Dagur - 20.04.1977, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ÁRG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1977 17. TÖLUBLAÐ
Goði er ferskur,
þróttmikill
og vel þjálfaður
Karlakórinn Goði hefur
víða sungið um þessar
mundir, og á Akureyri um
síðustu helgi. Kórinn skipa
bændur úr fjórum hrepp-
um í S.-Þing. Manni getur
dottið það tvennt í hug,
eftir að hafa hlustað á
Goða, hvort þessir þing-
eysku bændur hafi verið
leystir úr álögum eða tími
kraftaverkanna sé enn ekki
liðinn, og í báðum tilvikum
verður hlutur stjórnand-
ans, Roberts Bezdeks, stór.
En kór þessi er freskur,
þróttmikill og vel þjálf-
aður. Ekki er ofsagt að
segja, að hann komi manni
skemmtilega á óvart, jafn-
framt því sem hann lyftir
söngmennt þingeyinga svo
um munar. Hafi kórinn
kærar þakkir. n
AfbragÖ annarra
kvenna
Leikfélag Akureyrar, sem
í gær minntist sextugsaf-
mælis síns á Hótel KEA,
sýndi á föstudaginn í leik-
húsinu sjónleikinn Afbragð
annarra kvenna í tilefni af-
mælis síns. Leikstjóri er
Kristín Olsoni frá finnska
Wasaleikhúsinu. Þetta er
fimmta verkefni LA á leik-
árinu.
í lok sýningarinnar af-
henti Helgi M. Bergs bæjar
stjóri, LA peningagjöf frá
Akureyrarbæ 600 þúsund
krónur sem þakklætis og
viðurkenningarvott. For-
maður félagsins, Jón Krist-
insson, þakkaði. □
Þeir hittu bónda
á förnum vegi
Norðlenskur bóndi var
fyrir nokkrum árum á leið
milli bæja og var fótgang-
andi. Á eftir honum kom bíll
frá Rvík. í honum voru 2
lögreglumenn í einkennis-
búningum sínum, gull-
bryddum. Námu þeir stað-
ar og spurðu hvert bóndi
ætlaði, en buðu honum síð-
an far, því þeir gátu átt
samleið. Hinir einkennis-
klæddu spurðu bónda á
leiðinni, hvort mikið væri
að því gert þar um slóðir,
að menn keyrðu bíla sína
ölvaðir.
Já, svaraði bóndi, það er
nú þannig hér, að það fær
enginn ökupróf nema hann
hafi sýnt það, að hann geti
ekið blindfullur. Lögreglu-
mennirnir fréttu af því síð-
ar, að bóndinn var jafn-
framt hreppstjóri sveitar-
innar og lætur ýmislegt
fljóta, þingéyingur.
Björgúlfur bíður heimferðar í Slippstöðinni. (Ljósm. E. D.).
Nýrtogari til Dalvíkur
Rafn Hjaltalín
ráðinn
gjaldkeri
Frú Guðrún Þorleifsdóttir
gaf skipinu nafn á Akureyri.
Þegar til Dalvíkur kom, söng
Karlakór Dalvíkur undir stjórn
Gests Hjörleifssonar á bryggj-
unni. Gunnar Ragnars afhenti
skipið framkvæmdastjóra Ut-
gerðarfélags Dalvíkinga, Björg-
vini Jónssyni og fluttu báðir
ávarp við það tækifæri. Enn-
fremur flutti Valdimar Braga-
son, bæjarstjóri, ávarp.
Síðan var viðstöddum boðið
að skoða skipið og á eftir til
veitinga í Víkurröst. Þar sagði
Hilmar Daníelsson sögu Útgerð-
arfélags Dalvíkinga og Þing-
mennirnir Jón G. Sólnes og
Stefán Jónsson kvöddu sér
hljóðs.
Bæjarráð hefur lagt til, að Rafn
Hjaltalín verði ráðinn bæjar-
gjaldkeri. Auk hans sóttu um
starfið: Hjörtur Tryggvason,
fyrrv. bæjargjaldkeri á Húsa-
vík, Kristján A. Jóhannesson,
bankagjaldkeri, Reykjavík, og
Skúli Jónsson, viðskiptafræð-
ingur, Kópavogi, sá síðasttaldi
með sérstökum skilyrðum.
Heitir Björgúlfur, er 430
tonn og fór strax á veiðar
Rafn Hjaltalín, sem er kenn-
ari, hefur starfað á bæjarskrif-
stofunni síðustu 17 ár í sumar-
leyfum sínum og var áður fast-
ur starfsmaður þar. □
Tryggvi Jónsson forstj. og Guðrún Þor/eifsdóttir, er gaf skipinu
nafn. (Ljósm. E. D.).
Laugardaginn 16. apríl afhenti
Slippstöðin hf. skuttogara til
Útgerðarfélags Dalvíkingú hf.
Hlaut skipið nafnið Björgúlfur
EA 312, og er það 430 lestir að
stærð. Skipið reyndist vel í
reynsluferð og var ganghraði
13,2 sjómílur. Togarinn fór sam-
dægurs í sína fyrstu veiðiferð.
Mesta lengd skipsins er 49,87
m og breidd 9,50 m og var
skrokkurinn smíðaður hjá
Flekkefjord SIipp & Maskin-
fabrik í Noregi, skv. sérstökum
samningi þess fyrirtækis og
Slippstöðvarinnar. Að öðru
leyti er skipið smíðað í Shpp-
stöðinni.
Rúmmál lesta er 438 rúmmetrar
og er þar rúm fyrir 4000 90
lítra fiskkassa. Aðalvél skipsins
er af gerðinni Wichmann, 2100
hestöfl og er hún tengd skipti-
skrúfubúnaði. Hjálparvélar eru
tvær MWM 12 strokka fjórgeng-
isvélar. Vindukerfi er af gerð-
inni Bruselle, togvindur eru
splittvindur, sjóeimari af Atlas
gerð og ísvél frá Finsam FIP,
sem afkastar 10 tonnum af ís á
sólarhring. Skipið er búið öll-
um nýjustu siglinga- og fiski-
leitartækjum. Skipstjóri er Sig-
urður Haraldsson og fyrsti vél-
stjóri Sveinn Ríkharðsson.
Geysir
Hinir árlegu samsöngvar karla-
kórsins Geysis hér á Akureyri
verða í Borgarbíói dagana 28.,
29. og 30. apríl, ennfremur 1.
maí.
Munu samsöngvamir á
fimmtudag og föstudag hefjast
klukkan 7 e. h. en á laugardag-
inn klukkan 5 e. h. Á sunnudag-
inn hefst söngurinn klukkan 3.
Að venju er söngskráin fjöl-
breytt að efni, bæði íslensk og
erlend lög. Kvennakór aðstoðar
í þremur lögunum, en alls eru
13 lög á söngskránni. Sex ein-
söngvarar koma fram með kórn
um, þau Helga Alfreðsdótttr,
Guðrún Kristjánsdóttir, Aðal-
steinn Jónsson, Freyr Ófeigs-
son og Óli Ólafsson. Söngstjóri
er Sigurður Demetz Fransson
og undirleikari Thomas Jack-
man.
Forsala aðgöngumiða að sam-
söngvumun verður í Bókvali.
Mikil svell
Gunnarsstöðum í Þistilfirði 18.
apríl. Mikið snjóaði hér í morg-
un og er kúludráttur á veginum,
segja ökumenn. Snjórinn var
nægur fyrir. Hláka kom á laug-
ardagsmorguninn fyrir páska og
tók þá nokkuð, en hún stóð
stutt og síðan má segja, að hafi
verið vonskuveður. Hér er mik-
ill svellgaddur þegar frá sjó
dregur.
Góð atvinna er á Þórshöfn,
bæði við afla togarans og bát-
anna, sem hafa fengið allgóðan
afla í netin. Grásleppuveiðin er
hafin en lítið gefur á sjó og sjó-
menn tala um mikinn sjókulda
og hafi hann aukið mikið síð-
ustu vikurnar.
Nú spá menn engu um veð-
ur og er skaði að því. Áður
sögðu menn veðurspár sínar
langt fram í tímann, fleiri
menn, og það var svo athugað
hver snjallastur væri. Suma
dreymdi en aðrir tóku mark á
öðrum hlutum í sambandi við
veðurspár sínar. Spámennirnir
eru ýmist gegnir til ferða sinna
eða hættir að spá. Ó. H.
Vortónleikar
Tímabil vortónleika Tónlistar-
skólans á Akureyri er nú að
hefjast. Að þessu sinni verða
alls haldnir sjö tónleikar, og
fara þeir fyrstu fram í Borgar-
bíói næstkomandi laugardag kl.
15, þ. e. 23. apríl. Þá flytja 9
söngnemendur Sigurðar Demetz
lög eftir innlenda og erlenda
höfunda.
Nemendurnir sem koma fram
eru: Aðalsteinn Bergdal, Bjarni
Jónasson, Guðrún Kristjáns-
dóttir, Gunnfríður Hreiðars-
dóttir, Helga Alfreðsdóttir,
Kristinn Jónsson, Magnhildur
Gísladóttir, Óli Ólafsson og Sig-
urður Sigfússon.
Píanóleik annast tveir af
kennurum skólans, þau Anna
Málfríður Sigurðardóttir og
Thomas Jackman. Aðgangur að
tónleikunum er ókepis, en tekið
verður við framlögum til Minn-
ingarsjóðs Þorgerðar Eiríks-
dóttur. (Fréttatilkynning).