Dagur - 05.01.1977, Qupperneq 8
ATBL:
Blaðið kostar kr. 50 í lausasölu
Daguk
Akureyri, miðvikudaginn 5. janúar 1977
RAKVÉLA-
BLÖÐIN g . GULLSMIÐIR
MARGEFTIR- ífM \ SIGTRYGGUR
SPURÐU 1 & PETUR
KOMIN - * AKUREYRI : !
Fuglarnir voru taldir
Að venju fór fuglatalning fram
á Akureyri_ eins og á ýmsum
stöðum á landinu, milli jóla og
áramóta, eða 26. desember.
Fuglateljarar hér voru: Árni
Björn Árnason, Davíð Haralds-
son, Þorsteinn Þorsteinsson,
Gunnlaugur Pétursson, Frið-
þjófur Gunnlaugsson og Jón
Sigurjónsson. Athugunarsvæðið
er allur Akureyrarbær og
ströndin frá flugvelli að Skjald-
arvík.
Þennan dag var tveggja
gráðu hiti um morguninn og
Mokafli
togaranna
Þrír Akureyrartogararnir, K'ald
bakur, Harðbakur og Svalbak-
ur, komu með fullfermi til Ak-
ureyrar að kveldi sunnudagsins
2. janúar. Svalbakur fór með
sinn afla til Húsavíkur en hinir
lönduðu á Akureyri. Sama dag
landaði Sólbakur fullfermi á
Þingeyri. Sléttbakur er á veið-
um. Þessi mikli afli fékkst við
ísröndina á Vestfjarðamiðum.
Þegar blaðið hafði samband
við skrifstofustjóra Utgerðar-
félags Akureyringa í gær, lá
ekki aflamagn togaranna fyrir,
nema Sólbaks, sem landaði 148
tonnum. En giska má á, að afli
þeirra fjögurra togara, er til
hafnar komu 2. janúar hafi ver-
ið yfir 1000 tonn, og að verð-
mæti 70 milljónir króna eða
meira, ef nefna má ágiskunar-
tölu í því sambandi. □
BRETAR BEITA
HÁUM SEKTUM
Sem kunnugt er, færðu lönd
Efnahagsbandalagsins út fisk-
veiðilögsögu sína nú um ára-
mótin í 200 sjómílur, þótt þau
hafi ekki enn komið sér saman
um innbyrðis nýtingu innan
hinnar nýju landhelgi.
Bretar hafa tilkynnt um
sektarákvæði vegna hugsan-
legra landhelgisbrota, og eru
það 50 þúsund sterlingspund.
Freigátur og Nimrodþotur
verja 'landhelgi þeirra. □
þriggja stiga frost þegar á dag-
inn leið og þá komið norðan
hríðarveður. Snjór var mjög
lítill, Pollurinn íslaus og fjörur
ófrosnar.
Niðurstaða fuglatalningar-
innar var sú, að alls fundust
26 fuglategundir. Mest fór fyrir
svartbökum, sem töldust 868,
sem er ótrúleg mergð og ber
vitni þess, að akureyringar eru
örlátir á úrgangsefni, sem með-
al annars er fæða þessara fugla.
Snjótittlingarnir voru næstir að
tölu þennan dag og reyndust
650. Þá sáust 470 æðarfuglar og
460 stokkendur. Bjartmáfar
voru 136 og hrafnar 108.
Tala annarra fugla var sem
hér segir:
Auðnutittlingar . . , , ... 12
Gráþrestir . .. . 3
Gulendur .... 32
Hávellur ....' 9
Hvítmáfar .... 85
Hettumáfar .... 45
Haftyrðlar .... 31
Músarindill .... 1
Rjúpur .... 2
Rauðhöfðaönd .... ... . 1
Ritur .... 9
Silfurmáfar .... 52
Stormmáfar ... . 2
Sendlingar ... . 6
Smyrill .... 1
Skógarþrestir .... . ... 47
Starar . . . . 5
Toppendur .... 3
Langvíur . ... 2
Teistur ... . 2
Eins og á yfirlitinu má sjá,
var lítið um þresti í bænum að
þessu sinni. En aldrei hafa
fleiri þrestir verið á Akureyri
en síðasta haust. Skiptu þeir
þúsundum, en sumir álíta, að
þeir hafi skipt tugum þúsunda.
Þeir komu flestir í haust, því
fremur lítið var af þeim í bæn-
um í sumar, dvöldu svo þrjár
vikur, átu nokkur tonn af reyni
berjum í görðum bæjarbúa og
hurfu svo, næstum eins og
hendi væri veifað.
Af sjaldgæfum fuglum, sem
séðst hafa í bænum á liínu ári
voru tveir amerískir andar-
steggir, sem héldu til nálægt
flugvelli um þriggja vikna skeið
en hurfu þá til Mývatns. Þá sást
sandtittlingur í garði við húsið
Ásabyggð 1 og grákráka inn við
Gróðrarstöð.
Þá er þess enn að geta, að
margir haftyrðlar fundust hér
og hvar á Akureyri um hátíð-
arnar, og bóndinn í Torfufelli
kom með einn, er þangað hafði
flækst.
Haftyrðillinn er lítill og
skemmtilegur, hánorrænn út-
hafsfugl, sem verpir í björgum
norðlægra landa. Aðeins nokkr-
ir verpa í Grímsey . en ekki á
öðrum stöðum hér á landi, svo
vitað sé. Haftyrðillinn flýgur
stundum í hópum frá sjó, allt
upp að jöklum og ferst þar, því
hann verður ófleygur þegar
hann villist frá sjó. □
SMÁTT & STÓRT
ÞÁTTURINN HELDUR
ÁFRAM
Þessi þáttur, „Smátt og stórt“,
hefur orðið langlífari hér í blað
inu en upphaflega var ætlað og
nú hefur hann enn göngu sína,
eins og aðrir þættir blaðsins.
Drepið hefur verið á margt,
fátt rætt mikið, en því fleiru
varpað fram til athugunar.
Margt er frá lesendum komið,
beint og óbeint og er þátturinn
þakklátur fyrir ábendingar um
dagsins mál, og hin ólíklegustu
efni af öðrum toga.
AÐ VELJA OG HAFNA
Vegna þrengsla í blaðinu að
undanförnu, hefur oft verið úr
vöndu að ráða. Að sjálfsögðu
hefur fólki utan Akureyrar oft
þótt sinn hlutur heldur smár í
blaðinu. Akureyringar hafa og
undan því kvartað, að þeirra
mál væru fyrir borð borin. I
því efni er vart hægt að gera
öllum til hæfis fyrr en blaðið
hefur verið stækkað. Hitt má
benda á, að blaðið, ekki aðeins
þessi þáttur, er þakklátt fyrir
ábendingar og einnig frétta-
sendingar, í fremur stuttu máli,
bæði úr sveit og bæ.
MIKIÐ FÍKNIEFNAMÁL
SYÐRA
Samkvæmt upplýsingum Ragn-
ars Guðmundssonar við fíkni-
efnadómstólinn í Reykjavík,
varð á síðasta ári uppvíst um
smygl á 25 kílóum af hassi og
verulegu magni af öðrum fíkni-
efnum. Lögreglunni tókst að
Nff! fríó heldur fónleika á Akureyri
Nýtt píanótríó heldur sína
fyrstu tónleika hér á landi í
janúarmánuði, en tríóið er
þannig skipað: Guðný Guð-
mundsdóttir fiðluleikari, Haf-
liði Hallgrímsson sellóleikari og
Philip Jenkins píanóleikari.
Tríóið hefur þegar fengið boð
um að leika á tónlistarhátíðinni
í Bergen á næsta vori, eftir að
hafa leikið í London í febrúar
og á fslandi í janúar.
Fyrstu tónleikarnir á íslandi
verða á vegum Tónlistarskóla
og Tónlistarfélags Sauðárkróks
þriðjudaginn 4. janúar í Safna-
húsinu, og hefjast þeir kl. 21.
Föstudaginn 7. jan. leika þau í
bíóinu á Dalvík, en Tónlistar-
félag Dalvíkur gengst fyrir
þeim tónleikum og hefjast þeir
einnig kl. 21. Laugardaginn 8.
jan. leika þau á vegum Tón-
listarfélags Akureyrar í Borgar
bíói og hefjast tónleikarnir kl.
17. Laugardaginn 15. jan. leikur
tríóið á vegum Tónlistarfélags
Reykjavíkur í Austurbæjar-
bíói.
Á efnisskránni er píanótríó
eftir Haydn, Tchaikovsky og
Ives. □
Jarðborinn Jötunn, sem á síð-
asta ári var notaður til borunar
á Syðra-Laugalandi í Eyjafirði,
Mikiff fiskur
Á síðasta ári tók frystihúsið í
Hrísey á móti 2893 lestum til
vinnslu og er þetta veruleg
aukning frá árinu 1975, en þá
var landað í Hrísey 1912 lestum
af fiski.
Skuttogarinn Snæfell landaði
mestum hluta aflans á síðasta
ári, eða 2421 lest. □
með góðum árangri, er nú á leið
inni þangað og á nú að leita
með honum að meiru heitu
vatni, en nú í landi Ytra-Lauga
lands, skammt fyrir norðan
fyrstu borholuna af þrem, sem
á Syðra-Laugalandi voru gerð-
ar. Hefur höggbor þegar hafið
borun, en síðan tekur Jötunn
við og verður þess freistað að
auka það magn af heitu vatni,
sem þegar er fengið.
Vatnið verður leitt í stálpíp-
um til Akureyrar, 12,5 kíló-
metra leið og er talið, að leiðsla
þessi kosti um 70 milljónir
króna. □
leggja hald á 2,5 kíló af hassi
og 200 grömm af amfetamíni.
Ennfremur á fimintu milljón
króna 1 peningum, mest erlend-
um gjaldeyri, sem var hluti
hagnaðar af sölu fíkniefnanna.
Átjárt menn hafa setið í gæslu-
varðhaldi sökum rannsóknar
þessa máls og af þeim var að-
eins einn í haldi fram yfir jól.
En lengst sat sami maður inni
í 81 dag. Yfir eitt hundrað
manns komu við sögu þessa
máls á einn eða annan hátt,
annað hvort sem innflytjendur,
sölumenn eða neytendur.
Umhugsuharvert er það, að
ekki virðist fíkniefnasala eða
neysla hafa borist til Norður-
lands, svo lögregluyfirvöldum
sé um það fullkunnugt.
LÁN TIL GRUNDARTANGA
7.3 MILLJARÐAR
Norræni fjárfestingarbankinn
hefur ákveðið að veita fslenska
járnblendifélaginu lán til verk-
smiðjubyggingar á Grundar-
tanga, að upphæð 7.3 milljarða
ísl. króna. Verður lánið veitt í
þrem hlutum, jafnóðum og
byggingum miðar áfram. Áætl-
að er, að fyrsti hluti verksmiðj-
unnar geti tekið til starfa um
áramótin 1978—1979.
REYNT AÐ SEMJA UM
SÖLU LOÐNU TIL JAPANS
Innan skamms fara til Japan
fulltrúar frá Sölumiðstöðinni og
Sambandinu, til að kynna sér
markað fyrir hraðfrysta loðnu,
sem veidd verður á vetrarver-
tíðinni. í fyrra voru fimm þús-
und tonn af hraðfrystri loðnu
seld til Japan, en tvö næstu
ár þar áður var loðnuútflutn-
ingurinn þangað um seytján
þúsund tonn. Verkfall hér á
landi á besta frystingartíma
loðnunnar torvelduðu mjög
þessi viðskipti í fyrra.
ÞRJÚ HUNDRUÐ NÝJAR
BÆKUR
Láta mun nærri, að 300 bækur
hafi vcrið gefnar út á þessu ári,
auk kennslubóka, bæklinga og
annarra rita. Þar af eru 25 ís-
lenskar skáldsögur, 45 þýddar
skáldsögur, 40 ævisögur og þjóð
legur fróðleikur og 50 ljóöa-
bækur. Þá eru bækur um ýmis-
konar efni 60 talsins og 80
barna- og unglingabækur og
eru þar þýddu barnabækurnar
í miklum meirihluta.
Frá vinstri: Philip
Hallgrímsson.
Jenkins, Guðný Guðmundsdóttir og Hafliði
Grenivík, 21. desember. í síð-
ustu viku var ær með tvo dilka
sína handsömuð norðan við
Látur á Látraströnd og flutt
sjóleiðis til Grenivíkur. f sömu
ferð voru tvær geitur sóttar á
svipaðar slóðir. Var fénaður
þessi vel á síg kominn.
Þá var nýlega farin vélsleða-
ferð í Fjörður, í kindaleit, en
ekkert fannst.
Sú villa slæddist í síðustu
frétt frá Grenivík, að búið væri
að lóga 3500 minkum, en átti að
vera 5200. P. A.