Dagur - 07.09.1977, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPT. 1977 38. TÖLUBLAÐ
Þrjátíu tilboð
í Hjalteyri
Landsbankanum bárust 30
tilboð í fyrrverandi eignir
Kveldúlfs á Hjalteyri við
Eyjafjörð, en þeim átti að
skila fyrir síðustu mánaða.
mót. Það, sem um er að
ræða eru íbúðarhús, önn-
ur hús, lóðir og lendur. —
Boðið var í einstök hús og
stóra hluta Hjalteyrar.
Næsta skrefið í þessu
máli er það, að bankinn
mun kanna tilboðin, en
bankaráð síðan taka sínar
ákvarðanir. Arnarneshrepp-
ur mun hafa boðið í alla
eignina.
Kaupfélag Eyfirðinga hef-
ur lýst þeim vilja sínum að
styðja heimamenn við að
koma upp atvinnurekstri,
ef sveitarfélagið eignast
staðinn á ný.
Verklegt
iðnnám
Nú er verið að undirbúa
kennslu f verklegri rafiðn
við Iðnskólann á Akureyri.
Bæjarstjóm hafði heímilað
tækjakaup í þessu skyni og
ráðuneytið samþykkt þenn-
an þátt iðnfræðslunnar. Er
þetta samkvæmt þeirri iðn.
fræðslu sem nú er viður-
kennd, að færa hið verk-
lega iðnnám inn í iðnskóla
landsins, eftir því sem unnt
er.
BMW
|B|
Wm
BR
'l'
Framboð
Alþýðubanda-
lagsins
Tilkynnt hefur verið fram-1
boð Alþýðubandalagsins við |
næstu alþingiskosningar í ■
Norðurlandskjörd. eystra, i
og var það ákveðið á kjör- |
dæmisþingi flokksins sem \
haldið var á Akureyri um i
næstsíðustu helgi.
Efstu sætin skipa: Stéfán
Jónsson, alþingismaður, frú
Soffía Guðmundsdóttir,
tónlistarkennari og Helgi
Guðmundsson, húsasmiður,
þau síðartöldu bæði búsett
á Akureyri. Að öðru leyti
hefur ekki verið gengið frá
framboðslistanum.
Kaupa skips-
skrokk?
Slippstöðin hf. á Akureyri
mun hafa áhuga á að kaupa
erlendis nýsmíðaðan skrokk
skuttogara og fullsmíða
hann heima. Ráðamenn
Slippsins fóru utan fyrir
nokkrum dögum, til að
kynna sér þessi mál, m. a.
í Danmörku.
Tímamótafundur bændanna
Yið höfum en fjarlægst þann möguleika að geta flutt út
búvörur okkar, sagði Stefán Vatgeirsson alþingismaður
blaðinu, er það spurði hann um fund Stéttarsambandsins
og horfur í landbúnaði.
Þótt bændur landsins séu all vel
undir vetur búnir, svo sem í
sambandi við fóðuröflunina í
sumar og mikinn heyjaforða eft
ir giöfult sumar, býr bændastétt
in við ýmsa örðugleika. Verðbólg
an hjá okkur vex miklu örar en
í viðskiptalöndum okkar og ger.
ir samkeppnisaðstöðu okkar sí-
fellt verri hvað snertir útflutn-
ing búvaranna. Fyrir nokkrum
árum fengum við erlendis um
80% af framleiðslukostnaði
sauðfjárafurða, eða jafnvel
meira, fáum ekki nema 50% nú,
og enn vex dýrtíðin hjá okkur
meira en í viðskiptalöndunum,
og þar eigum við að keppa við
mjög niðurgreiddar búvörur.
En Stéttarsambandsfundurinn
á Eiðum var að sumu leyti tíma-
mótafundur. Þar sátum við Jón
Hjálmarsson í Villingadal sem
fulltrúar Eyfirðinga, sagði Stef-
án. Sumir stéttarsambandsfull-
trúar hafa á mörgum undan-
förnum fundum samtakanna
lagt fram tillögur um það, að
Stéttarsambandið legði fram
verulega fjármuni til markaðs-
leitar og nú var það samþykkt
í fyrsta sinn að leggja fram til
þessa verkefnis 5 milljón krón-
ur á þessu ári og aðrar 5 millj-
ónir á því næsta, gegn fram-
lögum frá samvinnufélögum og
ríkinu. Ennfremur þarf að vinna
að fjölhæfari framleiðslu úr
okkar búvörum. í því sambandi
má nefna óðalsostinn, sem nú
fæst helmingi meira fyrir en
skorpuostinn, sem mest er flutt
Aðalhitaveituæð Hitaveitunnar
frá Laugalandi til Akureyrar er
rúmir 12 kílómetrar. í henni eru
50 sm stálrör og eru þau á lofti
mestan hluta leiðarinnar, lögð á
steypta steinstöpla. Lagningu
aðalæðar virðist miða vel og
lagning dreifikerfis um bæinn
fer ekki fram hjá bæjarbúum,
því aldrei fyrr hafa götur verið
grafnar upp til jarðvegsskipta
af slíku kappi og nú, enda á að
sameina hitaveitu og malbikun,
að því leyti sem saman getur
farið.
Dælustöðvarhús á Laugalandi
verður fokhelt í næsta mánuði
og fleiri mannvirki eru þar í
byggingu. Gert er ráð fyrir, að
500 hús verði tengd Hitaveit-
unni fyrir áramót.
Gjaldskrá Hitaveitunnar kveð
ur svo á, að fast gjald sé 165
þús. krónur á hvert hús og svo
180 krónur fyrir hvern rúm-
metra til viðbótar. Fyrir 500
rúmmetra fjölbýlishús yrði
kostnaður 255 þúsund krónur.
út af. Nýja , mjólkurstöðin á
Akureyri á einmitt að hafa það
verkefni sérstaklega að fram-
leiða þennan verðmæta ost. Þá
er það hart að flytja út dilks-
skrokkana, eins og þeir koma
fyrir og láta erlenda kaupend-
ur annast vinnslu kjötsins fyrir
hina stóru markaði. Þetta eru
Stefán Valgeirsson alþ.m.
Líklegt er talið, að Landsbank-
inn láni húseigendum hluta
aðeins dæmi til skýringar á
stóru verkefni, sem ekki er
unnt að ganga framhjá. Leita
verður allra úrræða til að afla
vörum okkar góðra markaða og
haga framleiðslu og vinnslu
samkvæmt því.
Mikið var rætt um það,
hvernig á því stæði, að bændur
ná ekki þeim tekjum, sem þeim
eru ætlaðar samkvæmt lögum.
Til þess liggja margar ástæður,
og er nauðsyn úr að bæta, þótt
hér verði ekki gert að umtals-
efni.
Við stöndum frammi fyrir því,
að miklir möguleikar eru nú á
því að auka bústofninn, en
hins vegar liggur það ekki ljóst
fyrir, hve bændur fá mikið fyr-
ir framleiðsluna á síðasta ári.
Stéttarsamb.fundurinn gerði
það að tillögu sinni til stjórn-
valda, að Framleiðsluráð fengi
heimild til að leggja á 8% fóð-
urbætisskatt af innfluttu kjarn-
fóðri, ennfremur að koma á
kvótafyrirkomulagi, sem vel er
þekkt í öðrum löndum, þ. e.
að bændur fái fullt verð fyrir
ákveðið framleiðslumagn, en
aðeins útflutningsverð fyrir það
sem framyfir er. Þetta er sjálf-
sagt eina leiðin til að hafa áhrif
á offramleiðsluna, en á þessu
þessa kostnaðar, allt að tveim
þriðju til tveggja ára.
Heita vatnið er selt sam-
kvæmt hemlum og gjaldið verð-
ur 3300 krónur fyrir hvem mín-
útulítra á mánuði. Miðað við
olíukostnað ætti þetta gjald að
vera 60—70%.
eru þó margir agnúar, sem taka
þarf með í reikninginn. En ljóst
er, að ekki er skynsamlegt að
framleiða vörur, sem ekki er
nema lélegur markaður fyrir.
Þá kom fram á Stéttarsam-
bandsþinginu enn aukinn vilji á
því, að bændasamtökin semji
um verðlag búvara beint við
viðkomandi ríkisstjórnir.
Enn finnst mér vert að benda
á, að mjög mikið af álitlegasta
iðnaði |landsr4anna nú, er
bundinn við búvörurnar, og
verður því að líta á öll þessi mál
í samhengi, sagði Stefán Val-
geirsson að lokum.
Fékk
höfrung
á línuna
Á laugardaginn, þegar Ólafur
Baldvinsson var að draga línu
sína, einn á trillubátnum Sindra
var höfrungur þar fastur meðal
fiska. Hafði hann snúið línuna
utan um sig, og þar sem þetta
var allstór skepna, vel lifandi
og fjörmikil, sótti Ólafur aðstoð
í land. Var þá farið að línunni
á ný, á Frosta og höfrungurinn
skotinn og síðan innbyrtur.
Kjötið reyndist ágætt.
Tónlistar-
skólinn
Á síðastliðnu ári voru 390 nem-
endur innritaðir í Tónlistarskól
ann á Akureyri. Starfsemi skól
ans hefur farið vaxandi ár frá
ári, einnig hefur námsgreinum
farið fjölgandi. Skólinn mun á
þessu hausti eiga erfitt með að
anna eftirspum því, kennslu-
rými er þegar orðið of lítið. Inn-
ritun í skólann stendur yfir
dagana 5.—9. sept. kl. 13—17 í
Hafnarstr. 81 eða í síma 21429
og 21460.
Rörin, sem notuð eru í aðveituæð hitaveitunnar, eru 50 sm víð. (Ljósm. E. D.)
Sinfoníuhljómsveitin á Ak
Sinfóníuhljómsveit tslands er áð leggja upp í tónlistarferð um
landið. Hingað til Akureyrar kemur hún og leikur fyrir skóla-
fólk klukkan þrjú á laugardag og síðan fyrir almenning kl. 21
Efnisskráin er létt og fjölbreytt. í niðurlagsverki tónleikanna
syngja félagar úr karlakórum bæjarins með. Einleikari verður
Guðný Guðmundsdóttir, konsertmeistari, og einsöngvarar þeir
Kristinn Ilallsson og Sieglinde Kahman, en stjómandi er Páll
P. Pálsson. Forsala aðgöngumiða er í Huld.
Hitaveita bæjarins
Hitaveita Akureyrar er stöðugt á dagskrá, þessi stærsta
framkvæmd bæjarins frá upphafi. Nokkur efnisleg at-
riði Hitaveitunnar fara hér á eftir, en ennþá er borað eftir
heitu vatni og getur þar verið tíðinda að vænta hvaða dag
sem er.