13 2 1 62-13 28
Þór 16 11 4 1 41-15 26
Völsungur 16 7 4 5 25-16 18
Ármann 16 7 4 5 26-18 18
KA 16 5 4 7 29-35 14
Haukar 16 5 3 8 26-32 13
Selfoss 16 4 3 9 26-50 11
ÍBÍ 16 3 5 8 18-32 11
Reynir 16 2 1 13 11-47 5
Sigríður Kjartansdóttir.
Aðalsteinn Bcrnliardsson.
Hóstökk. m
Gréta Ólafsdóttir, UNÞ 1,45
Jóhanna Ásmundsd., HSÞ 1,40
Svandís Þóroddsd., KA 1,40
(Jafnt Akureyrarmeti)
Sigi'íður Karlsd., HSÞ 1,40
Spjótkast. m
Gréta Ólafsdóttir, UNÞ 30,44
Sólveig Þráinsd., HSÞ 29,79
Margrét Sigurðard., UMSE 29,24
KARLAGREINAR.
100 rnetra hlaup. sek.
Aðalst. Bernharðss., UMSE 11,2
Jakob Sigurólason, HSÞ 11,3
Jón Benónýsson, HSÞ 11,3
Langstökk. m
Jón Benónýsson, HSÞ 6,44
Aðalst. Bernharðss., UMSE 6,34
Gísli Pálsson, UMSE 6,19
1500 mctra hlaup. mín.
Þórarinn Magnúss., UMSS 4.15,8
Jónas Clausen, KA 4.20,2
Jón Illugason, HSÞ 4.22,9
Hástökk. m
Þorsteinn Þói'sson, UMSS 1,87
(íslaixdsmet sveina)
Þórður Njálsson, USAH 1,87
Jón Benónýsson, HSÞ 1,80
Kúluvarp. m
Ari Arason, USAH 13,00
Þóroddur Jóh.son, UMSE 12,92
Matthías Ásgeirss., UMSE 11,05
400 metra hlaup. sek.
Aðalst. Bernharðss., UMSE 50,4
Arnór Erlingsson, HSÞ 54,7
Steingr. Sigfússon, UNÞ 55,9
4x100 metra hlaup. sek.
Sveit UMSE 46,4
Sveit HSÞ 46,5
Sveit KA 47,6
Spjótkast. m
Sigfús Haraldsson, HSÞ 55,56
Baldvin Stefánsson, KA 52,25
Ingólfur Guðm.son, USAH 47,10
Kriglukast. m
Jóhann Sigurðsson, HSÞ 38,38
Þór Valtýsson, HSÞ 36,80
Ari Arason, USAH 35,01
110 metra grindahlaup. sek.
Aðalst. Bei'nharðss., UMSE 16,6
Jón Benónýsson, HSÞ 16,8
Kristján Þráinsson, HSÞ 17,2
800 metra hlaup. mín,
Jónas Clausen, KA 2.06.9
Steinþór Helgason, KA 2.06,9
Jakob Sigurólason, HSÞ 2.06,9
1000 metra boðhlaup. mín.
Sveit HSÞ 2.08,3
Sveit UMSE 2.08,5
Sveit KA 2.13,4
200 metra lilaup. sek,
Aðalst. Bernharðss., UMSE 22,7
Jakob Sigurólason, HSÞ 23,1
Hjörtur Gíslason, KA 23.9
Stangarstökk. m
Auðunn Benediktss., UNÞ 3,00
Jón Benónýsson, HSÞ 2,90
Gunnar Árnason, UNÞ 2,90 ,
Þrístökk. m
Bjai'ni Guðm.son, USAH 13,63
Aðalst. Bernh.son, UMSE 13,46
Kristján Þráinsson, HSÞ 13,23
3000 metra hlaup. mín.
Jón Illugason, HSÞ 9.44,0
Steindór Tryggvason, KA 9.45,4
Bjarni Halldórsson, UNÞ 9.45,6
Stigahæstu karlmenn.
Aðalst. Bernh.son, UMSE 39,75
Jón Benónýsson, HSÞ 29,25
Jakob Sigurólason, IiSÞ 19,75
Stigalxæstu kvenmenn.
Sigríður Kjartansd., KA 23,00
Ragna Erlingsd., HSÞ 19,50
Laufey Skúladóttir, HSÞ 19,00
Stigaliæstu félög.
HSÞ (85,50 kvennagr.
og 119,33 karlagr.) 203,83
UMSE (85,00 kvennagr.
og 86,00 karlagr.) 171,00
KA (31,00 kvennagr.
og 50,33 karlagr.) 81,33
Ó. Á.
Sigurvegarar þingcyinga.