Dagur - 07.09.1977, Side 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Uafnarstræti 90, Akureyri
Símar: Ritstjórn 11166, Augl. og afgreiðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðarm.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Sumarið eftir
bjartsýni
Stundum eru menn lengi að átta
sig á einföldum staðreyndum. Það
var nú loks í sumar, að Akureyringar
höfðu áttað sig á því, að þeir hafa
eignast unaðsreit, sem er útivistar-
svæðið í Kjamaskógi, rétt við bæjar-
vegginn. Þangað hefur í sumar bæj-
arfólkið streymt um hverja helgi,
ungir og gamlir, sér til hvíldar og
hressingar, í stað lengri ökuferða á
grýttum og holóttum þjóðvegum. —
Bömin vom hins vegar fljót að
átta sig á nýjum viðhorfum, þegar
farið var að grafa upp götur bæjar-
ins, vegna jarðvegsskipta, malbikun-
ar og lagningu hitaveitu. Þau flykkj-
ast að djúpum skurðunum, sand- og
moldarhaugum og una þar löngum
stundum. Kennarar, sálar-, félags- og
uppeldisfræðingar, auk foreldranna,
geta marga lærdóma dregið af ásókn
bamanna á vinnustaði moldarverks-
manna og hvemig þau nýta aðstöð-
una, þótt hún höfði ekki til hrein-
lætis. Uppalendur hafa enn nægan
tíma til athugana á atferli bamanna,
því bömln eiga margar menningar-
vikur framundan í ræsum og skurð-
um bæjarins, þótt Norræn menn-
ingarvika hinna eldri, sé um garð
gengin fyrir löngu.
Norðlendingar fagna óvenjulega
mikilli fiskgengd á gmnnmiðin í ár.
Smábátaeigendur hafa lent í afla-
hrotum, tvíhlaðið báta sína upp við
landsteina af vænum þorski, eins og
þegar best lét á löngu liðnum ámm
og togaraaflinn hefur gefið 250 þús-
und króna hásetahlut á mánuði. Það
er ekki einungis um aukinn afla að
ræða, heldur betri fisk, vænan hrygn-
ingarfisk í vor, sem fyllti firði og flóa
í stað þess að halda á þekktar hrygn-
ingarstöðvar við Suðvesturlandið. —
Hér hefur mikil breyting á orðið og
rannsóknarefni fiskifræðinga, auk
þess sem friðun fyrir veiðum útlend-
inga á norðurslóðum hlaut að koma
fram. Þá er það ekki síður ánægju-
legt, að óvenjulega mikið magn síld-
ar er að alast upp, t. d. í Eyjafirði,
blandað fullvaxinni síld, svo sem
ljóst hefur orðið í fyrirdrætti við
fjörðinn. Lofar þetta góðu og minnir
jafnframt á það, hversu helstu nytja-
fiskar okkar eru staðbundnir á land-
gmnninu og líta ber á þá sem hjörð
í haga, sem jöfnum höndum ber að
varðveita og nýta, í stað hinna gömlu
veiðisjónarmiða, sem vom algild
fram til síðustu áratuga.
Á þessum síðsumarsdögum fagna
Norðlendingar einnig góðri upp-
skem á ræktuðu landi, túnum og
kartöfluökmm og hugur fólks virð-
ist á þessu ári beinast í vaxandi mæli
að búskap í sveitum. Margar stoðir
renna því undir þá bjartsýni, sem
þetta sumar .hefur á ýmsan hátt
eflt með ungum og öldnum.
Á Þórshöfn er næg vinna en
íbúðaskortur háir vextinum
Þegar blaðið hafði samband við fréttaritara sinn, Óla Hall-
dórsson á Gunnarsstöðum í Þistilfirði fyrir helgina,
ræddi hann um landbúnað, sjávarútveg, framkvæmdir í sveit
og við sjó, og þáttaskil, að bæði er spurt eftir bújörðum og
íbúðum austur þar. Hann segir nú frá:
Á vegum einstaklinga eru sex
íbúðarhús í smíðum á Þórshöfn
og í haust verður byrjað á smíði
þriggja íbúða á vegum hrepps-
ins. Þá er fyrirhugað að hefja
í haust framkvæmdir við dval-
arheimili aldraðra á vegum
þriggja hreppa, Þórshafnar-
hrepps, Sauðaneshrepps og
Svalbarðshrepps.
íþróttavöllur var nær full-
gerður í sumar og batnar við
það íþróttaðastaðan til mikilla
muna. Þetta er stór og góður
völlur, gerður eftir nýjustu
kröfum og á að vera fullkominn
keppnisvöllur. Og byrjað er á
viðbyggingu við grunnskólann
á Þórshöfn og verður grunnur-
inn stevptur í haust.
Götur Þórshafnar eru búnar
undir malbikun og hefur verið
unnið verulega að jarðvegsskipt-
um í sumar, vegna milbikunar
næsta sumar. Yfir standa samn-
ingar við Olíumöl hf. og vonandi
verður olíumöl flutt á staðinn í
haust og hún lögð út á næsta
sumri.
Nú er að taka til starfa
steypustöð á Þórshöfn og fyrsta
steypan frá henni var notuð í
dýralæknisbústað.
Afli hjá færabátum hefur ver-
ið betri en undanfarin ár, en
stærri bátunum hefur gengið
heldur verr. Er þvf um kennt,
að þeir hafi ekki fengið þau net_
sem skipstjórar óskuðu að nota
við veiðarnar. Nú eru stærri
bátar komnir með snurvoð og
reyta mjög sæmilega og er fisk-
urinn góður.
Á þessu ári eru komin á land
2500 tonn á móti 1590 tonnum
allt árið í fyrra. Þar af hefur
togarinn fengið 1500—1600
Óli Halldórsson
á Gunnarsstöðum.
tonn, en bátamir eru með um
1000 tonn og er það eins mikill
afli og þeir fengu allt árið í
fyrra.
Framkv.stjóraskipti urðu við
hraðfrystistöðina. Helgi Jónat-
ansson, sem þar hefur verið
framkvæmdastjóri, flytur vest-
ur á Patreksfjörð, en við starfi
hans tekur Axel Axelsson, sem
verið hefur skrifstofustjóri hjá
Þormóði ramma á Siglufirði.
Dýralæknirinn, sem hér hef-
ur verið, Rögnvaldur Ingólfsson,
flutti vestur í Búðardal, en við
tekur Ragnar Ragnarsson. Hér-
aðslæknaskipti eru svo tíð, að
þau eru ekki fréttnæm, en
sennilega verðum við læknis-
lausir um mánaðarskeið og þá
þjónar hjá okkur Vopnafjarðar-
læknir á meðan.
Snyrting húsa og umhverfis
hefur verið á dagskrá á Þórs-
höfn í sumar. Kaupfélagshúsin
hafa öll verið máluð, svo dæmi
sé tekið og mörg önnur hús,
svo nú er munur á orðinn.
Mjög mikið er spurt eftir
íbúðum á Þórshöfn. Þar vantar
húsnæði en ekki atvinnu.
Heyskap er að mestu lokið, en
þó ekki alveg og til dæmis veit
ég um tvo bændur, sem enn
eiga verulegt hey úti, en þeir
eru að heyja á eyðibýlum. Þótt
þeir eigi e .t. v. nægilegt hey,
vilja þeir nýta þennan mögu-
leika, enda veit enginn um það,
hvenær mestra iheyja verður
þörf.
Heyin eru nú mikil að vöxt-
um og sæmileg að gæðum, svo
útlitið er sæmilegt að þessu
leyti.
Féð hefur komið heim undir
tún nú í kuldanum. Enginn veit
ennþá um vænleika þess, en
menn vona hið besta. Þó er því
ekki að leyna, að oft er féð ekki
sérstaklega vænt eftir mikil
grassumur, hvernig sem það
verður nú. En hagi er mjög
vel grænn ennþá.
Byggingaframkvæmdir hafa
verið allmiklar hér í sveitinni í
sumar. Á einum bæ var byggð
votheyshlaða, á tveim bæjum
eru fjárhús komin undir þak
og á þriðja fjárhúsinu sá ég
fyrstu sperrurnar reistar í gær,
og enn má nefna það, að á fjórða
bænum er verið að steypa upp
fjárhús.
Ræktunarframkv. mættu ef
til vill vera meiri, en við erum,
svo smáir, að við höfum ekki
haft ráð á því að eiga sjálfir
jarðýtu og það er undir hælinn
lagt hvemig okkur gengur á
sumrin, að fá slík tæki leigð,
en á þeim tíma hafa jarðýtum-
ar jafnan mest verkefni, svo
sem við vegagerð og önnur
stærri verk, auk þess, sem þeim
fylgja sjaldnast þau tæki, sem
til jarðvinnslunnar þarf.
Til tíðinda má teljast hér um
slóðir, að spurst er fyrir um
jarðir til búsetu og virðist fólk
bæði hafa áhuga á kúabúskap
og sauðfjárbúskap. En hins veg-
ar veit maður ekki hve mikil
alvara er þarna á bak við. Það
þarf mikið til, þegar hafinn er
búskapur á eyðijörðum, þar
sem íbúðarhús og önnur hús
þarf að bvggja upp að meira eða
minna leyti. En það hefur þó
gerst, að spurt hefur verið um
bújarðir til ábúðar og sýnir það
áhuga á sveitabúskapnurri.
Brimbrjóturinn á Þórshöfn
var í sumar lengdur um 40
metra og á næsta ári verður
dælt úr höfninni. Stækkun
hafnarinnar og dýpkuix er að-
kallandi verkefni vegna sjávar-
útvegsins.
Verslun K.S. bvggð á Ketilási
Togarinn er að koma
Spretta var heldur seint á ferð-
inni í sumar. Stirð heyskapartíð
var í júlímánuði og hey munu
þá eitthvað hafa hrakist á sum-
um stöðum. En upp úr mánaða-
mótunum skipti um og síðan
var samfelldur þurrkur til höf-
uðdags. Þá hirtu menn hey sín
og heyskap er að verða lokið.
Það er aðeins á stöku stað, sem
enn má sjá hey, sem eftir er að
koma undir þak. Hey eru meiri
að vöxtum, en áður hefur verið.
Slátrun mun hefjast um miðj-
an september. Það er ljóst, að
sauðfé fjölgar í Skagafirði, en
þó eru engar stökkbreytingar í
því efni.
Á Sauðárkróki hefur verið
óhemjumikil vinna, enda standa
miklar framkvæmdir yfir og má
þar nefna gatnaframkvæmdir.
unnið er eftir sérstakri gatna-
gerðaráætlun sem bæjarstjórn
setti sér fyrir nokkrum árum.
Nú er verið að skipta um jarð-
veg í götum og er þar ákveðnu
verki lokið og þá tekur malbik-
unin við. Verða nú malbikaðir
tæpir tveir kílómetrar í götum.
Eyrarvegur verður malbikaður
og ennfremur verður malbikað
Guttormur Óskarsson,
fréttaritari Dags í Skagafirði.
við höfnina. En við höfnina var
steypt mikið gólf á hafnargarð-
inn og verður nú malbikað við
'hliðina á því. Og stefnt er að
því að „koma frystihúsunum á
malbik“, eins og verkfræðingur
orðaði það í gær.
Byggingarvinna hefur verið
mjög mikil. Bæði er byggt mik-
ið af einbýlishúsum og fjölbýl-
ishús er í smíðum, leiguíbúða-
húsnæði sveitarfélagsins. Þá er
þess að geta, að heimavist gagn-
fræðaskólans verður tekin í
notkun nú í haust, fullsmíðuð.
Kaupfélag Skagfirðinga er að
byggja verslunarhús á Ketilási.
Kaupfélag Skagfirðinga tók við
Samvinnufélagi Fljótamanna
sem hafði verslun á Haganes-
vík. Verslunin verður flutt að
Ketilási. Veginum hefur þegar
verið Ibreytt og liggur hann
framhjá Haganesvík, en ekki
þar í gegn, svo sem áður var.
Afli hjá heimabátum hefur
verið góður og togararnir hafa
aflað vel á þessu ári, betri en
áður. Útgerðarfélagið seldi einn
togara sinn, Hegranesið, en er
búið að kaupa 450 smálesta tog-
ara í Frakklandi, nýlegan og er
hann væntanlegur hingað eftir
nokkra daga. Fyrir eru Drang-
ey og Skapti.
I Skagafjarðarsýslu eru í ár
29 íbúðarhús í smíðum, 21 fjós-
bygging, 15 mjólkurhús og 19
haughús. Þá eru 17 fjárhús í
smíðum, 16 áburðarkjallarar og
14 þurrheyshlöður. Ennfremur
4 votheyshlöður og 6 véla-
geymslur.
Af öllu þessu má sjá, að það
er almennur framkvæmdahug-
ur í bændum og búaliði enda
heyrist enginn uppgjafartónn
þegar sveitafólkið er tekið tali.
Áhugi á mörgum sinnum
fleiri byggingum er fyrir hendi
og þörfin kallar víða að. Hins-
vegar er lánsfé af skornum
skammti og eigið fé bændanna
takmarkað. En allt miðar þó í
rétta átt, hvort sem allir sætta
sig við hraða þróunarinnar.
(Samkvæmt símtali við G. Ó.,
Sauðárkróki).
4 • DAGUR
Brú á Mjóadalsá
Stórutungu 2. september. Nú
hefur kólnað í veðri eftir gott
og gjöfult sumar. Spretta varð
góð, þótt seint gréri og hey hirt
ust eftir hendinni og eru þau
mikil að vöxtum. Allmikið af
heyinu var vélbundið og er það
drýgra upp á hlöðuplássið. Á
þrem bæjum eru í sumar byggð-
ar heyhlöður, á Amdísarstöðum,
Þóróflur Jónsson, Stórutungu.
Lundarbrekku og Stórutungu,
og var hey sett í tvær þeirra. Á
Sandhaugum stendur yfir fjós-
bygging.
Samkvæmt áætlun er nú ver-
ið að byggja brú á Mjóadalsá,
skammt neðan við Mýri, en sú
er á Sprengisandsleið og mest-
ur farartálmi. Brúin verður stál-
bitabrú á fjórum stöplum með
timburgólfi og verður lokið við
hana í haust. Yfirsmiður er Gísli
Gíslason, brúarsmiður. Mjóa-
dalsá er dragá og rennur eftir
Mjóadal.
Bændur vilja ekki spá miklu
um vænleika dilka, en telja lík-
ur á, að þeir verði í meðallagi
vænir. Það stjrttist til gangn-
anna. Grös eru enn í blóma að
heita má.
Hinn 27. ágúst var almenn
samkoma haldin í samkomuhús-
inu og gekkst ungmennafélagið
Eining fvrir henni, en samkoma
þessi gekk undir nafninu upp-
skeruhátíð. Var þar minnst
góðrar uppskeru sumarsins með
gleðskap og söng. Á vegum
sama félagsins starfar umgengn-
isdómnefnd. Eru veitt verðlaun
fyrir besta umgengni á heimili
og eru þau farandgripur. Verð-
launin hlaut að þessu sinni
Bjarnastaðaheimilið. Þ. J.
Mikið borðað af sykrinum
Lækningavörur fyrir 1000
milljónir
Brátt náum við 50 kílóa árs-
neyslu af sykri eða gerum það
e. t. v. á þessu ári. En síðastliðið
ár var neyslan til jafnaðar nær
49 kíló. Þótt sykurinn sé góð
fæðutegund að vissu marki,
þykir læknum sem hér sé um
ofneyslu að ræða og hana mjög
skaðlega heilsu manna. Áður
þjáði ófeiti mannfólkið hér á
landi, en nú offita, og með henni
hinir mörgu fylgikvillar, sem
of mikið sykurát á meðal ann-
ars drjúgan þátt í. Munu fáar
eða engar þjóðir neyta eins mik-
ils sykurs og íslendingar.
Um sykurneysluna birta Hag-
tíðindi tölur um sykurátið, en
einnig segja þau, að kaffineysl-
an hafi staðið í stað milli ár-
anna 1975 og 1976. íslendingar
nota að meðaltali 9 kíló af kaffi
á ári. Kaffineyslan er því all-
mikil, en þess ber að geta að
teneyslan er mun minni hér á
landi en meðal flestra annarra
nálægra þjóða.
Og enn kemur það fram í
fréttum Hagtíðinda, að áfengis-
neyslan var 2,86 lítrar að meðal-
tali á mann á síðasta árí og til
viðbótar 13,4 lítrar af bjór. —
Þessi áfengisneysla er ekki mik-
il, miðað við nágrannalöndin,
en hér á landi eru þó nokkur
þúsund áfengissjúklingar. Bjór-
drykkja er hinsvegar hverfandi,
enda e'kki leyfð framleiðsla né
sala á sterkum bjór eða sterku
öli hér á landi.
Á síðasta ári voru flutt inn
um 320 tonn af vörum til lækn-
inga fyrir rétt innan við 1000
milljónir króna.
Veigamesti hlutinn var að
sjálfsogðu lyf alls konar, en þau
námu rúmlega 284 tonnum, að
verðmæti rúmlega 874,5 milljón-
um króna. Lyf voru flutt inn frá
20 löndum, en mest þó frá Dan-
mörku, Vestur-Þýskalandi, Bret-
landi, Svíþjóð, Sviss og Noregi.
Lyf voru flutt inn í litlu
magni frá ýmsum fjarlægum
löndum, svo sem Japan, Suður-
Kóreu, Panama, Bermúdaeyj-
um og ísrael.
Kjördæmisþing Framsóknar
manna var á Húnavöllum
Laugardaginn 3. september var
haldið Kjördæmisþing Fram-
sóknarmanna í Norðurlands-
kjördæmi vestra. Var þangið
haldið á Húnavöllum og sóttu
75 fulltrúar það úr öllum byggð-
arlögum kjördæmisins.
Ólafur Jóhannesson ráðherra
og formaður Framsóknarflokks-
ins hélt á þinginu erindi um
stjórnmálaviðhorfin, en að því
loknu urðu miklar umræður. I
máli manna kom fram mikill
áhugi á framgangi flokksmál-
efna í þeim átökum sem fram
undan eru.
Kjördæmisþingið samþykkti
að efna til skoðanakönnunar í
kjördæminu til undirbúnings
framboði fyrir Framsóknar-
flokkinn í næstu alþingiskosn-
ingum.
Að sögn Guttorms Óskarsson-
ar samþykkti kjördæmisþingið
með lófataki að óska þess að
Ólafur Jóhannesson skipaði
áfram fyrsta sætið á framboðs-
lista flokksins. En Ólafur Jó-
hannesson afþakkaði að taka
sætið án skoðanakönnunar, ef
efnt yrði til hennar um önnur
sæti listans. „Mér er ekki vand-
ara um en öðrum að taka þátt
í skoðanakönnuninni,“ sagði
Ólafur.
Guttormur Óskarsson á Sauð-
árkróki var endurkjörinn for-
maður kjördæmissambands
Framsóknarmanna í Norður-
lands^jördæmi vestra.
KA feti frá 1. deild
Á laugardag léku í Sandgerði
KA og Reynir í 16. umferð
2. deildar í knattspyrnu. Að
sögn Þormóðs Einarssoriar var
leikið við mjög erfiðar aðstæð-
ur. Mikið rok var í Sandgerði,
um það bil 7 vindstig og stóð
rokið þvert á völlinn. — Við
þessar aðstæður, sagði Þor-
móður, að erfitt væri að leika
knattspyrnu, en þó taldi hann
heimamenn hafa hagnast á að-
Norðurlandsmót
í frjálsum
Norðurlandsmót í frjálsum
íþróttum var haldið á Sauðár-
króki um síðustu helgi. Sex fé-
lög og héraðssairibönd tóku
þótt í mótinu, og var Ung-
mennasamband Skagfirðinga
framkvæmdaraðili. Nokkuð
góður árangur náðist í nokkr-
um greinum, og voru sett
héraðsmet. í stigakeppni fé-
laga sigraði KA frá Akureyri
í karlaflokki, en UMSE í
kvennaflokki. I samanlögðu
sigraði KA með 136 stig og í
öðru sæti var UMSE með
116,5 stig. Úrslit í einstökum
greinum urðu þessi:
100 m hlaup kvenna.
Sigr. Kjartansd. KA 12,4
Oddný Ámadóttir UNÞ 12,7
Hólmfr. Erlingsd. UMSE 12,9
100 m hlaup karla.
Hjörtur Gíslason KA 11,2
Aðalst. Bernh.son UMSE 11,3
Jóh. Ottósson UMSS 11,5
Kúluvarp karla.
Páll Dagbjarts. UMSS 12,87
Björn Ottósson UMSS 12,64
Þóroddur Jóh.s. UMSE 12,28
Langstökk kvenna.
Sigr. Kjartansd. KA 4,85
Ragna Erlingsd. HSÞ 4,75
Oddný Ámad. UNÞ 4,75
Hástökk karla.
Þórður Njálsson USAH 1,84
Hjörtur Einarsson HSÞ 1,74
Stefán Magnúss. UMSE 1,59
Gunnar Gíslason KA 1,59
400 m. hlaup karla.
Aðalst. Bemh.s. UMSE 53,1
Steind. Helgason KA 54,5
Ingib. Guðm.s. USAH 56,0
Langstökk karla.
Aðalst. Bernh.son IJMSE 6,00
Gísli Pálsson UMSE 5,84
Hjörtur Gíslason KA 5,65
1500 m. hlaup kvenna.
Sigurbj. Karls.d. UMSE 5.46,2
Vilb. Björgv.d. UMSE 5.52,1
Þór. Sig.d. KAA 5.53,5
1500 m lilaup karla.
Þór. Magnúss. UMSS 4.25.5
Jónas Clausen KA 4.27,5
Steind. Tryggvas. KA 4.27,7
Spjótkast karla.
Baldv. Stefánsson KA 52,87
Jóh. Ásl.son UMSE 50,00
Ingib. Guðm. USAH 48,00
Kúluvarp kvenna.
Guðný Halld.d. UNÞ 9,05
Þórdís Friðbj.d. UMSS 8,83
Ragna Erl.d. HSÞ 8,42
4x100 m boðhlaup kvenna.
1. sveit UMSE 54.4.
4x100 m boðhlaup karla.
1. sveit KA 48,1.
200 m. hlaup kvenna.
Sigr. Kjartansd. KA 26,1
Hólmfr. Erl.d. UMSE 26,8
Oddný Árnad. UNÞ 26,8
200 m hlaup karla.
Hiörtur Gíslason KA 23,4
Aðalst. Berrih.son UMSE 23,5
Gísli Pálsson UMSE 24,1
800 m hlaup karla.
Þór. Magn.son UMSS 2.02,6
Steind. Tr.son KA 2.03,08
Jónas Clausen KA 2.08,8
800 m hlaup kvenna.
Sigr. Kjartansd. KA 2.37,0
Sigurbj. Karlsd. UMSE 2.38,0
Ragna Erl.d. HSÞ 2.42,0
Þrístökk karla.
Aðalst. Bernh.s. UMSE 12,59
Gísli Pálsson UMSE 11,97
Karl Lúðvík.sson USAH 11,70
Stangarstökk.
Auðunn Bened.son UNÞ 3,20
Benedikt Bragason HSÞ 3,20
Karl Lúðvíksson USAH 3,00
Spiótkast kvenna.
Vald. Hallgr.d. KA 29,80
Þómnn Sig.d. KA 25,37
Elva Jóhannesd. UMSE 23,34
Kringlukast karla.
Páll Dagbjarts. UNSS 35,90
Birgir Friðr.son UMSS 35.88
Þór. Jóh.son UMSE 31,00
3000 m- hlaup karla.
Jónas Clausen KA 9.54,7
Steind. Tryggvas. KA 9.59,9
Jón Illugason HSÞ 10.02,2
Hástökk kvenna.
Sigurb. Karlsd. UMSE 1,40
Guðrún Hösk.d. UMSE 1,35
Hulda Agnarsd. USAH 1,35
1000 m boðhlaup karla.
1. A sveit KA 2.10.5.
Það virðist nú aðeins vera
formsatriði fyrir Reynir Ár-
skógsströnd, að ljúka leikjum
sínum í 2. deild, en liðið er nú
þegar dæmt til að leika í 3.
deild næsta ár. Á laugardag-
inn léku þeir við nýliðana í
deildinni, Þrótt frá Neskaup-
stað. Leikurinn var fjörugur
og skemmtilegur. Þróttarar
skoruðu fyrsta markið og
þannig var staðan í hálfleik.
í seinni hálfleik fóru síðan
mörkin að koma og lauk leikn-
um með sigri Þróttar, þremur
mörkum gegn tveimur. Bæði
mörk Reynis skoraði Björgvin
Gunnlaugsson. Bæði liðin áttu
nokkur ónotuð tækifæri, en
sigur Þróttar var verðskuld-
aður, þar er þeir vom betri
aðili leiksins.
Næstu leikir
Næstu leikir í deildinni verða
í kvöld, miðvikudag, en þá
leika í Sandgerði Reynir og
Haukar, og á laugardag leika
síðan KA og Reynir, Árskógs-
strönd, á Akureyri, Ármann
og Reynir, Sangerði, Þróttur
Neskaupstað og Þróttur,
Reykjavík, Haukar og Selfoss
stæðunum, þar er þeir væm
rokinu vanir. KA tók snemma
forustu í leiknum með góðu
marki Gunnars Blöndals, en
hann skallaði í markið eftir
góða fyrirgjöf frá Sigurbirni.
Þannig var staðan í hálfleik,
eitt mark gegn engu fyrir KA.
Þessi staða hélst þar til um
það bil fjórar mínútur vom
eftir af leiknum, en þá gerði
Óskar Ingimundarson annað
mark KA, en hann var þá rétt
kominn inná völlinn eftir að
leikmannaskipþi höfðu farjð
fram. Tveir af fastamönnum
KA léku ekki með í þessum
leik, þeir Jóhann Jakobsson,
sem var meiddur, og í hans
stað lék Ólafur Haraldsson, og
Guðbergur Ellertsson var ekki
í markinu í dag, en þar var
Ævar Jakobsson og stóð sig
mjög vel. Bæði liðin áttu
nokkuð af tækifærum í þess-
um leik, sem þeim tókst ekki
að nýta, en hvað Þormóður þá
norðanmenn hafa átt nokkuð
meira í leiknum. Lið Reynis er
skipað ungum og frískum leik-
mönnum, sem eflaust eiga
eftir að standa sig Vel í fram-
tíðinni.
Golf
Síðustu helgi var tvenns kon-
ar golfkeppni á Golfvellinum
á Akureyri. Annars vegar var
keppt um Nafnlausa bikarinn,
og hins vegar var drengjamót
GA. Keppnin um Nafnlausa
bikarinn er forgjafakeppni,
þannig að þrír fjórðu úr for-
gjöf gilda, en drengjakeppnin
er full forgjafakeppni. Leikn-
ar voru 18 holur í báðum
keppnum. Úrslit urðu þessi.
Nafnlausi bikarinn.
1. Einar Guðnason 74 högg.
2. Frímann Gunnl.son 75 högg
3. Ingim. Árnason 77 högg.
Drengjakeppnin.
1. Jón Þór Gunnarss. 64 högg.
2. Björn Kristinsson 72 högg.
3. Baldur Sveinb.son 75 högg.
Enn tapar Reynir
Önnur
úrslit
Önnur úrslit sextándu umferð-
ar urðu þau, að Þróttur,
Reykjavík, vann stórsigur á
Völsungum, sjö mörk gegn
einu. Selfoss og ÍBÍ gerðu jafn-
tefli eitt mark gegn einu, og
Haukar unnu Ármpnn með
einu marki gegn engu. Þrótt-
arar eru ennþá efstir í deild-
inni einu stigi á undan KA, og
því næst koma Haukar tveim-
ur stigum á eftir KA. Það er
því ekki útséð ennþá hvaða
lið það verða sem leika í 1.
deild á næsta ári, en það verða
örugglega tvö af þessum þrem
liðum, sem upp voru talin.
DAGUR•5