Dagur - 29.09.1976, Side 4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Sínvar 1-11 66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAYÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Álver við
Eyjafjörð?
í síðustu fundargerð bæjarráðs Akur
eyrarkaupstaðar er sagt frá því, að
hérlendir fulltrúar um orkufrekan
iðnað og Norsk Hydro liefðu gert
grein fyrir áætlun um rannsóknir á
veðurfari og fleiru vegna hugmynda
um byggingu álvers við Eyjafjörð.
Áður hefur það fram komið eftir
athugun norskra manna, er leituðu
heppilegs staðar fyrir álbræðslu
utan Stór-Reykjavíkur, að hvarvetna
myndi það fyrirtæki valda mikilli
byggðaröskun. En mikilvægustu
skilyrðin hér á landi eru þó raforka
og góð höfn. Reyðarfjörður kom til
álita í þessu sambandi og einnig
nágrenni Húsavíkur, en í þriðja lagi
Eyjafjörður og við hann mun nú
staðnæmst, m. a. vegna þess, að
byggðir Eyjafjarðar með Akureyri
geta helst veitt byggðaröskun af til-
komu álvers verulegt viðnám og við
f jörðinn eru auk þess æskileg hafnar-
skilyrði. Um raforkuna er það að
segja, að hún er forsenda álbræðslu
og yrðu stórvirkjanir til að koma.
Ef það er ennfremur rétt, sem
heyrst hefur, að teikning af álverk-
smiðju við Eyjafjörð sé þegar tilbúin
og að álverinu sé ætlaður staður á
milli Krossaness og Gáseyrar, er
sannarlega tírni til þess kominn í
héraði, að málið sé reifað og rætt og
þeirra upplýsinga krafist, sem fyrir
ættu að liggja til þess að umræður og
álitsgerðir rnegi byggja á sem traust-
ustum heimildum.
Búnaðarsamband Eyjaf jarðar mun
væntanlega telja að sér komi málið
við. Bæjarstjórn Akureyrar mun
heldur ekki komast hjá því að rök-
ræða málið og taka afstöðu til þess,
né aðrar sveitarstjórnir héraðsins.
Stórt álver við innanverðan Eyja-
fjörð, í næsta nágrenni bæjarins,
mun ekki láta sig án vitnisburðar á
mörgum sviðum. Með byggingu þess
og rekstri má hugsa sér 3—5 þúsund
manna bæ eða samsvarandi aukn-
ingu byggðar á Akureyri. Staðviðrin
við fjörðinn mun færa mengun, ef
einliver verður, yfir byggðir í sveit
og bæ, en fjörugt athafnalíf og fjár-
magnsstraumar til þessa héraðs
munu einnig hingað beinast með
byggingu álbræðslunnar. Það er kom
inn tími til umræðna um málið og
stefnumótunar, sem bæði verður að
miðast við þjóðarhag og æskilega
þróun byggðar og atvinnuhátta við
Eyjafjörð. □
Geðflækja - ljóð
eftir Brynjólf Ingvarsson.
Myndir Aðalbjörg Jónsdóttir.
Óvenjulegt að fá í hendur tvær
nýjar bækur í aflíðandi ágúst-
mánuði, rétt eins og jólamark-
aður væri gleymdur. En ánægju
legt. Brynjólfur hefur gefið út
eina ljóðabók áður. Þessi er á
öllum sviðum fremri hinni, sem
vera ber. Brynjólfur er skáld
gott og hefur hæfileika að segja
djúpa hugsun í fáum orðum.
Hann kann stuðlasetningu, en
betur liggur þó fyrir honum að
stuðla lítt, enda sér hann það
sjálfur. Hann er geðlæknir þessi
höfundur og það kemur fram í
bókinni að hann skilur sálina
og það er fyrsta boðorð slíkra
og einnig skálda. Það, sem gleð-
ur mann mest er hve næmt
hjarta höfundar þess er á til-
finningalíf barna og hversu
ábyrgðartilfinning hans er rík
gagnvart þeim:
„Lítil börn horfa á okkur
stórum augum
í orðlausu trúnaðartrausti
Tilhugsunin um
að bregðast þeim
getur fengið mann til að
ganga af göflunum.“
Ásamt alvarlegri hugsun og
ábyrgri samfélagsvitund er
Brynjólfur húmoristi og notar
glettni til að reifa hin alvar-
legustu mál. Ég get ekki stillt
mig að sýna dæmi:
FÓSTURE YÐIN G.
„Fæðing barns
+ aftaka
= útburður
Getnaður barns
+ aftaka
= fóstureyðing
Þá var fornöld
Nú siðmenning
Gerir gæfumuninn.“
Bókin er skreytt 9 litmynd-
um. Teikningar Aðalbjargar eru
afbragðs góðar og lofa miklu.
Allur frágangur Skjaldborgar
h.f., Akureyri er til fyrirmynd-
ar. Bókin er sérlega vel unnin
og prentun litmyndanna hefur
tekist óvenju vel. Bókin er því
kærkomin og á sú einkunn mín
ekkert skylt við tileinkun
hennar.
Meðan liúsin sofa -
Ijóð
eftir Sigurjón Bragason.
Teikningar Bolli Gústafsson.
Útg. Stefán Eiríksson.
Vinna
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Höfundur þessarar bókar lést
sl. vetur, tæplega fertugur.
Hann hafði lítt flíkað skáldskap,
en skildi blöð þessi eftir sig.
Hér er um góðan skáldskap að
ræða, dapurlegan að vísu, og sá
dapurleiki verður áleitnari við
lesandann vegna þess hvernig
á stendur. f formálsorðum er
gerð grein fyrir ævi og yrking-
um Sigurjóns og vitnað til
hinna kunnu setninga Heiðreks
Guðmundssonar:
„En ef ég fer að yrkja ljóð
þá er mér þungt í huga.“
Þó þessi sannindi standi fyrir
sér og eigi hér tvímælalaust við,
ber að minnast fleiri atriða úr
kvæði Heiðreks, sem skýra á
fyllri hátt kveikju ljóðs. Hann
segir fyrr í kvæðinu:
'.V.V.V.V.V.V. vwuuwuwwuuuwvvwuwwvwvww
KRISTJÁN FRÁ DJÚPALÆK
skrifar ji
um bækur ;■ "■ "■ "b
■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
„Ef ljóma slær á borg og byggð
og bliki á sæ og storð.
Þá lýt ég höfði og hljóður verð
því hugann brestur orð.“
Og að lokum segir hann:
„Ég kveð þér Ijóð, unz hugur
* hlær
og hrunda borgin rís
og sólin gegnum sortann brýzt,
þú söngva minna dís.“
Ég get ekki stillt mig að vekja
athygli á þessum niðurstöðum
höfundar hinna tilvitnuð setn-
inga. M. a. til að leita skýringa
á dapurleik þessara ágætu ljóða
Sigurjóns. Hann var ekkert
sorgarbarn frá degi til dags, en
angurstundir. söknuð og þrár
eiga allir. Kannski leitaði angur
hans fremur ljóðstafa en gleðin.
Hann segir einmitt sjálfur:
Ilmur daganna
1 - . ■ „ómar nóttanna
anga út
einsemd þinni.
Á öðrum stað segir: „Við
gengum' glöð / gegn svölum
vetrarmorgni." Og hann ann og
metur fegurð náttúru og mann-
lífs í fríði og kýrrð. Þessi angur
væru ljóð sanna því fremur
næman skáldhug en þjáningu.
Hitt er víst að ósköp þau, sem
við höfum orðið að sjá á þessari
tíð, þ. e. stríðsvélar og dauða-
sprengjan,- mtm hafa lagst
þyngra á þá, er voru börn, er
henni var fyrst varpað á fólk,
heldur en okkur, sem eldri vor-
um. Heimshryggð hefur trúlega
verið hálfur baggi þessa höf-
undar."Hanii segir á einum stað:
Þau dreymir um stóra höll
hlj óðeinangraða
með .gárði í kring,
þar sem vaxa villtar nellikur
sem þola géislavirkt ryk.
Það er ægileg hugsun að við
skulum máski verða að byggja
garð, sem stenst geislavirkni hel
sprengjunnar, utan um blómin
okkar. Og þetta túlkar Sigurjón
sem nærtækan möguleika. Já,
það er dapurlegt að hann yrkir
ekki meir. Faðir hans er skáld
og afi hans og nafni, Sigurjón
Friðjónsson, var skáld á undan
samtíð-sinni í hugsun og form-
sköpun. Þessum svipar þó
nokkuð til afa síns. Tökum
dæmi: (bls. 76).
ÉG FAGNA MORGNINUM.
Er fyrsti sólargeislinn sýnir sig
andvarpar sál mín fegin,
því að nóttinni er lokið.
Ég fagna morgninum, sem
frelsar mig
frá andvöku næturinnar.
Ég hef vakað í nótt
og hlustað á hljóð hennar
full af dul.
Ég er því feginn að fyrsti
sólargeislinn gægist inn til mín.
Já, nótt þessa skálds er lokið.
sólargeisli nýs himins hefur
vakið hann til glaðari söngva.
Og hann skildi eftir sig góða
gjöf, angursöngva sína: „Von /
vonleysi þess / er á enga / von.“
Myndir Bolla Gústafssonar
eru hver annarri betri og falla
þétt að anda Ijóðanna. Frá-
gangur bókar er góður.
Handknattleiksmót
Kvennamót UMSE í handknatt-
leik lauk um síðustu mánaða-
mót. Fimm lið tóku þátt í mót-
inu og stóð aðalbaráttan um
sigurinn milli A-liðs Reynis og
Umf. Skriðuhrepps. í leik
þeirra urðu lokatölur 8—7 fyrir
Reyni og fór félagið því með
sigur af hólmi f mótinu.
Heildarúrslit:
Umf. Reynir, a-lið 8 stig
Umf. Skriðuhrepps 6 —
Umf. Svarfdæla 4 —
Umf. Æskan 1 —
Umf. Reynir, b-lið 1 —
FRÁ KENNURM
í GLERÁRSKÓLA
„Fundur kennara í Glerárskóla
haldinn 20. september 1976
fagnar nýlegri yfirlýsingu
Tryggva Pálssonar um að lokið
verði framkvæmdum við íþrótta
hús skólans fyrir næstkomandi
áramót, en kennarar hafa und-
anfarið fylgst með því sem
telja verður óeðlilegan seina-
gang við framkvæmdirnar.
Fundurinn leggur ríka
áherslu á, að staðið verði við
fyrrnefnda yfirlýsingu.11 □
Alþjóðlegur dans-
flokkur til bæjarins
Um síðustu helgi var væntan-
legur hingað til lands alþjóð-
legur dans- og söngflokkur sem
á undanförnum árum hefur far-
ið víða nm lönd. Flokkinn skip-
ar fólk víðsvegar að úr heimin-
um, sýnir þjóðdansa frá mörg-
um löndum og í tilreyrandi þjóð
búningum.
Hingað til lands kemur dans-
flokkurinn fyrir tilstuðlan Flug-
leiða h.f., sem í samráði við
skólayfirvöld á Akureyri, í
Reykjavík, Kópavogi og Hafnar
firði hafa skipulagt sýningar
fyrir ákveðna aldursflokka í
skólum.
Meðan dansflokkurinn dvelst
á íslandi býr hann á Hótel Loft-
leiðum. Þá mun flokkuinn
fljúga með Flugfélagi íslands
til Akureyrar og skoða sig um
í nágrenni Reykjavíkur eftir
því sem tími og veður leffir.
Sunnudagsmorguninn 3. októ-
ber heldur flokkurinn svo vest-
ur um haf með Loftleiðum.
(Frá Kynningardeild Flug-
leiða h.f.)
Knaftspyrnumól
Knattspyrnumót UMSE lauk
seinnipartinn í ágúst. Fimm
félög tóku þátt í mótinu. Bar-
áttan um efsta sætið var mjög
jöfn og tvísýn. Umf. Skriðu-
hrepps gerði jafntefli við Ár-
roðann og komu þau úrslit
nokkuð á óvart, því Árroða-
liðið var í mun meiri æfingu.
íf
rr
Út er komið 7. hefti tímaritsins
LÍFGEISLAR, en það flytur
ýmsar greinar, þar sem byggt
er á rannsóknarniðurstöðum dr.
Helga Pjeturss varðandi lífið í
alheimi og sambönd þess. En
athygli vísindamanna og ann-
arra beinist nú í auknum mæli
að öðrum stjörnum og að mögu
leikum lífs annars staðar í
geimi.
Eftirfarandi kaflafyrirsagnir
geta veitt nokkra hugmynd um
helsta inntak þessa heftis:
Tunglgígur. Lífmagnan og
draumar. Raddir úr geimnum.
Blindur í vöku — Sjáandi í
draumi. Hugleiðingar um líf-
sambönd. Draumur um sér-
kennileg sjódýr. Gengið á vatni
— draumur. Um miðilsfundi,
þar sem sagt er frá lífinu á
öðrum hnöttum.
Ritið er gefið út af Félagi
Nýalssinna, pósthólf 1159,
Reykjavík. □
í úrslitaleik milli Reynis og Ár-
roðans var mikil barátta á báða
bóga. Réynir hafði forystu í
fyrri hálfleik, en í seinni hálf-
leik náði Árroðinn undirtökun-
um og hafði mark yfir um tíma.
Reynismenn voru ekki ánægðir
með að lúta í lægra haldi og
undir lokin tókst þeim að skora
og ná jafntefli 3—3, sem nægði
þeim til sigurs í mótinu.
Heildarúrslit:
Umf. Reynir 7 stig
Umf. Árroðinn 6 —
Umf. Skriðuhrepps 5 —
Umf. Dagsbrún 2 —
Umf. Svarfdæla 0 —
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á AKUREYRI
Á miðvikudaginn varð gang-
brautarslys á Þórunnarstræti,
við Hamarsstíg. Þar varð 16 ára
piltur fyrir bifreið og lærbrotn-
aði.
Árekstur tveggja bifreiða
varð á mótum Glerárgötu og
Tryggvabrautar. Farþegi var
fluttur í sjúkrahús en meiðslin
ekki talin alvarleg.
Á föstudaginn barst lögregl-
unni kæra yfir því, að hundur
beit sjö ára barn. Hundurinn
gekk laus í bænum, sem er
algerlega bannað. Barnið var
flutt á spítala til skoðunar.
Bílvelta varð hjá Kristnesi á
sunnudag. Okumaður var einn
í bifreiðinni og slapþ ómeiddur,
en bifreiðin skemmdist mikið.
Sæðingar standa nú yfir
Hrjsey, 27. september. Barna-
skólinn var settur í gær og
snúa börnin sér nú af kappi að
náminu. Skólastjói-i er Helgi
Nielsen og með honum eru
tveir fastráðnir kennarar og
stundakennarar að auki.
Ennþá er fiskaflinn daufur.
Trillur eru með færi og hinir á
netum. En þótt ekki aflist mikið
er næg atvinna um þessar
mundir því menn hamast við að
pakka saltfiskinn og búa hann
til útflutnings.
Og svo er nú hátíð á búinu
okkar, því loksins er verið að
sæða kvígurnar. Það gerir Ár-
mann dýralæknir á Dalvík.
Væntanleg framvinda verður
sú, að hér fæðist holdamiklir
kálfar af erlendu faðerni þegar
þeirra tími er kominn. S. F.
SMÁTT & STÓRT
Ilólar í Iljaltadal.
(Framhald af blaðsíðu 8)
VERK FRAMSÓKNAR-
MANNA
Þjóðin hefur án efa gert sér
grein fyrir því, að farsæl lausn
landlielgisniálsins var verk
Framsóknarflokksins. Stað-
reyndin ér sú, að framsóknar-
menn í ríkisstjórn og utan stóðu
ákveðnir gegn því á síðasta
vetri, að samið yrði við breta
með kjörum þeim, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn var reiðubú-
inn að semja endanlega um.
Þegar Geir Hallgrímsson kom
frá London með samningsupp-
kast uin 85 þús. tonna veiði til
tveggja ára, munaði minnstu að
stjórnarsamstarfið rofnaði, því
framsóknarmenn féllust ekki á
þá lausn.
HVAÐ HEFÐI ANNARS
ORÐIÐ?
Það var alltaf meginstefna Fram
sóknarflekksins, að ekki væri
sómasanilcgt að semja við breta,
nema þeir viðurkcnndu imi leið
útfærslu okkar og samningarn-
ir værH endanlegir, nema til
kæmi leyfi íslendinga. Það var
fyrst og fremst verk dómsmála-
ráðherra og utanríkisráðherra,
að ein veigamestu .atriði land-
helgissamningsins við breta
voru samþykkt. En lausn land-
helgismálsins og forysta fram-
sóknarmanna í henni, hefur
þegar að fullu réttlætt þátttöku
flokksins í ríkisstjórn með Sjálf
stæðisflokknum, svo nauðsyn-
leg reyndist hún í því máli.
Hvað hefði annars orðið?
MAÐURINN, SEM ÞURFTI
AÐ SVERTA
En svo undarlega lírá við, að
um það leyti sem landhelgis-
deilan var leyst fyrir stefnu-
fasta forystu framsóknarmanna,
hófst hin kunna rógsherferð á
hendur Ólafi Jóliannessyni
dómsmálaráðherra. Hann hefur
borið höfuð og herðar yfir
stjórnniálaforingja landsins á
síðustu árum og liann er því sá
þyrnir í augum bæði stjórnár-
andstæðinganna og hluta sam-
starfsflokksins í ríkisstjórn,
vegna yfirburða sinna, að ekk-
ert var til sparað að rægja hann
og koma með því uin leið höggi
á Framsóknarflokkinn allan.
Fram til þessa hefur þessum
árásum verið lialdið áfram f
„gulu pressunni“, Alþýðublað-
inu, Vísi og Dagblaðinu, og
reynt að sverta fleiri þekkta
framsóknarmeim.
ARAS „GULU
PRESSUNNAR“
Arásirnar á Ólaf Jóhannesson
dómsmálaráðherra hafa mis-
tekist. I þeim viðskiptum liefur
nafn hans stækkað bæði sem
embættismanns og manns.
Ljóst er, samkvæmt vinnu-
brögðunum, að árásir þessar
eru skipulagðar verulega og í
trausti þess, að smám saman
takist að grafa undan því
almenna trausti, sem Ólafur
Jóhannesson nýtur og hinir
ýmsu flokksbræður hans, sem
Seytjándi aðalfundur Æskulýðs
félags kirkjunnar í Hólastifti
verður haldinn á Hofsósi dag-
ana 2. og 3. október n. k. Hefst
fundurinn í barna- og unglinga-
skólanum klukkan 3 á laugar-
daginn. Um kvöldið verður
almenn samkoma í Hofsós-
kirkju klukkan 9. Þar flytur
séra Kristján Valur Ingólfsson
prestur á Raufarhöfn erindi um(
æskulýðsstarf kirkjunnar á
Norðurlandi. Stína Gísladóttir
aðstoðaræskulýðsfulltrúi flytur
hugvekju. Haukur Björnsson
frá Bæ syngur einsöng við
undirleik Ingimars Pálssonar
kennara á Hólum. Séra Jón
Einarsson í Saurbæ formaður
starfsháttanefndar kirkjunnar
flytur erindi. Staðarprestur,
séra Sigurpáll Óskarsson, for-
samskonar spjótum hefur verið
beint að í seinni tíð, eftir að
sýnt þótti, að liin fyrsta aðal-
árás á formann Framsóknar-
flokksins hafði runnið út í
sandinn. En rógsherferðin á for-
mann Framsóknarflokksins nú,
er sýnilega betur undirbúin og
skipulagðari en árásir á t. d.
Jónas Jónsson og Hermann
Jónasson. En hún mun einnig
mistakast.
KÆRA RANNSÓKNAR-
LÖGREGLUMANNSINS
Karl Chiitz, rannsóknarlögreglu
maðurinn þýski, sem hér á landi
vinnur að rannsókn glæpamála,
stefndi Morgunblaðinu fyrir
móðgandi skopmyndir og gerir
kröfur til blaðsins um 700 þús-
und króna miskabætur. En
rannsóknarmaðurinn var í þess
um skopmyndum sýndur í ein-
kennisbúningi nasista, og þar
með gefið í skyn, að hann hafi
verið í þjónustu þeirra.
Frá þessari kæru hefur verið
sagt í blöðum, en ekki minnist
maður þess, að hafa séð þess
vott að hún hafi orðið blaða-
mönnum sérstakt umhugsunar-
efni.
HVAÐ UNDRAST MENN?
En það eitt, að erlendur og virt-
ur embættismaður kærir
ábýrgðarmenn íslensks dag-
blaðs fyrir ærumeiðingar, ætti
að verða íslenskum blaðamönn-
um nokkurt atliugunarefni. Því
miður er íslensk blaðamennska
á því „plani“ uni þessar mundir,
að ef einhverjir í þeirra stétt
liafa orðið undrandi, er undr-
unarefnið það eitt, að hinn
erlendi embættismaður sé óþarf
lega viðkvæmur og þannig
munu margir blaðalesendur
einnig líta á, sóðaskapnum van-
ir. Sannleikurinn er hins vegar
sá, án þess að leggja dóm á til-
efni umræddrar kæru, að hér á
landi tíðkast víða sú blaða-
mcnnska, að ærumeiðandi og í
rauninni mjög saknæm ummæli
um einstaka menn, eru ekki
tekin hátíðlegar en ljótur munn
söfnuður orðljótra manna yfir-
leitt. Kæra Karls Chutz er
óbein ábending um þetta.
Fréttaritari blaðsins á Húsavík
sagði, að á austanverðu Tjör-
nesi væru berin enn mjög góð,
auk þess að vera mikil, því þau
hefðu enn ekki frosið. □
Z7
Z7
mnníium
ÆFINGAR SKIÐAMANNA ERU HAFNAR
Akureyrskir skíðamenn sem á
undanförnum árum hafa gert
garðinn frægan hafa hafið sínar
vetraræfingar. Æft er þrek og
þol undir stjórn Þrastar Guð-
jónssonar íþróttakennara og
fara æfingarnar fram á íþrótta-
vellinum.
Margir af skíðamönnunum
æfa einnig knattspyrnu og hafa
því haldið sig í góðu formi í
surr.ar. Þá hafa þeir einmg sést
á hlaupum ofan við bæ af og til
í sumar og hafa svo verið fasta-
gestir í sundlauginni.
Þeir Árni, Haukur og Tómas
hyggja á æfingar og keppni á
meginlandinu nú í vetur, en
slíkar ferðir kosta þá offjár og
styrkir segja lítið upp í kostn-
aðinn. Þessir piltar hafa verið
erlendis við æfingar og keppnir
mörg undanfarin ár og hafa
eytt í það geysilegum tíma og
fjármunum, en þeir telja það
sem fæst í staðinn sé fjármun-
anna virði.
Ekki hefur Skíðaráð Akur-
eyrar gengið frá þjálfun skíða-
manna í vetur en verið getur að
austurríska stúlkan sem hér
þjálfaði í fyrra með góðum
árangri verði hér aftur. Starfs-
menn skíðamiðstöðvarinnar
hafa í sumar yfirfarið stólalyft-
una í fjallinu, en slík klössun
hefur ekki farið fram á henni
síðan hún var sett upp. Þá hafa
þeir einnig dyttað að öðrum
lyftum, málað hús og hótel og
fegrað umhverfið á annan hátt.
HAUSTMÓT
í HANDKNATTLEIK
N. k. laugardag kl. 16 leika í
íþróttaskemmunni KA og Þór
í meistaraflokki í handknatt-
leik. Er hér um að ræða haust-
mót liðanna. Keppt verður um
veglegan bikar sem gefinn er af
Sporthúsinu og verður bikarinn
afhentur sigurvegurum í leiks-
lok. Verður hér eflaust um að
ræða skemmtilega keppni, en
svo er alltaf þegar þessir aðilar
keppa. Áhorfendur eru hvattir
til að fjölmenna í skemmuna og
hvetja menn sína.
HANDKNATTLEIKSMENN ÆFA AF KRAFTI
í viku í
Handknattleiksmenn KA og
Þórs æfa nú af fullum krafti
undir stjórn hinna nýju þjálf-
Tilnefning
Bæjarráð samþykkir í samræmi
við bókun frá 2. september sl.
að eftirtaldir menn verði skip-
aðir í nefnd til undirbúnings
„Dagur iðnaðarins“, sem áform-
að er að hafa í byrjun október
n. k.
Jón Arnþórsson eftir tilnefn-
ingu Iðnaðardeildar SÍS, Jón
Ingimarsson eftir tilnefningu
Iðju, félags verksmiðjufólks,
Aðalsteinn Jónsson eftir til-
nefningu KEA, Haukur Árna-
son eftir tilnefningu Meistara-
félags byggingamanna á Norður
landi, Gunnar Ragnars eftir til-
nefningu Slippstöðvarinnar, Sig
urður Hannesson og Stefán
Reykjalín.
Stefáni Reykjalín er falið að
kalla nefndina saman. □
ara. Æft er þrisvar
íþróttaskemmunni.
Ekki verða umtalsverðar
breytingar á skipan liðanna í
vetur. Þeir menn sem hafa
verið burðarásar liðanna undan
farin ár verða það áfram og
yngri menn fá einnig að spreyta
sig með þeim eldri. Þjálfarar
liðanna eru báðir margreyndir
í faginu og hafa getið sér góðan
orðstír sem handknattleiks-
þjálfarar. Báðir eru kennara-
menntaðir og munu kenna við
skóla bæjarins samhliða þjálf-
uninni.
Fyrstu leikir KA og Þórs í
annarri deild verða á Akureyri
helgina 16. og 17. okt., en ekki
er vitað með vissu um and-
stæðingana.
Ó. Á.
fAtvinnai
Vil ráffa
stýrimann og matsvein á 150 tonna bát.
Siglt með aflann.
ÞORVALDUR BALDVINSSON,
sími 6-14-17.
ðlfundur Æskulýðsfélagsins á Hofsósi
maður ÆSK og séra Bolli Gúst-
avsson annast helgistund í vöku
lok.
Fundi verður fram haldið á
sunnudag og lýkur eftir hádegi
með messum í Hofsóskirkju,
Fellskirkju og Barðskirkju í
Fljótum. Æskulýðsfulltrúi þjóð
kirkjunnar, séra Þorvarður
Karl Helgason, flytur guðsþjón-
ustu á Hofsósi.
Ný opnii:
AUGLÝSINGA-
TEIKNI- OG
SKILTAGERÐ
Okkur vantar starfsfólk
í saumadeild. Hálfs dags
vinna kemur til greina.
Skóverksmiðjan Iðunn
sími 2-19-00.
Við erum þrjú systkini,
þriggja, sex og sjö ára,
sem langar svo til að
mamma komist í skól-
ann tvö kvöld í viku.
Er ekki einhver góð
stúlka á aldrinum 15—
20 áia sem vill hjálpa
okkur til að gleðja
mömmu, ef svo er þá
hringdu í síma 1-96-76
og spurðu eftir Margréti
TEIKNIHONNUN
Tökutn að okkur allar merkingar á hús og bíla.
Hönnum hyerslags auglýsingar og firmamerki.
Afgreiðslan opin 9—12.
Kaupvangsstræti 4, 2. hæð, sími (96) 1-98-95.
Kodak vasamyndavél
tapaðist sl. laugardags-
kvöld.
Skilvís finnandi vinsam-
leeast hringið í shna
2-32-39.