Dagur - 20.04.1977, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, miðvikudagur 20. aprfl 1977
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
F. v.: Hjörtur Gíslason, Viðar Eðvaldsson, Bemharð Haraldsson,
Haraldur Ólafsson, Kristján Falsson. (Ljósm. E. D.).
Lyftingamenn í landsliðið
Akureyrskir lyftingamenn
hafa sýnt það og sannað, að
þeir eru komnir langt í sinni
íþrótt. Nýlega voru þrír þeirra
valdir í landslið íslands í lyft-
ingum til að keppa á norður-
landamótinu sem haldið verð-
ur í Reykjavík um næstu
helgi. Þar leiða saman hesta
sína allar norðurlandaþjóðirn-
ar, hver með sína bestu menn
í hverjum flokki. Þeir akur-
eyringar sem valdið hafa verið
eru Hjörtur Gíslason, Har-
aldur Ólafsson og Viðar Eð-
varðsson. Þá var Kristján M.
Falsson valinn varamaður
fyrir sinn þyngdarflokk. Þess-
ir íþróttamenn hafa með þrot-
lausum æfingum og eljusemi
náð þeim árangri að skipa
landslið þjóðar sinnar, og er
það sennilega það sem flesta
íþróttamenn dreymir fyrst og
fremst um. Meðal annarra
frækna kappa í landsliðinu er
Hreinn Halldórsson, nýbak-
aður evrópumeistari í kúlu-
varpi innanhúss, þannig að sjá
má að það eru engir aukvisar
sem skipa landsliðið. Blaðið
óskar piltunum góðs gengis á
norðurlandamótinu og óskar
þeim um leið til hamingju með
glæsilegan árangur.
Brunmót
Nk. laugardag verður haldið á
Akureyri opið mót í bruni, en
ekki hefur verið haldið opin-
bert mót í þeirri grein um
langan tíma. Búist er við
keppendum allsstaðar að af
landinu. Reiknað er með að
brautin verði tilbúinn á sum-
ardaginn fyrsta, þannig að
væntanlegir keppendur geta
æft sig í henni þá og á föstu-
dag, ef veður leyfir. Ætlað er
að allir sem fara í brautina
verði með öryggishjálm, og
mun ekki veita af, því meðal-
hraði í slíkri braut er yfir 100
km á klukkustund. Áhorfend-
ur eru hvattir til að fjölmenna
í Hlíðarfjalli á laugardaginn
og sjá okkar bestu skíðamenn
í brunkeppni.
„Morðsaga"
„Morðsaga“, kvikmynd Reynis
Oddssonar, verður frumsýnd á
Akureyri nk. fimmtudag, sum-
ardaginn fyrsta. Kvikmyndin
hefur verið sýnd við mjög mikla
aðsókn sunnanlands að undan-
förnu. Alls hafa rúmlega 35 þús.
manns séð myndina. Á Akureyri
verður myndin sýnd í Nýja bíói.
Tvær sýningar verða á dag, kl.
9 og 11.
Myndin hefur hlotið mjög
góðar viðtökur almennings og
gagnrýnenda. Gissur Sigurðs-
son skrifar í Dagblaðið: „Mynd-
in er áþreifanlega áminning til
okkar um hvaða spilling, and-
leg og líkamleg er að þróast hér
undir velmegunargrímunni. —
Svokallaður virðulegur auðug-
ur kaupsýslumaður, virtur
vegna auðæfa sinna, reynist
hins vegar ótrúlega rotinn. Kúg-
ar konu sína, heldur reglulega
fram hjá henni og leggur svo
ást á uppeldisdóttur sína.“
Höfundur og stjórnandi
myndarinnar er Reynir Odds-
son, en helstu leikendur eru
Steindór Hjörleifsson, Guðrún
Ásmundsdóttir, Þóra Sigþórs-
dóttir, Róbert Arnfinnsson,
Guðrún Stephensen, Sigrún
Björnsdóttir, Þóra Borg, Pétur
Einarsson og Elfa Gísladóttir. —
Þóra Sigþórsdóttir.
Þúsund tunnur til Sovét
Nú er verið að flytja út eitt þúsund tunnur af málningar-
vörum frá Efnagerðinni Sjöfn til Sovétríkjanna og læt-
ur nærri, að útflutningsverðmætið sé 100 milljónir króna.
Samið var um sölu á 450 tonn-
um af háglans-lakki og verður
búið að afgreiða það í maílok í
vor og er von á viðbótarsamn-
ingi síðar á árinu. Áður hefur
Sjöfn flutt út lakkvörur til sömu
aðila, en ekki í svona stórum
Efnaverksmiðjan Sjöfn, sem
SÍS og KEA eiga til helminga,
-var stofnuð 1932. Reksturinn
hefur löngum gengið vel og
sala hefur aukist mjög á mörg-
um síðustu árunum. Verk-
smiðjustjóri er Aðalsteinn
Jónsson.
Verksmiðjan flutti mikið af
starfsemi sinni í Glerárgötu árið
1972. Framleiðslan er einkum
tvíþætt hin síðari árin, annars
vegar málningarvörur og svo
hreinlætisvörur og hafa máln-
ingarvörumar vinninginn.. En
framleiðsluverðmæti verksmiðj
unnar á síðasta ári nam 575
milljónum króna, en magnið
var 2300 tonn. Starfsfólkið er
um 50, sumir í hálfs dags starfi.
Á rannsóknarstofu vinna fjórir
og er þar stöðugt unnið við eftir-
lit og nýjar vörur kannaðar.
Hreinlætisvörumar eru
margar og kunnar, og af nýjum
greinum má nefna Alfa Beta
til hreingerninga í mjólkuriðn-
aði og öðrum matvælaiðnaði, og
ennfremur framleiðir verksmiðj
Lítill tunnustafli af málningu.
an nú þrjár tegundir af lími
fyrir byggingariðnaðinn, Rex
33, Rex 44 og Rex 55. Sala hef-
ur aukist mjög á Vex-hreinlæt-
isvörunum.
Málningarvörurnar frá Sjöfn
hafa náð vinsældum og vex sala
á þeim ár frá ári, svo sem Poly-
tex-plastmálningunni, Rex olíu-
málningunni og Met-vélalökk-
unum. □
(Ljósm. E. D.).
• Að vinna hjá
sjálfum sér.
Hver maður, sem sjálfum
sér vinnur og er sinn hús-
bóndi, reynir að haga störf-
um sínum þann veg, að hvert
dagsverk hans skili sem mest
um órangri, og einnig, að
vinnan sé eins auðveld og
framast er kostur. Líklega
kemur mismunur á hæfileik-
um manna í þessa ótt, hvergi
betur og greinilegar fram en
við búskapinn, enda krefst
búskapurinn fjölhæfrar þekk
ingar, vitsmuna og dugnaðar.
Auk þess verður hver bóndi
að vinna með hag framtíðar-
, innar fyrir augum og hann
heimtir ekki daglaun sín að
kveldi.
• Að vinna hjá
öðrum.
Oft virðist þessu á annan
veg farið í ýmsum öðrum
starfsgreinum. Þar kemur
einnig fram sú sterka til-
hneiging að hrúga fólki utan
á starfsgreinar, ón þess af-
köst aukist, og er þetta sér-
staklega áberandi hjá sum-
um opinberum fyrirtækjum.
Allir heilbrigðir menn og
konur, sem selja vinnu sína,
vilja skila sómasamlegu
dagsverði, sjólf sín vegna.
Þeir vilja ekki selja svikna
vöru. En viða vill það við
brenna, að verkstjóm er
þann veg farið, að vinnan
verður likari dútli cn vinnu.
• Fréttabréf.
Fréttabréf, gefið út af starfs-
mannaráði Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, flytur
ýmis konar fróðleik og enn-
fremur gamanmál. Þar segir
meðal annars frá því, að á
síðastliðnu ári hafi 620 manns
starfað við sjúkrahúsið, en
margir þó aðeins skamman
tíma og aðrir aðeins hluta úr
starfi. En að jafnaði var
starfsfólk um 250 manns. Til
gamans má geta þess, segir
í fréttabréfinu, að árið 1956
störfuðu um 70 manns við
sjúkrahúsið.
• Áætlunin
stenst ekki.
í viðtali við Torfa Guðlaugs-
son, framkv.stj. Fjórðungs-
sjúkrahússins, kemur fram,
að árið 1971 hafi stjórnvöld
ákveðið, að stækkun sjúkra-
hússins færi fram á átta ór-
um og henni væri lokið
1980, og ætti þá að rúma 240
—250 sjúkrarúm. Með hverju
ári sem nú líður, fjarlægj-
umst við þessa áætlun, segir
Torfi, og með núverandi
byggingarhraða stefniun við
á 20—25 ára byggingartíma,
sem átti að verða 8 ár. Fram
kvæmdastjórinn spáir þvi
þó, að eftir tvö eða þrjú ár
verði verulegur hluti kjarna-
hússins kominn í gagnið, t.d.
skurðdeild með tilheyrandi
aðstöðu.
• Sín ögn af
hvoru.
Og enn segir í Fréttabréf-
inu: Lækningarannsóknir
hafa tekið svo miklum fram-
förum, að nú fínnst varla
nokkur fullfrískur maður. —
Ennfremur: Við aðallyftu
starfsfólks FSA hangir til-
kynning, sem hljóðar svo:
Starfsfólk FSA svo og aðrir
eru beðnir að trimma ó milli
hæða, en brúka ekki lyftuna
að nauðsynjalausu. Vinsam-
lega takið þetta til athugun-
ar og stuðlið að betri heilsu
sjálfra ykkar. Sjáumst í
stigaganginum.
• Staka að vestan.
Eftir að Dagur varð offset-
prentaður, sendi öldruð
kona úr Skagafirði honum
eftirfarandi stöku, sem hér
með er þökkuð:
Ljóminn um þig leikur,
Dagur,
landinn fréttaþyrstur bíður.
Mikið ertu fatafagur
og fágaður á allar síður.
Vorkoman tókst mjög vel
Lionsklúbbur Dalvíkur efndi til
menningarfyrirbæris þar á
staðnum um síðustu helgi, er
nefnd var Vorkoman á Dalvík.
Mjög stór og yfirgripsmikil hús-
gagnasýning var í skólanum og
íþróttahúsinu. Sýndu þar mörg
fyrirtæki, en Augsýn á Akur-
eyri átti þar stærstan hlut. En
húsgögnin voru bæði innlend
og erlend. Ennfremur voru mál-
verkasýningar. Sýndu þar Al-
freð Flóki, Einar Helgason og
Guðmundur Ármann Sigurjóns-
son.
Vorkoman á Dalvík stóð á
laugardag til sunnudags. — Á
laugardaginn las Inga Birna
Jónsdóttir úr eigin verkum og
Pétur B. Lúthersson, húsgagna-
arkitekt flutti erindi. Á sunnu-
daginn las Kristján frá Djúpa-
læk úr verkum sínum. Kristín
Guðmundsdóttir híbýlafræðing-
ur flutti erindi um eldhúsixm-
réttingar og Gísli Jónsson flutti
erindi. Aðsókn var alveg ágæt
og þótti þessi menningarvið-
leitni takast framúrskarandi vel
í alla staði. V. B.
Flugbjörgunarsveit
Akureyrar
Miklar endurbætur og upp-
bygging fara fram á Galtalæk,
þar sem Flugbjörgunarsveitin
hefur aðsetur. Sveitin hefur far-
ið þess á leit við bæjarráð, að
Akureyrarbær veiti félaginu
sjálfsskuldarábyrgð til trygg-
ingar láni að upphæð einnrar og
hálfrar milljóna króna hjá
Byggðasjóði, en jafnframt falli
niður bæjarábyrgð, sem sam-
þykkt var á sl. ári. Bæjarráð
hefur lagt til, að orðið sé við
þessari beiðni. □