Dagur - 05.01.1977, Qupperneq 1
LX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 5. janúar 1977 — 1. tölublað
Lánssamningur vegna
Á mánudaginn var í Norræna
húsinu í Reykjavík undirritað-
ur lánssamningur vegna járn-
blendiverksmiðju þeirrar, sem
rísa mun á Grundartanga. Það
er Norræni fjárfestingarbank-
inn, sem lánar íslendingum 7.3
milljarða ísl. króna í þessu
skyni eða 200 milljónir norskar
krónur. Lán þetta verður greitt
út í þrennu lagi: í júní á þessu
ári, í desember 1978 og í júní
1980. Endurgreiðsla á að fara
fram á árunum 1981—1994.
Samningana undirritaði fyrir
hönd Járnblendifélagsins dr.
Gunnar Sigurðsson formaður
þess félags, að viðstöddum iðn-
aðarráðherra og seðlabanka-
stjóra. En fyrir hönd Norræna
fjárfestingarbankans þeir Her-
mad Skánland bankastjóri
Noregsbanka og Bent Lind-
ström bankastjóri Norræna fjár
festingarbankans.
Járnblendiverksmiðjan á að
taka til starfa um áramótin
1978—-1979, með öðrum bræðslu
ofni af tveim, en hinn bræðslu-
ofninn verði tekinn í notkun
hálfu öðru ári síðar. íslending-
ar eiga 55%. verksmiðjunnar en
Elkem Spigerverket 45%.
íslendingar eiga að gera höfn,
sem 20 þúsund tonna skip geta
notað vegna flutninga. Um 150
manns munu vinna við verk-
smiðjureksturinn. Framleiðslan
er kísiljárn, notað f ýmiskonar
stálvinnslu, og framleiðslumagn
á ári 50 þúsund tonn.
Landsvirkjun á að leggja til
raforkuna. Að því er fram kom
í sjónvarpsviðtali við norska
samningsaðila, mun raforku-
verðið, sem þó hefur ekki verið
staðfest af Alþingi, vera 50%
lægra en unnt er að fá í Noregi.
Gert er ráð fyrir endurskoð-
unarmögúleikum á raforku-
verðinu. Verksmiðjan þarf 60
megavött. Ríkisstjórnin hefur
heimilað Landsvirkjun að hefj-
ast handa á þessu ári um 140
megavatta virkjun við Hraun-
eyjarfoss. Q
Bálköstur á Bárufellsklöppum í Glcrárhverfi.
(Ljósm.: E. D.)
Rólegt var um jól og áramót
Samkvæmt umsögn yfirlög-
regluþjónsins á Akureyri, Gísla
Olafssonar, var fremur rólegt í
bænum um jól og áramót, og
að okkar áliti voru áramótin
ágæt, sagði hann. Dansleikir
voru í samkomuhúsum bæjar-
ins, Alþýðuhúsinu, Sjálfstæðis-
húsinu og í Gagnfræðaskólan-
um, en án vandræða. Aðeins
þrír gistu fangahúsið og er það
minna en oft gerist um venju-
legar helgar. Margt fólk var á
dansleikjum þessum og mikil
umferð fram undir morgun, en
ekki bar neitt út af í þeirri um-
ferð.
Brennur voru þrjár á gamlárs
kvöld, ein upp hjá Stíflu, önnur
á Bárufellsklöppum og sú
þriðja nálægt Klettaborgum.
Mjög mikil umferð var á meðan
logaði í brennunum, en slysa-
laus.
Skoteldur hafði verið settur
í loftventil í húsi eeinu við
Hamragerði og urðu af því
nokkrar skemmdir af reyk og
sóti.
Á mánudagsmorgun varð
dauðaslys á Þingvallastræti við
mót Dalsgerðis, er maður varð
þar fyrir jeppabifreið í hálku
og hvassviðri. Maðurinn, sem
lést, var Steinberg Ingólfsson
iðnkennari í Dalsgerði 3, 48 ára.
Sabína og fleiri verkefni L.A.
Leikfélag Akureyrar hefur að
undanförnu haft leikritið
„Sabína“, eftir Hafliða Magnús-
son, til sýningar við ágætar
undirtektir og er því ætlunin
að halda sýningum á því áfram
um sinn. Þetta er söngvaleikur
og sér Ingimar Eydal um út-
setningu og undirleik en Saga
Jónsdóttir annast leikstjórnina.
í leikritinu eru fjörugir og
kraftmiklir söngvar og hafa
sumir útvarpshlustendur ef-
laust heyrt þá fljóta eftir öldum
ljósvakans. Leikendur eru 11 og
með aðalhlutverk fara Þórir
Steingrímsson, Heimir Ingi-
marsson, Gestur E. Jónasson,
Aðalsteinn Bergdal og Ása Jó-
hannesdóttir, en alls starfa um
17 manns við sýninguna. Fyrsta
sýning á „Sabínu“ eftir áramót-
in verður núna á föstudags-
kvöldið kl. 20.30 og svo aftur á
sama tíma á sunnudagskvöldið.
Næsta verkefni félagsins
verður „Oskubuska“ eftir
Evgení Schwarz, í leikstjórn og
þýðingu Eyvindar Erlendsson-
ar, en þetta er barnaleikrit
fyrir fólk á öllum aldri.
Þar næsta verkefni félagsins
verður „Sölumaður deyr“ eftir
Arthur Miller og verður Herdís
Þorvaldsdóttir leikstjóri.
Leikfélagið hefur séð sér
fært að gefa áhorfendum 20—
25% afslátt af áskriftarkortum
og hópferðum og hefur fólk
fært sér það í nyt í ríkara mæli
nú er áður.
Slökkvilið Akureyrar var 101
sinni kallað út á síðastliðnu ári.
Mest tjón varð í bruna í Heklu
26. mars, Sólbaki 8. september
og Hrísgerði í Fnjóskadal 26.
ágúst.
Slökkvilið Akureyrar sér
einnig um sjúkraflutninga
Rauða kross deildarinnar á
staðnum. Útköll þar voru 988
talsins, þar af 225 utanbæjar.
Allar eru þessar tölur hærri en
árið 1975. Slökkviliðsstjóri er
Tómas B. Böðvarsson. Q
Frá vinstri: Þórir Steingrímsson, Ileimir Ingimar ,on og Gcstur E. Einarsson. (Ljósmyndastofa Póls)
Er það fimmta banaslysið hér á
landi frá áramótum.
Umferðarráð, skólar og lög-
regla settu af stað umferðar-
getraun fyrir skólabörn fyrir
jólin. Hér á Akureyri tóku á
1700 hundrað nemendur þátt í
henni. Rétt fyrir jólin var dreg-
ið úr í'éttum úrlausnum og 40
verðlaun veitt og voru verð-
launin bækur, ritföng o. þ. h.
Lögreglan afhenti verðlaunin á
aðfangadag. Mun getraunin
hafa örvað mjög umtal á heimil
um, svo sem til var ætlast. □
Loðna fundin
við Kolbeinsey
Gísli Árni fann í fyrrinótt loðnu
norðaustan við Kolbeinsey. Á
svipuðum slóðum fannst loðna
um miðjan janúar á síðasta ári,
en þó nokkru sunnar. Eyjólfur
Friðgeirsson leiðangursstjóri á
Árna Friðrikssyni sagði, að
kannað yrði hvort þetta væri
sjálf hrygningargangan eða eitt-
hvað annað. '
Eldborg var einnig í loðnuleit
á þessum miðum og til loðnu-
veiða eru einnig farin: Börkur,
Sæbjörg og Hilmir. Q
STUDNINGUR VIÐ
FRÆÐSLUSKRIFST.
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti samhljóða eftirfarandi
ólyktun skólanefndar Akur-
eyrar:
Skólanefnd Akureyrar fagnar
stofnun fræðsluskrifstofu í
Norðurlandsumdæmi eystra, en
vekur jafnframt' athygli stjórn-
valda á því, að til þess að hún
geti gegnt hlutverki sínu og
veitt þá þjónustu í umdæminu,
sem til er ætlast, má ekki drag-
ast lengur að hið háa Alþingi,
veiti fé til reksturs hennar eins
og grunnskólalög mæla fyrir
um. Q