Dagur - 10.03.1977, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMiÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, FIMMTUDAGINN 10. MARS 1977
11. TOLUBLAÐ
Vondar horfur
Félag dí'áttarbrauta og
skipasmiðja hafa sent frá
sér frétt um það, að 8
stöðvar séu ýmist verk-
efnalausar eða hafi verk-
efni til skamms tíma, en
fjórar stöðvar séu með
verkefni næstu 10—12 mán-
uði. □
Æðardúnninn
er dýrmætur
Æðardúnninn er ákaflega
verðmæt vara og eftirsótt.
Mest af honum er flutt á
erlendan markað, einkum
til Þýskalands. Fæst þar
fyrir handtíndan dún um
39 þúsund krónur fyrir
kílóið. Innanlandsverð er
40.800 krónur. Æðarvarp er
talið til mestu hlunninda á
jörðum og hefur sumum
tekist að auka það veru-
lega og auka þannig tekjur
sínar. Talið er, að dúnfram-
leiðsla ársins 1976 muni
nema um 70 milljónum
króna.
Vargfugl og minnkar
gera mikinn usla í varp-
löndum bænda á vorin. □
H
Sextán ár í
fangelsi
Ásgeir Ingólfsson var ný-
lega í Sakadómi Reykja-
víkur dæmdur í 16 ára
fangelsi fyrir að hafa orðið
Lovísu Kristjánsdóttur að
bana og fyrir innbrot í Vél-
smiðjuna Héðinn. Hér á
landi hefur ekki tíðkast
þyngri refsing fyrir hroða-
legustu afbrot. Málinu var
skotið til Hæstaréttar. Þá
mun þess væntanlega ekki
mjög langt að bíða að dóm-
ar verði kveðnir upp í Guð-
mundar- og Geirfinnsmál-
um. □
Aö hefja
búskap í sveit
Oft er um það rætt, að dýrt
sé að hefja búskap í sveit
og mun þáð rétt vera. En
þó má á það benda, að það
kostar mikið fjármagn að
setja saman heimili og
koma sér upp þaki yfir höf-
uðið, hvort sem það er í
sveit eða bæ.
Út hefur verið reiknað,
að kostnaður við að koma
sér upp 400 kinda búi kosti
32.500 þús. kr. og er þá
íbúðarhús metið á 10 millj-
ónir króna.
Kúabú, miðað við 30 kýr,
kostar aðeins minna, eða
30.500 þús. kr. og er þar
íbúðarhúsið jafn hátt met-
ið. Lánin, sem unnt er að
fá, eru 34—36% af heildar-
kostnaðinum. □
.'■■ú
Bæjarstjórnarsalurinn á Akureyri var skreyttur í tilefni af 2500. fundi bæjarstjórnar á þriðjudaginn. Forseti, Valur Amþórsson, flutti
tillögu þá, er sagt var frá í síðasta blaði, um framlag bæjarsjóðs til ritunar Akureyrarsögu og allir bæjarfulltrúar stóðu að, og var hún
samþykkt. Mættir voru margir fyrrverandi bæjarfulltrúar og aðrir gestir. Á myndinni eru f. v. bæjarfulltrúamir: Stefán Reykjalín,
Freyr Ófeigsson, Valur Amþórsson, Soffía Guðmundsdóttir, Helgi M. Bergs bæjarstjóri, Sigúrður Sigurðsson. Aftari röð: Gísli Jóns-
son, Ingólfur Ámason, Sig. Óli Brynjólfsson, Jón G. Sólnes, Sigurður Hannesson og Bjami Rafnar. (Ljósm.: Ljósmyndastofa Páls).
Undirbúa aflahrotu
Hóli við Raufarhöfn 9. mars. —
Hið eina, sem íslendinga vantar
tilfinnanlegast, er að spara, því
þá væri verðbólga ekki vanda-
mál og við það ynnist, að þjóð-
inni liði miklu betur.
Nú eru stærri bátamir farnir
að róa með net og línu og hafa
orðið vel varir, er óhætt að
segja. Þá má geta þess, að
Rauðinúpur kom með ágætan
afla úr síðustu veiðiferð, 160
tonn, og er væntanlegur ein-
hvern næsta dag. Vinna hefur
því verið næg að undanförnu,
og svo hefur það verið í vetur,
nema í svartasta skammdeginu,
að menn gátu verulega rétt úr
sér og slappað svolítið af.
Útifyrir er garður eins og er,
þótt hægviðri sé hér inni. Sjó-
lagið segir okkur hvernig veðr-
ið er úti á hafinu. Tíðin er
ágæt og löngum stillt síðustu-
vikurnar. Snjór er ekki mikill,
Lögreglan
Á Akureyri starfa 22 lögreglu-
þjónar, en yfirlögregluþjónn er
Gísli Ólafsson. Varðstjórar hafa
verið þrír, þeir Kjartan Sig-
urðsson, Erlingur Pálmason og
Árni Magnússon, en verða nú
fjórir, því við bætist Matthías
Einarsson. Þá verða nú aðstoð-
arvarðstjórar fjórir, Þeir Gunn-
ar Randversson, Ólafur Ásgeirs-
son, Valgeir Axelsson og Karl
J. Kristjánsson. □
en snjófeldurinn, sem yfir ligg-
ur, er harður. Hér eru nokkuð
mikil svellalög og valda þau
áhyggjum ef þau liggja lengi.
En hér eftir myndast ekki ný
svell til skaða, því nú er sól-
bráð þegar til sólar sést og svell
meirna þá jafnóðum í sæmilegri
tíð.
Vegir eru allir galopnir og
lítið hefur þurft að berjast við
snj ómoksturinn.
Mikill undirbúningur fer
fram hér um slóðir vegna vænt-
anlegrar grásleppuvertíðar og
fer mikill tími í það og ekki
undarlegt, þar sem margir ætla
sér uppgripaveiði í vor og fá
hana ,ef allt gengur að óskum,
eins og fyrirfarandi ár. Þ. S.
Erlendir samvinnumenn
f tilefni af 75 ára afmæli Sam-
bands íslenskra samvinnufé-
laga kaus Alþjóðasamvinnu-
sambandið að efna til funda-
halda í Reykjavík í þessari
viku. Fyrr í vikunni skruppu
fulltrúar hingað til Akureyrar
til að kynna sér starfsemi KEA
og verksmiðjureksturinn á
Akureyri.
Alþjóðasamvinnusamb. var
stofnað 1895 og er samband
samvinnusambanda í öllum
heiminum og innan þess eru
169 sambönd með 326 milljón-
um félagsmanna í 66 löndum.
Aðalstöðvar Alþjóðasamvinnu-
sambandsins eru í London og
fæst það ekki við verslun né
viðskipti, en kemur fram sem
fulltrúi samvinnumanna, út-
breiðir hugsjónir samvinnu-
manna og stendur vörð um sam-
vinnuhreyfinguna á öllum svið-
um.
Samband íslenskra samvinnu-
félaga er í alþjóða samvinnu-
sambandinu og hefir verið um
áratugi. Alþjóða samvinnusam-
bandið hefur aðstoðað þróunar-
löndin verulega, og þar leggja
íslenskir samvinnumenn sinn
hluta að mörkum.
Forráðamenn Kaupfélags Ey-
firðinga tóku á móti gestunum,
og bæjarstjórn Akureyrar bauð
til hádegisverðar. Samband ís-
lenskra samvinnufélaga hefur
bæði verið veitandi og þiggjandi
í alþjóðasamtökunum. Q
Hermóður
Guömundsson
látinn
Hermóður Guðmundsson bóndi
í Árnesi í S.-Þing. lést að heim-
:ili sínu á þriðjudaginn, eftir
langvarandi veikindi, rúmlega
sextugur áð aldri.
Samningunum ýtt úr vör
Á þriðjudaginn hófst fyrsti
samningafundur Alþýðusam-
bands slands og Vinnuveit-
endasambandsins. Með þeim
fundi var formlegum viðræð-
um ýtt úr vör. Var þessi fund-
ur fjölmennur og skýrðu full-
trúar Alþýðusambandsins nið-
urstöður kjaramálaráðstefnu
sinnar og vinnuveitendur gerðu
grein fyrir stöðu þjóðarbúskap-
arins, eins og þeir meta hana
í upphafi samninga.
Samþykkt var að fela sátta-
semjara ríkisins að hafa for-
göngu um samninga og stjómar
hann nú frekari samningavið-
ræðum. Q
Þessi mynd af dorgveiði var tekin fyrir nokkrum árum á Mývatni
og veiddist þá vel eins og sjá má og áhuginn hélt á mönnum hita.
(Ljósm. E. D.)