Dagur - 21.09.1977, Side 8
DAGUR
Qi: :l«
®
MONRO-MATIC ®
SHOCK ABSORBER
HÖ66ÐEYFAR
í FLESTA BÍLA
100 ár liðin frá fyrstu blaða-
útgáfu Vestur-íslendinga
Þann 10. september var liðin
öld frá því að fyrsta vikublaðið
á íslensku var prentað vestan-
hafs. Það var Framfari, sem
hóf göngu sína 10. sept. 1877,
gefinn út af Prentfélagi Nýja ís-
lands í Kanada, sem stofnað var
af ýmsum áhugamönnum í ný-
lendunni í janúar það sama ár.
Forgöngumenn og fyrstu rit-
stjórar blaðsins voru eyfirskir
og þingeyskir hugsjónamenn,
Sigtryggur Jónasson frá Möðru-
völlum í Hörgárdal, Jóhann
Briem, mágur Sigtryggs, frá
Grund í Eyjafirði, Halldór
Briem, einnig frá Grund, og
Friðjón Friðriksson frá Harð-
bak á Sléttu. Prentari fyrsta
árið var Jónas Jónasson, bróðir
Sigtryggs.
Af Framfara komu út tveir
árgangar, alls 77 tölublöð, en
Sigtryggur gaf sjálfur út eitt
tölublað með sama nafni, án
árgangstölu og númers. Upp-
lagið af Framfara var 600 ein-
tök og kaupendur að langmestu
leyti í Kanada, en aðeins 50 hér
á landi.
í tilefni aldarafmælis þessa
fyrsta íslenska blaðs í Vestur-
heimi hafa öll blöðin verið ljós-
prentuð og bundin í eina bók,
sem er mjög vönduð og eigu-
leg. Á saurblöðum er teikning
af leiðinni, sem landnemarnir
íslensku fóru. Þá eru vönduð
titilblöð í tveim litum, prentuð
á íslensku og ensku, og þar
greint frá öllum, sem unnu að
gerð þessarar bókar og ítarleg-
ur formáli er þar eftir Árna
Bjarnarson. bókaútgefanda á
Akureyri. En útgefendur eru
þeir Árni Bjamarson og Heim-
ir Br. Jóhannsson, Reykjavík.
Ámi Bjaraarson með hina sérstœðu bók, Framfara (Ljósm. E. D.).
Ný hús rísa á lllugastöðum
Að Illugastöðum í Suður-Þing-
eyjarsýslu hefir um árabil ver-
ið rekið orlofsheimili á vegum
verkalýðsfélaga. — Alþýðusam-
band Norðurlands á jörðina 111-
ugastaði, en orlofshúsin, sem nú
eru 19 að tölu, eru í eigu ýmissa
verkalýðsfélaga.
Húsin hafa jafnan verið full-
nýtt yfir sumartímann og notk-
un þeirra haust og vor hefur
farið vaxandi. Alþýðusamband
Norðurlands hefur nú ákveðið
að gangast fyrir byggingu fleiri
húsa, sem reist verða í nám-
unda við hin sem fyrir eru. Út-
boð varðandi byggingu þeirra
hefir þegar farið fram og munu
framkvæmdir hefjast nú í haust
og stefnt er að því að nokkur
húsanna verði tilbúin til af-
hendingar sem fyrst á næsta
sumri. Nýju húsin eru smíðuð
eftir sömu teikningu og þau
sem fyrir eru, en reynslan af
þeim er mjög góð.
Að Illugastöðum er hlýlegt
umhverfi, kyrrð og mikil veð-
ursæld og hefur dvölin þar jafn-
an verið rómuð mjög af þeim
sem þar hafa eytt orlofi sínu,
og segir það sína sögu, að sama
fólkið sækist eftir að komast
þangað aftur og aftur. í kjall-
ara eins hússins er starfrækt
verslun
Málverkasýning
Tryggva Hansen
Ungur Akureyringur, Tryggvi
Hansen, heldur sýningu á vatns-
litamyndum í Súlnabergi og
hefst hún á morgun, fimmtudag.
Þetta er sölusýning og verðið
fremur lágt. Myndirnar eru
sextán talsins og af þeim tvær
svarthvítar eða blekmyndir, en
hinar, eins og áður segir, vatns-
litamyndir. Ekki er ákveðið
hvenær sýningunni lýkur.
(Ljósm. B. I.)
Göngur og réttir í Grýtubakkahreppi,
Akureyri, sagði maður nokk-
ur og rökstuddi fullyrðing-
una með fræknisögum. Má
vera að rétt sé. En öðru
hverju koma á skrifstofuna
menn og konur, sem hafa
aðrar sögur að segja úr um-
ferðinni, en hetjusögur góðra
bílstjóra, og þetta fólk rök-
styður fullyrðingar sínar um
svo mörg og furðuleg afglöp
ökumanna (og kvenna þar
með) í umferð, einnig gang-
andi fólks og hjólandi, að
furðulegt er. Má vera að rétt
sé frá sagt, og er rnargt sem
styður það. En það er ekki
þvf að kenna, að bílstjórar
kunni ekki að aka, heldur
vegna þess að eftirlit í lun-
ferð er lítið. Of tíð slys
minna á þetta málefni.
• Umferðavika
nauðsynleg.
Akurnesingar hafa umferða-
viku að þessu sinni. Þar fær
lögreglan ýmsa aðila sér til
aðstoðar við að koma á
þeirri umferðamenningu,
sem að ber að keppa, þ. e.
greiðri og þó fyrst og fremst
slysalausri og tillitstiamri
umferð. Lofað er vægum eða
engum refsingum fyrir lítil
brot, en hörðum fyrir meiri-
háttar afglöp við akstur. —
Leiðbeiningum 6 staðnum,
námskeið í umferðareglum,
jafnvel skyldunámskeið, og
háar sektir við grófum um-
ferðabrotum eru eftirtektar-
verð atriði til umhugsunar.
En eigum við ekki að taka
okkur Akranes til fyrir-
myndar í því að halda um-
ferðaviku, þar sem vitað er,
að bæði einstaklingar og sam
tök myndu fúslega og af
miklum áhuga koma til að-
stoðar, ef óskað væri. Þess-
ari tillögu er hér með kom-
ið á framfæri.
• Hinir alsælu.
Svo vitnað sé til orða Krist-
jáns skálds frá Djúpalæk, er
skömmu, þar sem hann
minntist á þjóðfélag sérfræð-
inganna á okkar tímum,
sagði hann:
Ekki er nú útlit fyrir al-
sælu allra. Hinir alsælu
myndu ekki þurfa að drekka
brennivín fyrir milljónir um
hverja helgi. Hinir alsælu
myndu ekki þurfa að kaupa
eiturlyf fyrir enn fleiri
milljónir og sálarheill, ef
þjóðfélagið gengi í takt við
vilja þeirra. Öld geðdeild-
anna og sálfræðiþjónustunn
ar ber sjálfri sér heldur lé
legt vitni. Sjálft orðið sál-
fræði verkar raimar á mann
eins og mismæli þá áratug-
ina, sem sál er yfirleitt ckki
viðurkennd staðreynd, eins
og t. d. botnlanginn.
• Hugsjónir.
Einhver snertur af óþreyju
mun herja á þann ung-
mennaskara, sem ekur á
hundraði milli skemmtistaða
í leit að keyptri afj)reyingu
í líki hávaða, ellegar hinn
hópurinn, sem þreytir enda-
laust flug suður að Miðjarð-
arhafi. Nei, það virðist ekki
vera óblandin gleði í hug
þjóðarinnar, þótt hún megi
skrifa nafn sitt með stórum
staf, eigi milljón, hafi fjöl-
brautarskóla og bráðum gler-
þak yfir Aðalstræti — þjóð-
in, sem ekki er lengur sam-
an sett af konum og körlum,
heldur kynlausum starfs-
kröftum. En hvað ætli sé þá
að? Sverrir Kristjánsson
sagði eitt sinn í grein: Ef ég
væri beðinn að nefna þá kyn-
slóð, sem ég teldi sælasta
allra kynslóða í fslandssögu,
er það fólkið, sem
sem komst til þroska á ára-
bilinu frá 1840—1850, tíma-
bil Fjölnismanna og Jóns
Sigurðssonar. Og ég held að
svarið við spurningunni,
hvers vegna Sverri fannst
þetta, sé auðfundið: Þjóðin
hafði eignast hugsjón, sam-
eiginlegt takmark að keppa
að.
íslenskur heimsmeistari í skák
Jón L. Ámason varð sigurvegari í heimsmeistarakeppni
unglinga í skák, sem haldin var í Frakklandi. Þátttakendur
voru innan 17 ára aldurs. — Með sigri sinum hlaut Jón titil-
inn: Heimsmeistari unglinga í skák. Er hann fyrsti íslend-
ingurinn, sem þá nafnbót hlýtur, eftir keppni á erlendri
grund í skákíþróttinni.
Bjóða óflokkaðar kartöflur
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur,
Akureyri, ætlar á laugardag-
inn að bjóða kartöflur, óflokk-
aðar í 25 kg pokum, samkvæmt
óskum væntanlegra kaupenda.
En kartöflur þessar hafa félag-
arnir sjálfir ræktað í sumar og
ágóðanum verður varið til líkn-
armála, eins og bæjarbúar
kannast við.
Kiwanisfélagar verða í Hafn-
arstræti 19 (áður heildverslun
Valgarðs Stefánssonar). Þar
verður tekið á móti pöntunum.
En einnig má panta í síma
21544, 21818 og 21513. Eins og
verðið ber mér sér, er líklegt
að margir bæjarbúar óski að
eiga viðskipti við Kiwanismenn
á laugardaginn.