Dagur - 26.05.1977, Page 1

Dagur - 26.05.1977, Page 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LX. ARG. AKUREYRI, FIMMTUDAGUR 26. MAl 1977 23. TÖLUBLAÐ m \\m\ nda'iö® pap?" H ■■■■ Tilbúið flugslys Á laugardaginn var flug- slys sviðsett á Norðaustur- landi á vegum Almanna- varnarnefndar. 'Átti flug- vél með 32 mönnum frá Jan Mayen að verða fyrir bilun og nauðlenda á ó- þekktum stað á íslandi og var síðast haft samband við hana á Raufarhöfn. Slysavarnadeildir, flug- björgunarsveitir, hjálpar- sveitir skáta og lögreglan komu nú á vettvang. Vélin fannst við Þverá í Dalsmynni og þar voru þá sviðsettir slasaðir menn, sem komast þurftu undir hendur lækna og hjúkrunar manna og síðan í sjúkrahús. Talið er, að yfir 500 manns hafi tekið þátt í þessari æfingu, og talið, að margt hafi í ljós komið, sem betur mætti fara ef raun- verulegt slys af þessu tagi bæri að. Mun þessi æfing þvf hafa verið lærdómsrík og engin veit hvort eða hvenær slík fyrirhöfn kann að geta borgað sig, jafnvel margfaldlega. í ■ pý'jm Vegir góöir Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar eru flest- ir vegir sæmilegir og lítið grafnir. Klaki er þó víða nokkur í þeim, en þó er von til þess, vegna mikilla þurrka undanfarið, að þeir grafist ekki mikið héðanaf. En víða eru vegir harðir. Vaðlaheiði er ekki leyfð yfir tveggja tonna farar- tækjum, m. a. vegna bil- aðra ræsa. Fljótsheiði hefur verið mokuð, en vegurinn er ennþá lokaður. í Kinn og á Tjörnesi standa yfir viðgerðir á veg- um vegna vatnaskemmda. Skemmdir af vatnavöxt- um, sem mestir urðu á mánudaginn, þegar hitinn fór yfir 20 gráður, urðu hvergi miklar hér í næsta nágrenni, en þó komu víða smáskörð í vegi. Vegurinn á milli Mý- vatnssveitar og Grímsstaða er ófær vegna vatnavaxta og sama er að segja um veginn lengra austur á Fjöllunum. m n Hreyfing í samningunum Lauslegar fregnir herma, að örlítil hreyfing sé á samningamálunum. Vinnu- veitendur lýstu því yfir á þriðjudaginn, að þeir væru reiðubúnir að samþykkja hugmyndir sáttanefndar um að jafngildi 2,5% kaup- taxtahækkunar fari til af- greiðslu á sérkröfum ein- stakra landssambanda, og þykir þetta spor í sáttaátt. Loftmynd af Akureyri, geta, að unnið er fullum krafti við hina stóru vöruskemmu Eimskips á hafnarbakkanum. — Um aðrar hafnarframkvæmdir er það að segja, að þær takmark- ast mjög af fjárskorti, en þó verður unnið . nokkuð að hafn- argerð við Slippstöðina í sumar einkum í sambandi við endur- bætur dráttarbrautarinnar. Skólamálin eru stöðugt í brennidepli. Nýtt og mjög full- komið íþróttahús við Glerár- skóla var tekið í notkun fyrr á þessu ári og ríkir almenn ánægja með það, sérstaklega í þeim bæjarhluta. Verið er að ljúka við austurálmu Oddeyrar- skólans. Upp við Lundarskóla verður í haust tekin í notkun önnur kennsluálma þar. Og fyr- ir liggur að hefja byggingu svæðisíþróttahússins, og strax í byrjun næsta mánaðar verður hafin jarðvegsvinna á bygging- arstað. Það verk var boðið út og bárust tvö tilboð, sem eftir er að semja endanlega um, en þau voru bæði frá fyrirtækj- Framkvæmdaár á Akureyri Helgi M. Bergs, bæjarstjóri gefur blaðinu yfirlit um stærstu málin Þegar blaðið hitti bæjarstjórann á Akureyri, Helga M. Bergs, að máli á miðvikudaginn og leitaði hjá honum frétta af nokkrum stærstu viðfangsefnum bæjar- ins á þessum vordögum, sagði hann efnislega á þessa leið: Hagstæð veðrátta í vetur hef- ur gert okkur kleift að vinna við gatna- og holræsagerð í Gler árhverfi og að því verkefni er unnið. Þar eru einnig Vatns- veita og Rafveita að störfum, og í Glerárhverfi færist nú mest af íbúðabyggingum bæjarins, bæði nú og á næstu árum. Er þessu verki mjög langt komið og fara þá vinnuflokkar bæjar- ins að skipta um jarðveg og lagnir í hinum ýmsu götum bæjarins, svo sem Helgamagra- stræti og styttri götum þar i grennd og víðar í bænum. Mér sýnist, að byggingafélög- in hafi nú þriggja ára verkefni framundan í Glerárhverfi, þar sem fjölbýlishús rísa á úthlut- uðum lóðum. Ennfremur verða byggð einbýlishús og þó meira á næsta ári. Glerárhverfi er nú þegar orðið stór bæjarhluti, en mun vaxa ört á næstu árum. Lundarhverfið verður senn fullbyggt þótt verið sé þar að fara á stað með tvær stórar blokkir, 30 íbúðir hvor, en þar verður um það bil fullbyggt á næsta ári, ásamt nokkrum ein- býlishúsalóðum, sem eftir er að byggja á. Eftir er þó ein stór lóð í þessu hverfi, sem verkamanna- bústaðastjórnin hefur tryggt sér undir fjölbýlishús. Síðan verða allar nýbyggingar norðan Gler- ár. Stærsta verkefni bæjarins er þó hitaveitan og jarðvegsskipti í götum, vatns- og holræsalagn- ir þar sem þörf er á, miðast við hitaveituframkvæmdirnar. — Jarðvegsskiptin verða að ganga á undan og eru þessi verkefni því nátengd. En um leið og hitaveitan er komin í jörðina, er lagning varanlegs slitlags auðvitað óhjákvæmileg fram- kvæmd. Helgi M. Bergs, bæjarstjóri. Bærinn hefur nú tekið all- stórt lán til Rafveitunnar og til hitaveitunnar er búið að taka um 200 milljóna króna lán er- lendis og við höfum sótt um stór lán til viðbótar. Þá er Vatns- veitan með miklar framkvæmd- ir, sem hafnar verða í sumar með byggingu fjögur þúsund Á iðnkynningunni á Sauðár- króki voru menn og fyrirtæki heiðraðir, svo sem hér segir: Landssamband iðnaðarmanna •heiðlraði Hróbjart Jónasson, Guðjón Sigurðsson, Óskar Stef- ánsson, Þórð P. Sighvats, Guð- mund Sigurðsson og Fjólmund Karlsson. Félag íslenskra iðnrekenda heiðraði fyrirtæki, sem starfað tonna geymis í landi Rangár- valla. Vatnsgeymir þessi er tal- inn nauðsynlegur til trygging- ar öruggu neysluvatni í bæn- um, því vatnsþörfin er orðin mjög mikil og nú er vatnið ekki rennandi eins og áður var, held- ur þarf að dæla því hluta leiðar- innar frá Hörgáreyrum á Þela- mörk. í sambandi við hitaveituna er vatns enn leitað, svo sem kunn- ugt er. Enn er ekki ljóst hver árangur verður af þeirri síðustu borholu Jötuns, sem nú er unn- ið að. En ákveðið er að bora í sumar tvær holur með öðrum bor, aðra á Grísará, vestan Eyjafjarðarár, og hina sennilega við Brúnalaug, austan ár. Um nýju vöruhöfnina er það að segja, að viðlegukanturinn er að verða tilbúinn og verður þetta mannvirki tekið í notkun innan skamms. Og þá er þess að um hér á staðnum. Grunninn á að verða hægt að steypa fyrir haustið eða veturinn og e. t. v. loka kjallaranum. En unnið verður fyrir 50 milljónir króna í ár. Fyrirhugað er að koma upp sérkennslu við Lundar- skóla og Glerárskóla í nýjum húsakynnum, og margt fleira er á döfinni í skólamálunum næstu árin. Við höfum vonir um, að bygg- ingar við Fjórðungssjúkrahús- ið komist eitthvað áleiðis á þessu ári. Bærinn á hluta að því, en Innkaupastofnun ríkis- ins sér um framkvæmdirnar. — Fjárskortur hefur tafið fram- kvæmdir meira en okkur líkar. Nýlegur fundur með ráðherrum og þingmönnum gefur tilefni til meiri bjartsýni í þessum efnum en áður, segir bæjarstjóri að lokum, — og þakkar blaðið upp- lýsingarnar. urinn endist okkur fram að há- tíð, þar sem yfirvinnubannið tefur fiskvinnsluna. Eyrún er á netum og aflar lítið. Tveir bátar stunduðu grá- sleppuveiðar á Flatey, en þeir eru komnir heim og söltuðu sam.t í nær 90 tunnur af hrogn- um. Á trillubátum er einnig stunduð grásleppuveiði hér við eyna og hefur aflast nokkuð sæmilega. Svo eru sportmenn- irnir komnir á stúfana með lóru og þeir hafa aflað svona sæmi- lega. Loðna er notuð til beitu. Heilsufar er gott, en viðkoma lítil hjá mannfólkinu, hvernig sem á því stendur. Skóla er lok- ið og börnin frjáls. S. F. Handavinnusýning aldraðra Vistfólk Dvalarheimilisins Hlíð (Elliheimili Akureyrar) heldur handavinnusýningu 30. maí ] (annan hvítasunnudag) kl. 14. Heiðruð á Sauðárkróki Unaðslegir dagar Hrísey 25. maí. Hér er unaðslegt veður og hefur verið svo í marga undanfarna daga, hver dagurinn öðrum betri, allur snjór horfinn, jörðin að grænka, mikið um fugla sem farnir eru að verpa, og Finnur kominn að skoða rjúpuna. Og svo er nægur fiskur, því Snæfellið kom með 160 tonn í fyrradag og landaði þar af 60— 70 tonnum á Dalvík. En afgang- hafa í 25 ár eða lengur: Sauðár- króksbakarí, sem starfað hefur í 50 ár, Trésmiðjan Björk, Tré- smiðjan Ingólfur og Trésmiðja KS. Samband útflutningsiðn- aðarins heiðraði Loðskinn hf., Landssamband iðnverkafólks heiðraði Kristínu Sigurjónsdótt- ur, Margretu Kristinsdóttur, Sigríði Árnadóttur og Jón Jón- asson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.