Dagur - 10.03.1977, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudaginn 10. mars 1977
BILINN BATINN VINNUVELINA veljið rétt
MERKI
Á æfingu í sjónleiknum Sölumaður deyr.
(Ljósmyndastofa Páls).
Sölumaður Arthurs Miller
Frumsýning Leikfélags Akur-
eyrar á leikverki Arthurs Mill-
ers, Sölumaður deyr, var á
föstudaginn 4. mars og var sýn-
ingunni frábærlega vel tekið
Leikstjóri er Herdís Þorvalds-
dóttir leikkona og leysti hún
hér erfitt verkefni með miklum
sóma. — Leikendur eru tólf:
Marinó Þorsteinsson, Sigurveig
Jónsdóttir, Aðalsteinn Bergdal,
Þórir Steingrímsson, Saga Jóns-
dóttir, Jóhann Ögmundsson,
Bingó-
skemmtun
Á sunnudaginn 13. mars mun
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur
halda sína árlegu Bingó-
skemmtun til ágóða fyrir líknar-
mál. Margir glæsilegir vinning-
ar verða í boði, svo sem litasjón-
varp og vöruúttektir hjá Vöru-
húsi KEA.
Stjórnandi Bingósins verður
Ingimar Eydal og einnig mun
Ómar Ragnarsson skemmta
gestum. Á eftir mun svo hljóm-
sveitin Hjólið sjá um fjörið.
Forsala aðgöngumiða verður
í Sjálfstæðishúsinu milli kl. 2
og 4 á sunnudaginn, og vænta
klúbbfélagar að fólk fjölmenni
og styrki með því gott málefni.
Plasteinangrun
eykur framleiðnina
Frá því segir í KEA-fregnum,
að KEA hafi verið meðal stofn-
enda Plasteinangrunar, sem
rekin hefur verið hér á Akur-
eyri síðan 1960 og til þess stofn-
uð að framleiða einangrunar-
efni til bygginga. Þurfti áður að
kaupa þær vörur frá Reykja-
vík. Plasteinangrun er á Ós-
eyri 3 í Glerárhverfi. Þama er
á síðari árum einnig framleiðsla
hvers konar plastpoka og starf-
semin var einnig færð í Óseyri
1. Nú hefur Sambandið gerst
eignaraðili að Plasteinangrun
hf. og eiga KEA og SÍS 85%
fyrirtækisins og hefur verið
ákveðið að auka fjölbreytni
framleiðslunnar. Við verksmiðj-
una starfa sjö manns. Verkstjór-
ar eru Páll Garðarsson og Frið-
rik Ágústsson. □
Gestur E. Jónasson, Jón Krist-
insson, Ása Jóhannesdóttir, Ás-
laug Ásgeirsdóttir, Þórður Rist
og Jónsteinn Aðalsteinsson.
Vera má, að það athyglisverð-
asta við þennan sjónleik, sé
það hve hann er hér jafn vel
leikinn og hvergi bláþráður. En
um efni hans er það fyrst að
segja, að leikritið er með kunn-
ustu leikverkum Arthurs Mill-
ers og hefur verið viðfangsefni
leikhúsa um allan heim.
Sölumaðurinn í leikritinu er
leikinn af Marinó Þorsteinssyni,
af mikilli íþrótt, hann er aðal
persóna leiksins og fjallar leik-
urinn um uppgjör hans við líf
sitt og umheiminn. Hann er
einn af þeim dæmigerðu amerí-
könum, sem alla æfina er að
keppa eftir þeim verðmætum
sem mest eru auglýst og hygg-
ur sig geta lagt heiminn að fót-
um sér með hressilegu og hlý-
legu viðmóti, og einkum og sérí-
lagi með því að kaupa rétta
vöru og selja hana. Við æfilok
virðist harla lítið af þessu nokk-
urs virði. Uppeldi sonanna virð-
ist hafa misheppnast, og meira
sem hann hefur alla æfi litið
niður á, hefur með hæglæti sínu
náð miklu lengra á öllum svið-
um. Hinar stórkostlegu vin-
sældir, sem sölumaðurinn þótt-
ist eiga vísar, bæði fyrir sig
að segja Chraley vinur hans,
og syni sína, svo og viðskipta-
traustið, virðist að lokum tak-
markast við þennan eina vin og
son hans.
Leikritið er stórkostlegt og
vissir þættir mannlífsins eru
þar krufðir til mergjar og af
þeirri hörku og einlægni, sem
þessum höfundi einum er lagin.
Sölumaður deyr hefur verið tal-
inn segja frá harmleik aldar-
innar, enda þótt leikurinn sjálf-
ur sé fullur af skopi og hnyttn-
um tilsvörum.
Byggingar á Akureyri 1976
Tölur í sviga eru sambærilegar
tölur frá árinu 1975.
íbúðarhús.
Hafin var bygging 183 (178)
íbúða á árinu. Lokið var smíði
166 (146) íbúða, en fokheldar í
árslok voru 290 (248) íbúðir.
Skemmra á veg komnar voru
34 (59) íbúðir.
Alls voru því í byggingu 490
(453) íbúðir í árslok 1976.
Meðalstærð þeirra íbúða sem
fullgerðar voru á sl. ári er 486
rúmmetrar og er þá fylgirými
meðtalið svo sem bílgeymslur
þar sem þær eru innbyggðar í
húsin. Herbergjafjöldi í þessum
íbúðum er að meðaltali 3,58
herbergi.
Aðrar byggingar.
Af öðrum byggingum sem
fullgerðar voru á árinu má
nefna 1. áfanga stækkunar
Fjórðungssjúkrahússins á Akur
eyri, flugskýli og verkstæði
Flugfélags Norðurlands, versl-
unarhús Kaupfélags Eyfirðinga
að Hrísalundi 5, stækkun Niður
suðuverksmiðju K. Jónssonar
& Co. við Laufásgötu, verslun-
arhúsið Kaupang við Mýrarveg,
hús Prentverk Odds Bjömsson-
ar h.f. við Tryggvabraut 18—20
og stækkun á verksmiðjum SÍS
á Gleráreyrum.
Þá voru einnig byggðar marg
ar bifreiðageymslur og viðbygg-
ingar við eldri hús.
Heildarstærð allra húsa sem
í smíðum voru í árslok 1976 var
471.408,0 rúmmetrar.
Akureyri, 1. febrúar 1977.
Jón Geir Ágústsson
byggingafulltrúi.
m
HM
• Miklar skuldir.
Nettóskuldir íslendinga juk-
ust á síðasta ári um 10,7
milljarða króna og viðskipta-
hallinn varð 5 milljarðar, en
var um 20 milljarðar árið
áður. Heildarskuldir íslend-
inga við útlönd eru 96 millj-
arðar króna eða 436 þúsund
krónur á hvert mannsbam
á landinu.
Oft er talað úm efnahags-
mál breta, og á síðustu tím-
um með samúð, enda hafa
þeir orðið að taka stór er-
lend lán. En erlendar skuld-
ir þeirra eru þó ekki nema
55 þúsund á móti 436 þúsund
krónum hér.
• Sálræn þægindi.
Allt kapp hefur verið lagt á
góða nýtingu véla og mann-
afla í verksmiðjum og fyrir-
tækjum, og svo er enn —
ekki aðeins hér á landi, held-
ur um heim allan.
Þegar árangur þessa mikla
kapphlaups gefur tilefni til,
fara menn að hugsa um ýmis
atriði á vinnustöðum, sem
gerir vinnuna aðlaðandi eða
bærilega. Hið mesta keppi-
kefli er á hverjum vinnu-
stað, stórum og smáum, að
allir hafi áhuga á vinnu
sinni og ánægju af henni, og
lifi í sátt og samlyndi við
vinnufélaga sína, yfirmenn
og eigendur. Hér koma sál-
ræn þægindi á dagskrá, sem
m. a. er verkefni sálfræðinga
að auka og bæta. Sem betur
fer, eru þessi sálrænu þæg-
indi á mörgum vinnustöð-
um, en þurfa að vera á þeim
öllum.
• Bretar við sama
heygarðshomið.
Bretar hafa gert þá kröfu,
að framkvæmdastjóm Efna-
hagsþandalagsins taki upp
að nýju viðræður við íslend-
inga um fiskveiðiheimildir á
íslandsmiðum. Olav Gunde-
lach, sem íslendingar þekkja
af fyrri viðskiptum hans af
fiskveiðimálum, sagði að ís-
lendingar hefðu ekki gert
ljóst, hvort þeir vildu semja
við bandalagið. Sagðist hann
hafa reynt á „háum stöðum“
að koma viðræðum af stað,
en án árangurs. Ekki er lík-
legt, að íslenskum stjórn-
völdum þyki ástæða til
sanminga um fiskveiðar
handa bretum, samkvæmt
fyrri reynslu af þeim.
• Gott að aka.
Bflstjóri einn, sem ekur stór-
vöruflutningabfl á milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur,
sagði blaðinu nýlega, að al-
drei hefðu ferðir tafist í vet-
ur vegna snjóa. Og vegurinn
hefði löngum verið svo góð-
ur, að olíueyðslan hefði ver-
ið minni en að sumarlagi.
Miðað við venju sparast
stórar fjárfúlgur vegna þess
hve lítið hefur þurft að moka
og samgöngur á landi hafa
gengið svo vel, að fátítt er
eða einsdæmi.
• Bifreiðadeild
KEA.
t framhaldi af þessum hug-
leiðingum, herma KEA
fregnir, að Kaupfélag Eyfirð-
inga eigi nú og reki 12 vöru-
flutningabifreiðar, þar af eru
7 í stöðugum flutningum á
milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar. Fluttu þær á síðasta
ári nær 3 þúsund tonn af
framleiðsluvörum KEA til
Reykjavíkur og 2.373 tonn
af vörum frá Reykjavík, —
bæði hráefni til verksmiðj-
anna og verslunarvörur. Alls
starfa 22 menn við Bifreiða-
deild KEA á Akureyri.
• Vilja saltfiskinn
Sölusamband íslenskra fisk-
framleiðenda hefur gengið
frá sölu á 3500 lestum af salt-
fiski til Spánar og á fiskur
þessi að afgreiðast í vor.
Fyrr á árinu var samið um
sölu á 1300 lestum af salt-
fiski, einnig til Spánar.
Stjórnarformaður SfF hef-
ur látið hafa það eftir sér,
að enginn hörgull sé á salt-
fiskkaupcndum, en liins
vegar væri spumingin sú,
hvort allir gætu greitt það
verð fyrir fiskinn, sem selj-
endur vildu við una.
Fleiri samningar um sölu
á saltfiski eru nú á umræðu-
stigi. Saltfiskurinn hefur
Icngi verið meðal helstu út-
flutningsvara íslendinga.
Er hyggnari en ætlað var
Kópaskeri 9. mars. Rækjuveiðin
gekk vel fyrri hluta vetrar, en
á þessu ári hafa veiðar gengið
skrykkjótt. Strax eftir áramót-
in, þegar rækjuveiðar hófust á
ný, var allt fullt af síldar- og
þorskseiðum og var þá bannað
að veiða, opnað á ný og bannað
aftur og svona hefur það verið
til þessa.
f gær fengum við hingað
fiskifræðing og mann með hon-
um til að prófa rækjuveiðar með
fiskifælu í von um, að með
lienni yrði seiðunum bægt frá
vörpunni, en rækjan á að vera
svo heimsk að hún skynji ekki
„fæluna" og veiðist. Sú raun
varð á í gær að rækjan var ekki
eins heimsk og menn álitu, því
hún forðaði sér líka. í dag verð-
ur reynt á ný með breyttum
veiðarfærum.
Veiðisvæðið var opnað hjá
okkur nokkra daga nú nýlega
og þá var góð veiði, og náðust
16 tonn og var þá nægilegt að
gera alla síðustu viku og lauk
ekki vinnslu fyrr en á föstu-
dagskvöldið.
Hér verða 6—8 bátar á grá-
sleppuveiðum í vor og eru menn
að útbúa þá og veiðarfærin.
Unnið er af fullum krafti við
endurbætur á frystihúsinu hér
á Kópaskeri og gengur sú vinna
vel.
Fyrir þrem dögum varð
snjórinn rauðbrúnn. Ó. F.