Dagur - 20.04.1977, Blaðsíða 5
Norðurlandaferð
Kjördœmissamband framsókn-
armanna í kjördæminu efnir til
Norðurlandaferðar 13. maí og
verður férðin miðuð við allt að
60 manna hóp. Hefur blaðinu
borist nákvæm ferðaáætlun,
sem vegna lengdar sinnar og
takmarkaðs rúms er ekki unnt
að birta í þessu blaði. En þeir,
sem áhuga hafa á ferð þessari
geta snúið sér til Aðalbjörns
Gunnlaugssapiar, Lundi, Guð'-
mundar Bjarnasonar, Húsavík,
Indriða Ketilssonar, Fjalli, Guð-
mundar Magnússonar, Akur-
eyri og skrifstofu flokksins á
Akureyri og fengið þær upplýs-
ingar, sem fyrir liggja. Farar-
stjóri verður Jóna Hansen.
Önnur ferð er fyrirhuguð 7.
júní og er hálfsmánaðarferð til
Grikklands og dvalið á bað-
strönd nálægt Aþenu. □
Skjaldarvík
Bæjarráð hefur heimilað stjórn
dvalarheimilanna að hefja
samningaviðræður við Valgeir
Ásbjörnsson o. fl., sem leitað
hefur eftir að fá á leigu tún og
annað land í Skjaldarvík og að
kaupa vélar og bústofn búsins.
Jafnframt verði athugað, hvort
hagkvæmt sé og ástæða til að
hætt verði búrekstri á jörðinni.
Almennar fryggingar hf.
Amaró
Baugur
Bifreiðaverkstæðið Sniðill hf.
Blómabúðin Laufás
Kaupfélag Verkamanna
Ljósgjafinn hf.
Niðursuðuverksmiðja K. Jónsson & Co hf.
Raforka hf., Glerárgötu 32
Raftækni, Ingvi R. Jóhannsson
Slippstöðin hf.
Valprent hf.
Vélsmiðjan Oddi
Verslunin Drífa
Þórshamar hf.
...........................V.Q ............................
DAGUR•5